Morgunblaðið - 09.10.1985, Side 30

Morgunblaðið - 09.10.1985, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER1985 Amarflug: Mikil aukning í vöruflutningum VÖRUFLUTNINGAR ArnarHugs hafa aukist verulega það sem af er árinu, að þvf er segir f fréttatilkynu- ingu frá félaginu. Þar kemur m.». fram að fyrstu níu mánuði ársins voru flutt samtals um 593 tonn, borið saman við liðlega 366 tonn á sama tíma f fyrra. Hlutfallsleg aukning milli ára er þvf um 62%. Aukningin i innflutningi ára er um 52%, eða liðlega 383 tonn, en var liðlega 252 tonn & sama tíma í fyrra. Aukningin i út- flutningi er um 85%, en fyrstu níu mánuði ársins voru flutt út tæplega 210 tonn, en rúmlega 113 tonn á sama tima i fyrra. Þá jukust póstflutningar félagsins fyrstu níu mánuði ársins um 354%, þegar flutt voru 21.574 kiló, borið saman við 4.750 kíló á sama tíma í fyrra. (tJr frétUtilkynningu.) Fiskmarkaðurinn í Bretlandi: Eriingur SF með 50 kr. meðalverð á kíló ERLINGUR SF seldi á mánudag 38 Ie8tir af fiski, þorski, ýsu og kola, í Hull. Meðalverð á kíló var 55,50 krónur og er það með því hæsta, sem lengi hefur fengizt á markaðnum í Bretlandi. Heildarverð var 2.109.700 krónur. Snorri Sturluson RE seldi sama dag í Cuxhaven 215.7 lestir, mest karfa. Heildarverð var 6.438.400 krónur, meðalverð 29,85. Þá seldi Guðbjörg ÍS 129 lestir í Bremer- haven, mest karfa. Heildarverð var 3.836.900 krónur, meðalverð 29,75. Mikið framboð er á fiskmörkuðun- um í Þýzkalandi um þessar mundir og hefur það áhrif til lækkunar á fiskverðið. Alls verða seldar 2.000 lestir af fiski þar í þessari viku. Meðal annars vegna þess náðist ekki að selja allan afla Guðbjargar á þriðjudag, en þá voru eftir um 70 lestir í skipinu. Reiknað var með að selja þær á miðvikudag. Eyvindur vopni NS seldi á mánudag 78,6 lestir af fiski, mest þorski, i Grimsby. Heildarverð var 3.337.500 krónur, meðalverð 42,45. Það er nokkru hærra verð, en ís- lenzku skipin hafa að undanförnu fengið fyrir afla sinn. Framboð á fiski fer nú minnk- andi á fiskmörkuðunum i Bret- landi og hefur verð á fiskinum hækkað nokkuð við það að undan- förnu, en meðalverð á kíló af góð- um fiski var á tímabili komið niður undir 30 krónur. Guðmundur Kristinn SU kominn með 460 lestir — afli annarra báta miklum mun minni INGVI Rafn, skipstjóri á Guðmundi Kristni SU, er nú kominn með um 460 lestir. Samkvæmt upplýsingum veiðaeftirlits sjávarútvegsráðuneytis- ins hafa engir aðrir náð umtalsverð- um afla frá því veiðar hófust fyrir um 8 dögum. Leyfilegur kvóti á bát er 330 lestir, en nótabátum er heim- ilt að afla sér eins kvóta til viðbótar og hefur Guðmundur Kristinn því leyfi til að taka 660 lestir. Morgunblaðið náði tali af Ingva Rafni á Fáskrúðsfirði, en hann leggur upp hjá Pólarsíld þar á staðnum. Ingvi Rafn sagðist hafa náð 150 lestum á Bakkaflóa í þess- um túr. Þar væri mikið af sild, en hún stæði djúpt. Það gerði gæfu- muninn, að hann væri með djúpa nót, 90 faðma, oggóðan mannskap. Hann hefði komið með síldina inn á þriðjudag og söltun þegar hafizt. Sildin væri 88% í stærsta flokki og um 22% feit. Síldin væri greini- lega miklu stærri og betri en í fyrra og væri það góðs viti. „Við erum búnir að vera að þessu í 8 daga meira og minna, en hve Sálarrannsóknarfélag Hafnarfjarðar: Vetrarstarf að hefjast VETRARSTARF Sálarraniutóknarfé- lagsins í Hafnarfirði er nú að hefjast og verður fyrsti fundur félagsins fimmtudaginn 10. október í Góðtempl- arahúsinu og hefst klukkan 20.30. Á dagskrá fundarins er meðal annars erindi Steingríms St. Th. Sig- urðssonar rithöfundar og listmálara og einsöngur Eiríks Hreins Helga- sonar. Fundir í félaginu i vetur verða annan fimmtudag hvers mán- aðar i Góðtemplarahúsinu. Starf- semin i vetur verður með svipuðum hætti og undanfarin ðr. (Úr fréttatilkynningui lengi við verðum að fylla kvótann er erfitt að segja til um. í fyrra tók það okkur 15 daga að ná leyfi- legu magni, um 730 lestum, en það er bezt að spá ekkert um ganginn nú. Við máttum taka þetta meira í fyrra vegna þess hve léleg síldin var, en aflamarkið miðast ekki bara við lestafjölda, heldur einnig verðmæti. Það er mikill munur á því hve síldin er miklu betri nú og því fáum við líklega ekki að taka meira en 660 lestir," sagði Ingvi Rafn. liorgunbUoiö Haukur „rakari" utan við stofu sína á „Rakarahorninu" í Borgarnesi. A „Rakarahorninu“ í Borgarnesi Borgarnesi, 3. október. GÖMLU göturnar í Borgarnesi bera allar nöfn úr Egilssögu, má þar t.d. nefna Kveldúlfsgötu, Skallagrímsgötu, Egilsgötu, Böðvarsgötu og Brák- arbraut. Nafngiftir á torgum og götuhornum eru ekki í eins föstum skorðum og vilja því breytast eftir því sem tímar líða. Gatnamótin þar sem mætast Borgarbraut, Brákarbraut og Egilsgata, hafa í daglegu tali verið nefnd „Rakarahornið" allt frá því að Haukur „rakari" Gíslason opnaði þar rakarastofu sína árið 1961. Haukur Gíslason er hárskeri og söngkenn- ari að mennt. Hann er uppalinn í Vestmannaeyjum og þar var hann kenndur við húsið sem hann átti heima í og kallaður Haukur á Hól. Haukur er Borgnesingum aö góðu kunnur fyrir fleira en rakst- ur og hárskurð. Fréttaritari Mbl. fór í klippingu til Hauks um dag- inn og barst þá talið fljótiega að hljóðfæraleik, en Haukur spilaði í danshljómsveitum til skamms tíma. Kvaðst Haukur hafa byrjað að leika í danshljómsveitum fljótlega eftir að hann fluttist til Borgarness árið 1961, hefði hann þá leikiö á kontrabassa, síðan hefði hann skipt yfir í rafmagns- bassa þegar fram liðu stundir. Kvaðst Haukur síðan hafa selt rafmagnsbassann til Jóhanns Ásmundssonar sem þá hefði verið að byrja í hljómlistinni og væri núna bassaleikari í hljómsveitinni Mezzoforte. Kvaðst Haukur hafa spilað síðast fyrir dansi í vor á dansleik Harmonikufélags Borg- arfjarðar sem haldinn var í Loga- landi í Reykholtsdal. Aðspurður kvaðst Haukur dálítið hafa gert af því hér á árum áður að troða upp einn og flytja skemmtiefni á árshátíðum og þorrablótum, en hann sé svo að segja hættur því núna. Á vegum Ungmennafélagsins Skallagríms hefur Haukur tekið þátt í nokkrum leikritum, bæði sem hljóðfæraleikari og sviðsleik- ari. Eftirminnilegasta hlutverkið hans var þegar hann lék í leikriti Hrafns Gunnlaugssonar „Flug- urnar í glugganum" árið 1978. í þessu leikriti lék Haukur á magn- aðan hátt persónu sem kom inn á biðstofu og beið þar og vonaði að röðin kæmi ekki að sér ... Talið berst að öldungadeild- inni, en Haukur er núna á fjórða ári í Öldungadeildinni. Sagðist Haukur ekki gera mikið með hvað þetta væri erfitt, því hann hefði gaman af þessu, „námið kemur í staðinn fyrir krossgátuna", sagði hann. Aðspurður kvaðst Haukur þurfa í vetur að fara tvisvar í viku út á Akranes vegna námsins. En hingað til hefði hann getað sótt námið í grunnskólanum i Borg- arnesi. Aðspurður kvaðst Haukur ekki vita hvað hann héldi áfram lengi í öldungdeiidinni, „þetta gengur á meðan ég get haft rak- arastofuna opna á daginn," sagði hann og þar með var hann búinn að klippa fréttaritara Morgun- blaðsins í Borgarnesi. — TKÞ Bræla hamlar loönuveiöum — Júpiter RE aflahæst- ur með 8.672 lestir BRÆLA hefur hamlað loðnuveiöum undanfarna daga. Engin skip hafa til- kynnt um afla frá því á sunnudag, en nokkur voru með slatta á föstu- og laugardag. Júpíter RE er nú aflahæstur loðnuskipa með 8.672 lestir. Eftirtalin skip eru komin með meira en 5.000 lesta afla. Fjöldi veiði- ferða innan sviga: Júpiter RE 8.672 lestir (8), Gísli Árni RE 8.358 (13), Grindvíkingur GK 8.195 (8), örn KE 8.172 (14), Svanur RE 7.876 (11), Guðrún Þorkelsdóttir SU 7.497 (12), Súlan EA 6.731 (9), Hrafn GK 6.536 (10) og Hákon ÞH 5.531 lest í 9 veiði- ferðum. Að meðaltali er aflakvóti loðnuskipanna um 10.000 lestir mið- að við leyfilegan heildarafla á vertíð- inni, 500.000 lestir. Til þessa hafa um 146.000 lestir veiðzt frá upphafi vertíðar. Magnús NK var með 180 lestir á föstudag og á laugardag tilkynntu eftirtalin skip um afla: Hilmir SU, 500, Albert GK, 300, Húnaröst ÁR, 350, og Gígja RE100 lestir. Hörpudiskur og rækjæ Verð hækkar um 5 til 15% VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegsins hef- ur nú ákveðið lágmarksverð á rækju og hörpudiski upp úr sjó. Verð á rækju hækkar um 11 til 15% en á hörpudiski um 5% frá þvi sem áður var. Stafar mismunur þessi meðal annars af mis- munandi markaðsverði fyrir þessar tegundir. Samkvæmt ákvörðun Verðlags- ráðs verður verð á stærri flokki hörpudisks 12,60 krónur á hvert kíló og 10,25 fyrir kíló af minni flokknum. Stærðarflokkar á rækju eru 8, en fyrir stærstu rækjuna skal greiða 26,50 fyrir hvert kíló en 7 krónur fyrir kílóið af smæstu rækjunni. Verð þetta skal gilda frá 1. október síöastliðnum til 31. janúar 1986. Siglufjörður: SR hafa tekið á móti 22 þúsund tonnum af loðnu Siglufirði, S. október. VERKSMIÐJA Sfldarverksmiðja ríkis- ins á Siglufirði hefur nú tekið við 22 þúsund 588 tonnum af loðnu í 40 lönd- um. Bræðslan gengur eins og best verður á kosið, og hefur nýja sjálfvirka soðstöðin reynst sérstaklega vel. Tvö mjölskip, Haukur og Svanur lestuðu um helgina um 1000 tonnum af mjöli og fer annað skipið á Finn- land en hitt á England. mj Kolbrún Jónsdóttir, þingmaður Bandalags jafnaðarmanna: Ummæli Kristófers hafa ekki við rök að styðjast Sé ekki að til klofnings í þingflokknum þurfi að koma segir Guðmundur Einarsson „EF ÞAÐ þarf að kljúfa þingflokkinn til að fá vinnufrið, þá getur það svo sem gersL Eg sé ekki merki um að til þess þurfi að koma. Þessi ágreiningui hefur að mínu mati verið meira í orði, en á borði,“ sagði Guðmundur Einars- son, formaður þingflokks Bandalags jafnaðarmanna, er hann var spurður hvort skoðanamunur innan samtakanna væri nú kominn á það stig að ekki yrði komist hjá klofningi þingflokksins. Kristófer Már Kristinsson, for- maður landsnefndar bandalagsins, lét þau ummæli falla hér i blaðinu i gær, að það væri sín persónulega skoðun að þeir Guðmundur Ein- arsson og Stefán Benediktsson ættu að kljúfa þingflokk banda- lagsins. Á opnum fundi lands- nefndarinnar um síðustu helgi greiddu tveir þingmenn banda- lagsins, Kolbrún Jónsdóttir og Kristin Kvaran, atkvæði með andófsmönnum innan samtak- anna, sem mjög hafa beint spjót- um sínum að Kristófer Má, Val- gerði Bjarnadóttur og þeim Guð- mundi og Stefáni. Saka leiötogar andófsmanna, sem stofnað hafa Félag jafnaðarmanna innan bandalagsins, fjórmenningana og samherja þeirra um svik við grundvallarhugsjónir Bandalags jafnaðarmanna og „klassíska jafn- aðarstefnu". Guðmundur Einarsson kvaðst sannfærður um að unnt væri að sætta andstæðurnar innan banda- lagsins, ef vilji væri fyrir hendi. Hann sagðist ekki í í vafa um að þær Kolbrún og Kristín vildu vinnufrið. „Það hefur ekki annað komið í ljós,“ sagði hann. Þegar hann var hins vegar spurður hvort hugsanlegt væri, að andófsmenn- irnir ættu frekar heima í Alþýðu- flokknum eða Alþýðubandalaginu, en Bandalagi jafnaðarmanna, svaraði hann: „Það kæmi mér nú kannski ekki á óvart." Kolbrún Jónsdóttir, alþingis- maður, sagði að á fullskipuðum fundi þingflokksins síðdegis í gær hefðu allir verið sammála um, að ummæli Kristófers Más um nauð- syn þess að kljúfa þingflokkinn hefðu ekki við rök að styðjast. Hún sagðist eiga von á því, að samstarf- ið í þingflokki bandalagsins yrði með sama hætti og í fyrra. Kolbrún taldi að ekki væri um djúpstæðan hugmyndalegan ágreining að ræða innan banda- lagsins. „Við erum sammála um grundvallaratriði, sem er nauðsyn stjórnkerfisbreytinga, en ég og fleiri erum þeirfar skoðunar að við eigum ekki að vera eins og sérvitr- ingar og tala eingöngu um þessi mál, heldur einnig þau samfélags- mál, sem hæst ber hverju sinni," sagði Kolbrún. „Yfirlýsingar Kristófers virka á mig sem persónulegar frekar en pólitískar og eru kannski liður i valdabaráttu," sagði Kolbrún enn- fremur. Hún kvaðst ekki telja óeðlilegt miðað við aðstæður að Kristófer færi fram á yfirlýsingu um traust eða vantraust á fundi landsnefndar bandalagsins eftir tæpan hálfan mánuð, en kvaðst ekki sjálf vilja kveða upp úr meö stuðningsyfirlýsingu honum til handa að sinni. Kvað hún það ekki við hæfi, þegar hann væri nýbúinn að lýsa því yfir að nauðsynlegt væri aö reka hana úr samtökunum. „Hins vegar finnst mér alveg sjálf- sagt, að maðurinn sinni for- mennsku í landsnefndinni fram að næsta landsfundi," sagði hún.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.