Morgunblaðið - 22.10.1985, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER1985
13
Islendingar
heimsmeistarar
í áætlunarflugi
— miðað við höfðatöluregluna frægu
íslendingar eru tvímælalaust í hópi mestu flug-
þjóða heims og miðað við fólksfjölda vorum við
með lang mestu flutninga í áætlunarflugi í heimi
sl. ár. í þessari grein er stuðst við upplýsingar úr
nýútkominni árskýrslu Alþjóðaflugmálastofnun-
arinnar, ICAO, og gefa þær betur en margt ann-
að til kynna þýðingu áætlunarflugs hér á landi.
Flug
Gunnar Þorsteinsson
í sjálfu sér kemur það ekki svo
mjög á óvart að íslendingar
standi framarlega sem flugþjóð,
því fáar þjóðir eru eins háðar
flugi. Bæði er, að landið liggur
fjarri öðrum, og eins, að á vet-
urna er innanlandsflugið oft á
tíðum einu samgöngurnar við
heilu landshlutana. Það vekur
hinsvegar óneitanlega athygli
hvað flutningur í íslensku áætl-
unarflugi eru langtum meiri en í
öðrum ríkjum ef skoðaðar eru
samanburðartölur og miðað við
íbúafjölda (sjá Töflu 1). ísland
sker sig úr með 903 tonnkíló-
metra á hvern íbúa eða rúmlega
þrisvar sinnum meira en ríkið
sem næst kemur. í sæti 2—6 eru:
Sviss, Bandaríkin, Holland,
Kanada og Bretland. Sé hinsveg-
ar litið á mælieininguna far-
þegakílómetrar á íbúa, er ísland
einnig í efsta sætinu og nú með
rúmlega fjórum sinnum meiri
flutninga en það ríki sem næst
kemur. Röð landanna í sætum
2—6 er nú orðin þessi: Bandarík-
in, Sviss, Kanada, Holland og
Bretland.
Heildarflutningar
Flutningur í áætlunarflugi í
heiminum árið 1984 jókst að
meðaltali um 8,1% frá árinu áð-
ur og er það mesta aukning síðan
1980, segir í ársskýrslu Alþjóða-
flugmálastofnunarinnar. Meðal-
talsaukning sl. áratug var 7,1%.
Sagt er, að aukningin stafi af
betri efnahag víðast hvar í heim-
inum og hraðri uppbyggingu
flugsins í Austurlöndum.
Tafla 2 sýnir heildarflutninga
í áætlunarflugi 15 aðildarríkja
Alþjóðaflugmálastofnunarinnar
sl. ár, án tillits til íbúafjölda.
Svo sem við er að búast skera
Bandaríkin sig nú úr. Miðað við
heildarflutninga er ísland í 50.
sæti (aðildarríki ICAO eru 153)
með 215 milljón tonnkílómetra
en í 47. sætinu ef reiknað er í
farþegakílómetrum. Fyrir fjór-
um árum var ísland í 62. og 61.
sæti.
Á milli áranna 1983—4 voru
aðeins 8 ríki með meiri aukningu
en ísland sé reiknað í tonnkíló-
metrum og 5 ríki sé reiknað í
farþegakílómetrum. Á íslandi
nam aukningin milli ára 17% í
tonnkílómetrum og 21% í far-
þegakílómetrum.
Alþjóða- og innan-
landsflug
Árið 1984 var rétt rúmlega
helmingur heimsflutninganna í
áætlunarflugi á alþjóðaleiðum
og var 10,7% aukning milli ára.
Flutningur i innanlandsflugi
jókst aftur á móti um 5,5% milli
ára.
Um 48% allra áætlunarflutn-
inga árið 1984 voru á hendur
flugfélaga í Bandaríkjunum, eða
35%, og Sovétmanna sem voru
með 13%. Afgangurinn skiptist
á 151 ríki.
Þessi sömu ríki önnuðust 78%
allra innanlandsflutninga í
heiminum árið 1984, Bandarikin
með 54% og Sovétrikin með
24%. Á alþjóðaflugleiðum voru
tvö ríki með 26% alls alþjóða-
flugs, Bandaríkin með 17% og
Bretland með 9%.
Heimshlutar
í ársskýrslunni er farið nokkr-
um orðum um þróun flutninga í
áætlunarflugi eftir heimshlutum
sl. áratug. Þar kemur fram, að
hlutur bandarískra flugfélaga
hefur minnkað úr 22,1% árið
1975 í 20% árið 1984, og hlutur
Evrópskra félaga úr 43,5% í
36,9%. Gagnstætt þessu, hefur
hlutur flugfélaga í Asíu og við
Kyrrahaf aukist úr 18,7% í
26,5%. Á sama tímabili hefur
hlutdeild Mið Austurlanda auk-
ist úr 4,6% í 6,5%, Afríkuflugfé-
lögin stnda í stað með 4,5%, en
íslendingar eru oft fremstir í heimi ef miðað er við höfðatöluregluna margfrægu. Það á einmitt við um flutninga
í áætlunarflugi því ísland skarar þar fram úr öðrum ríkjum. Á míllí áranna 1983—4 voru aðeins 8 ríki í heimi
með meiri aukningu í áætlunarflugsriutningum en ísland. Ljósm. Gunnar Þorsteinsson.
flugfélög við Karabískahafið og í
Rómönsku Ameríku detta úr
6,6% í 5,6%.
Áætlunarflugfélög í Asíu og við
Kyrrahaf voru með hæstu
hleðslunýtingu ef tekið er meðal-
tal sl. áratugs. Þau voru með
67% nýtingu, rétt á hælana
komu Evrópufélögin með 65%,
Rómanska Ameríka og Karab-
ískahafið með 61%, Bandaríkin
með 59%, Afríka með 54% og
Mið Austurlönd ráku lestina
með 52% hleðslunýtingu.
Síðar verða ýmsar aðrar upp-
lýsingar úr þessari fróðlegu
ársskýrslu birtar hér á flug-
málasíðu blaðsins.
Tafla 2. Tonnkílómetrar og farþegakílómetrar í áætlunarflugi áriö 1984 15 al 153 Brayting aöildarrikjum Tonnkm 93/94 Farþagakm •CAO Rðö (milljón) % Röð (milijón) Breyting 83/84 %
Bandaríkin 1 54370 7 1 472000 6
Bretland 4 7525 13 4 56400 9
Frakkland 5 6380 6 5 38900 1
V-Þýskaland 6 4684 11 8 24275 7
Kanada 7 4205 10 6 34200 9
Holland 9 3063 11 11 17430 6
Spánn 14 2085 7 10 17450 7
Sviss 17 1870 5 18 12120 -1
Skandinavía1* 19 1715 5 17 14200 5
Finnland 43 319 3 42 22696 3
Nígería 48 275 9 43 22600 7
ísland 50 215 17 47 2100 21
Austurríki 61 156 7 59 1442 7
OsaS töndin: Danmðrk, Svfþjóö, Noragur
Skýringir
i béöum töflunum uru tölurnar lyrir 1984 áratlaöar an óvlaauþétturlnn ar akki mairi an 2%.
TONNKÍLÓMETRAR: Farþagar, tragt og póatur, m«alt i tonnum og margfaldaö moö longd hvorrar fluglaiöar.
FARÞEGAKfLÓMETRAR: Fjöldi larþaga marglaldaöur maö langd hvarrar fluglaiöar.
Haimild: Araakýrala ICAO 19S5
Tonnkílometrar og farþegakílómetrar á íbúa í áætlunarflugi áriö 1984 T afla 1. Tonnkm Farþagakm Rfki é fbúa é fbúa
ísland 903 8824
Sviss 290 1885
Bandaríkin 230 2000
Holland 213 1211
Kananda 168 1368
Bretland 133 999
Frakkland 117 709
Skandinavía 1) 98 809
V-Þýskaland 76 396
Finnland 66 555
Spánn 554 456
Austurríki 21 191
Nígería 3 28
9 SA8 löndin: Danmörk, Svfpjóö, Noragur.