Morgunblaðið - 04.01.1986, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 04.01.1986, Blaðsíða 40
HL MGUGRA NOIA ^Auglýsinga- síminn er 2 24 80 LAUGARDAGUR 4. JANÚAR1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Viðskiptabankarnin Innlán í Al- þýðubankanum hækkuðu mest á síðasta ári INNLÁN hjá Alþýðubankanum jukust mest allra viðskiptabank- anna á síðasta ári eða um 95%. Minnsta innlánsaukningin var hjá Landsbanka íslands, 37,8%. Utlán jukust einnig mest hjá Alþýðubankanum og Verzlunar- bankanum og hækkuðu þau um 70%hjá báðum. Þessar tölur eru samkvæmt bráðabirgðayfirliti viðskipta- bankanna. Athyglisvert er að innlán í einkabönkunum svoköll- uðu hækka nokkru meira en í ríkisbönkunum. Hjá Samvinnu- bankanum hækkuðu innlán um 61% og þriðja mesta aukningin var hjá Verzlunarbankanum, en hann var eini bankinn þar sem útlán hækkuðu hlutfallslega meira en innlán. Innlán í Iðnað- arbanka og Búnaðarbanka hækkuðu mjög svipað. Mesta innlánsaukning spari- sjóða, sem Morgunblaðinu er kunnugt um, var hjá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis, 55,6%. Hjá stærsta sparisjóðn- um Sparisjóði Keflavíkur, jukust innlán á síðasta ári um 48,6%. Sjá nánar: „Einkabankarnir stóðu sig best“ bls. 7. Morgunblaöið/Jóhannes Long Fossvogurinn í Ijósum logum Fossvogurinn var eitt eldhaf yfir að líta undir miðnætti á gamlársdag. Flugeldar kveiktu í skráþurri sinunni og slökkvilið og cinstaklingar börðust við að halda eldinum frá húsum neðst í Fossvoginum. Tal teflir á Reykja- víkurskák- mótinu SOVÉSKI stórmeistarinn Mikhail Tal mun tefia á XII. alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu, sem hefst þann 11. febrúar næstkom- andi. Ekki er að efa að koma Tal verður skákunnendum kærkomin, því menn minnast enn snilldartil- þrifa hans á fyrsta Reykjavíkur- skákmótinu árið 1964. Sovétmenn hafa boðað þátttöku þriggja skák- manna. Auk Tal koma Efim Gell- er og Salov. „Við reyndum að fá Garri Kasparov, heimsmeistara, hingað til lands. Hann tók ekki ólíklega í það ef tækist að fresta væntanlegu einvígi hans við Ana- toly Karpov. En því miður hefur Alþjóðaskáksambandiö hafnað beiðni hans um frestun," sagði Þorsteinn Þorsteinsson, forseti Skáksambands íslands, í samtali við Morgunblaðið. Margir snjallir skákmeistarar hafa boðað komu sína. Þar má fyrstan nefna Bent Larsen, sig- urvegarann á afmælismóti skák- sambandsins í fyrra. Lev Alburt, sigurvegari Reykjavíkurskák- mótsins 1982, kemur, svo og Tony Miles frá Englandi, Yasser Seirawan, Robert Byrne og Fedrowic frá Bandaríkjunum. Tólf Júgóslavar hafa boðað komu sína og þeirra á meðal má nefna stórmeistarann Abramovic, sem hafnaði í öðru sæti 1982. Þá er reiknað með þremur kunnum Ungverjum, stórmeisturunum Adorjan, Sax og Farago. Húsasmiðjan mun hætta framleiðslu einingahúsa HÚSASMIÐJAN hf. mun hætta framleiðslu einingahúsa í vor og hef- ur starfsmönnum húseiningaverk- smiöjunnar í Fífuhvammi í Kópavogi verið sagt upp. Húsasmiðjan hefur framleitt 30 til 60 timbureiningahús á ári, og starfsmenn verið 15-40 eftir árstíma. Jón Snorrason framkvæmda- stjóri Húsasmiðjunnar hf. sagði að rekstur húseiningaverksmiðjunnar hefði verið frekar þungur og enginn bati sjáanlegur. Sala framleiðsl- unnar hefði gengið ágætlega en lánamálum í byggingaiðnaðinum þannig háttað að sífellt erfiðara væri að fjármagna framleiðsluna. Jón sagði ekki ákveðið hvort verk- smiðjan í Fífuhvammi yrði seld eða tekin undir aðra starfsemi. Ákvörðun menntamálaráðherra varðandi LÍN: Framkvæmdastjórinn leystur frá störfum Hef sinnt starfinu af trúmennsku, segir framkvæmdastjórinn SVERRIR Hermannsson mennta- málaráöherra leysti Sigurjón Valdi- marsson frá störfum framkvæmda- stjóra Lánasjóðs íslenskra náms- manna í gær. Hrafn Sigurðsson við- skiptafræðingur hefur verið settur framkvæmdastjóri til bráðabirgða og honum til aðstoðar hefur verið ráð- inn Reynir Kristinsson hjá Hag- vangi. „Þetta er ekki skemmtiverk, en ég hlýt að fara eftir samvisku minni og þeim skyldum sem ég tel að á mér hvíli. Hér er á ferðinni milljarða sjóður og ég get ekki stundinni lengur horft á hann rekinn öðru vísi en undir stjórn þeirra sem ég hefi ástæðu til að treysta," sagði Sverrir Hermanns- son menntamálaráðherra. „Þau skil sem mér voru gerð af hálfu þessa sjóðs á síðasta ári fylltu mig vantrausti á að vel og skynsamlega væri á málum haldið og er ég þá ekkert að vitna til þeirra mýmörgu kvartana sem manni berast um afgreiðslumáta þesssarar stofnun- ar. Ég vil gera breytingar og það er verið að athuga hvaða breyting- ar eru skynsamlegar." Sigurjón Valdimarsson sagði í samtali við Morgunblaðið að hann væri mjög undrandi á þessari uppsögn. „Það hafa komið fram í bíöðum ásakanir á hendur sjóðnum og þær eru allar skýranlegar. Ég veit að ég hef sinnt mínu starfi af trúmennsku og axlað þá ábyrgð sem á þessum sjóði hvílir og er því afskaplega hissa á þessum aðgerð- um ráðherra." Þá gaf menntamálaráðherra út í gær reglugerð sem kveður á um að frá og með desember 1985 skulu lánsviðmiðanir sjóðsins í íslensk- um krónum vera jafnháar og á tímabilinu september/nóvember 1985. Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra sagði að venjulega færi fram uppfærsla miðað við framfærsluvísitölu og gengi á þessum lánum en nú hafi hann tekið þá ákvörðun að lánin verði óbreytt i krónutölu a.m.k. um hríð. „Þessi ákvörðun núna veitir aðhald í bili, en- ég þarf að velta mörgum atriðum fyrir mér í fram- haldi af þessu. Þetta er ekki stór ákvörðun, en það þarf að gá að því að laun fólks hafa verið skert og launamenn hafa ekki fengið laun sín útreiknuð eftir vísitölu fram- færslukostnaðar. Hins vegar hafa lán til námsmanna verið reiknuð eftir framfærsluvísitölu og þeir hafa einnig notið hækkunar vegna gengisbreytinga allan tímann," sagði menntamálaráðherra. Sjá nánar á bls. 4. Meint stórfelld skattsvik eru til rannsóknar HJÁ skattrannsóknadeild ríkis- skattstjóra er nú til rannsóknar meint skattsvikamál hjá stóru innfiutningsfyrirtæki í Reykjavík. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins, er hér um að ræða eitt stærsta mál sinnar tegundar, sem komið hefur til rannsóknar hjá skattyfirvöldum. Þeir forsvarsmenn skattyfir- valda sem Morgunblaðið ræddi við í gærkvöldi, vörðust allra frétta af málinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.