Morgunblaðið - 22.10.1985, Síða 12
* ’Vi* ' —, Ju'.> -i- 'fri"
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER1986
Grindavík
Til sölu húseignin Höskuldarvellir 13 í Grindavík, sem er
rúmgott 3ja herb. raöhús ásamt bílskúr.
Upplýsingar veittar á Fasteignasölunni Hafnargötu 27,
Keflavík, sími 92-1420.
Húseignirnar 6-8-10
og 10A við Vesturgötu
eru til sölu. Eignirnar seljast í einu lagi eöa hlutum. Eign-
arlóö 1250 fm fylgir. Allar nánari upplýsingar veittar á
skrifstofunni (ekki í síma).
EiGnflmiÐLunm
ÞINGHOLTSSTRÆTI 3 SlMI 27711
Solustjón: Sverrir Kristinsson.
Þorteifur Guðmundsson, sólum.
Unnsteinn Beck hrl., sími 12320.
Þórótfur Halldórsson, lögfr.
Söluturnar
Höfum til sölu tvo góöa söluturna á Stór-Reykjavfkur
svæðinu. Miklirmöguleikar.
Upplýsingar gefur:
Húsafell
íASmQHASUA LmghoHsng, m Aóalsieinn Pétursson
( Bmirrteibahusmu I smv stoee BergurGuönason hdl
STOFNUD 1958
SVblNN SKULASON hdl.
Vantar
— vantar
Vantar á söluskrá fyrir ákveöna kaupendur raöhús í
Fossvogi, einbýlishús eöa raöhús í Háaleiti, sérhæö í
Hlíðum, 2ja-3 herb. í Hlíðum t.d. ris, 3ja-4ra herb. í Háa-
leiti, 2ja, 3ja og 4ra herb. í gamla bænum, 3ja herb. í
Laugarneshverfi.
Og nú erum við í Borgartúni 28
Rallakstur:
Bretlandsmeistarabíll
til keppni hérlendis
Norðmennirnir John Haugland
og Jan Olaf Bohlin hafa tryggt sér
Bretlands- og heimsmeistaratitla í
rallakstri í flokki bfla með 1300
cc vélar. Þeir óku Skoda. Þeir fé-
lagar eru íslendingum góðkunnir,
en þeir komu tvívegis til keppni í
Ljómarallinu.
Áætlanir voru um að Skoda
130 LR, eins og Haugland ekur,
kæmi til íslands í ár, en keppnis-
deild verksmiðjunnar hefur ekki
getað annað eftirspurn eftir bíl-
um. „Okkur hefur gengið svo vel
í röllum heimsmeistarakeppn-
innar að atvinnuökumenn okkar
hafa verið á flakki um alla
Evrópu. Því höfum við ekki haft
tíma til að smíða aukabíla til
einstaklinga, sem við hyggjumst
aðstoða," sagði Jílí Kótek keppn-
isstjóri Skoda í samtali við
Morgunblaðið. „Við höfum lofað
nokkrum bílum og einn slíkur
frá Haugland notaður í einni
keppni ætti að geta orðið á ís-
landi á næsta ári.“ Skoda 1300
LR er búinn 125 hestafla vél og
þó helstu andstæðingarnir séu á
mun kraftmeiri bílum hefur bíll-
inn blandað sér í toppbaráttuna,
sérstaklega í Bretlandi.
IÐNAÐARMÆLAR
í ÚRVALI
ÞRÝSTIMÆLAR
VACUMMÆLAR
HITAMÆLAR
G.J. FOSSBERG
VÉLAVERZLUN HF.
Skúlagötu 63 - Reykjavik
Sími 18560
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
JtorgnmMðfrft
Morgunblaöið/Martin Holmes
Norðmennirnir Haugland og Bohlin sem tvívegis hafa ekið í Ljómarallinu
hérlendis, tryggðu sér Bretlandsmeistaratitilinn í rallakstri, í flokki bfla
með 1300 cc vélar. Bflarnir hafa einnig náð góðum árangri í heimsmeistara-
keppninni.
Refskák í Miami
Kvikmyndlr
Árni Þórarinsson
Laugarásbíó: Stick ★ ★
Bandarísk. Árgerð 1985. Handrit:
Elmore Leonard, Joseph. C. Stin-
son, eftir skáldsögu Leonards.
Leikstjóri: Burt Reynolds. Aðal-
hlutverk: Burt Reynolds, Candice
Bergen, Chárles Durning, George
Segal.
Sumir hafa viljað krýna El-
more Leonard sem hinn nýja
konung amerísku glæpasögunn-
ar. Sagan um Stick, sem Burt
Reynolds hefur nú kvikmyndað,
varð metsölubók vestra fyrir
fáum árum og Leonard nýtur
vaxandi hylli. Sjálfur hefur
hann skrifað slatta af handrit-
um fyrir Hollywood og honum
verður svosem ekki skotaskuld
úr því að sníða þessari sögu sinni
kvikmyndalegan stakk. Hann
hefur fækkað persónum í Stick
og aukið við dæmigerðum amer-
iskum hasaratriðum, einfaldað
og heflað. Samt er eins og tals-
verður safi hafi flotið út í skil-
vindunni.
Stick, fullu nafni Ernest
Stickley, er nýsloppinn úr stein-
inum, bílaþjófur og ræningi, og
telur sig seinþreyttan til vand-
ræða þegar hann kemur til
Miami þar sem gamall félagi
hans tekur á móti honum og hef-
ur útvegað þeim báðum nýtt
verkefni. Verkefnið er milli-
ganga með ótilgreind verðmæti
milli tveggja eiturlyfjakónga í
Flórída. Þar eru brögð I tafli og
félagi Sticks er drepinn. Stick
uppgötvar að hann hefur sín eig-
in siðalögmál og ákveður að
koma fram hefndum sem hann
og gerir með lunknum og lævís-
um hætti.
Sagan um Stick lifnar umfram
allt í snörpum, hnyttnum sam-
tölum og kyndugri persónusköp-
un. Það er líka nóg sem gerist en
það vantar einhvern drifkraft og
mórallinn er æði hæpinn. I
myndinni er helstu kostum sög-
unnar haldið þokkalega til haga
og hún býður upp á nokkra
kostulega kóna, eins og hinn
rauðhærða, akfeita dóphlunk
sem Charles Durning skapar. Úr
öðrum persónum verður mun
minna, eins og bissnissuppanum
sem Stick notar til að fá frítt
spil gagnvart dópkóngum og
George Seal leikur, og Candice
Bergen sem sætri 'verðbréfa-
drottningu. Spenna dettur ansi
víða án þess að annað komi í
staðinn. En Reynolds leikstjóri á
nokkra fína spretti og nýtur þar
ágætrar kvikmyndatöku og tón-
listar. Reynolds leikari er ekki í
jafn góðu formi. Hlutverk Sticks
hefði átt að vera kærkomin út-
leið fyrir hann úr gömlu, glað-
beittu skelmistýpunni. En í stað-
inn fyrir að aðlaga sig Stick læt-
ur hann Stick aðlaga sig þessari
gömlu týpu. Þar fyrir utan er
Reynolds þreytulegur, ef ekki
hreinlega veiklulegur. Dyggir
aðdáendur hans fá í Stick sinn
skammt af því sem þeir sækjast
eftir í myndum Burt Reynolds,
svolítinn húmor og hasar. En
skammturinn er ekki eins fjör-
efnaríkur og áður.
Reynolds þjarmar að dópkóngunum Castulo Guerra og Charles Durning
IStick.