Morgunblaðið - 22.10.1985, Side 23
23
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER1985
Tökum upplestur á sögu til
dæmis. Fyrsta spurningin, sem
lesarinn verður að svara er þá:
Hvers konar saga er þetta? Er
þetta kímnisaga, sorgarsaga eða
er þetta venjulega saga úr hvers-
dagslífinu, þar sem skiptast á skin
og skúrir? Það er miklu fremur
hægt að gera sér grein fyrir fyrstu
spurningunni, þegar um smásögur
er að ræða, því þær má oft flokka
niður eftir því, sem hér að framan
hefur verið talið. Hins vegar er
því oft svo farið um meiriháttar
skáldsögur góðra höfunda, að þar
er um miklu fleiri skiptingar að
ræða á blæbrigðum. Slíkar sögur
lýsa oft hinum margvíslegustu
hliðum mannlegs lífs, og gera því
að sama skapi meiri kröfur til
lesandans. Það er nefnilega hans
hlutverk að láta þessi blæbrigði
njóta sín til fullnustu. Það er ekki
nóg að hann skilji þau. hann verð-
ur að láta þau koma fram í lestrin-
um. Hann verður að kunna þá
íþrótt, að geta látið hlustendur
ekki einungis heyra orð skáldsins,
heldur verður hann að geta vakið
tilfinningar hlustanda til andlegr-
ar þátttöku í því, sem er að gerast.
Það fer nú að verða ljóst, að
skýr og eðlilegur lestur er aðeins
undirstöðuatriði góðs upplesturs.
Það var rifjað upp hér að framan
hvernig tónskáldin segja fyrir um
það með hverjum hætti tónverk
þeirra skuli leikin eða sungin.
Þegar rithöfundar fara að gera sér
grein fyrir mikilvægi upplesturs á
ritverkum þeirra, munu þeir taka
að kynna sér þá möguleika, sem
þau gefa til opnberrar túlkunar.
Þá er vel hægt að ímynda sér, að
sumir þeirra læri sjálfir að lesa
þau upp með frábærum árangri,
eins og sum tónskáldin geta flutt
sín verk. Það yrði öllum til mikillar
ánægju, því vitanlega hlýtur öllum
að vera ljóst, að enginn þekkir
verk betur en sá sem hefur skapað
það. En til þess að geta þetta þarf
þekkingu, tækni og listræna æð,
sem því miður er ekki öllum rit-
höfundum gefin (og reyndar ekki
öllum tónskáldum heldur).
ímyndum okkur nú til dæmis
kafla úr sögu. f þessum þætti
hennar er höfundurinn að lýsa
fögru síðkvöldi í íslenskri sveit.
Það er logn, milt og yndislegt
veður. Fólkið hefur lokið heyvinnu
þennan dag og er farið heim af
engjum. Kvöldsólin skín yfir fagra
sveitina. Frammeð lygnri á eru
ungir elskendur á gangi í síðsum-
arblíðunni. Það er þögn í náttúr-
unni, nema kvak eða söngur í stök-
um fugli.
Hér þarf fyrst og fremst að hafa
í huga, að það er hlutverk lesandans
að undirstrika blæbrigði og stemn-
ingu sögunnar. Það gerir hann með
rödd sinni og tilfinningum. Lesturinn
verðu fyrst og fremst að vera í fullu
samræmi við efnið, geta aukið áhrif
þess.
Fjalli þessi sögukafli því um efni
á þá lund, sem lýst var hér að
framan til dæmis, þá ber iesara
umfram allt að rjúfa ekki með
lestrarmáta sínum þá kyrrð, sem
höfundur hefur skapað, heldur
undirstrika hana. það þýðir, að
þennan kafla verður að lesa mjúkri
rödd og mildri, því það eitt er í
samræmi við myndina, sem höf-
undur hefur brugðið upp. Af sömu
ástæðu ber að lesa þennan kafla
hægt, til þess að trufla ekki kyrrð-
ina. Hér á því hvorki við hraði né
raddstyrkur. Hér skal beita mjúkri
rödd.
Gerum nú ráð fyrir öðrum kafla
í sömu sögu, sem gerist á allt h
öðrum árstíma. Sá kafli gerist um
hávetur í stórhríð og stormi. Þar
er söguhetjan að brjótast áfram
til byggða. Hann gengur meðfram
fljóti þar sem isjakar þeytast
áfram með straumnum. það hvín
í storminum og jakarnir nístast
saman á fleygiferð sinni.
Hér er um að ræða andstæðu
lýsingarinnar að framan á kyrr-
láta síðsumarkvöldinu í góðviðr-
inu. í þeirri mynd var kyrrð og
logn. Þessi ber með sér lýsingu á
hraða og hávaða.
Hér gildir enn hið sama og áður
hefur verið bent á, að lesturinn
verður að vera í sem fullkomnustu
Karl H. Bridde og Björn Birgisson I hinni nýju verslun sinni, Veiðihúsinu.
Ný verzlun -
NÝLEGA var opnuð sérverslun fyrir
skotveiði- og stangaveiðimenn.
Verslunin er til húsa að Nóatúni 17
í Reykjavík, og ber nafnið „Veiði-
húsið“. Stofnendur og eigendur
hinnar nýju verslunar eru Karl H.
Bridde og Björn Birgisson.
Veiðihúsið mun kappkosta að
hafa sem mest og best vöruúrval,
bæði af stangaveiðivörum og skot-
veiðivörum. A boðstólum verða öll
- Veiðihúsið
þau merki sem þekkt eru í veiði-
vörum hérlendis. Auk þess mun
verslunin bjóða upp á ýmsar nýj-
ungar og vörur, sem hingað til
hafa verið ófáanlegar hérlendis,
sérstaklega fyrir skotveiðimenn.
Einnig er ætlunin að bjóða í
framtíðinni ýmsar hundavörur,
t.d. hjálpartæki til þjálfunar, tösk-
ur, dráttarbeisli o.fl
(FrétUtilkynning).
Skóli Andreu
starfræktur á ný
SKÓLI Andreu Oddsteinsdóttur er
nú starfræktur á ný eftir nokkurra
ára hlé. Skólinn er til húsa á sama
stað og áður, Miðstræti 7.
Starfsemin er með nokkuð
breyttu sniði frá því sem áður var.
Nú er boðið upp á þriggja vikna
námskeið og er megináhersla lögð
á að leiðbeina konum um allt
varðandi limaburð, fataval, and-
litssnyrtingu, almenna háttvísi og
umgengnisvenjur. í einkatímum
er nemanda bent á sitthvað sm
betur kynni að fara í framkomu
hans, mannlegum samskiptum o.fl.
Það skal tekið fram að skóli
Andreu er ekki undirbúningsskóli
fyrir væntanlegar sýningarstúlk-
ur.
FrétUtilkynning
samræmi við það, sem höfundur-
inn er að lýsa. Hér ber lesaranum
að forðast það, sem einkenndi lest-
urinn á fyrri lýsingunni: mýkt í
raddbeitingu og hæga ferð. Hér
verður hann hins vegar að vera í
samræmi við hraða loftsins
(storminn) og vatnsins (fljóts-
ruðninginn).
Við þessa síðari lýsingu ber því
að beita þveröfugri tækni í radd-
beitingu og ferð. Hér krefst efnið
seinmitt hraða og raddstyrks, því
ekki má stöðva storminn og hávað-
ann, heldur ber að undirstrika
hann.
Við sjáum á þessum einföldu
dæmum betur og betur, hve góður
upplestur er náskyldur því til
dæmis að leika vel á hljóðfæri eða
syngja. Mismunurinn er einungis
sá, að hljóðfæraleikarinn eða
söngvarinn fær upplýsingar frá
tónskáldinu um aðalstefnuna í
túlkuninni, en lesarinn verður að
finna hana sjálfur í efninu sem
hann les.
í næstu grein mun ég snúa mér
að bundnu máli.
Spielbera
NYTT FRA MITSUBISHI
TREDIA
FOLKSBILL MED TORFÆRUEIGINLEIKA
/afnvígur í snjó, hálku ogaurbleytu —
á malarvegum og malbiki
A
Verð Irá kr. 597.000.
$
Þú kemst til áður ókunnra staða á
MITSUBISHI TREDIA með ALDRIFI,
85% læsinsu á afturdrifi, 19 cm veghæð
og aflstýri. ~~
Bíllinn, sem alla hefur dreymt um
Dæmi um staðlaðan búnað:
► Rafstýrðir útíspeglar
► Miðstýrðar hurðalæsingar
►' Rúliu bílbelti í öllum sætum
;A; K
HEKLAHF
Laiigavegi 170 -172 Sími 212 40
R29009
SSásÞ*
•**