Morgunblaðið - 04.01.1986, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4, JANÚAR1986
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna |
Hafnarfjörður
— Blaðberar
Blaðbera vantar strax í Setbergshverfi.
Svo og Lindarhvamm/Kelduhvamm.
Upplýsingar í síma 51880.
Rafvirki
óskast til starfa á rafmagnsvörulager. Stund-
vísi, reglusemi og snyrtimennska áskilin.
Umsóknir meö upplýsingum um aldur og fyrri
störf sendist auglýsingadeild Morgunblaðs-
ins merktar: „RST — 8616“.
Kennarar —
kennarar
Vegna forfalla vantar nú þegar kennara að
grunnskólanum í Bolungarvík.
Húsnæði fyrir hendi á staðnum.
Upplýsingar gefa formaöur skólanefndar í
síma 94-7540 og skólastjóri í símum 94-7249
og 94-7288.
Skólanefnd.
1. vélstjóri —
rækjuveiðar
1. vélstjóra vantar á m/b Hugrúnu ÍS-7 sem
gerð er út á rækjuveiðar frá Bolungarvík.
Upplýsingar gefur útgeröarstjóri í síma
94-7200.
Umsækjandi þarf aö geta hafiö störf frá og
með næstu mánaöamótum.
Einar Guöfinnsson hf.,
Bolungarvík.
Au — pair
íslenzk-þýzk fjölskylda í Míinchen í Þýzka-
landi óskar eftir au — pair stúlku frá 20.
jan. í hálft ár. Tvö börn á heimilinu, tíu og
þriggja ára. Uppl. í síma 12971 næstu daga.
Kennarar
Kennara vantar að Klébergsskóla Kjalarnesi
nú þegar.
Upplýsingar í síma 666555, Gunnar Sigurðs-
son, og í síma 666068, Þór Gunnarsson.
Kennarar
Grunnskólann í Stykkishólmi vantar kennara
til almennrar kennslu.
Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 93-8160.
Gagnaskráning á
tölvu
Starf á rannsóknar-
stofu
Á Skattstofu Reykjanesumdæmis vantar
starfsfólk til gagnaskráningar á tölvu.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri
störf óskast sendar skattstjóra Reykjanes-
umdæmis sem jafnframt veitir nánari upplýs-
ingar.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi,
Suðurgötu 14, Hafnarfiröi,
sími 51788.
Frá Menntaskólan-
um við Hamrahlíð
Stundakennara vantar í sálfræði.
Upplýsingar í skólanum í síma 685155 og
hjá deildarstjóra í sálfræði, Jóni Friðrik Sig-
urössyni, í síma 54178.
Rektor.
Norðurlandaráð
auglýsir skrifstofu-
starf laust til
umsóknar
Noröurlandaráö auglýsir laust til umsóknar
starf á skrifstofu forsætisnefndar Norður-
landaráðs í Stokkhólmi. Starfiö felst í vélrit-
un, ritvinnslu og almennri skrifstofuvinnu.
Umsækjendur skulu vera vanir að starfa sjálf-
stætt og hafa gott vald á dönsku, norsku eða
sænsku. Æskilegt er aö þeir hafi reynslu í
ritvinnslu.
Starfsfólk á skrifstofu forsætisnefndar Norö-
urlandaráös er ráöið til fjögurra ára og í
vissum tilvikum er hægt að framlengja ráðn-
ingarsamninginn. Ríkisstarfsmenn á Norður-
löndum eiga rétt á leyfi frá störfum vegna
starfa við skrifstofu forsætisnefndar Noröur-
landaráðs.
Föst laun eru 7.500—8000 sænskar krónur á
mánuði auk staðaruppbótar. Kostnaður af
búferlaflutningi vegna starfsins greiöist af
Norðurlandaráði. Staðan er auglýst á íslandi,
í Færeyjum og á Grænlandi.
Eftirtaldir aðilar veita nánari upplýsingar um
stööuna:
Áke Pettersson aöstoöarritari forsætisnefndar
Norðurlandaráðs í síma 90468143420 og Snjó-
laug Ólafsdóttir, ritari íslandsdeildar Noröur-
landaráðs í síma 11560.
Umsóknir sendist til Nordiska rádets
presidiesekretariat, Box 19506, S—10432
Stockholm og skulu þær vera á dönsku,
sænsku eöa norsku.
Umsóknarfrestur er til 31. janúar 1986.
Ræktunarfélag Norðurlands vill ráða mann
með efnafræðiþekkingu eða menntun í búvís-
indum til starfa á rannsóknastofu félagsins
á Akureyri. Starfsmanninum er ætlað að sjá
um efnagreiningar rannsóknastofunnar, en
einkum er um að ræöa efnagreiningar á fóöri
og jarðvegi. Laun í samræmi við launakerfi
opinberra starfsmanna. Upplýsingar veitir
framkvæmdastjori Bjarni E. Guðleifsson í
síma 96-24733. Umsóknir sendist Ræktunar-
félagi Norðurlands, Óseyri 2, 600 Akureyri,
fyrir 1. febrúar.
ORKUBÚ VESTFJARÐA
Svæðisstjóri
Orkubú Vestfjarða auglýsir stööu svæöis-
stjóra á svæði II lausa til umsóknar.
Svæöi II er Vestur-Barðastrandasýsla og
aðsetur svæðisstjóra er á Patreksfirði.
Starfið felst í alhliöa stjórnun á öllum rekstri
Orkubús Vestfjaröa á svæði II ásamt undir-
búningi og umsjón með framkvæmdum fyrir-
tækisins þar.
Æskilegt er að umsækjendur hafi aflað sér
tæknimenntunar á rafmagnssviöi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
. menntun og fyrri störf sendist Kristjáni Har-
aldssyni orkubússtjóra, Stakkanesi 1, 400
ísafjöröur, fyrir 10. janúar nk.
Allar nánari upplýsingar veitir orkubússtjóri
í síma 94-3211.
Orkubú Vestfjarða.
REYKJALUNDUR
Bókasafnsfræðingur
Hlutastarf bókasafnsfræðings viö læknis-
bókasafn Reykjalundar er laust til umsóknar.
Upplýsingar veitir yfirlæknir í síma 666200.
Reykjalundur, endurhæfingarmiöstöð.
Kennarastööur
Kennara vantar nú þegar í heimilisfræði og
stærðfræöi viö Grunnskóla Hafnarfjarðar.
Uppl. í síma 53444.
Fræðsluskrifstofa Hafnarfjarðar.
Málm- og skipasmíðasamband íslands:
Breytingar og endurbætur á skut
togurum gerðar hér á landi
Á miöstjórnarfundi Málm- og
skipasmidasambands íslands, sem
haldinn var 17. desember 1985, var
gerð eftirfarandi ályktun
„Komið hefur nýlega fram í
fréttum að ráðgert sé að fram-
kvæma verulegar breytingar á tíu
skuttogurum sem smíðaðir voru í
Japan. Bæði er ráðgert að stækka
skipin og endurnýja véla- og
tækjabúnað þeirra. I fréttum hef-
ur einnig verið skýrt frá að ákveðið
sé aö eitt þessara skipa fari til
útlanda og þar verði stækkun
skipsins og aðrar breytingar fram-
kvæmdar.
Áætlað kostnaðarverð á fram-
kvæmd þessari erlendis er um 115
millj. króna. Samkvæmtþví verður
kostnaður við stækkun og breyt-
ingar tíu skipa rúmlega 1100 millj-
ónirkróna.
Innlend járniðnaðarfyrirtæki og
skipasmíðastöðvar hefur skort
næg og stöðug verkefni. Þessi fyr-
irtæki eru þannig tæknilega búin
að þau geta annast þessar breyt-
ingar og jafnframt er fyrir hendi
verkmenntaður mannafli.
Miðstjórn MSÍ skorar á stjórn-
völd að þau beiti sér fyrir því að
þær breytingar og endurbætur
sem framkvæma þarf á þessum tíu
skuttogurum verði framkvæmdar
innanlands. Með því sparast dýr-
mætur gjaldeyrir og stuðlað er að
aukinni atvinnu, þar sem hún
hefur ekki verið næg.
jafnframt beinir miðstjórn MSÍ
því til stjórnenda skipasmíða-
stöðva og járniðnaðarfyrirtækja
að þeir leggi sig fram við að fá
þessi viðamiklu verkefni, sem við-
fangsefni fyrirtækja sinna, og að
haft verði samstarf milli skipa-
smíðastöðva og járniðnaðarfyrir-
tækja við framkvæmd verkefnis-
ins.“
(Fréttatilkynning)
starfsgreinum!