Morgunblaðið - 04.01.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 4. JANÚAR1986
7
Ótímabær
áramótagleði
Athugasemd til Morgunblaðsins frá Svavari Gestssyni
Ótímabaer áramótagleði Morgun-
blaðsins vegna ummæla minna í
Þjóðlífi birtist í Morgunblaðinu í
dag, föstudaginn 3. janúar. Ummæl-
in eru birt en í inngangi fréttarinn-
ar er þeim snúið á þann veg sem
Morgunblaðinu þykir henta.
Ég hef ekki lagt í vana minn að
leiðrétta lygarnar í Morgunblaðinu;
enda birtast þær í þeim mæli um
mig og afstöðu mína að ég þyfti her
manns í vinnu til þess eins að svara
öllum þeim óhróðri. Hins vegar
finnst mér tilefni til þess að svara
Morgunblaðsgreininni í dag, aðeins
fáeinum orðum.
1974 gerðu Alþýðubandalagið,
Framsóknarflokkurinn og Samtök
frjálslyndra og vinstri manna sam-
komulag um brottför hersins á fá-
einum árum. Jafnframt var gert ráð
fyrir því að í sland yrði engu að síður
aðili að Atlantshafsbandalaginu.
Þessa 12 ára gömlu frétt birti ég í
Þjóðlífi, en hana þekkja allir sem
fylgst hafa með stjórnmálum síð-
ustu árin — nema blaðablaður
Morgunblaðsins. í viðtalinu í Þjóð-
lífi sagði ég ennfremur að samning-
ur eins og sá sem gerður var milli
flokkanna í mars 1974 gæti verið
„einn af síöustu áföngunum" í her-
stöðvamálinu. En ekki lokaáfangi —
um það segi ég ekki neitt í viðtalinu
þó að Morgunblaðið kjósi kjósi að
gefa það í skyn í inngangi fréttar-
innar og fyrirsögn. Markmið mitt
og Alþýðubandalagsins og annarra
herstöðvaandstæðinga er brottför
hersins og úrsögn úr NATO — frið-
lýst ísland. Og ég er þeirrar skoðun-
ar að þannig væri öryggi lands og
þjóðar betur borgið en í trylltu
vígbúnaðarkapphlaupi stórveld-
anna.
Þess vegna verð ég að hryggja
Morgunblaðið með því að afstaða
mín er óbreytt í þessu efni — og
sú er ein meginástæðan til þess að
ég tek fram í nefndu viðtali að ég
vilji marka skýra áfanga að því
marki sem hefur hlotið baráttuheit-
ið: ísland úr NATO — herinn burt.
Áramótagleði Morgunblaðsins
yfir ummælum mínum er því tilefn-
islaus.
1974 var samið um brottför hers-
ins á milli þriggja flokka eins og ég
gat um. Þá hófst undirskriftasöfnun
Varins lands þar sem stór hluti
þjóðarinnar bað um varanlega her-
setu hér á landi. Engin dæmi eru
til um það önnur að smáþjóð hafi
með þeim hætti beðið um hersetu.
Þessi undirskriftasöfnun er að mínu
mati smánarblettur. Vonandi auðn-
ast að þurrka hann út. Það gerist
þó eingöngu með því að markmið
Alþýðubandalagsins í utanríkismál-
um nái fram að ganga. Þannig yrði
öryggi Islands líka best tryggt. Það
þarf hins vegar varla að sæta tíðind-
um að ég teldi það mikilvægan
áfanga að reka herinn úr landinu.
Kannski að Morgunblaðinu þyki það
tíðindi og er það vissulega athyglis-
verð heimild um það hvernig
stærsta blað landsins kýs að skrifa
„fréttir" sínar.
Með hæfilegri virðingu,
Svavar Gestsson,
alþingismaöur.
Aths. ritstj.
Svavar Gestsson vísar hér til
fréttar Morgunblaðsins, sem byggð
er á viðtali hans við tímaritið Þjóð-
líf. Þar segir: „í þessu sambandi
nefnir Svavar að þessu takmarki
(sem hann setur sér í öryggismálum
innsk. Mbl.) sé hugsanlegt að ná í
mörgum áföngum. Það þurfi að
einangra herinn frá áhrifum í ís-
lensku efnahagslífi og íslensku þjóð-
Iífi. Einn af síðustu áföngunum
gæti verið í líkingu við samning,
sem ríkisstjórn Ólafs Jóhannesson-
ar hafði fullbúinn, þegar hún lét af
völdum 1974 um að ísland yrði
áfram í NATO, sem yrði tryggð sér-
staða hérlendis við sérstakar að-
stæður."
Það er ekki við Morgunblaðið að
sakast, þótt Svavar Gestsson
hrökkvi við þegar hann les þessi orð
eftir honum höfð í Morgunblaðinu.
INNLENT
„Hillingar í sambandi við
NT villtu mönnum sýn“
— segir Kristinn Finnbogason stjórnar-
maður í blaðstjórn Tfmans
„ÉG GERI mér grein fyrir að staða
blaðsins hefur veikst á undanfiirnum
árum hér í Reykjavík og það er eitt
af verkcfnum okkar að breyta því
aftur til batnaðar," sagði Kristinn
Finnbogason, einn stjórnarmanna í
blaðstjórn Tímans, sem aftur hóf
göngu sína nú um áramótin, en
Kristinn var um árabil framkvæmda-
stjóri gamla Tímans.
„Ég var aldrei mjög hrifinn af
þessari Nútíma-tilraun og ég held
að það sé nú svo, hvað sem sagt er
um pólitísk blöð, að öll íslensk blöð
séu meira og minna pólitísk.
Misjafnlega mikið að vísu, en öll
bera þau á sér sterkan svip af þeim
pólitísku flokkum sem standa að
Jteim. DV er þar ekki undanskiliö.
Ég er og hef alltaf verið þeirrar
skoðunar að Tíminn hefði átt að
halda sínu striki og að þessar hill-
ingar í sambandi við NT hafi villt
mönnum sýn. Tíminn var gott blað
og verður það vonandi áfram," sagði
Kristinn Finnbogason.
Fyrsta tölublað Tímans í hinum
nýja búningi kom út í gær, föstu-
dag, og vakti athygli önnur upp-
setning efnis, nýtt letur og nýr
blaðhaus. Níels Arni Lund, sem er
Tímiiin
ÍSTUnUMÁU. NITI LOOMI/Vtno _ _ M>MÚ> Duii~ FLUGMAÐURINN ERTAUNN AF
WJ*
Blaöhaus fyrsta tölublaðs Tímans í
gær, en hann er allmikið frábrugðinn
blaöhaus gamla Tímans.
ritstjóri Tímans ásamt Helga Pét-
urssyni, sagði í samtali viö Morgun-
blaðið að það hefði þótt sjálfsagt
að gera ákveðnar útlitsbreytingar
og teikna nýjan blaðhaus við þetta
tækifæri. Níels Árni sagði að frá
því Tíminn hóf göngu sína 1916
hefði oft verið skipt um haus á
blaðinu og hafi menn verið sam-
mála um að gera það einnig nú, og
það út af fyrir sig táknaði ekki
neina sérstaka breytingu á blaðinu.
Ekki hefur enn verið gengið endan-
lega frá skipan í blaðstjórn, en
búist var við að það yrði gert nú
um helgina.
Þróun inn- og útlána I98S
Ibnaðar- Verzl- SPRON Útvegs- Lands- Búnaðar Sam- Alþýðu-
bankinn banki banki banki banki vinnu banki
banki
V Innlán
SS Úllán
Mest innlánsaukning
hjá einkabönkunum
ÞRÓIJN inn- og útlána hjá viðskiptabönkunum og sparisjóðum var mjög
misjöfn á nýliðnu ári. Innlán í Alþýðubankanum jukust mest, eða um
95%, og hjá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis hækkuðu innlán um
55,6% og er það mesta aukning hjá sparisjóðum sem Morgunblaöinu
er kunnugt um. Minnsta aukning útlána var hjá Útvegsbankanum,
13,9%, en útlán Alþýðubankans og Verzlunarbankans hækkuðu um
70%.
Heildarinnlán í viðskiptabönk-
unum námu í lok síðasta árs
31.655 milljónum króna og útlán
33.743 milljónum króna. Þessar
tölur eru samkvæmt bráða-
birgðayfirliti bankanna.
Innlán Alþýðubankans hækk-
uðu hlutfallslega mest, eins og
áður segir. f byrjun síðasta árs
námu innlán í bankanum 498
milljónum króna, en þau hækk-
uðu upp í 973 milljónir króna.
Útlán bankans hækkuðu um 70%
og voru 1. janúar 385 milljónir
króna - í árslok 653 milljónir
króna.
Samvinnubankinn bætti stöðu
sína einnig. Aukning innlána var
61% og hækkuðu þau úr 1.599
milljónum krónum i 2.570 millj-
ónir króna. Útlán jukust á sama
tíma um 32% og voru í árslok
2.099 milljónir króna og höfðu
hækkað um 513 milljónir.
Hjá Búnaðarbankanum var
aukning innlána 58% og útlána
40%. Innlán voru 2.590 milljón-
um krónum hærri í lok ársins
en í byrjun þess. Heildarinnlán
námu 7.070 milljónum króna.
Útlán bankans hækkuðu um
1.883 milljónir og voru 31. des-
ember sl. 6.634 milljónir.
Innlánaaukning í Iðnaðar-
bankanum var 57,5% og útlánin
jukust um 48,2%. Heildarútlán
bankans í lok ársins námu 2.192
milljónum króna og borið saman
við 1.535 milljónir 1. janúar sama
ár. Innlán bankans voru hins
vegar 2.832 milljónir og voru í
ársbyrjun 1.798 milljónir.
Verzlunarbankinn jók útlán
um 70% og á móti hækkuðu
innlán um 59%. Innlán bankans
í byrjun síðasta árs námu 1.104
milljónum króna, en í lok ársins
1.758 milljónum. Útlán stóðu í
1.136 milljónum króna en voru í
ársbyrjun 665 milljónir.
Innlán Útvegsbankans hækk-
uðu úr 2.583 milljónum króna í
3.761 milljón króna, eða um
45,6%. Útlán hækkuðu mun
minna eða um 13,9%. Þau námu
3.721 milljón 1. janúar en í lok
nýliðins árs 4.238 milljónum
króná.
Hækkun innlána var minnst
hjá Landsbankanum, 37,8%.
Innlán námu 12.691 milljón
króna 31. desember á móti 9.211
milljón í byrjun árs. Útlán jukust
um 24,7%, þau voru 13.469 1.
janúar en hækkuðu í 16.791 millj-
ón króna.
Aukning innlána í sparisjóðum
var mest hjá SPRON, 55,6%. Að
öðru leyti hækkuðu innlán í ein-
stökum sparisjóðum: Sparisjóður
vélstjóra, 50,5%, Sparisjóður
Keflavíkur, 48,6%, Sparisjóður
Hafnarfjarðar, 43,11%, Spari-
sjóður Kópavogs 42,3%.
ARAMOTA-
SPILAKVÖLD
VARÐAR
Landsmálafélagiö Vöröur heldur
áramótaspilakvöld sunnudaginn
5. janúar í Súlnasal Hótel Sögu.
Húsiö opnað kl. 20.00.
Glæsilegir vinningar, þ. á m.
flugferö til Kaupmannahafnar,
bækur og matarkarfa.
Kortið kostar aðeins 250 kr.
Þorsteinn Pálsson flytur ávarp.
Ómar Ragnarsson skemmtir.
Spilakort afhent við innganginn
• — mætiö tímanlega.
Landsmálafélagið Vörður.