Morgunblaðið - 04.01.1986, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.01.1986, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JANÚAR1986 ÚTVARP/SJÓNVARP Isíðustu grein minni minntist ég á kveðjuhátíð sjónvarpsins á gamlárskveld. Þeir útvarpsmenn bættu um betur og fögnuðu ’86 með dagskrá er nefndist: „Nýárs- gleði ríkisútvarpsins — Fólk úr öllum landsfjórðungum leggur til efni í mæltu máli, söng og hljóð- færaleik. Einar Kristjánsson teng- ir saman dagskrána." Þessi sér- stæða nýársgleði Ríkisútvarpsins var á dagskrá milli klukkan 14:30 og 15:35 á nýársdag, nánar til tekið á rás 1. Eins og fyrr sagði lagði fólk úr öllum landshlutum til efni í dagskrána en „útvarpsstjórar" landshlutaútvarpsstöðvanna stýrðu í raun dagskránni: Finnbogi Hermannsson fyrir hönd Vestfirð- inga, Jónas Jónasson stýrði dag- skrá þeirra Norðlendinga, Inga Rósa var á sínum stað á Aust- fjörðum og Þorlákur Helgason stóð við míkrófóninn á Suðurland- sundirlendinu. Ég sé ekki ástæðu til að lýsa þessari áramótagleði náið en þar bar mest á glaðsinna kveðskap, tónlist og annálum. Þó vöktu tvö atriði dagskrárinnar sér- stakan áhuga minn. í fyrsta lagi er annálaritari þeirra Vestfirðinga upplýsti að ónefnt 5.000 manna byggðarlag á Vestfjörðum hefði á gengnu ári eytt 20 milljónum króna á myndbandaleigum svæð- isins . .. ætli myndbandaleigurnar hafi ekki bara tekið að sér uppeldi uppvaxandi kynslóðar Vestfirð- inga og komi þar í staö skólans, bætti annálaritarinn við sposkur. í annan stað vakti framlag þeirra Norðlendinga til Nýársgleðinnar sérstaka athygli mína. Framlag RÚVAKSINS Er Einar Kristjánsson „dagskrár- tengir“ hringdi í Jónas Jónasson RÚVAKSstjóra og innti hann fregna af framlagi Norðlendinga til Nýársgleðinnar upplýsti Jónas að hann hefði falið ungum leikara og tónlistarmanni á staðnum, Pétri Eggerz, að annast nýársgleði RÚVAKSINS: Ekki að spyrja að stórhug Jónasar og þeirra Norð- lendinga enda gerði Pétur sér lítið fyrir og samdi smá leikþátt með söngvum og lýsti þar heimkomu Laufabrauðsdrottningarinnar Líneyjar Laufkvist til Akureyrar. Að sjálfsögðu var mikið um dýrðir er Laufabrauðsdrottning alheims- ins mætti að Laufási sinnar heimabyggðar og var umsvifalaust efnt til mikillar laufabrauðshátíð- ar þar sem Líney Laufkvist skar út laufabrauð vopnuð lúffum mikl- um. Varð reyndar mikið uppistand er Líney tók ofan lúffurnar en samkvæmt samningi við lúffu- framleiðandann var henni alger- lega óheimilt að skera laufabrauð í þeirri laufabrauðsheimsreisu er fyrirhuguð var lúffulaus. Hvernig vœri... Hvernig væri nú kæru sjónvarps- menn að gefa gaum að þessum ágæta Nýársfagnaði landshluta- útvarpsstöðvanna? Ég held til dæmis að þáttur Líneyjar Lauf- kvist hefði sómt sér prýðilega í sjálfu Áramótaskaupinu. Persónu- lega er ég þeirrar skoðunar að landsmenn séu teknir að þreytast á sumum eilífðarskemmtikröftum höfuðborgarinnar og að ekki sé úr vegi að storma yfir byggðir lands- ins í leit að hæfileikafólki til dæmis á sviði leiklistar og söngs. Þekktir og gamalgrónir gaman- leikarar og skemmtikraftar eru ágætir í Skaupinu en í hófi. Ný og óþekkt andlit mættu sjást við og við á skerminum. Hver veit nema hér verði breyting á þá hrafnar setjast á burstir í sveitum lands- ins? Ólafur M. Jóhannesson Ár friðarins ■■■■ Umræðuþáttur Uqq um ár hins al- ”“ þjóða friðar er á dagskrá rásar 1 kl. 11.00 í dag. Umræðunum stýrir Einar Kristjánsson. Eins og kunnugt er hafa Sam- einuðu þjóðirnar tileinkað árið 1986 ár friðarins um heim allan. í þættinum verður hugtakið „friður" reifað. Að hvers konar friði ber að stefna og með hvaða ráðum? Fjallað verður um friðarhreyfing- ar, hugmyndafræði og aðferðir. Allir virðast stefna að sama markinu, friði, en með áherslu á ólík málefni og aðferðir. í þættinum í dag, sem er í beinni útsendingu, verður rætt við utanríkis- ráðherra, Geir Hallgríms- son, Ólaf Ragnar Gríms- son, forseta alþjóðlegra þingmannasamtaka um frið og afvopnun, og full- trúa þriggja friðarhreyf- inga hérlendis, Samtaka lækna gegn kjarnorkuvá, Friðarhreyfingar ís- lenskra kvenna og friðar- hóps kirkjunnar. „Tvöföld ótryggð“ —jólaleikrit rásar 1 endurtekið iMMB Jólaleikrit rás- OA00 ar ú ..Tvöföld — ótryggð", verð- ur endurtekið kl. 20.00 í kvöld, en það er eftir Pi- erre de Marivaux. Hann er talinn meðal fremstu leikskálda Frakka. Mariv- aux var uppi á fyrri hluta 18. aldar og samdi mikinn fjölda leikrita. Verk hans náðu ekki verulegum vin- sældum þegar þau komu fram, en mörg þeirra hafa staðið tímans tönn og eru nú á tímum leikin mikið í Frakklandi og víðar. Þó að Marivaux styðjist jafn- an við fyrirmyndir klassískra gamanleikja lýsir hann persónum sín- um af hlífðarlausri skarp- skyggni og með háði sem minnir um margt á ýmsa höfunda nútímans. Leikritið segir frá til- raunum aðalsmanns nokkurs til að ná ástum ungrar og fagurrar al- þýðustúlku, Silvíu. Hún ann hins vegar sveitapilt- inum Arlequin, miklum galgopa, og verða aðals- maðurinn og aðstoðar- menn hans að grípa til útsmoginna klækja til að snúa hug Silvíu. Þórunn Magnea Magn- úsdóttir þýddi leikritið og Sveinn Einarsson er leik- stjóri. Leikendur eru: Kjartan Bjargmundsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Lilja Guðrún Þorvalds- dóttir, Jóhann Sigurðar- son, Arnór Benónýsson, Kristján Franklín Magnús og Ragnheiður Steindórs- dóttir. Tæknimenn eru Friðrik Stefánsson og Runólfur Þorláksson. Rottan — bresk bíómynd frá 1965 ■■■■ Breska bíó- 00 50 myndin „Rott- — an“ frá árinu 1965 hefst í sjónvarpi kl. 22.50 í kvöld. Leikstjóri er Brian Forbes og með aðal- hlutverk fara George Seg- al, Tom Courtenay, John Millsog James Fox. Myndin gerist í fanga- búðum Japana í Singapore í heimsstyrjöldinni. Þar eru tíu þúsund stríðsfang- ar í haldi. Einn þeirra, bandarískur undirforingi, hefur komið sér í mjúkinn hjá fangavörðunum en er ekki að sama skapi vinsæll meðal fanganna. Kvikmyndahandbókin gefur myndinni hæstu einkunn — fjórar stjörn- ur. Þýðandi er Veturliði Guðnason. UTVARP LAUGARDAGUR 4. janúar 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.15 Tónleikar, þulur velur og kynnir. 7.20 Morguntrimm. 7.30 Islenskir einsöngvarar og kórar syngja. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Tónleikar. 8.30 Lesið úr forystugreinum dagblaðanna. Tónleikar. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tón- leikar. 9.30 Öskalög sjúklinga. Helga Þ. Stephensen kynnir. 10.00 Fréttir. 10.05 Daglegt mál. Endurtek- inn þáttur frá kvöldinu áður sem Margrét Jónsdóttir flyt- ur. 11.00 Ar hins alþjóðlega friðar. Einar Kristjánsson stýrir umraeðuþaetti. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning- ar. Tónleikar. 13.50 Hér og nú. Fréttaþáttur I vikulokin. 15.00 íslensk tónlist. Sígurður Einarsson kynnir tónlist af fjórum nýjum hljómplötum sem íslensk tónverkamið- stöðin hefur gefið út I sam- vinnu við Rlkisútvarpiö (slð- ari hluti). 15.40 Fjölmiðlun vikunnar. Margrét S. Björnsdóttir end- urmenntunarstióri talar. 15.50 íslenskt mál. Jón Aðal- steinn Jónsson flytur þáttinn. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Listagrip, þáttur um listir og menningarmál. Umsjón: Sigrún Björnsdóttir. 16.45 Landsleikur I körfuknatt- leik. Island — Danmörk. Samúel Örn Erlingsson lýsir siðari hálfleik þjóöanna I Keflavlk. 17.30 Frá óperutónleikum Is- lensku hljómsveitarinnar i janúar I fyrra. Stjórnandi: MarcTardue. Einsöngvarar: Jón Þorsteins- son og Bruce Kramer. „Halti púkinn", gamanópera eftir Jean Francaix. Asgeir Sigurgestsson kynnir og ræöir einnig við Jón Þorsteinsson. 19.35 Fréttabréf frá Slagviöru. Þáttur I umsjá Þorsteins Eggertssonar. (Endurtekinn frá 29. f.m.) 20.00 Jólaleikrit útvarpsins: „Tvöföld ótryggö" eftir Pierre de Marivaux. Þýðandi: Þórunn Magnea Magnús- dóttir. Leikstjóri: Sveinn Ein- arsson. Leikendur: Kjartan Bjargmundsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Jó- hann Sigurðarson, Arnór Benónýsson, Kristján Frank- lln Magnús og Ragnheiöur Steindórsdóttir. Endurtekið frá 29. desember sl. 22.00 Fréttir. Dagskrá morgun- dagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Bréf úr hnattferð. Dóra Stefánsdóttir segir frá. 22.50 Harmonlkuþáttur. Um- sjón: Sigurður Alfonsson. 23.20 Danslög. 24.00 Fréttir. 00.05 Miðnæturtónleikar. Um- sjón: Jón Örn Marinósson. I SJÓNVARP i Aston 14.45 Portsmouth Villa Bein útsending frá leik f bresku bikarkeppninni. 17.00 Iþróttir Umsjón Bjarni Felixson. Hló 19.20 Nýr brúöumyndaflokkur (Fraggle Rock) Fyrsti þáttur. Brúöumynda- flokkur eftir Jim Henson sem gerði Prúðuleikarana. Hola I vegg hjá gömlum uppfinningamanni er inn- gangur I furöuveröld þar sem þrenns konar hulduverur eiga heima. Þessir prúöuálf- ar hafá ekki slöur orðið vin- sælir en frændur þeirra prúðuleikararnir. LAUGARDAGUR 4. janúar Þýðandi Guöni Kolbeinsson. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttirogveöur 20.30 Staupasteinn (Cheers) Tólfti þáttur. Bandarlskur gamanmynda- flokkur. Þýðandi Guðni Kol- beinsson. 21.00 Alfie Bresk blómynd frá 1966. Leikstjóri Lewis Gilbert. Aöalhlutverk: Michael Caine, Vivien Merchant, Shirley Anne Field, Millicent Martin, Jane Asher og Shelley Wint- ers. Kvennagullið Alfie töfrar flestar konur, sem á vegi hans verða, en kynnin veröa oftast nokkuð endaslepp. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 22.50 Rottan (King Rat) s/h. Bresk bló- mynd frá 1965. Leikstjóri Brian Forbes. Aðalhlutverk: George Seag- al, Tom Courtenay, John Mills og James Fox. Myndin gerist I fangabúðum Japana I Singapore I heims- styrjöldinni. Þar eru tlu þús- und strlðsfangar I haldi. Einn þeirra, bandariskur undirfor- ingi, hefur komið sér í mjúk- inn hjá fangavörðunum en er ekki að sama skapi vin- sæll meöal fanganna. Þýöandi Veturliöi Guönason. 01.00 Dagskrárlok 01.00 Dagskrárlok. Næturútvarp á Rás 2 til kl. 03.00. LAUGARDAGUR 4. janúar 10.00—12.00 Morgunþáttur. Stjórnandi: Siguröur Blöndal. Hlé. 14.00—16.00 Laugardagur til lukku. Stjórnandi: Svavar Gests. 16.00—17.00 Listapopp. Stjórnandi: Gunnar Salvars- son. 17.00—18.00 Hringborðiö. Stjórnandi: Erna Arnardóttir. Hlé. 20.00—21.00 Hjartsláttur. Tónlist tengd myndlist og myndlistarmönnum. Loka- þáttur. Stjórnandi: Kolbrún Hall- dórsdóttir. 21.00—22.00 Dansrásin. Stjórnandi: Hermann Ragnar Stefánsson. 22.00—23.00 Bárujárn. Stjórnandi: Sigurður Sverris- son. 23.00—24.00 Svifflugur. Stjórnandi: Hákon Slgurjóns- son. 24.00—03.00 Næturvaktin. Stjórnandi: Kristln Björg Þorsteinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.