Morgunblaðið - 04.01.1986, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 4. JANÚAR1986
Þrotabú Hafskips:
Gengid frá
kaupum
Eimskips
á mánudag?
BÚIST er viö að forráöamenn þrota-
bús Hafskips hf. og stjórnendur
Eimskipafélags íslands gangi frá
samningi um kaup Eimskips á eign-
um þrotabúsins á mánudag, en til-
boö Eimskips í eignirnar rennur út
síödegis þann dag. Ekki bárust
önnur tilboð í eignirnar áður en til-
boðsfrestur rann út á hádegi í gær.
Fulltrúar aðila hittust á fundi í
gær til að ræða endanlegan frá-
gang samnings þeirra og munu
þeir hittast aftur í dag. Markús
Sigurbjörnsson skiptaráðandi
bjóst ekki við að gengið yrði frá
samningnum fyrr en á mánudag.
Gera þarf nokkrar breytingar á
upphaflegu tilboði Eimskips, með-
al annars vegna þess að Skaftá
fylgir ekki með í kaupunum þar
sem hún verður seld á nauðungar-
uppboði í Antwerpen og fjöldi
gáma sem Hafskip var með á
kaupleigusamningi verða einnig
teknir undan, þar sem ekki þykir
borga sig að selja þá með eignun-
um.
Þrír hest-
ar horfnir
úr hesthús-
um Fáks
ÞRÍR hestar voru teknir úr hest-
húsum Fáks viö Víðivelli í fyrrinótt.
Tveir þeirra voru í sama húsi, en þó
ekki í sömu stíu. Ekkert hafði
spurst til hestanna í gærkvöldi.
Einn hestanna er rauður með
litla stjörnu, 16 vetra gamall,
annar er rauð-tvístjörnóttur,
fremur lítill, og þriðja hrossið er
steingrá meri, 8 vetra gömul.
Örn Ingólfsson framkvæmda-
stjóri Fáks sagði í samtali við
Morgunblaðið að líklega hefðu
hestarnir verið teknir úr húsunum
seint í fyrrakvöld eða í fyrrinótt.
Ef einhverjir geta gefið vís-
bendingu um hvarf hrossanna eða
hvár þau eru niðurkomin eru þeir
vinsamlegast beðnir að hafa sam-
band við Örn Ingólfsson eða lög-
regluna.
Yfirlýsing
frá stjórn
LÍN
MORGUNBLAÐINU barst eftirfar-
andi tilkynning í gær:
Stjórn Lánasjóðs íslenskra
námsmanna vill taka fram eftir-
farandi vegna þess að fram-
kvæmdastjóri Lánasjóðsins hefur
verið leystur frá störfum:
Menntamálaráðherra fer með
stjórnarfarslega yfirstjórn á mál-
efnum Lánasjóðsins. Það er því
fullkomlega á hans valdi og alfarið
á hans ábyrgð að leysa fram-
kvæmdastjórann frá störfum.
Stjórn Lánasjóðsins vonar að
þau deilumál sem uppi eru milli
ráðherra og framkvæmdastjóra
verða sem fyrst til lykta leidd.
Stjórn Lánasjóðsins mun gera
allt sem í hennar valdi stendur til
að námsmenn skaðist ekki vegna
þeirra breytinga sem nú eiga sér
stað.
Morgunblaöið/Árni Sæberg
Svo sem sjá má af þessari loftmynd af Aburðarverksmiðjunni í Gufunesi, þá barst eldur í sinu inn fyrir girðingu vcrksmiðjunnar og að húsum.
Athugandi að Áburðarverksmiðj-
an fái beina línu til slökkyistöðvar
— segir Rúnar Bjarnason slökkviliðsstjóri
„ALLAR símalínur hingað á Slökkvistöðina voru rauðglóandi í sex klukku-
stundir á gamlárskvöld og nýársnótt og því hafa starfsmenn Áburðarverk-
smiðjunnar ekki náð sambandi við okkur,“ sagöi Rúnar Bjarnason, slökkvi-
liösstjóri í Reykjavík, í samtali við Morgunblaöiö vegna fréttar blaösins í gær
um að Áburðarverksmiðjan hefði ekki náð símasambandi við slökkviliö þegar
eldur komst í sinu á lóð verksmiðjunnar. Slökkvilið Áburðarverksmiðjunnar
hefti útbreiðslu eldsins og slökkti, en vetnisframleiðslu var hætt um tíma.
„Ég legg áherslu á, að það er
slæmt þegar borgarar taka ekki
greinilegum varnaðarorðum frá
mér og fleirum um að hættuástand
gæti skapast ef menn skytu flugeld-
útn á loft vegna þess hve gróður var
þurr. Mér finnst slæmt að ekki skuli
vera hægt að breyta þeim ásetningi
fólks að skjóta flugeldum á loft, því
með því var augljóslega verið að
skapa hættuástand.
Ýmsir aðilar eru í beinu sambandi
við slökkvilið og vil ég sérstaklega
nefna lögreglu, sem alltaf kemur
boðum til okkar ef tilkynning berst
um eld. Einnig eru Rafmagnsveita,
Vatnsveita, borgarvakt, Almanna-
varnir, Flugturninn í beinu sam-
bandi við okkur. Því má benda fólki
á, að ef ekki næst samband við
okkur, þá getur lögregla haft milli-
göngu,“ sagði Rúnar.
Hann sagði að slökkvilið Áburð-
arverksmiðjunnar hefði staðið sig
mjög vel enda viðbúnaður góður þar
á bæ. „En það er athugandi og ekki
úr vegi, að Áburðarverksmiðjan fái
forgang, eins og til að mynda ráð-
herrabústaðurinn og Stjórnarráð-
ið,“ sagði Rúnar og bætti við að
fyrstu viðbrögð fólks á gamlárs-
kvöld og nýársnótt hefðu verið að
hringja í slökkvilið, jafnvel þó að-
eins hefði verið um smábruna að
ræða, sem auðveldlega hefði verið
hægt að slökkva án aðstoðar. Hann
sagði, að ekkert símaborð hefði
staðist þá skæðadrífu hringinga
sem yfir hefði dunið. „Á meðan á
þessu stóð hafði ég mestar áhyggjur
af að stórbruni yrði,“ sagði Rúnar
Bjarnason.
Menntamálaráðherra leysir framkvæmdastjóra LÍN frá störfum:
Þau skil sem mér voru gerð af
hálfu þessa sjóðs á síðasta
ári fylltu mig vantrausti
— segir menntamálaráðherra — Er mjög undrandi á þessari
uppsögn, segir Sigurjón Valdimarsson
MENNTAMÁLARÁÐHERRA, Sverrir Hermannsson, leysti Sigurjón Valdi-
marsson framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna frá störfum í
gær. Hrafn Sigurðsson viðskiptafræðingur var settur framkvæmdastjóri til
bráðabirgða og honum til aðstoðar Reynir Kristinsson hjá Hagvangi.
„Þetta er ekki skemmtiverk, en
ég hlýt að fara eftir samvisku
minni og þeim skyldum sem ég tel
að á mér hvíli. Hér er á ferðinni
milljarða sjóður og ég get ekki
stundinni lengur horft á hann
rekinn öðru vísi en undir stjórn
þeirra sem ég hefi ástæðu til að
treysta," sagði Sverrir Hermanns-
son menntamálaráðherra í samtali
við Morgunblaðið í gær. „Þau skil
sem mér voru gerð af hálfu þessa
sjóðs á síðasta ári fylltu mig van-
trausti á að vel og skynsamlega
væri á málum haldið og er ég þá
ekkert að vitna til þeirra mýmörgu
kvartana sem manni berast um
afgreiðslumáta þessarar stofnun-
ar. Ég vil gera breytingar og það
er verið að athuga hvaða breyting-
ar eru skynsamlegar.
Nú stendur fyrir dyrum úttekt
á starfsemi og stöðu sjóðsins og
takmarkið er að hún taki 3—6
mánuði. Lögin um sjóðinn eru til
endurskoðunar og koma til með-
ferðar í þessum mánuði. Samhliða
úttektinni og þegar niðurstöður
hennar liggja fyrir verða teknar
ákvarðanir og leitað lags um nýjar
reglur fyrir starfsemi sjóðsins, en
fyrr vil ég ekki tala um þær ávirð-
ingar sem þarna kunna að vera í
starfi.
Ég hef þegar skýrt frá þeim
vonbrigðum sem ég varð fyrir með
starfsemi þessa sjóðs á síðasta ári
og þeim áfellum sem ég taldi mig
liggja undir vegna skila þessa
sjóðs og starfsemi. Mér var ekki
gerð grein fyrir stöðu mála sem
skipti tugum milljóna króna. Við
borð lá að ég yrði gerður að brigða-
manni gagnvart þúsundum náms-
manna. Þannig ætla ég ekki að láta
mig bera upp á sker án þess að
hafa í frammi einhver viðbrögð við
að reyna að byrgja brunninn áður
en barnið dettur aftur ofan í,“
sagði Sverrir Hermannsson
menntamálaráðherra.
„Ég er mjög undrandi á þessari
uppsögn," sagði Sigurjón Valdi-
marsson í samtali við Morgun-
blaðið. „Það hafa komið fram í
blöðum ásakanir á hendur sjóðn-
um og þær eru allar skýranlegar.
Ég veit að ég hef sinnt mínu starfi
af trúmennsku og axlað þá ábyrgð
sem á þessum sjóði hvílir og er
því afskaplega hissa á þessum
aðgerðum menntamálaráðherra.
I dag komu til mín Auðunn
Svavar Sigurðsson formaður
stjórnar Lánasjóðs íslenskra
námsmanna og Eiríkur Ingólfsson
stjórnarmaður. Þeir báru mér til-
mæli frá menntamálaráðherra um
að ég segði þessu starfi lausu. Ég
sagði þeim að ég gæti ekki orðið
við þeim tilmælum. Ég sæi ekki
að ég hafi brotið neitt af mér í
mínu starfi. Ég hefði gegnt því af
trúmennsku miðað við þær að-
stæður sem sjóðnum eru búnar.
Þá afhentu þeir mér bréf ráðherra.
Ég mun svara því sem getið er
um í uppsagnarbréfinu og að sjálf-
sögðu mun ég leita mér lögfræði-
legrar ráðgjafar varðandi þetta
mál,“ sagði Sigurjón Valdimars-
son.
í gær sendu starfsmenn LÍN
frá sér ályktanir þar sem m.a. er
tilkynnt að þeir taki ekki í mál að
vinna yfirvinnu um sinn vegna
þess að menntamálaráðherra hef-
ur vikið framkvæmdastjóra sjóðs-
ins frá störfum. Þá er brottvikn-
ingunni harðlega mótmælt. í lok
ályktunarinnar segir: „Þar sem svo
fautalega er að þessu staðið áskilj-
um við okkur fullan rétt til að-
gerða, svo framarlega sem ráð-
herrann dregur ákvörðun sína ekki
til baka fyrir hádegi mánudaginn
6.janúar nk.“
„Þeim starfsmönnum sem hafa
haft þrek til að vinna allt að 170
klukkustundir á mánuði í yfir-
vinnu er líklega ráðlegt að taka
sér aðeins hlé frá slíkum þræl-
dómi,“ sagði menntamálaráðherra
er hann var spurður álits á þessum
ályktunum. „Ég vona að þessar
aðgerðir verði löglegar þar sem
starfsmenn sjóðsins bera mér á
brýn lögleysu. Það er fjarri lagi
að ég beygi mig um hársbreidd
fyrir slíkum hótunum."
ö
INNLENT
■sæ msBg
VCunMúht
• *'