Morgunblaðið - 19.01.1986, Qupperneq 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR19. JANÚAR1986
U2 vinnur nú að nýrri hljómplötu. I mars
munu þeir taka þátt í stórum Amnesty Int
ernational-hljómleikum í Bandaríkjum
Norður-Ameríku. Simple Minds munu
að öllum líkindum einnig vera með
• • Það er væntanleg smáskífa frá
Frankie Goes to Hollywood. Platan
verður tekin upp í Hollandi og
auðvitað stjórnar Trevor Horn
upptökum. •• Billy Idol er að
taka upp breiðskífu. Hann má nú
vanda sig ansi mikið ef hann ætlar
að gera betri plötu en Rebel Yell
ekki satt? Keith Forsey er upp-
tökustjóri. • • Lloyd Cole and
the Commotions eru á leiðinni í
hljómleikaferð um Evrópu sem hefst
í lok þessa mánaðar. Þá
munu þeir heimsækja
Ameríku en plata þeirra
Easy Pieces" er nýkomin á markað
þar. •• Piltarnir í Level 42 eru nú
að semja lög og texta á væntanlega
breiðskífu. • • Daryl Hall er þessa
dagana í hljóðveri við upptökur
ásamt Dave Stewart (Eurythmics)
og er væntanleg einfaraplata frá
Hall (einfaraplata = sólóplata??).
Ekki splundrar þetta þó tvíeykinu
Hall and Oates. Nei, Nei, þeir eru
alltof góðir vinirtil þess! •• Roll-
ing Stones-platan kemur út í febrú-
ar og gengur þessa dagana undir
nafninu „Dirty Work“. Platan var hljóð-
rituð í París og New York og meðal
þeirra sem aðstoða Steinana eru Jimmy
Page, Danny Kortchmar og einhverjar stúlkur
úrGoGo’s.
Mick Jagger og
félagar í Rolling
Stones senda frá
sér plötu í febrú-
ar. Hér er mynd
af Jagger og Jerry
Hall. Heitir þessi
fagra stúlka ekki
eitthvað í þá ver-
una?
Hver er að
gera hvað og
hvar og hvenær?
Jú, að öllum
líkindum mun
Gaukur á Stöng
standa fyrir
nokkrum kvöld-
um í febrúar til-
elnkuðum John
heitnum Lenn-
on. Mun þá
hljómsveit skip-
uð valinkunnum
hljóðfæraleikur-
um og söngvur-
um leika í einn
og hálfan
klukkutíma eða
svo lög eftir
John allt frá
Bítlaárunum og
fram til hans
dauðadags. Lík-
legt þykir að
þessir verði í
hljómsveitinni:
Eyjólfur Krist-
jánsson (áður í
Hálft í hvoru),
Haraldur Þor-
steinsson (Eik,
Brimkló, Grafík
o.fl.), Jón Ólafs-
son (Possibillies),
Stefán Hjör-
leifsson (Possi-
billies), Rafn
Jónsson (Graf-
ík), Að lokum:
Ef ekki verður
af þessu mun
Popparinn
snæða 3 trefla,
báða hattana
sína og kerta-
þræði úr VW
’74 með beinni
innspýtingu og
hana nú!
->S
Hverjir eru bestir í ís-
lensku poppi 1985?
Spennan í
algleymingi
Fyrir viku birtist þessi huggulegi seðill hér é síðum
Popparans. Stúikurnar sem taka við bréfum á
ritstjórn Morgunblaðsins áttu sér einskis ills von
þegar umslög merkt Popparanum tóku að streyma
inn í vikunni. Bréfaflaumurinn hefur verið óstöðv-
andi og þurfti til dæmis að leita að Auði á sfmanum
í tvær klukkustundir á fimmtudaginn var. Fannst
hún svo í ekki nema svona rétt þokkalegu ásig-
komulagi undir bréfabunkanum.
Lesendur Morgunblaðsins vilja greinilega fá að
segja sína skoðun á íslensku poppi og rokki ársins
1985 og er það vel. Gróskan var mikil og á milli 60
og 70 íslenskar hljómplötur litu dagsins Ijós. Það
er einnig gott að sjá hve skilmerkilega seðlar þessir
eru fylltir út og sjaldan eða aldrei eru eyður. Þegar
þetta er ritað er enginn búinn að taka afgerandi
foyrstu hvort sem um er að ræöa besta söngvarann,
bestu hljómplötuna eða til dæmis besta tónlistar-
myndbandið.
Örfáir atkvæöaseðlar hafa borist sem telja verður
með öllu ómarktæka þar eða Madonna vartil dæmis
sögð besta íslenska söngkonan og Nick Rhodes
besti íslenski hljóðfæraleikarinn.
Munið aö merkja seðlana skilmerkilega elskurnar
mfnar og að skilafrestur er til 21. janúar. Merkið
umslagið:
Morgunblaðið,
c/o Popparinn
Aðalstræti 6
101 Reykjavík