Morgunblaðið - 22.10.1985, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 22.10.1985, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER1985 fl VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—11.30 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS ir Auglýsingar á íþróttasíðunum spurt og svarad Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS Stakanhöfði skrifar: Morgunblaðið býður lesendum sinum fjölmarga fasta liði á hverj- um degi og er þægilegt að geta flett upp þar ákveðnum upplýsing- um sem varða daglegt líf. Brids- skákþættir blaðsins eru með því besta sem birt er en þó er stundum sá ljóður á, í brids- dálkinum, að birt er sama spilið oftar en einu sinni og er það miður vegna hinna fjölmörgu sem ánægju hafa af bridsinu. Það má segja að langflestir, jafnvel þorri þeirra, sem lesa blað- ið á hverjum degi, fylgist af áhuga með því sem er á íþróttasíðunum. Mörg undanfarin ár hafa skrif blaðsins um íþróttir verið í háum gæðaflokki, ferskar fréttir og frá- sagnir af íþróttaviðburðum innan- og utanlands. Morgunblaðið sendir sína menn þangað sem heimsvið- burðir gerast og birt eru viðtöl við fræga kappa um allan heim. Vönd- uð umfjöllun og gott íslenskt mál hafa prýtt íþróttasíðurnar um langa hríð. Eitt er þó ótalið og það er hve mikils er um vert að uppsetning efnisins og fyrirsagnir sé vel unn- ið. Þessi atriði hafa öll verið í góðu lagi gegnum árin. Þá kem ég að því sem öðrum þræði er tilefni þessa pistils. Nú á síðustu og verstu tímum er að verða breyting á íþróttasíð- um, öllum til ama. Farið er að setja auglýsingar innan um íþróttafréttirnar. Þetta er í hæsta máta ósmekklegt og óviðeigandi. Það er mín ósk að íþróttasíðurn- ar megi halda reisn sinni og vera í fararbroddi eins og áður. En til að svo megi verða verður áfram að vanda allan frágang og uppsetn- ingu fréttanna, ekki síður en að vanda íslenskt mál og halda al- þjóðlegu yfirbragði í fréttaöflun. Nú hefur aftur verið tekinn upp sá háttur að gefa lesendum Morgun- blaðsins kost á að spyrjast fyrir um ýmislegt er varðar daglegt líf. Vel- vakandi leggur áherslu á að spurn- ingarnar séu stuttar og hnitmiðaðar, þeir sem vilja spyrjast fyrir um ákv. efni skulu hafa samband við Velvak- anda á símatíma milli kl. 10.00 og 11.30 árdegis eða skrifi til Velvak- anda c/o Morgunblaðið, Aðalstræti 6, Rvík. Spurt: Flugfarþegi hringdi til að spyrj- ast fyrir um hvers vegna reykjandi farþegar sitja hinum megin við ganginn við þá sem ekki reyktu. „Áður sátu hinir reykjandi í aftur- hluta en þeir sem ekki reyktu frammi í flugvélum." Svar: „f fyrstu var reyklaust svæði í framhluta vélarinnar en þeir sem vildu reykja sátu aftar,“ sagði Ásdís Alexandersdóttir fulltrúi viðskiptaþjónustu Flugleiða. „Þeg- ar SAS-flugfélagið tók að sér inn- ritun farþega fyrir Flugleiðir bauð skráningarkerfi SAS ekki upp á sömu skiptingu í reyklausa hluta og verið hafði í okkar flugvélum og því var skipt eftir endilangri vélinni. Þetta mál er nú í athugun og ég reikna með að aftur verði tekin upp fyrri skipting áður en langt um líður. Þó vil ég taka fram að á Atlantshafs- og Norður-Atlants- hafsleiðinni sitja reykjandi far- þegar saman aftar í vélinni sem fyrr, farþegar sem ekki reykja eru í framhluta vélarinnar. Þá hefur einnig verið ákveðið að taka upp þá skiptingu í leiguflugi til sólar- landa.“ Þessir hringdu . . . Áskorun til kvenna Guðrún Jónsdóttir hringdi til að koma á framfæri áskorun til kvenna. „Ég skora á konur að taka sér frí á kvennadaginn, 24. október, hvort sem þær eru heimavinnandi eða úti á vinnu- markaðnum. Með þessu eiga konur að mótmæla þeirri stað- reynd að laun okkar eru í engu samræmi við það að nú er kvennaáratugnum að ljúka. Á þessum degi ættu konur að hittast og ræða saman um væn- legar leiðir til að leiðrétta launa- misrétti kynjanna og einnig ættu allir sem vettlingi geta valdið að mæta á útfund ’85-nefndarinnar á Lækjartorgi þennan dag klukk- an tvö síðdegis. Ekki skattleggja sparifé Ágæti Velvakandi. Nú er rætt og ritað um fjár- mál. Eitt af þeim atriðum sem fram hafa komið í þessari um- ræðu er hvort skattleggja eigi sparifé almennings. Að mínu mati er þessi tillaga mjög ósanngjörn. Sparifjáreig- endur eru menn og konur sem hafa safnað saman ögn I varasjóð með því að lifa reglusömu og ágætu lífi. Auk þess hafa bankar fengið fé til rekstrar með þessu móti sem skapað hefur svigrúm til aukinna framkvæmda. Af því sem ég hef heyrt fleygt um þessi mál er Sjálfstæðis- flokkurinn mótfallinn þessari skattlagningu og ég efast ekki um að sú stefna skilar sér í auknu lýðhylli. Vonandi tekst flokknum að stöðva þessa hugmynd áður en hún kemst til framkvæmda. Gestnr 55s E. TH. MATHIESEN H.F. BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRÐI, SIMI 651000. FLISAR LEIR — MARMARI — GRANÍT A GÓLF — VEGGI — ÚTI — INNI HAGSTÆTT VERÐ OG GREIÐSLUSKILMÁLAR VERULEGUR MAGNAFSLÁTTUR _________MIKIÐÚRVALÁ LAGER______ TEIKNUM og veitum RÁÐLEGGINGAR komiö og skoðið úrvalið VÍKURBRAUT SF. KÁRSNESBRAUT 124, KÓP. S: 46044 Léttur, Ijúfur og þéttur Þú eyðir u.þ.b. I/3 hluta œvi þinnar f svefn og hvfld. Þvf skiptir það máli að þú veljir góðan kodda, - kodda sem veitir höfði og hálsi nákvœmlega réttan stuðning. Latex koddinn er hannaður til þess að mœta ítrustu kröfum vandlátra notenda og er prýddur fjðlmörgum kostum: • Hann er gerður úr hreinu náttúrugúmmfi, - sérstaklega hreinlegu efni sem hrindirfrá sér ryki og óhreinindum og þolir þvott. Hann er því einnig mjög heppilegur fyrir þá sem þjást af ofnœmi, asma og heymceði. 0 3000 rörlaga loftgöt sjá um að loftið leikur um koddann að innanverðu, - einstakt loftrœstikerfi sem tryggir jafnframt að koddinn heldur ávallt lögun sinni, er mjúkur og fjaðurmagnaður. Haltu þér fast! - Verðið kemur á óvart! Við erum með tvœr gerðir af Latex koddum: Mýkri gerð á kr. 576 - Stífari gerð á kr. 686. LWADUn Dugguvogi 8-10 Sfmi 84655 (”> Dunlopíllo
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.