Morgunblaðið - 09.10.1985, Page 35

Morgunblaðið - 09.10.1985, Page 35
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER1985 35 Athugasemd — frá Jóni Sævari Þórðarsyni Athugasenid við greinina: „Jóni Sx'vari l>órðarayni vikið úr starfi hjá ÍR“, sem birtist í Morgunblaðinu ígær. Það er mín persónulega skoðun að það mál sem er kveikjan að umræddri grein hefði átt að leysa annarsstaðar en í fjölmiðlum. Þar sem sú leið varð þó fyrir valinu sé ég mig tilneyddan að skýra minn málstað og gera nokkrar athugasemdir. Sú fullyrðing sem fram kemur í blaðinu { gær að mér hafi verið vikið úr starfi hjá ÍR fæst varla staðist og vil ég rökstyðja það á eftirfarandi hátt: 1) Þegar þetta er skrifað hefur mér ekki verið sagt upp störfum hjá ÍR, hvorki munnlega né skrif- lega. Það er ekki von, því: 2) Samningur minn við félagið rann út i ágústlok og þvi varla hægt að reka mig í október. Hinu er ekki að neita að ég gaf Jóhanni Björgvinssyni formanni frjálsíþróttadeildar, sem verið hefur góður vinur minn og barist fyrir minum málstað innan félags- ins, góð orð um að ég yrði áfram viðþjálfun í vetur. Eftir það breyttust aðstæður þannig innan deildarinnar (sem ég vil ekki rekja nánar hér) að mér fannst augljóst að ég gæti ekki staðið þannig að þjálfuninni sem ég helst kysi og fengið þann vinnu- frið sem nauðsynlegur er hverjum metnaðarfullum þjálfara. Eg ákvað þvi að starfa ekki frekar að þjálfun hjá ÍR og til- kynnti Jóhanni Björgvinssyni það og sagði honum jafnframt að ég myndi þjálfa frjálsíþróttalið KR Alþýðubandalagið í Reykjavík: Forval fyrir borg- arstjórnarkosningar Ein umferð, þátttaka bundin við félagsmenn ÁKVEÐIÐ hefur verið að viðhafa forval innan Alþýðubandalagsins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavik á komandi vori. A fundi í félagi Alþýðubandalagsins í Reykja- vík var samþykkt nýverið að viðhöfð skuli ein umferð og að þátttaka verði bundin við félagsmenn ein- vörðungu. Kosin verður uppstill- ingarnefnd, scm gera skal tillögur um frambjóðendur en þess utan geta fimm félagsmenn í sameiningu tilnefnt menn til framboðs. Uppstillingarnefnd hefur ekki verið kjörin og ekki hefur verið ákveðið hvenær forvalið fer fram. Skiptast menn þar í tvo hópa, ann- ars vegar þá sem vilja hafa forval- ið fyrir áramót og hins vegar þá sem vilja hafa það eftir áramótin. Samstaða er um að einvörðungu fari fram ein umferð í stað tveggja eins og áður tíðkaðist. Reglur hafa verið samþykktar og eru niðurstöður forvalsins ekki bindandi. Afurðalán í þremur gjaldmiðlum auk SDR EfTIR næstu mánaðamót geta út- flytjendur fengið afurða- og rekstr- arlán í þremur myntum auk SDR, sératakra dráttarréttinda í reiknings- mynt, sem er meðaltal nokkurra helstu gjaldmiðla viðskiptaþjóða okkar. Þegar nauðsynlegum undir- búningi fyrir þessa breytingu er lokið verður hægt að fá afurða- og rekstr- arlán í dollurum, sterlingspundum og þýskum mörkum, að þvi er fram kemur í frcttatilkynningu frá Seðla- bankanum. Þessi ákvörðun bankans er tekin í framhaldi af ósk viðskiptaráð- herra þar um og eftir viðræður við fulltrúa útflytjenda og banka. Kjósi framleiðendur hér eftir að taka lán í einhverri ofangreindra mynta geta þeir snúið sér til banka sins eða sparisjóðs enda sé ráðgert að hin veðsetta afurð sé seld til viðkomandi myntsvæðis. í tilkynningu Seðlabankans seg- ir: „Vextir afurðalána í hinum nýju myntum munu verða ákveðnir með sama hætti og verið hefur um vexti af SDR-lánum og mun vaxtapró- senta ráðast af lánskjörum á við- komandi erlendum lánamörkuð- um.“ „Hefur ekki verið talað við okkur“ — segir forstjóri Skallagríms hf. um hugmyndir Járnblendifélagsins um ferju yfir Hvalfjörð Jón Sævar Þórðaraon frá næstu áramótum. Það hvarflaði aldrei að mér að þjálfa bæði liðin. Einnig ætlaði ég að biðja Jóhann afsökunar á að ég skyldi sjá mig tilneyddan að bregðast honum, en það komst ekki til skila en gerir það vonandi hér með. Ég vil þakka öllum félögum mínum i IR fyrir samstarfið á árinu, sérstaklega öllum þeim sem hringt hafa i mig og veitt mér andlegan stuðning i þessu leið- indamáli. Ég hlakka til að hefja störf fyrir KR og við sem þar munum vinna saman að þjálfun og uppbyggingu deildarinnar vitum að þar er stór- veldi að rísa sem byggt er á traust- um grunni og mun veita ÍR og öðrum félögum verðuga og drengi- lega keppni strax á næsta ári. Höfundur er íþróttakennari og frjílsíþróttaþjílfari. „Forráóamenn Járnblendifélags- ins á Grundartanga hafa aldrei minnst á hugmyndina um ferju frá Grundartanga í stað Akraborgar við mig og að við tækjum þann rekstur á okkur svo að ég hef ekkert um málið að segja,“ sagði Helgi Ibsen, forstjóri Skallagríms hf. á Akranesi í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins, en fyrirtækið rekur Akra- borgina. Uppi eru hugmyndir um ferju- samgöngur yfir Hvalfjörð hjá Járnblendifélaginu og sagði fram- kvæmdastjóri þess, Jón Sigurðs- son, í samtali við Morgunblaðið 13. september sl. að hann teldi að hægt yrði að halda uppi góðri þjón- HÓPUR manna réðst að lögreglu- mönnum í Kópavogi og reyndi að hindra þá í því að færa mann, sem grunaður var um ölvun við akstur, á lögreglustöð. Atburðurinn átti sér stað aðfaranótt sunnudagsins. Múg- urinn - um 20 manns, þvingaði lög- reglumennina til þess að sleppa hinum grunaða og reyndi hann að komast undan. Lögreglumennirnir kölluðu á aðstoð og tókst að ná manninum á ný og færa í lögreglubif- reið. ustu með tveimur ferjum og að rekstur þeirra yrði hagkvæmur. Hann taldi rétt að útgerðarfélagi Akrabo^gar yrði gefinn kostur á að reka ferjurnar því rekstri Akra- borgar yrði sjálfhætt með tilkomu þeirra." „Þetta eru hugdettur hjá Járn- blendisfélagsmönnum. Ég hef ekki mótað mér neinar skoðanir um mál þetta því það hefur einfaldlega ekki komið upp á borð til mín. Það eina sem ég hef heyrt uin hugmynd þessa er viðtalið í Morgunblaðinu um daginn við framkvæmdastjóra Járnblendifélagsins," sagði Helgi Ibsen. Múgurinn réðst þá að lögreglu- bifreiðinni og hafði í hótunum og varð lögreglan að kalla á aðstoð úr Reykjavík. Lögreglumenn úr Reykjavík komu á tveimur bifreið- um og leystist hópurinn upp skömmu síðar. Lögreglan fór með hinn grunaða á lögreglustöð, þar sem rannsókn á meintri ölvun fór fram. Unnið er að rannsókn máls- ins. Enginn slasaðist í ryskingun- um, en föt lögreglumanna rifnuðu. Kópavogur: Ráðist á lögregluna GRANDAGARÐI3, SÍMI29190 Nýjar vörur Rambo og He-man barna- jogginggallar Dömupeysur, dömujogginggallar, T-bolir, herra- peysur, stuttar joggingbuxur, sokkar, nærföt og margt fleira á óvenju lágu verði. vOpiö daglega ffrá kl. 10—19 og laugardag frá kl. 10—16. Starfsmannastjórar - stjórnendur fyrirtækja ____ Viðtalstækni og starfslýsingar Við mannaráðningar ber að veita umsækjendum upplýsingar um starfið og starfsemi fyrirtækis- ins og jafnframt eru þeir spurðir ýmissa persónuspurninga. Hvorttveggja krefst ákveðinnar tækni. Á námskeiði sem Stjórnunarfélag íslands heldur verður fjallað um eftirfarandi: Greining á starfsumsóknum Undirstöðuatriði í viðtalstækni Gerð starfslýsinga og kynning á starfslýsingakerfum Kynning gagna varðandi starfsval og tengsl þeirra við starfslýsingakerfi Fyrirtækið og starfsmenn þess Vinnan og einstaklingurinn Leiðbeinandi: Sölvína Konráðs, M. A. í sálarfræði, með starfsráðgjöf sem sérgrein. Á undanförn- um árum hefur hún starfað við rannsóknir og ráðgjöf í Bandaríkjunum. lÁnanaustum 15 • Sími: 6210 66

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.