Morgunblaðið - 22.10.1985, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER1985
-56
Byggingaþjónusta arkitekta:
Gluggasmiöjan kynn
ir framleiðslu sína
GLUGGASMIÐJAN heldur sýningu á framleidsluvörum sínum í Byggingar-
þjónustu arkitekta í Iðnaðarmannahúsinu við Hallveigarstíg, dagana 21. til
25. október. Þar verða kynntar ýmsar nýjungar, m.a. frá sænska fyrirtækinu
SAPA, Skandinaviska Aluminium Profiler AB, sem Gluggasmiðjan er
umboösaðili fyrir.
____________________ HHI
Frá vinstri Símon Gussurarson framleiðslustjóri í áldeild, Christer Engquvist
yfirmaður tæknideildar Sapa og Gissur Símonarson forstjóri Gluggasmiðjunn-
ar.
SAPA hefur nýlega sett á mark-
að nýtt álkerfi fyrir hallandi
gluggaveggi, þakglugga og sólstof-
ur og verður þetta kerfi kynnt á
sýningunni. Þar verða einnig
kynntar nýjar eldvarnarhurðir úr
áli, þær fyrstu sinnar tegundar
hérlendis, svo og sjálfvirkur opn-
unar- og lokunarbúnaður, sem
unnt er að tengja við þær. Glugga-
smiðjan hefur þegar selt og sett
upp yfir 70 hurðir með sjálfvirkum
búnaði í verslanir, stórmarkaði,
banka, sjúkrahús og endurhæfing-
arstofnanir. Fyrirtækið býður við-
skiptavinum sínum upp á eftirlits-
og viðhaldsþjónustu og koma eftir-
litsmenn á staðinn með reglulegu
. —------------------------------------------------------------------
-f-
.ft l
'
STOKKVA!
Við rýmunn fyrir nýjum birgðum.
Og þess vegna er lambakjöt ennþá
fáanlegt á gamla verðinu.
Á meðan birgðir endast gefst þér
tœkifœri til þess að fylla frystihólfin
af úrvalskjöti á einstœðu verði.
Það er góð búmennska!
Líttu við í nœstu verslun
og mundu að:
Ekki missir sá er
vt ia^aki% fyrstur fœr!
millibili til að yfirfara búnaðinn
og ganga úr skugga um að allt sé
í lagi.
Þá verður gestum sýningarinnar
gefinn kostur á að skoða ýmsar
tegundir af trégluggum, allt frá
hefðbundnum íslenskum tréglugg-
um til álklæddra glugga með nýj-
um opnunar- og þjófavarnarbún-
aði. Þess ber einnig að geta að á
þessari sýningu kynnir Glugga-
smiðjan nýja tegund af tréglugga,
veltiglugga, sem hlotið hefur nafn-
ið G-glugginn.
Sýningin í Byggingarþjón-
ustunni er opin daglega frá kl.
10:00 til 18:00. (f’r rrétutilkjnningu)
í nýja starfsmannaherberginii.
Borgarspítalinn:
Breytingar á
húsnæði og
stjórnskipu-
lagi deilda
Tilraun til að laða
að starfsfólk
UNDANFARNA mánuði hafa verið
framkvæmdar miklar breytingar á
skurð- og lyflækningadeildum Borg-
arspítalans, sem miða að bættri
vinnuaðstöðu. Er þetta tilraun af
spítalans hálfu aö laöa til sí > hjúkr-
unarfræðinga. Er hér um ; ð ræða
tvíþættar breytingar, breytingar á
húsnæði og stjórnskipulagi deild-
anna.
Breyting á húsnæöinu
Vinnuaðstaða iijúkrunarfólks
hefur verið bætt með því að
endurskipuleggja herbergjaskipan
deildanna. Samróma álit starfs-
fólksins er að breytingarnar hafa
tekist vel og gert deildirnar að
betri og þægilegri vinnustað.
Stjórnskipulag
Fram að þessu hafa allar
sjúkradeildir sjúkrahússins verið
mjög stórar og dagleg stjóri í
höndum eins deildarstjóra. Það f
yfirgripsmikið starf og mikilvægt
að hann hafi yfirsýn yfir sjúkl-
inga, starfsfólk og allt er varðar
starfsemina.
Eftir skipulagsbreytinguna eru
tvær sjálfstæðar deildir á hverj-
um gangi og deildarstjóri með
hverja deild. Hann hefur þá mun
færri sjúklinga í sinni umsjá eða
um 15—16 í stað 32ja sem áður
var. Undanfarið hefur verið mikill
skortur á hjúkrunarfræðingum til
starfa og því ekki verið hægt aö
reka allar deildir spítalans með
fullum afköstum.
I Borgarspítalanum er rúm
fyrir 469 sjúklinga, þar af 69 á
lyflækningadeild, 97 á skurðlækn-
ingadeild, 20 á gjörgæslu- og
gæsludeild, 103 á öldrunardeild, 91
á geðdeild og 89 á hjúkrunar- og
endu rhæfi ngardei ld. (Krétucíikynning)