Morgunblaðið - 04.01.1986, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.01.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 4. JANÚAR1986 25 18. —Rxe4! Margeir vanmat þessa drottn- ingarfórn ísraelsmannsins. 19. Bxe7 — Rxf2, 20. Kxf2 — Hxg2+, 21. Kel — Hh2, 22. Bfl — Hg3 Einfaldast var að sækja biskup- inn á e7 strax með 22. — Hg7 ásamt 23. — f5. 23. e4 — f5,24. Hcl —hgl Israelsmaðurinn er kominn á villigötur. Hann hefði betur leik- ið 24. — Hg7 o.s.frv. 25. Dd3 — Ba6 Tímaskortur er farinn að hrjá keppendur og Greenfeld ofmetur stöðu sína. Hann hefur aðeins hrók fyrir drottninguna en óná- kvæm taflmennska hans gefur Margeiri tækifæri til að gefa dauðdæmdan mann á hagstæð- um kjörum. 26. Hdl — fxe4, 27. fxe4 — d5, 28. De3 — Hghl, 29. Hd2 — Hxd2, 30. Kxd2 — Hxfl, 31. cxd5 — exd5, 32. e5 — b5 Svarta riddarann á d7 vantar reit á b6. 33. Dh3 — b4, 34. Bxb4 — Hf2+, 35. Kel — Hfl+, 36. Ke2 — Hf2+, 37. Ke3 — Hxa2,38. Dxh5 — Kb7 Betra var að leika strax 38. — Rb6. 39. Df7 — Rb6,40. e6? í síðasta leiknum fyrir bið missir Margeir af einfaldri vinn- ingsleið: 40. Bd6 — He2+, 41. Kf3 — Ra8, 42. Dxd5+ og hvítur vinn- ur auðveldlega. 40. — Rc4+, 41. Kf3 — Hal Greenfeld notaði 40 mínútur á þennan biðleik sem reynist eina vörnin í stöðunni. 42. Kg3 Eftir þennan leik kemur svart- ur riddaranum í spilið með leik- vinningi en eftir 43. Kg4 var málið heldur ekki einfalt, þótt hvítur eigi einhverja vinnings- möguleika. 42. — Rd2,43. Dd7 Eftir 43. e6 kemur 43. — Re4+, 44. Kg2 (44. Kg4 - Hfl!, 45. De7 — Be2+, 46. Kh3 — Bf3 og hvítur er óverjandi mát í næsta leik: 47. — Hhl+) — Ha2+, 45. Kgl — Hal+ogjafntefli með þráskák. 43. — Re4+, 44. Kf4 — Hfl + , 45. Ke5 — Rf6,46. Dd8 — Bc4! Svartur valdar peðið á d5 og hótar 47. — Rg4 mát. 47. Dxf6 Ekki 47. e7? - Rg4+, 48. Ke6 — Hf6+, 49. Kd7 — Bb5 mát! 47. — Hel+, 48. Kf5 — Hfl+, 49. Kg5 — Hxf6,50. Kxf6 — Be2! Kemur í veg fyrir að hvíta frípeðið á ,e6 komist upp í borð og verði að drottningu. Skákin er nú dautt jafntefli. 51. e7 Eða 51. Ke7 - Kc8, 52. Kf8 - Bh5, 53. e7 — Kd7 og skákin verður jafntefli því hvíta frípeðið kemst ekki lengra og engin leið er að komast áfram í þessu enda- tafli með mislitum biskupum. 51. — Bh5, 52. Ke6 — Kc6, 53. Ba5 — Bg4,54. Kf5 — Bh5+ og keppendur sömdu um jafn- tefli. 2. umferð: Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: E. Formanek (Bandaríkj- unum) Sikileyjarvörn 1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. d4 — cxd4,4. Rxd4 — a6,5. Rc3 — b5 Bandaríkjamaðurinn teflir mjög tvíeggjað byrjunaratriði. Eðlilegri leikur er hér 5. — Dc7. 6. Bd3 — Bb7,7.04) —Rf6? Formanek teflir meira af kappi en forsjá. Best var að leika 7. - Dc7 eða 7. - d6, 8. Hel - Rf6, 9. a4 - b4, 10. Ra2 - Be7, 11. Bg5 - a5, 12. c3 — bxc3, 13. Rxc3 og hvítur stendur betur. • 8. e5 — b4 Spurningin er hvort 8. — Rd5 hefði ekki verið heldur skárri leikur. Hvítur getur þá valið á milli 9. Rxd5 — Bxd5, 10. a4 — b4, 11. Dg4 og 9. Re4 og hefur í báðum tilvikum mun betri stöðu. 9. exf6 — bxc3, 10. fxg7 — Bxg7, 11. Dg4! Einfalt og sterkt. Hvítur hótar biskupi svarts á g7 og valdar um leið riddara sinn á d4. 11. —Be5,12. bxc3 — h5 Svartur verður að reyna að flækja stöðuna eins og hann getur. Hvítur hefur opnar sókn- arlínur bæði á kóngs- og drottn- ingararmi, svo að ekki getur svartur hrókað. Svartur er þar að auki langt á eftir í liðskipun og staða hans götótt sem gamall ostur. Hann reynir því að fiska ígruggugu vatni. 13. Dh3 — Hg8,14. f3 Svartur hótaði 14. — Hxg2+ o.s.frv. 14. — Da5, 15. Be3 — Dxc3, 16. Dh4 — Bd5? Svartur gleymir að koma mönnum sínum í spilið. Sjálfsagt var 16. — Rc6 o.s.frv. 17. Hadl - Bxa2, 18. Re2 — Dc7, 19. c4 — Bb3 Hvítur hótaði að vinna mann með 20. Rcl - Da5, 21. Hd2 o.s.frv. 20. Hbl — Ba4,21. Bb6 Eftir 21. — Dc8, 22. De4 — Rc6, 23. f4 - Bf6 (23. - Bc7, 24. Rc3 og Ba4 fellur) 24. f5 opnar sóknarlínur á svarta kónginn. Svartur reynir því að valda bisk- upinn áeöogleikur... 21. — Dd6??? Áhorfendur trúðu varla sínum eigin augum. Keppendum í sterku skákmóti sést sjaldan yfir mát í næsta leik. 22. Dd8 mát. Sjötta umferð var tefld í gær (föstudag) en sú sjöunda er í dag, og þá teflir Margeir með svörtu gegn Balasjov og Jóhann með hvitu við Watson. Minning: Gísli Sigurjóns- son Reyðarfirði Fæddur 14. september 1904 Dáinn 30. desember 1985 Vegferð hvers og eins um ævi- skeið varðast öðru fremur af samferðafólkinu. Nú kveður það fólk, sem fulltíða var, er ég sleit barnsskóm, fólk, sem ég kynntist á ýmsan veg, af mismunandi tilefnum, undantekn- ingarlítið var það gott alþýðufólk, sem vann fyrir sér og sínum með ærnu erfiði, ýmist til sjós eða lands. Það er með hlýrri þökk, sem ég kveð þetta góða fólk, sem kenndi mér margt; eljusemi, trúmennsku, nægjusemi og nýtni, en þó máske fyrst og fremst hjálpsemi og hjartaþel, sem auðgaði allt um- hverfi sitt. Einn þessara samferðamanna kveð ég nú eftir kynni löng og góð við hann og hans fólk. Gísli Sigur- jónsson í Bakkagerði var bóndi fyrst og síðast, þó hann fengist eins og fleiri við allt það er til féll, einkum fyrr á árum. Hann kom einnig við sögu félagsmála á Reyðarfirði á árum áður, bæði í verkalýðsmálum og hreppsmálum, var um skeið formaður verkalýðs- félagsins og um átta ára skeið sat hann í hreppsnefnd og var oddviti Reyðarfjarðarhreppðs þann tíma. Hann var maður farsæll í hverju því sem hann tók sér fyrir hendur, hann var sanngjarn og sáttfús, en þó fastur fyrir, ef því var að skipta. Mér þótti ævinlega gaman að hitta Gísla, kunni vel að meta mannkosti hans og gamansemi, sem aldrei særði og hafði hann þó oft gaman af að stríða mér smá- vegis. Gísli var glöggur maður, sem fylgdist vel með öllu, ræðinn og skemmtilegur, þegar við tókum saman tal. Hann var sjálfstæðismaður af gamla skólanum, frjálslyndur og fordómalaus, ekki alltaf sáttur við sína menn, því honum var eiginlegt að fara eigin leiðir og lét ekki aðra móta stefnu sína í þjóðmálum eða mata sig á skoðunum eins og svo margir gera í dag. En sjálfur hélt hann ótrautt fram eigin skoðunum, en aldrei varð það okkur til ósættis. Á mælikvarða síns tíma hafði Gísli fengið nokkra menntun, sem hann bjó að og víkkaði sjóndeildar- hring hans. Gísli fæddist 14. sept. 1904, sonur hjónanna Önnu G. Stefáns- dóttur og Sigurjóns Gíslasonar, er bjuggu í Bakkagerði á Reyðarfirði. Reyðarfjörður var því jafnt bernskuleikvangur hans sem starfsvettvangur alla tíð. Um forelda Gísla heyrði ég jafn- an talað af sérstakri hlýju og virð- ingu á bernskuheimili mínu, enda voru þau einkar vel látin og vel metin hjón, Anna m.a. forystukona í félagsmálum kvenna á Reyðar- firði um árabil og Sigurjón annál- aður hraustleika- og hæfileika- maður. Gísli vann ýmis störf um dag- ana, þó búskapurinn væri þar drýgstur, en 1929 hóf hann búskap í Bakkagerði, einnig var ýmis daglaunavinna drjúg áður fyrr og ekki má gleyma sjósókninni. Gísli var um skeið verkstjóri og um mörg ár var hann löggiltur vigtar- maður. Hann rækti öll sín störf af mikilli trúmennsku. Hann kvæntist 1929 ágætis konu, Huldu Jónsdóttur frá Krossi á Berufjarð- arströnd, en Hulda lést fyrir nokkrum árum. Hulda var fríð kona, mikilla mannkosta, sem hugsaði um heim- ili sitt og vann því ágæta vel meðan þrek og kraftar entust. Þau eign- uðust 5 börn, en elsta dóttirin Anna, prestsfrú á Breiðabólstað, féll frá á besta aldri. Önnu man ég vel að heiman sem hina fríðu og sviphreinu stúlku, sem öllum vildi gott gera. Þessa naut ég á Eiðum, er hún gætti okkar sundnemenda þar og á um hana þaðan bjarta, ógleymanlega minningu. Þau börn þeirra hjóna, sem eftir lifa, eru Guðbjörg húsfreyja í Kópavogi, Sigurjón trésmiður, Fellabæ, Birna María húsfreyja Reyðarfirði og yngst er Edda Vil- helmína húsfreyja á Reyðarfirði. Öll eru þau systkini efnisfólk, sem gott hefur verið að kynnast, Guðbjörg er skólasystir mín en yngri systurnar tvær nemendur mínir. Langur starfsdagur er liðinn og kominn hvíldartíð. Farsæl ævileið er á enda gengin. Ástvinum hans öllum votta ég samúð mína. Eg kveð samferðamanninn Gísla í Bakkagerði með hlýju og þökk fyrir góða viðkynningu og ljóm- andi samfylgd um langan veg. Blessuð sé minning Gísla í Bakkagerði. Helgi Seljan Það er hollt að hafa átt heiðra drauma vökunætur séð með vinum sínum þrátt sólskins rönd um miðja nátt aukið degi í ævi þótt aðrir þegar stóðu á fætur. Á útfarardegi Gísla Sigurjóns- sonar tengdaföður míns er mér efst í huga þakklæti og virðing fyrir góð kynni og samskipti. Gísli var hreinskilinn og hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og var þar af leiðandi alltaf hress- andi andrúmsloft þar sem hann fór. Hann fylgdist vel með þjóð- málum og lét sér annt um upp- byggingu og framgang í sínu byggðarlagi og lagði þar gjörva hönd á plóg. í hvert sinn er við hittumst fór ég fróðari af þeim fundum. Sonum okkar eins og öðrum reyndist hann vel. Börn og unglinga umgekkst hann án kynslóðabils en var jafn- framt í fræðslu- og uppeldishlut- verki. Hafi hann þökk fyrir uppfræðslu og veganesti. Vini kveð ég, þakka þeim þessa sumarnæturvöku! Uti tekur grund og geim glaðasólskin mundum tveim. Héðan flyt ég fémætt heim f agran söng og létta stöku. (Stephan G.) Sigrún Brynjólfsdóttir t Frú SIGURÞÓRA STEINUNN ÞORBJÖRNSDÓTTIR, Túnsbergi viö Starhaga, lést 2. janúar. Bergur Felixson, Ingibjörg S. Guömundsdóttir, Þórunn H. Felixdóttir, Felix Valsson, Ragnheiöur Alfreösdóttir, börn og barnabörn. t Dóttir mín, móöir, tengdamóöir og amma, ÞÓRA FRANKLÍN, sem lést á Fjóröungssjúkrahúsinu Akureyri laugardaginn 28. desember veröur jarösungin frá Akureyrarkirkju þriöjudaginn 7. janúar kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Fjóröungssjúkra- húsiö á Akureyri. Valgeröur Friöriksdóttir, Ævar Karl Ólafsson, Sigrún Jóhannsdóttir, Ólafur Þór Ævarsson, Marta Lárusdóttir, Inga Jóna Ævarsdóttir, Tryggvi Agnarsson, Jóhann Björn Ævarsson. (Stephan G.) t Faöir minn, tengdafaöir og afi, BJARNHÉÐINN ÞORSTEINSSON bifreiöastjóri, Hólavangi 26, Hellu, lést á heimili sínu hinn 31. desember sl. Svavar Bjarnhéöinsson, Jóhanna Jensen og barnabörn. t ÁRNI KRISTINN K JARTANSSON, bóndi á Seli í Grímsnesi, verður jarösunginn frá Skálholtskirkju þriöjudaginn 7. janúar kl. 14. Jarösett verður í Mosfellskirkjugaröi. Bílferö veröur frá Um- feröarmiðstööinni kl. 12, með viðkömu hjá Fossnesti á Selfossi. Ellinor Kjartansson, Þórunn Árnadóttir, Þórdís Pétursdóttir, Sigrún Guömundsdóttir, Kristján Sigtryggsson, systkini og fósturbörn. t Ástkæri sonur okkar og bróöir, SIGURÐUR SIGURÐSSON, Sunnubraut 8, Garöi, sem lést 22. desember sl. verður jarösunginn frá Útskálakirkju laugardaginn 4. janúar ki. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans ,er bent á Þroskahjálp að Suöurnesjum. Siguröur Ingvarsson, Kristín Guömundsdóttir, Halldóra Jóna Siguröardóttir, Guðlaug Helga Siguröardóttir. méÍhúw

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.