Morgunblaðið - 04.01.1986, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.01.1986, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 4. JANÚAR1986 14 Minning: Gísli Björgvin Kristjánsson Fæddur 28. febrúar 1904 Dáinn 12. desember 1985 Þeir sem komu til starfa fyrir íslenskan landbúnað á fyrrihluta aldarinnar hafa fylgst með og átt þátt í miklu ævintýri. Tæknibylt- ingin, framræsla lands, ræktun túna, kynbætur búfjár, bætt fóðr- un þess og meðferð, aukning af- urða og margföld fjölbreytni í vinnslu þeirra hefur að mestu átt sér stað síðustu 40—50 árin. Það var gæfa þessara manna að lifa bestu starfsár sín á vaxtar- og framfaraskeiði þegar bjartsýni ríkti og hverri nýjung var tekið fagnandi. Þeir sáu sveitirnar grænka og býlin byggjast upp og fylgdust með því hvernig hver vinnandi hönd í sveitunum skilaði stöðugt meiru og meiru í bú þjóð- arinnar með hverju ári sem leið. Þá voru störf þeirra sem unnu að rannsóknum, leiðbeiningum eða kennslu í þágu landbúnaðarins metin sem þjóðþrifastörf og það ekki talið eftir, sem lagt var af mörkum til að leiðbeina bændum í hraðfara sókn þeirra til betri og nýtískulegri búhátta. Á þessum tíma komu margir ungir og vaskir menn til starfa fyrir landbúnaðinn. Spor þeirra sér víða. Einn af þessum gæfusömu dugnaðarmönnum var Gísli Björg- vinsson Kristjánsson fyrrverandi ritstjóri Freys, sem nú er látinn á 82. aldursári. Gísli var Svarfdælingur að ætt og uppruna og ólst þar upp til manndómsára. Hann fæddist 28. febrúar 1904 í Gröf í Svarfaðardal, en foreldrar hans þau hjónin Kristín Kristjánsdóttir og Krist- ján Sigurjónsson er bjuggu langan búskap sinn á Brautarhóli og þar ólst Gísli upp elstur í hópi sex systkina. Ekki þarf að fara mörgum orð- um um æskuumhverfi Gísla í Svarfaðardal. Fólkið sem þaðan er komið frá þessum tíma hefur svo margt borið sveitinni og menn- ingarlífi hennar fyrr og síðar fag- urt vitni. Þess nægir að geta að Gísli var þar vel gjaldgengur, vakti snemma athygli fyrir dugnað og hug til framfara og var m.a. einn af stofnendum ungmennafélags í sveitarhlutanum. Rúmlega tvitugur hélt hann til náms að Hólum í Hjaltadal og lauk þaðan búfræðiprófi vorið 1925. Næst fór hann eins og margir ungir fslendingar á þeim tíma til náms við íþróttaskólann í Ollerup í Danmörku og var þar 1926-1927 en kom síðan heim og var kennari unglinga á Dalvík árin 1928—1930, auk þess sem hann stundaði versl- unarstörf, var m.a. verkstjóri við vegagerð og vann að jarðyrkju í dalnum. Veturinn 1930—31 kenndi hann á Hólum í Hjaltadal. Aftur fór hann til Danmerkur og stund- aði þar m.a. nám við lýðháskóla og búnaðarskóla en innritaðist nokkru síðar í Landbúnaðarhá- skólann í Kaupmannahöfn og lauk þaðan kandidatsprófi vorið 1939 og sérfræðinám frá sama skóla 1941. Síðan var hann við ýmis sér- fræði- og rannsóknarstörf í Dan- mörku þar til hann fluttist heim seint á árinu 1945. Á þessum árum hlaut hann rannsóknarstyrk og stundaði auk þess hagfræðinám við verslunarháskólann í Höfn. Eftir að Gísli kom til Dan- merkur til síðari dvalar sinnar átti hann við þrálátan sjúkdóm að stríða og lá Iangtímum saman á sjúkrahúsum, lengst af á Ríkis- spítalanum í Kaupmannahöfn. Þar kynntist hann eftirlifandi konu sinni sem er Thora Margarethe f. Nilsen. Thora var þá við hjúkr- unarnám. Þau gengu í hjónaband 1937 meðan Gísli var enn við nám í háskólanum og má telja fullvíst að því námi hefði hann tæpast lokið án hennar hjálpar, slíkur var styrkur hennar þá og jafnan síðan í hetjulegri baráttu hans við þrá- Iátan sjúkdóminn. Gísli kom heim frá Danmörku með fjölskyldu sína síðla árs 1945 og var þá ráðinn ritstjóri Búnaðar- blaðsins Freys, og tók við því starfi frá og með 1. tölublaði 1946. Þá er Gísli rúmlega fertugur, fjöl- menntaður í búfræði og á öðrum sviðum, með fjölþætta reynsiu við margháttuð félagsstörf, störf við rannsóknir og leiðbeiningar en þó framar öðru fullur áhuga á málum bændastéttarinnar, landbúnaðar- ins og öllu því sem til framfara horfði. Þá hefst hin langa og ótrú- lega fjölþætta starfssaga hans hjá Búnaðarfélagi Islands og fyrir bændasamtökin. Þá voru tímamót í útgáfu Freys, hann var stækkaö- ur, Stéttarsamband bænda gerðist aðili aö útgáfu hans og fyrirhugað var að starf ritstjóra, sem áður var hlutastarf yrði nú „fullt“ starf. Það var það svo sannarlega, en Gísli var aldrei einhamur og öll þau 30 ár sem hann sá um Frey, lengst af einn og án aðstoðar, sinnti hann fjölmörgum störfum öðrum svo mörgum og umfangs- miklum að furðu vekur. Hér verður ekki reynt að rekja alla starfssögu Gísla Kristinsson- ar í smáatriðum. Um hana má lesa í uppsláttarritum og er þar þó ekki allt talið. Af umfangsmestu störfunum sem Gísli sinnti má nefna stjórn hans á „Búnaðar- fræðslunni" svonefndu er hófst 1953 og starfaði nokkur ár fyrir sérstök fjárframlög. Til hennar voru ráðnir fjórir umferðarráðu- nautar, er héldu fræðslufundi um landið og lögðu út tilrauna- og sýnisreiti á túnum og grænfóður- ökrum. Nýtt fræðsluefni var samið í stórum stíl, m.a. fræðslumyndir og hafin var útgáfa fræðslurita (smárita) um fjölþætt efni. Alls urðu þau yfir 40 og annaðist Gísli ritstjórn þeirra allra og mörg samdi hann sjálfur. Gísli lét sig alifuglarækt alltaf miklu skipta. Hann var stofnandi og framkvæmdastjóri fuglakyn- bótabús er nefndist Hreiður. Hann sá löngum um innflutning eggja til kynbóta og var lengst af ráðu- nautur BÍ í alifuglarækt þó að aldrei væri það metið sérstaklega til launa frekar en svo margt annað sem hann annaðist fyrir Búnaðarfélagið. Gísli annaðist mjög margþætt samskipti Búnað- arfélags (slands við önnur lönd og erlendar stofnanir og félög, eink- um þó á Norðurlöndum. Af slíkum störfum má nefna að hann var fulltrúi fræðsludeildar OECD í París hér á landi, og átti þátt í að margir íslenskir búfræðingar nutu styrkja til framhaldsnáms frá þeirri stofnun. Hann hafði milli- göngu um skólavist fyrir unga Islendinga bæði á búnaöarskólan- um og búnaðarháskólanum, eink- um í Danmörku og Noregi, og á sama hátt vistaði hann fjölmörg ungmenni til starfa við landbúnað, íslensk á Norðurlöndunum og Norðurlandabúa hjá íslenskum bændum. Allt fram á síðustu ár annaðist hann samskipti BÍ við Grænland sem staðið hafa um ára- tugi og sýndi grænlenskum sauð- fjárræktarnemum sem hér hafa dvalist 5—8 á ári hverju, á viður- kenndum sauðfjárbúum, alveg einstaka umhyggju. Öll þessi að- stoð Gísla við íslensk og erlend ungmenni var veitt sem sjálfsagð- ur hlutur án þess að hugsað væri um það hvað hún kostaði í tíma og fyrirhöfn, hvað þá að hugsað væri um endurgjald. Þessi þáttur í störfum Gísla fannst mér e.t.v. að lýsi manninum hvað best. Enn eru ótaldir ýmsir þættir af störfum Gísla við búnaðarfræðslu. Hann tók þátt í samstarfi Norður- landanna um gerð fræðslumynda og annars fræðsluefnis. Um aldar- fjórðung hafði hann umsjón með búnaðarþáttum í Ríkisútvarpinu. Þá var hann lengi virkur í fræðslu- deild Norrænu búfræðisamtak- anna (NJF). Eitt af stórvirkjum Gísla var ritstjórn hans á íslenska hlutanum í norrænni samheitaorðabók yfir landbúnaðar- og búfræðiheiti, Nordisk Landbruksordbok, sem kom út í Olso 1979. Það má þakka Gísla það fyrst og fremst aö hlutur íslenskunnar lá þar ekki eftir þó að margir legðu þessu lið. Gísli hafði sem fyrr segir mikil afskipti af vistun fólks á milli íslands og annarra landa. Á 35 árum vistaði hann í allt á milli 2600—2700 útlendinga til starfa við landbúnað hér á landi, en hann hafði lengi umsjón með Ráðninga- stofu landbúnaðarins og hafði því einnig mikil afskipti af vistun unglinga úr bæjum í sveitum. Þá var hann hin síðari ár umsjónar- maður forðagæslunnar og hélt þeim störfum áfram fyrir Búnað- arfélagið, eftir að hann lét af föstu starfi fyrir aldurssakir og var þá vakandi yfir öllum þáttum þeirra mála, svo sem að sjá um útvegun og flutninga á heyjum á milli hér- aða og landshluta. Eftir að hann lét af föstu starfi sem ritstjóri hélt hann áfram skrifum í Frey og fjölmargar greinar birtust þar eða í öðrum ritum allt til hins síðasta. Þá sá hann um 6 ára skeið um útgáfu bókaflokks fyrir Skuggsjá, „Faðir minn bóndinn" o.fl. En einna umfangsmest af þessum „eftirvinnu“-störfum Gísla var út- gáfa hans á ritverkum Sr. Björns Halldórssonar í Sauðlauksdal, er hann vann að fyrir Búnðarfélagið ásamt dr. Birni Sigfússyni, og komu út 1983. Störf eða ritverk Gísia verða hér ekki rakin nánar, en ljóst má vera af því sem nefrft hefur verið að afköst hans voru með hreinum ólíkindum og þó enn frekar þegar þess er gætt að hann átti löngum við vanheilsu að stríða og þurfti oft að vera frá störfum vegna dvala á sjúkrahúsum. En þó að eitthvað hrjáði líkamann var hugurinn stöðugt jafn óbugaður og bjartsýn- in ódrepandi. Gísli var mikill gæfumaður í einkalífi sínu. Þeim Þóru varð fimm barna auðið, þau eru: Rúna, kennari og rithöfundur, fædd 1940, Stína, kennari og les nú guðfræði við Háskóla fslands, fædd 1943. Edda kennari og fóstra, fædd 1944, Lilja hjúkrunarfræðingur og Hans bifvélavirki eru tvíburar og fædd 1949. Fram til 1956 bjó þessi stóra fjölskylda á loftinu í Búnaðarfé- lagshúsinu við Lækjargötu að þau fluttu í nýbyggt hús að Hlíðartúni 6 í Mosfellssveit. Þar ræktuðu þau og prýddu, og fjölskyldan eignaðist fagurt heimili í gróðursælum garði allt í samræmi við hugsjónir og ævistörf húsfreyjunnar, bóndans og barnanna. Gísla var sýndur margháttaður sómi og hlaut heiðursmerki fyrir störf sín bæði innlend og erlend. Hann var heiðursfélagi Búnaðar- félags íslands og Æðarræktarfé- lags íslands enda einn af stofnend- um þess. Er ég leit yfir ávarpsorðin þegar Gísli heilsar lesendum Freys í árs- byrjun 1946 vöktu m.a. athygli mína eftirfarandi setningar: „Það er veglegt starf að yrkja land og skapa gróanda í brekku eða á bás. Nýgræðingurinn og ungviðið, sem bregða sér á leik í blíðu vors- ins, eru vísar þeirrar búmegunar, sem íslenskum bændum er falið að vernda og efla. Það er göfugt hlutverk að hjálpa skaparanum til að skapa." í þess- um anda starfaði Gísli Kristjáns- son allan sinn langa starfsdag. Er Gísli lét af ritstjórn Freys fyrir réttum ellefu árum þakkaði dr. Halldór Pálsson honum störfin með eftirfarandi orðum sem skulu verða lokaorð þessarar greinar og ítrekun á þakklæti Búnaðarfélags íslands fyrir öll hans störf, einnig þau sem þá áttu eftir að bætast við. „Búnaðarfélag íslands fær aldrei fullþakkað það happ að fá Gísla Kristjánsson til að taka að sér ritstjórn Freys, er hann rúm- lega fertugur kom heim frá Dan- mörku í lok síðari heimsstyrjald- arinnar eftir nær tveggja áratuga dvöl þar í landi við nám og störf. Gísli var þá og er enn gæddur frá- bæru viljaþreki, óvenjulegri at- orku og starfsgleði og þrá til þess að verða öðrum að liði. Hann hefur óbilandi trú á því, að það starf, sem unnið er af góðum huga, komi að tilætluðu gagni. Gísli bjó yfir hafsjó þekkingar á búnaðarmál- um, er hann tók við ritstjórn Freys, og hefur sífellt haldið henni við og aukið hana. Hugsjón hans var að miðla öðrum af þekkingu sinni og annarra. Hann hóf því glaður starfið við Frey. Þar gafst tækifærið til að þjóna íslenskum bændum og búaliði." Við hjónin sendum Þóru, börn- unum og barnabörnunum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Jónas Jónsson Á miðjum sjötta áratugnum var Mosfellssveit ennþá sveit, þar sem stundaður var búskapur með hefð- bundnum hætti. Leiðin til Reykja- víkur þótti löng og fáir hugðu á á búsetu í sveitinni aðrir en þeir sem þar höfðu atvinnu, eða þeir sem bjuggu yfir sérstökum kjarki eða framsýni. Þéttbýli var að vísu að byrja að myndast, einkum kring um Ála- foss og Reykjalund. Vísir að sjálf- stæðum byggðakjarna var rétt að byrja að mótast á Sauðholtsmýr- inni, milli Lágafellshamra Úlfars- fellsins annars vegar en Lágafells- túnsins hins vegar. Eitt allra fyrsta húsið þarna var hús Gísla Kristjánssonar, ritstjóra Freys. Hann varð jafnframt fyrstur þeirra sem ekki áttu tengsl við sveitina áður til að festa sér ból á þessum stað. Hann byggði mynd- arlega og vakti fljótt athygli fyrir fallegan frágang á húsi og lóð og sérstaka snyrtimennsku. Þarna reis svo á næstu árum lítið en snoturt hverfi, sem fékk heitið Hlíðartún. Gísli sagði mér seinna að efnt hefði verið til hug- myndabanka um nafn á hverfið, og hefði Sigríður Tómasdóttir, sem um svipað leyti reisti hús, ásamt manni sínum Þórarni Lýðssyni, handan við götuna gegnt húsi Gísla, átt hugmyndina að nafninu. Þarna bjó Gísli það sem hann átti ólifað, eða um þrjá áratugi. Ekki er ofmælt að hann hafi sett svip sinn á byggðina og hag hennar bar hann jafnan fyrir brjósti. Þess naut hún líka meðan hann hafði krafta til að beita sér. Það var til dæmis fyrir hans milli- göngu, að gerð var tilraun með skógrækt á spildunni milli húsa- lóðanna og þjóðvegarins, þar sem við köllum nú í Litlaskógi. Þessi skógur er þegar orðinn okkur mikið skjól og verður væntanlega snyrtur svo sem vert er í framtíð- inni. Þess sér þegar nokkurn stað, að svo muni verða. Ég varð meðal þeirra síðustu sem þarna hófu að reisa hús. Hafi ég ekki vitað það fyrr varð mér fljótt ljóst hversu vel Gísli fylgdist með í sinni heimabyggð. Hann gekk oft um götuna og virti fyrir sér það sem verið var að gera, eða bara framgang gróðurs og garða. Á þessum gönguferðum hitti hann oft aðra íbúa hverfisins og gaf sér- tíma til að spjalla. Yfir því sem honum þótti gagnrýnivert hjá öðrum íbúum þagði hann að öllu jöfnu, en hældi því sem honum líkaði vel. Skraf við Gísla á þessum gönguferðum hans urðu mín helstu kynni af honum. Gagnkvæmar heimsóknir með setu yfir kaffiboll- um tíðkuðum við ekki, en af spjall- fundunum á götunni lærðum við að virða hvor annan og meta. Um ævi hans og feril ætla ég mér ekki að fjölyrða. Til þess verða aðrir mér færari. Þessi fáu kveðju- orð eru aðeins til orðin vegna þess að ég veit að Hlíðartúnshverfi í Mosfellssveit á nú á bak að sjá einum stofnenda sinna og jafn- framt þeim manninum sem gefið hefur því mestan lit. Á einhvern hátt veitti það nota- lega öryggiskennd að sjá Gísla ganga um Hlíðartúnið, hnarreist- an og virðulegan, með staf í hendi. Þannig sá ég hann oftast, þannig sá ég hann síðast, og þannig mun ég sjá hann í minningunni. Ég þykist mæla fyrir munna allra íbúa Hlíðartúns, þegar ég nú að leiðarlokum þakka Gísla sam- fylgdina og viðkynninguna. Ekkju hans, afkomendum þeirra og aðstandendum, bið ég blessun- ar. Hlíðartúni, á nýársdag 1985, Sigurður Hreiðar. Gísli B. Kristjánsson fyrrv. rit- stjóri er nú fallinn í valinn. Hann lést í sjúkrahúsi í Reykjavík á aðfangadag jóla sl. Gísli fæddist að Gröf í Svarfaðardal þ. 18. febrú- ar 1904 og var af traustum bænda- ættum kominn, en kann ég því miður ekki að rekja það nánar. Gísli varð snemma bráðger og framsækinn bæði í störfum og leik. Hann var mjög góður leikfimimað- ur og fór erlendis til náms í hinum nafntogaða íþróttaskóla í Ollerup. Það var mikið fyrirtæki og í slíkt nám völdust einungis afburða efnilegir íþróttamenn. Námsferill Gísla varð alllangur og var ástæð- an tafir vegna langvarandi veik- inda er hann fékk á fyrstu Dan- merkurárum sínum og barðist við æ síðan af fádæma kjarki og hetju- lund. Að lokinni síðari heimstyrjöld- inni kom Gísli heim og gerðist þá þegar ritstjóri búnaðarblaðsins Freys, en hafði einnig mörg önnur járn í eldinum. Meðal annars stofnaði hann árið 1946 hlutafé- lagðið Hreiður hf. að Reykjum og varð stjórnarformaður. Tilgangur félagsins var að reka hænsnabú með nýjustu þekktu aðferðum. Aðilar að þessu búi voru ásamt öðrum bændur úr héraðinu, m.a. Reykjabændur, Guðmundur og Bjarni, en þeir lögðu til húsið og lóðina. Vélakostur var fluttur inn frá Danmörku ásamt nýjum hænsnastofni. Starfsmenn voru danskir en Gísli sá um allar fram- kvæmdir og reksturinn blómgaöist fljótt. Strax árið eftir stofnun fé- lagsins kom ég heim frá námi og hófst þá skömmu seinna samstarf okkar Gísla. Þetta samstarf var allnáið fyrstu árin eða til 1960, er félagið seldi eignir sínar að Reykj- um og flutti búrekstur sinn annað í Mosfellshreppi. Hlutir í félaginu voru þá seldir öðrum. Um það bil 30 árum frá stofndegi þessa félags sameinuðust margir fuglabændur og keyptu sig inn í það, juku hlut- afé og breyttu markmiði þess lítils háttar. Verkefnið var nú að byggja og reka nýtísku fuglasláturhús hér í námunda við markaðinn i Reykjavík. Gísli tók forystuna og starfaði með mér í byggingarnefnd félagsins í tvö ár eða svo, en dró sig þá í hlé. Þá vorum við Gísli aftur orðnir nánir samstarfsmenn. Gísli skildi þannig við að við yngri mennirnir áttum að geta rekið þessa starfsemi. í nær 40 ára samstarfi á ýmsum sviðum fór ekki hjá því að okkur Gísla sýndist sitt hvorum um ýmsa hluti. Frábær drengskapur, mikil elja og dugnaður hans var þó í fyrirrúmi, og með árunum jókst vinátta okkar við þau hjón Thoru og Gísla og fjölskylduna í Hlíðar- túni. Ávallt var það okkur til ánægju að heimsækja þau hjón. Þau fluttu snemma á sjötta ára- tugnum hingað í Mosfellssveitina, byggðu fallegt hús og ræktuðu stóran, gjöfulan og snyrtilegan blóma- og matjurtagarð. Þá fór ekki hjá því að Gísli gerðist virkur í félagsmálum sveitarinnar. Hann virtist hafa tíma til alls, en svo sem kunnugt er annaðist hann margháttuð og vandasöm störf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.