Morgunblaðið - 22.10.1985, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 22.10.1985, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER1985 17 Ræktun í rennandi vatni í tilraunastöðinni í Littlehampton í Englandi. Raetur gúrkuplöntunnar liðast eftir vatnsrennunni, einsog sjá má á mynd- inni. Tómatar ræktaðir í steinull. Útbreiddasta rsktunaraðferð I Evrópu. að ekki væri annað að sjá en is- lenski vikurinn stæðist fyllilega samanburð við steinullina sem ræktunarjarðvegur sem væri gleðifrétt fyrir íslenska ylrækt. Sagði hann að Hollendingarnir hefðu sýnt áhuga á að prófa vikur- inn nánar og væri hugsanlegt að mál skýrðust frekar við það. „Það gaf okkur byr undir báða vængi að sjá að við gætum ef til vill notað vikur í staðinn fyrir steinullina, því steinullin er býsna dýr,“ sagði hann. Að lokum fóru þeir til Danmerkur þar sem þeir skoðuðu rannsóknastofu í Odense og fóru í garðyrkj ustöðvaf'. „Ég tel að heildarniðurstaðan af þessari ferð okkar sé sú að að íslenskir garðyrkjubændur hafi mjög margt að sjá og sækja til Hollands, miklu meira en ég átti von á. Satt að segja hélt ég í upphafi að við hefðum ekkert þangað að sækja vegna þess hvað Holland er mikið sunnar en ísland. Hingað til höfum við mest sótt til Danmerkur, bæði varðandi rækt- unina sjálfa og tæknibúnaðinn, en í mínum huga er enginn efi á því að við höfum miklu meira að sækja til Hollands," sagði Bjarni. Hann taldi að vatnsræktun yrði ekki á dagskrá hér á allra næstu árum vegna smæðar stöðvanna. Aftur á móti væri líklegra að menn tækju steinullarræktina upp í vaxandi mæli því auðveldara væri að stjórna ræktuninni í steinull en mold. Það réðist síðan af kostnað- inum hvort vikurinn kæmi í stað- inn fyrir steinullina. „Ferðin mjög fróðleg“ Bernhard Jóhannesson sagði að þessi ferð hefði verið mjög fróðleg. Hún hefði sýnt sér hvað margt af því sem íslenskir garðyrkjubænd- ur væru að gera væri fálmkennt og gamaldags. Hann sagði að ekkert þýddi fyrir menn að fara að rjúka í steinullarræktun, menn yrðu að byrja á byrjuninni. Þeir sem ekki væru með sjálfvirkni í hitastýringu og loftun þyrftu að byrja á því, síðan þyrfti að koma til lýsing og koltvísýringsgjöf og loks nákvæmni í áburðargjöf. Það þýddi ekkert að framkvæma einn þáttinn ef allir hinir væru skildir eftir. Sagði Bernhard að erlendis væri komin svo mikil nákvæmni í áburðargjöf að moldin væri farin að skipta mun minna máli. Hann taldi að við gætum notað vikur alveg eins og steinull og hvaða annað ræktunarefni sem er. -HBj. Pennavinir Sextán ára piltur í Ghana með margvísleg áhugamál: Samuel Martin, P.O.Box 779, Teshie/Nungva-Est, Accra, Ghana. Átján ára japönsk stúlka með áhuga á tónlist og fslandi: Ayami Yatsuda, 17-308,2-chome, Nara, 631 Japan. Sextán ára bandarísk stúlka með áhuga á íþróttum og tónlist: Lynn Dziadaszek, 70 Bickford Ave., Buffalo, New York 14215, USA. Vestur-Þjóðverji, sem getur ekki um aldur, en hefur áhuga á bréfa- sambandi við Islendinga. Hann er frímerkjasafnari: Wilhelm Doerr, L 14,20 6800 Mannheim 1, West Germany. Fjórtán ára stúlku í ísrael langar að eignast pennavini á íslandi. Vill skrifast á við stúlkur eða drengi á aldrinum 14-17 ára. Getur ekki áhugamála: Anat Tobis, Eli Cohen 24, Herzelia 46480, Israel. Japönsk stúlka, 22 ára, með áhuga á íþróttum, tónlist og bréfaskrift- um: Kanako Hashimoto, 3-6 1-chome, Sennichimae, Minami-ku, Osaka, 542 Japan. FÖT GEFA ÓRÆKAR UPPLÝSINGAR UM EIGANEH SINN Gefðu góðar upplýsingar um þig í fötum frá Herragarðinum. fierra- GARÐURINN AÐALSTRÆTI9 S12234 .MAZDA 323 GT Egi. Sportbíll sem tekíð er cftSr! Ríkulegur búnaður svo sem,- 1600 cc vél 105 hö DIN meö tölvustÝrðri beinni ínn- spýtingu — 175/70 SR 13 eða 185/60 HR 14 hrað- aksturshjólbarðar — Diskahemlar á öllum hjólum með hjálpartaki — Tannstangarstýri með breytilegu átaki eða vökvastýrí — Sportrendur — Vindkljúfur að framan — Tvær vindskeiðar að aftan (3 dyra) — Styrkt sportfjöðrun — Snúningshraðamælir og margt fleira. Aukabúnaður meðal annars: _ Rafknúin sóllúga — Álfelgur — Rafknúnar rúður É og hurðarlæsingar — Hljómflutningskerfi. 2 útgáfur fáanlegar: 3 dyra Hatchback og 4dyraSedan. Sjón er sögu ríkari—Komið og skoðið MAZDA323 GT BÍLABORG HF. Smiðshöföa 23 sími 812 99
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.