Morgunblaðið - 04.01.1986, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.01.1986, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JANÚAR1986 15 fyrir íslenska bændur með rit- stjórastörfunum. Má þar nefna fræðslu í útvarpi, vinnumiðlun og auk þess ýmiss konar embætti sem hann gegndi á ólíkum sviðum, en þó í flestum tilfellum tengd bænd- um eða málefnum þeirra. Gísli barðist alla tíð við sjúkdóm sinn af slíkri hetjulund að fátítt verður að t.eljast. Honum sló stundum svo illa niður að hann gerði ekki ráð fyrir að koma aftur til starfa. Þegar þetta kom fyrir á samstarfsárum okkar gerði hann boð fyrir mig og þuldi þá gjarnan upp ýmis áríðandi erindi sem ekki máttu fara forgörðum. Okkur vin- um hans fannst það nær ofur- mannlegt álag sem þessi maður gat borið, og það oftast með bros á vör. Að leiðarlokum vil ég og við hjónin þakka Gísla samveruna. Með þökk og virðingu minnumst við þessa sérstæða og góða drengs. Fjölskyldu hans vottum við samúð við fráfall hans. Jón M. Guðmundsson „Sjá, ég er með yður alla daga.“ Ein er braut og vegferð allra sem fæðast á þessari jörð. Vegurinn er misjafn, gróðurinn ólíkur og misjafnlega fjölbreyttur, brautin stutt eða löng. En hvernig sem viðrar, hversu hátt sem öldurnar rísa, hve gróð- urríkur garðurinn er í blíðu og stríðu, í veikindum miklum sem velgengni — fyrnast ekki fyrirheit Guðs: „Sjá, ég er með yður alla daga.“ Þegar ég lít til baka á rúmlega 20 ára samskipti við tengdaföður minn verða mörg atriði sem koma upp í hugann. Hann var glaður og hress. Hann tók okkur alltaf opnum örmum, börnum, tengdabörnum og barna- börnum, jafnvel þó hann lægi fár- veikur í rúminu. Hann var aldrei svo veikur að ekki gæti hann spurt um líðan okkur og heilsu. Hann var hlýr, gamansamur, svo fullur af viskú að sjaldan kom maður að tómum kofanum hjá honum. Hann hafði gaman af orðaleikjum og kunni mikið af gömlum vísum sem hann lét okkur heyra við ýmis tækifæri. Gestrisni var einnig í hávegum höfð og bauð hann oft heim tugum gesta bæði innlendum og erlendum. Ég held þó að fátt hafi einkennt Gísla meira en vinnusemi hans, elja hans og iðni við öll verkefni sem hann tók að sér. Ef segja ætti einkenni á lfi hans í einni setningu, verður mér efst í huga málshátturinn sem margir kunna: Vinnan göfgar manninn. Hann lagði mikla vinnu í verk- efni sín hvort sem þau voru launuð eða ólaunuð. Hann var brautryðj- andi á íslandi á mörgum sviðum innan búfræðinnar og jók tengsl og samskipti íslands að mun við hinar Norðurlandaþjóðirnar. I rit- störfum sínum, erindum og þýð- ingum lagði hann mikla alúð við íslenskt mál. Ég man aldrei eftir að hafa heyrta hann kvarta yfir lágum launum eða lélegum kjörum. Ég minnist þess aldrei að hafa heyrt hann að fyrra bragði kvarta yfir erfiðum lífsskilyrðum. Gísli þekkti þó bæði þröngan tíma kreppuár- anna, erfiðleika, þrengingar og spennu stríðsáranna í Danmörku þar sem 3 af 5 börnum þeirra hjóna fæddust og þar sem hann lá sjálfur á sjúkrahúsi samfleytt í 3 ár og kynntist sinni ljúfu, örvandi og styðjandi eftirlifandi konu, Thoru Kristjánsson. Gísli þótti oft ákveðinn í skoðun- um, sannfærður í framsetningu sinni, fylginn sér og trúr skoðun- um sínum. En hann var málefna- legur umfram allt og aldrei heyrði ég hann tala illa um aðra. Hann vildi öllum vel. Grösin vaxa, þroskast, bera ávöxt og deyja. Dagur og nótt skiptast á í sköpunarverki Guðs. Hiti og ku'ldi, sumar og vetur, myrkur og ljós. Allt hefur sínar orsakir og afleiðingar. Allt hefur sinn tíma og „ekkert er nýtt undir sólinni". Með þakklæti fyrir góða sam- fylgd og samveru kveðja nú börn, tengdabörn og barnabörn sinn ást- kæra föður, tengdaföður og afa, eljusaman, iðinn og áhugasaman til hinstu stundar, glaðan og hlýj- an. Við kveðjum hann með vissu um að fyrirheit Guðs fyrnast ekki: „Sjá, ég er með yður alla daga.“ Megi friður Guðs fylgja ástkærri eiginkonu og veita henni fögnuð og styrk á braut þeirri sem Guð velur okkur í náinni framtíð. Þórir S. Guðbergsson Systurkveðja: Ég var að leggja síðustu hönd á undirbúning jólanna, þegar síminn hringdi. Ég svaraði og ein dætra Gísla bróður míns sagði: „Pabbi fær að halda jólin í himninum". Þá þakkaði ég Guði, að þrautum hans var lokið. Við vissum öll, að ekkert annað beið hans hér á jörð. En skarðið eftir Gísla er stórt. Ávallt var hann okkur systkinum sínum góður, traustur og um- hyggjusamur bróðir. Það langar mig að þakka nú um leið og ég rifja upp nokkrar gamlar minning- ar. Að vísu eru bernskuminningar mínar um hann bæði færri og fá- tæklegri en þær, sem systkini mín eiga. Þau ólust upp með honum. Hann var elstur og ætíð foringi hópsins, enda vel til forustu fall- inn. Aftur á móti var ég yngsta barnið og það sjötta í röðinni. Þegar ég fæddist, var Gísli farinn að heiman. Jörðin var lítil og margar aðrar hendur til að vinna störfin. Sjálfur hafði hann ríka námsþrá og námshæfileika. En þeir, sem þá hugðu í skólagöngu áttu engan kost á bankalánum og urðu því sjálfir að afla þeirra fjár- muna, er með þurfti. Fátækir bændur, með stóran barnahóp, sem auk þess stóðu í framkvæmd- um á bújörðinni, áttu heldur ekki fé aflögu til að styrkja börn sín. Þó að Gísli væri við nám og störf fjarri heimilinu í frumbernsku minni, kom hann ætíð heim, þegar tækifæri gáfust. Fyrst í stað var ég oft feimin við stóra bróður minn, en brátt hvarf öll hlédrægni. Börn hændust þá og ætíð síðan að Gísla. Ég man, að hann talaði við mig sem jafningja, ræddi um áhugamál litlu systu sinnar og hafði undragott lag á að fá mig til að tala, þó að ég væri annars ekki orðmörg. Þegar illa lá á mér tók hann munnhörpuna sína og fór að spila. Á sömu stund gleymdust allar sorgir. Mér fannst Gísli geta allt. Meira að segja gekk hann á höndunum um túnið heima. Full aðdáunar fylgdi ég honum þá eftir á stuttum fótum. Heimilislífið á bernskuheimili okkar var fjölbreytt. Mikið var lesið og sungið. Nær daglega tóku systkini mín lagið og sungu með tveim eða þrem röddum. Einnig á því sviði var Gísli góður liðsmaður, enda mjög lagviss og með fallega bassarödd. Frá bernskuárum mínum man ég Gísla best, er hann dvaldi heima um tíma og safnaði kröftum eftir vist sína á sjúkrahúsinu á Akur- eyri. Sá sjúkdómur, sem um þetta leyti lagði hvítan hramm sinn á fjölda íslenskra ungmenna og dró mörg þeirra til dauða, hafði einnig náð tökum á líkama bróður míns. Hann fékk berklasár á bakið. Þó að það sár greri, átti sami sjúk- dómur eftir að leggjast þungt á hann síðar. Meðan Gísli dvaldi þá heima, sóttist ég mjög eftir að vera í návist hans. Hann sat oft með blýant og teikniblokk. Þá fylgdist ég með, hvernig blýants- strikin urðu að alls konar mynd- um. Lengi átti ég bók sem hann gaf mér, þar sem teikningar hans voru á hverju blaði, m.a. mynd af mér sjálfri. En því miður er bók þessi glötuð. Sumarið, sem ég var 8 ára, fór Gísli til Danmerkur í annað sinn. Áður hafði hann stundað íþrótta- nám í skólanum í Ollerup. Vetur- inn 1930-31 kenndi hann við Bændaskólann á Hólum bæði íþróttir og fleira. Þann vetur og reyndar miklu oftar var hann hvattur til að fara utan til náms við Landbúnaðarháskólann í Kaupmannahöfn. Ekki hafði hann verið þar lengi, er berklarnir sögðu til sín að nýju. Hófst þá langur þrautatími. En þótt hann væri mjög veikur, gleymdi hann ekki að gleðja litlu systur sína. Alltaf komu bréf, frá Kaupmannahöfn fyrir afmælið mitt. Stundum voru umslögin stór og í þeim gúmmíleikföng, sem hægt var að blása upp. Stundum voru þar teikningar en oftast afmælisljóð. Voru það ýmist heil ljóðabréf eða glettnar, gaman- vísur, þar sem rifjaðar voru upp minningar frá samverustundum okkar. Vísur þessar festust strax í huga mínum, og margar þeirra geymast þar enn. Þó að ég bæri lítt skyn á veikindi Gísla, vissi ég að foreldrum okkar þótti sárt að vita hann einan og sjúkan svo langt í burtu og fólu hann forsjá Guðs. Guð gleymdi honum heldur ekki. Á þessum árum eignaðist hann stóra og dýr- mæta gjöf. Ung dönsk hjúkrunar- kona gaf honum alla umhyggju sína og ást. Hún hjálpaði honum þá og oft síðar til að berjast við sjúkdóminn og vinna sigur. Og seinna, þegar löngu námi var lokið og friður kominn á að nýju í stríðs- hrjáðum heimi, kvaddi hún fjöl- skyldu og föðurland til að fylgja honum til kalda landsins úti á miðju Atlantshafi. Öll árin síðan hefur hún staðið við hlið hans, traust og sterk, mikils metin af tengdafólkinu og öllum þeim sem þekkjahana. Við systurnar höfum oft talað um, að Gísli hafi fengið í arf mestu og bestu kosti foreldra okkar. Hann var óvenju fjölhæfur og hefði átt auðvelt með að leggja stund á verklegt nám. Á æskuárum smíðaði hann ýmsa muni, sem til voru heima, enda vel hagur í hönd- um. En mestan hluta ævinnar var hann hlaðinn öðrum störfum. Oft vann hann margra manna verk. Samt hafði hann alltaf bæði tíma og löngun til að greiða götu og annast málefni fjölmargra, bæði skyldra og vandalausra. Starfsdagurinn var orðinn lang-. ur. Oft hafði hann með hjálp konu sinnar og læknavísindanna risið af sjúkrabeði. En að lokum fóru líkamskraftar hans þverrandi, þó að minni og hugsun héldist óbreytt. Er hann lá síðustu dagana á sjúkrahúsi og mátti ekki mæla, var það ómetanlegt fyrir okkur systur hans að verða vitni að þeirri umhyggju og ástúð, sem börnin hans sýndu honum. Dag og nótt sátu þau til skiptis við hvílu hans og móðir þeirra einnig eftir því sem þrek hennar leyfði. Vegferð hans hér á jörð er lokið. Aldrei framar heyri ég rödd hans í símanum spyrja, hvernig mér líði. Honum var gefin geðró og sálar- styrkur, sem hélst allt til enda. „Kynslóðir koma, kynslóðir fara.“ Það er lögmál lífsins. En í orði Guðs stendur: „Sælir eru dán- ir, þeir sem í Drottni deyja." Það veit ég, að Gísli gerði. Þess vegna trúi ég því líka, að á þessum jólum hafi röddin hans tekið undir með þeim himnesku hersveitum, sem sungu Guði lof og dýrð í upp- hæðum. Lilja S. Kristjánsdóttir í dag, 4. janúar, er kvaddur Gísli Kristjánsson fyrrverandi ritstjóri búnaðarblaðsins Freys. Hann lést á 82. aldursári aðfaranótt aðfanga- dags síðastliðins. Utför hans er gerð frá Lágafellskirkju í Mosfells- sveit. Með honum er horfinn einn af vöskustu forvígismönnum ís- lensks landbúnaðar á þessari öld, maður, sem var síungur í anda og starfsglaður með brennandi áhuga á öllum góðum málum er tengdust ævistarfi hans, auk fjölda annarra málefna. Gísli Björgvin Kristjánsson var Svarfdælingur að ætt og uppeldi, fæddur í Gröf í Vallasókn hinn 28. febrúar 1904, en uppalinn á næsta bæ, Brautarhóli þar sem foreldrar hans, sæmdarhjónin Kristján Sig- urjónsson frá Gröf og Kristín Kristjánsdóttir frá Ytra-Garðs- horni bjuggu nær þrjá áratugi. Börn þeirra Kristjáns og Kristínar í Brautarhóli voru sex: Gísli var elstur, þá Filippia Sigurlaug, skáldkona og húsfreyja í Reykja- vík, skáldnafn hennar er Hugrún, þá Sigurjón Kristján, fyrrum bóndi í Brautarhóli, hann er nú látinn, Svanfriður Guðný, hús- Elínborg Bjarna- dóttir — Minning Kveöja frá vinkonu Fædd 3. febrúar 1917 Dáin 22. desember 1985 í Flatey á Breiðafirði leit Elín- borg fyrst dagsins ljós, 3. febrúar 1917. Foreldrar hennar voru Júl- íana Guðmundsdóttir og Bjarni Bjarnason, ágætis fólk en sára fátæk, eins og svo margir voru þá. Sex voru þau systkinin svo að nærri má geta hve brauðbaráttan var hörð, en Guð leggur líkn með þraut, þrjú börnin voru tekin í fóstur og þeirra á meðal var Elín- borg. Séra Sveinn Guðmundsson og hans ágæta kona Ingibjörg Jónas- dóttir tóku Elínborgu ársgamla. Séra Sveinn var móðurbróðir hennar og hafði brauð í Árnesi í Árneshreppi, Strandasýslu. Frú Ingibjörg var dugleg kona og svo hjartahlý að hún mátti aldrei neitt aumt sjá. Barnmörg voru þau hjón, og voru börn þeirra bæði greind og dugleg.. Meðal þeirra voru þeir landsþekktu menn Kristján Sveinsson, augnlæknir, og Jónas Sveinsson, læknir. Ella var mjög bráðþroska, bæði andlega og líkamlega, og hafði svo mikla kímnigáfu að sérstætt var. Þegar ég var 13 ára unnum við saman í síld á Djúpavík og bjugg- um þá saman í lítilli herbergis- kytru ásamt fjórum öðrum stúlk- um. Þá hófst vinátta okkar, sem enst hefur síðan og aldrei hefur brugðist og mun aldrei bregðast. Við vorum ungar, léttar í lund og kannski svolítið gáskafullar. Á Djúpavík starfaði einnig unnusti Elínborgar, Ófeigur Pét- ursson frá Ófeigsfirði, glæsilegur og góður drengur og ekki var hún síður glæsileg. Hún hefði getað sagt eins og Bergþóra forðum: „Ung var ek Njáli gefin,“ og vissu- lega hefði hún „liðið hið logandi bál“ með unnusta sínum og síðar eiginmanni, hefði þörf verið á því. Hjónaband þeirra var fagurt og grundvallað á sannri ást og djúp- um kærleika sem aldrei dvínaði. Fimm börn eignuðust þau, sem öll eru vel af Guði gerð. Við ræddum margt saman, höfð- um báðar yndi af góðum ljóðum og töluðum einnig um eilífðarmál- in. í þeim umræðum var mér ljóst iað hún var innilega trúuð. Aldrei kvartaði hún um sín eigin veikindi en hlustaðir með hlut- tekningu á aðra sem þjáðust og með glaðværð sinni tókst henni oft að láta aðra gleyma þjáningum eða vandræðum sínum, að minnsta kosti í bili. Minni góðu gömlu vinkonu þakka ég innilega allar skemmti- legu samverustundirnar sem við freyja í Reykjavík, Sigurður Mar- inó, lengi skólastjóri á Laugum, nú bóndi í Brautarhóli og Lilja Sólveig húsfreyja og kennari í Reykjavík. Sagt er að lengi búi að fyrstu gerð og víst er að Gísli mótaðist af æskuumhverfi sínu, og bjó að áhrifum þess alla ævi. í Svarfað- ardal hefur jafnan verið þéttbýlt. Á fyrri hluta þessarar aldar voru þar um níutíu jarðir í ábúð og ekki allar stórar. Hér hefðu líka landsnytjar hrokkið skammt þótt góðar væru til lífsbjargar svo mörgu fólki ef ekki hefði komið til annað bjarg- ræði: sjósóknir frá Böggvisstaða- sandi. Ékki er vafi á því að þétt- býlið og sjósóknin efldi samhug og félagshyggju Svarfdælinga. Þar kom til sameiginleg nauðsyn. Brautarhólsheimilið var menn- ingarheimili þó ekki væri þar auður í garði. Þar voru ræktar fornar dyggðir, iðjusemi og ráð- deild, hjálpsemi og góðfýsi. Bókakostur var talsverður á heimilinu auk þess sem tiltækur var bókakostur Lestrarfélags Svarfdæla en hann var mikill og góður og óspart notaður. Gísli var greindur og námfús. Hann varð snemma læs og las reiðinnar ósköp og mundi vel það sem hann las. Hann gekk í barnaskóla, í skamm- an tíma þó, yfir á Þinghúsið á Grund, til Tryggva Kristinssonar organista, þess mæta manns, sem þá var barnakennari í miðsveit- inni. Minntist Gísli hans jafnan með þakklæti og hlýju. Kvöldvökur voru þá enn ræktar, einnig í Braut- arhóli. Þær hafa oft verið lofaðar sem vert er. Prestsetrið á Völlum var í næsta nágrenni við Brautar- hól. Staðinn sátu þá sr. Stefán Kristinsson og Sólveig Péturs- dóttir Eggerz, höfðingjar í sjón og raun. Hafði Vallaheimilið mikil menningaráhrif í sveitinni og mun Gísli ekki hafa farið varhluta af þeim hollu áhrifum. Á þessum árum stofnuöu unglingar á Aust- urkjálkanum í Svarfaðardal Ung- mennafélagið Æskuna, sem starf- aði í nokkur ár. Þar voru haldnir málfundir og æfð fundarsköp. Gísli fór í Hólaskóla rúmlega tví- tugur eins og margir ungir Svarf- dælingar gerðu á þessum árum, og lauk búfræðiprófi árið 1926. Til Danmerkur hélt hann ári síðar til náms í íþróttakennaraskólann í Ollerup á Fjóni veturinn 1926— 1927. Hélt þá heim og kenndi viö unglingaskóla á Dalvík í tvo vetur, vann þá líka við verslunarstörf og stundaði aðra tilfallandi vinnu í dalnum s.s. vegaverkstjórn og jarðyrkju. Kennari var hann á Hólum veturinn 1930—1931. Nú lá leiðin á ný utan til Dan- merkur þar sem hann var við nám Sjábls. 29. áttum í gamla daga. Ég vona að við getum endurtekið þær, eða aðrar líkar, er við hittumst á ný í ríki sælunnar. Eiginmaður hennar og börn eiga dýrmætar minningar um hana og einnig allir aðrir sem þekktu hana vel. í þeim hópi erum við systurnar fráKjós. Við sjáumst bráðum. Þú færð að líta frelsarann og finna náðar-kærleikann. Þín göfga, hressa, glaða sál ei girntist heimsina raup né tál. Einlæg vinkona, Guðrún Jónsdóttir frá Kjós Kveðja frá fóstursystur „Nú er skarð fyrir skildi, nú er svanurinn nár á tjörn.“ Fóstursystir mín Elínborg Bjarnadóttir er farin frá okkur. Nú þegar leiðir skilur í bili, eru mér efst í huga allar góðu stund- irnar sem við áttum saman. Þær minningar eru dýrmæt eign þegar leiðir skilur. Eftirlifandi manni hennar ófeigi Péturssyni og börnum þeirra votta ég mína dýpstu samúð í sorg þeirra og óska fóstursystur minni velfarnaðar á nýjum leiðum. Ingveldur Sveinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.