Morgunblaðið - 04.01.1986, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 04.01.1986, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JANÚAR1986 Guðjóri Ólafsson Stóra Hofi — Minning Fæddur 1. ágúst 1903 Dáinn 24. desember 1985 Langri ævigöngu er lokið, lúinn líkami fær hvíld. Þetta er gangur lífsins og svo sjálfsagt sem það þó er verður það ætíð til þess að staldrað verður við. Sæti verður autt í hugskotinu og myndir og minningar sækja að. Hann Guðjón er svo sannarlega einn þeirra sem sæti á í þessum minningamyndum mínum allt frá bernsku minni. Einn þeirra sem var hluti af henni frá fyrstu tíð, frændinn sem hélt öruggum hönd- um um mig á hnakknefinu fyrir framan sig ef því var að skipta, frændinn sem átti myndavél til þess að geyma augnablikin á filmu, átti munnhörpu sem virðist dá- semd alls sem hægt var að hugsa sér. Og allt í einu er hann ein- hverju sinni kominn af sjónum og það meira að segja frá útlöndum, með þessar einstöku brúður handa okkur systrunum. Þær lokuðu augunum eins og við, sváfu í finum kössum klæddar bleiku og fjólubáu híalíni, með postulínshöfuð svo. brothætt að litlar, óstyrkar hendur fengu aðeins að halda á þeim stund og stund. En dýrð þeirra gleymist seint þótt þær séu löngu úr sög- unni. Guðjón Ólafsson var fæddur 1. ágúst 1903 á Barkarstöðum í Fljótshlíð, þar sem foreldrar hans, Hreiðarsína Hreiðarsdóttir og Ól- afur Þorleifsson voru þá. Þetta voru tímar erfiðisvinnu og lítilla tækifæra fyrir ung hjón að byrja búskap. Þeim bættust fljótt börn til viðbótar og einn góðan veður- dag er Hreiðarsína komin ofan í Landeyjar að Vatnshóli til Gott- skálks, hálfbróður síns, og konu hans, Sigurbjargar Sigurðardótt- ur, sem þar bjuggu. Með sér hefur hún sveininn Guðjón, að fá fóstur fyrir hann. Þau Vatnshólshjón áttu þá tvo syni nokkuð eldri en Guðjón og tóku þeir vel þessum fósturbróður sínum. Annar þeirra var faðir minn. Guðjón leit á hjónin í Vatns- hól sem sína aðra foreldra og unni þeim, þótt hann missti aldrei tengslin við sína eiginlegu foreldra og léti sér annt um þá alla tíð. Það varð honum mikið áfall er Sigurbjörg fóstra hans lést 1911, þótt hann nyti góðrar umönnunar Ásthildar, móðursystur sinnar, sem hélt heimili með bróður sínum uns hann kvæntist aftur og flutti til Vestmannaeyja. Ekki er mér ljóst hversu lengi Guðjón var með fjölskyldu afa míns, en hitt veit ég að afi bar hag hans og velferð fyrir brjósti alla tíð. Um það vitna bréf sem afi skrifaði föður mínum eftir að þeir Guðjón voru báðir fluttir frá hon- um og fylgdust stundum að. Faðir minn fór sem vinnumaður að Grafarholti í Mosfellssveit og kvæntist síðar næstyngstu heima- sætunni þar. Guðjón réðst svo þangað líka og tók slíka tryggð við það heimili að sérstakt má kalla. Heimilisfólkið í Grafarholti var margt og húsbændur vildu geta boðið fólki sínu upp á gott og menningarlegt líf, bæði í starfi og leik. Þarna varð Guðjón viðloð- andi, milli þess sem hann var til sjós og sigldi á togurum. í Grafar- holti kynntist Guðjón konuefni sínu, Björgu Árnadóttur, ættaðri austan úr Norður-Múlasýslu. Þá var að hugsa til eigin búskapar og að koma sér í væntanlegan sama- stað. Guðjón sagði mér einu sinni undan og ofan af því ferðalagi er þau Björg fluttu austur í Gnúp- verjahrepp og hófu búskap á hluta af jörðinni Stóra-Hofi, sem varð aðal lífsvettvangur þeirra. Þau bjuggu þar um árabil af miklum dugnaði, bættu bæði jörð og húsa- kost, ólu þar upp börn sín fimm og unnu meðan kraftar entust. Þann þátt þekkja sveitungar hans og samferðafólk betur. Árin hér í Reykjavík urðu mörg, en hugurinn var löngum bundinn eystra. Guðjón vildi veg Stóra- Hofs sem mestan. Heilsuleysi beggja, en þó einkum Bjargar, varð þeim þungt í skauti. Léleg heyrn bagaði Guðjón mjög á seinni árum og gerði honum nær ókleift að nota síma. Samfundum fækkaði, en fögnuðurinn og alúðin voru hin sömu hvenær sem hann hitti eitthvert okkar frændsystk- ina sinna. Slík var tryggð hans við ættingjana nær og fjær. Einnig voru systkinabörn móður minnar og allt er tengdist gamla Grafar- holtsheimilinu honum afar kært, svo sem áður er minnst á. Fyrir þetta allt sé honum þakkað. Guðjón var mjög minnugur og fróður um margt frá fyrri tíð. Hann hafði gaman af að segja frá og átti gott með að festa á blað það sem hann vildi ekki láta falla í gleymsku. Um það vitna meðal annars bréf sem systir mín fékk frá honum ekki alls fyrir löngu. Löngum vinnudegi er lokið. Er þá ekki hvíldin kærkomin? Gð blessi Björgu k'onu hans, börn þeirra og ættmenn alla. Guð blessi minningu Guðjóns Ólafsson- ar. Kristrún Hreiðarsdóttir Siguröur Sigurðs- son - Minning Fæddur 4. september 1970 Dáinn 22. desember 1985 Við leggjum engan stiga yfir hafið barnið mitt engar brýr yfir dagana fægjum engar minningar Aðeinsveruleikinn gengur óstuddur upp tröppurnar heima. (V.G.) Síminn hringir. Mér er sagt frá sviplegu fráfalli Sigurðar Sigurðs- sonar nemanda míns og vinar. Strengur í brjósti mínu brestur. Ég minnist ljóðs ungu skáldkonunnar og er sammála henni um að „Að- eins veruleikinn gengur óstuddur upp tröppurnar heima“. Um það bil er hátíð ljóssins nálgast flest heimili í landinu leggst myrkur yfir heimili Kristín- ar Guðmundsdóttur og Sigurðar Ingvarssonar á Sunnubraut 8 í Garði; einkasonur þeirra lést 22. desember, aðeins 15 ára að aldri er hann hvarf á vit hins óræða: blóm vors skammvinna lífs það rís upp á sléttri grund með lit og blöð ogeinndager þaðhorfið ... segir Jóhannes úr Kötlum. Það er ískaldur veruleiki að Siggi er ekki lengur á meðal okkar — horf- inn — hefur tekið höfn á annarri strönd — strönd hi-ns ókunna. Stóll hans og borð standa auð í Safa- mýrarskóla. Kynni okkar Sigga hófust 1983 þegar ég hóf kennslu í Safamýrar- skóla. Síðan höfum viö raunar aldrei misst sjónar hvort á öðru. Höfum ræktað vináttu. Strengur legið á milli okkar. Hann var stundum kallaður Siggi hennar Hólmfríðar. Þá var ég dulítið stolt innan í mér. í vetur hef ég sett upp markmið og kennsluáætlanir fyrir hann og ber því að mestu ein ábyrgð á þeirri kennslu sem hann fékk — en auk okkar voru tveir nemendur og tveir kennarar í hóp. Þar fékk Siggi m.a. kennslu í félagslegum sam- skiptum og íþróttum. Hljóðlát og hlý var vinátta okkar. Við opnuðum oft faðminn mót hvort öðru — undum sæl saman. Trúnaðartraust okkar var fólgið í því að hvorugt hræddist hið óþekkta — við vissum ná- kvæmlega hvers við gátum vænst hvort af öðru. Sigga auðnaðist að færa góðvild og ástúð sína svo hljóðlaust og látjaust til mín að undrun sætti. Ég sá ýmislegt speglast í svip hans og látbragði. Hæfni til að tala hafði hann ekki. Hann kenndi mér að orð eru oft á tíðum ekki nauðsynleg. Án orða lagði ég verkefnin fyrir hann. Áhugi var fyrir hendi — innri umbun fóst í verkefnunum sjálf- um. Leiðbeinandinn stóð álengdar og rétti hjálparhönd ef nauðsyn krafði. Hlutverk kennarans var því fólgið í því að byggja kennsluna upp og gæta þess að nemandanum mistækist ekki. Við þessi verkefni vann Siggi eina kennslustund á dag. Á opna skóladeginum 4. nóv- ember í vetur sýndi Siggi foreldr- um sínum hvernig hann leysti verkefnin. Honum tókst vel upp. Þá vorum við montin með okkur, við Siggi! Sú von bæðist alltaf með mér að Siggi litli fengi bærilegri heilsu. Ég trúði því einatt og von- aði að leiðbeinendum hans og for- eldrum tækist að efla og stuðla að þroska hans og að honum yrði gert kleift að takast á við sértæk- ari verkefni. En heilsa hans var oft afleit og tími hans á meðal okkar of naumur. Steinn Steinarr segir: Peningamarkaðurinn r GENGIS- SKRANING Nr. 247 - - 30. desember 1985 Kr. Kr. Toil- Ein. KI.09.15 Kaup Sala gengi Dollari 42,000 42,120 42,380 SLpund 60,627 60,800 60,487 Kan.dollari 30,043 30,129 30,259 Dönsk kr. 4,6849 4,6983 4,6495 Norsk kr. 5,5391 5,5549 5,5236 Sænsk kr. 5,5300 5,5458 5,5146 Fi. mark 7,7441 7,7662 7,7146 Fr.franki 5,5657 5,5816 5,5111 Belg. franki 0,8359 0,8383 0,8263 Sv.franki 20,2361 20,2939 20,1091 Holl. gyllini 15,1461 15,1893 15,0071 V-þ. mark 17,0662 17,1150 16,9148 ÍUíra 0,02500 0,02507 0,02479 Austurr.sch. 2,4277 2,4347 2,4066 PorLescudo 0,2667 0,2674 0,2657 Sp. peseti 0,2726 0,2734 0,2711 Jap.yen 0,20889 0,20948 0,20885 írskt pund 52,217 52,366 51,810 SDR(SérsL 46,1384 46,2694 46,1359 INNLÁNSVEXTIR: Sparisjóðsbækur.................. 22,00% Sparisjóösreikningar með 3ja mánaða uppsögn Alþýðubankinn............... 25,00% Búnaðarbankinn.............. 25,00% Iðnaðarbankinn.............. 23,00% Landsbankinn................ 23,00% Samvinnubankinn............. 25,00% Sparisjóðir........'........ 25,00% Útvegsbankinn............... 23,00% Verzlunarbankinn............ 25,00% með 6 mánaða uppsögn Alþýðubankinn............... 30,00% Búnaöarbankinn.............. 28,00% Iðnaðarbankinn.............. 26,50% Samvinnubankinn............. 30,00% Sparisjóðir................. 28,00% Útvegsbankinn............... 29,00% Verzlunarbankinn.............31,00% með 12 mánaða uppsögn Alþýöubankinn............... 32,00% Landsbankinn................ 31,00% Útvegsbankinn............... 33,00% Innlánsskírteini Alþýðubankinn............... 28,00% Sparisjóðir................. 28,00% Verðtryggðir reikningar miöað við lánskjaravísitölu með 3ja mánaða uppsögn Alþýðubankinn................ 1,50% Búnaðarbankinn............... 1,00% Iðnaöarbankinn............... 1,00% Landsbankinn................. 1,00% Samvinnubankinn.............. 1,00% Sparisjóðir.................. 1,00% Útvegsbankinn................ 1,00% Verzlunarbankinn............. 2,00% með 6 mánaða uppsögn Alþýðubankinn................ 3,50% Búnaðarbankinn............... 3,50% Iðnaðarbankinn............... 3,50% Landsbankinn................. 3,50% Samvinnubankinn.............. 3,00% Sparisjóðir.................. 3,00% Útvegsbankinn................ 3,00% Verzlunarbankinn............. 3,50% með 18 mánaöa uppsögn: Útvegsbankinn................ 7,00% Ávísana- og hlaupareikningar: Alþýöubankinn — ávísanareikningar..... 17,00% — hlaupareikningar........ 10,00% Búnaðarbankinn............... 8,00% lönaðarbankinn............... 8,00% Landsbankinn................. 10,00% Samvinnubankinn.............. 8,00% Sparisjóðir.................. 10,00% Útvegsbankinn................ 8,00% Verzlunarbankinn............. 10,00% Stjörnureikningar: I, II, III Alþýðubankinn................ 9,00% Safnlán - heimiiislán - IB-tán - plúslán með 3ja til 5 mánaða bindingu Iðnaðarbankinn.............. 23,00% Landsbankinn................ 23,00% Sparisjóðir............... 25,00% Samvinnubankinn............. 23,00% Útvegsbankinn............... 23,00% Verzlunarbankinn............ 25,00% 6 mánaða bindingu eða lengur Iðnaðarbankinn.............. 26,00% Landsbankinn................ 23,00% Sparisjóóir................. 28,00% Utvegsbankinn............... 29,00% Innlendir gjaldeyrisreikningar. Bandaríkjadollar Alþýóubankinn................ 8,00% Búnaðarbankinn............... 7,50% lönaöarbankinn............. 7,00% Landsbankinn................. 7,50% Samvinnubankinn.............. 7,50% Sparisjóðir.................. 8,00% Útvegsbankinn................ 7,50% Verzlunarbankinn............. 7,50% I Sterlingspund Alþýöubankinn...............11,50% Búnaðarbankinn............. 11,00% Iðnaðarbankinn..............11,00% Landsbankinn................11,50% Samvinnubankinn.............11,50% Sparisjóðir................ 11,50% Útvegsbankinn.............. 11,00% Verzlunarbankinn............11,50% Vestur-þýsk mörk Alþýðubankinn............... 4,50% Búnaðarbankinn.............. 4,25% Iðnaðarbankinn.............. 4,00% Landsbankinn................ 4,50% Samvinnubankinn............. 4,50% Sparisjóðir................ 4,50% Útvegsbankinn............... 4,50% Verzlunarbankinn............ 5,00% Danskar krónur Alþýðubankinn............... 9,50% Búnaðarbankinn.............. 8,00% lönaðarbahkinn.............. 8,00% Landsbankinn................ 9,00% Samvinnubankinn............ 9,00% Sparisjóðir................. 9,00% Útvegsbankinn............... 9,00% Verzlunarbankinn........... 10,00% ÚTLÁNSVEXTIR: Almennir víxlar, forvextir: Landsbankinn............... 30,00% Útvegsbankinn.............. 30,00% Búnaðarbankinn............. 30,00% Iðnaðarbankinn............. 30,00% Verzlunarbankinn........... 30,00% Samvinnubankinn............ 30,00% Alþýðubankinn.............. 29,00% Sparisjóðir.............. 30,00% Viðskiptavíxlar Alþýðubankinn.............. 32,50% Landsbankinn............... 32,50% Búnaöarbankinn........... 34,00% Sparisjóðir................ 32,50% Yfirdráttarlán af hlaupareikningum: Landsbankinn................31,50% Útvegsbankinn............. 31,50% Búnaðarbankinn............. 31,50% Iðnaöarbankinn..............31,50% Verzlunarbankinn........... 31,50% Samvinnubankinn............ 31,50% Alþýðubankinn...............31,50% Sparisjóðir............... 31,50% Endurseljanleg lán fyrir innlendan markað............ 28,50% lán í SDR vegna útfl.framl....... 9,50% Bandarikjadollar........... 9,50% Sterlingspúnd......;........ 12,75% Vestur-þýsk mörk............ 6,25% Landsbankinn................ 32,00% Útvegsbankinn............... 32,00% Búnaðarbankinn.............. 32,00% Iðnaðarbankinn.............. 32,00% Verzlunarbankinn..............32,0% Samvinnubankinn............. 32,00% Alþýðubankinn............... 32,00% Sparisjóðir................. 32,00% Viðskiptaskuldabréf: Landsbankinn................ 33,00% Búnaðarbankinn.............. 35,00% Sparisjóðirnir.............. 35,00% Verðtiyggö lán miðað við lánskjaravísitölu ialltað2%ár............................ 4% lengur en 2'A ár..................... 5% Vanskilavextir........................ 45% Óverðtryggð skuldabréf útgefin fyrir 11.08. ’84 ......... 32,00% Lífeyrissjóðslán: Lífeyrissjóður starfsmanna ríkís- ins: Lánsupphæö er nú 400 þúsund krón- ur og er lánið vísitölubundió meö lánskjaravísitölu, en ársvextir eru 5%. Lánstími er allt aö 25 ár, en getur veriö skemmri, óski lántakandi þess, og eins ef eign sú, sem veð er í er lítilfjörleg, þá getur sjóöurinn stytt lánstímann. Greiöandi sjóösfélagar geta sótt um lán úr lífeyrissjóðnum ef þeir hafa greitt iðgjöld til sjóösins í tvö ár, miöaö viö fullt starf. Biðtími eftir láni er sex mánuðir frá þvi umsókn berst sjóönum. Lífey rissjóöur verzlunarmanna: Lánsupphæö er nú, eftir 3ja ára aöild að lífeyrissjóðnum, 216.000 krónur, en fyrir hvern ársfjóröung umfram 3 ár bætast við lánið 18.000 krónur, unz sjóðsfélagi hefur náó 5 ára aöild aö sjóönum. A tímabllinu frá 5 til 10 ára sjóðsaðild bætast viö höfuöstól leyfilegar lánsupphæöar 9.000 krón- ur á hverjum ársfjóröungi, en eftir 10 ára sjóösaöild er lánsupphæðin oröin 540.000 krónur. Eftir 10 ára aðild bætast viö 4.500 krónur fyrir hvern ársfjóröung sem líður. Því er í raun ekkert hámarkslán í sjóðnum. Höfuðstóll lánsins er tryggöur meö lánskjaravísitölu, en lánsupphæöin ber nú 5% ársvexti. ■ Lánstíminn er 10 til 32 ár aö vali lántakanda. Þá lánar sjóðurinn meö skilyröum sérstök lán til þeirra, sem eru eignast sína fyrstu fasteign og hafa greitt til sjóösins samfellt í 5 ár, kr. 590.000 til 37 ára. Lánskjaravísitala fyrir desember 1985 er 1337 stig en var fyrir nóv- ember 1301 stig. Hækkun milli mán- aóanna er 2,76%. Miöað er viö vísi- töluna 100 íjúní 1979. Byggingaví8itala fyrir október til desember 1985 er 229 stig, og er þá miðað viö 100 í janúar 1983. Handhafaskuldabréf í fasteigna- viðskiptum. Algengustu ársvextir eru nú 18—20%. Óbundiðfé óverðtr. kjör verðtr. kjör Verðtrygg. færslurvaxta tímabil vaxtaééri Landsbanki, Kjörbók: 1) 7-36,0 1,0 3mán. 1 Útvegsbanki, Abót: 22-36,1 1.0 1 mán. 1 Búnaöarb., Sparib: 1) 7-36,0 1,0 3mán. 1 Verzlunarb., Kaskóreikn: 22-31,0 3,5 3mán. 4 Samvinnub., Hávaxtareikn: 22-37,0 1-3,0 3mán. 2 Alþýðub., Sérvaxtabók: 27-33,0 4 Sparisjóðir, Trompreikn: 32,0 3,0 1 mán. 2 Iðnaðarbankinn: 2) Bundiðfé: 28,0 3,5 1mán. 2 Búnaðarb., 18 mán. reikn: 39,0 3,5 6mán. 2 1) Vaxtaleiðrétting (úttektargjald) er 1,7% hjá Landsbanka og Búnaðarbanka. 2) Tvær úttektir heimilaðar á hverju sex mánaða tímabili án, þes að vextir lækki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.