Morgunblaðið - 19.01.1986, Síða 18

Morgunblaðið - 19.01.1986, Síða 18
18 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR19. JANÚAR1986 fclk f fréttum LISTAHÁTÍÐ UNGA FÓLKSINS Listahátíð unga fólksins hefur staðið yfír á Kjarvalsstöðum undanfama viku. Hátíðin er haldin á vegum íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur og flöldi ungmenna á aldrinum 15 til 22 ára sýnir þar verk sín. Sitthvað hefur svo verið á seyði flesta dagana á hátíðinni, nemendur úr Qölmörgum skólum hafa komið ogýmist dansað, spilað, fluttgamanmál, hreyfilist eða leikrit, svo eitthvað sé nefnt. Við náðum í vikunni tali af nokkrum þeirra sem lagt hafa hönd á plóginn, eiga ýmist verk ,á hátíðinni eða hafa skemmt gestum á einn eða annan Ihátt. Hátíðinni lýkur í kvöld klukkan 22. m. „Held áfram svo lengi sem ég finn framför“ Morgunblaðið/Bjarni Margrét Kristjánsdóttir, Ásgeir Thoroddsen, Auðný Vilhjálmsdóttir og Esther Ágústa Berg í hlutverkum sinum. „Eins gott að standa sig“ að var líf og fjör í vestursal Kjarvalsstaða einn eftirmið- daginn í vikunni. Þar stóð þá yfir æfing á einþáttungnum „Partý“ eftir Odd Bjömsson og voru það nemendur úr Æfingaskóla KHI sem voru þar á fullri ferð, sumir jafnvel á hjólaskautum. Leikendur eru ell- efu talsins, átta stelpur úr 9. bekk og þrír strákar úr 8. bekk, sem þær fengu til liðs við sig. Halla Margrét Ámadóttir æfði verkið með þeim, en hún er einnig kennari þeirra í leiklist. Einþáttungurinn var svo frumsýndur á föstudagskvöldið. „Við emm flest í leiklist sem valfagi og fáum hana þar með metna til einkunna í vor. Það er því eins gott að standa sig á sýning- unni,“ segir Ragnheiður Guð- mundsdóttir, einn leikendanna, og nokkrar stöllur hennar úr hópnum taka undir. „Það er gaman að taka þátt í svona sýningu, en tímafrekt. Við byijuðum heldur ekki að æfa á fullu fyrr en núna í janúar, þannig að þetta hefur allt gerst hratt. Þetta hefur verið feikileg vinna — en mjög skemmtileg," segir hún. „Þetta er fremur erfið sýning á þann hátt að það eru eiginlega allir á sviðinu allan tímann. Einþáttung- urinn gerist allur í einni veislu og við fylgjumst þar með framvindu mála. Hjónin sem búa í íbúðinni fara um á hjólaskautum og þetta er mikið fjör,“ segir Ragnheiður. Hún bætir við að það sé kostur við einþáttunginn að hlutverkin eru eiginlega öll jafnstór, þannig að allir fá að spreyta sig. „Nú, svo erum við jafnvel að hugsa um að fara í leikferð út á land með vor- inu,“ segir hún en er ekki tílbúin að fjölyrða um frekara framhald á leikferlinum. „Við erum vonandi feikilega fyndnir“ við: „Þetta eru mjúkir og fallegir dansar." Eftir að skólatíma í MH lýkur á daginn og flestir halda heim á leið, þá má segja að dagurinn sé rétt að byija hjá Þóru Kristínu. Fimm sinnum í viku æfir hún ballett í Listdansskólanum og þrisvar í viku jassballett. „Þetta er mjög skemmtilegt og ég finn að mér er enn að fara fram. Hins vegar er ekki nóg að æfa bara og æfa. Maður þarf líka að hafa tíma til að hugsa um það sem maður er að gera. Einbeitingin skiptir miklu máli í svona námi og hana þarf að þjálfa," segir Þóra Kristín. „Maður lærir mikið á því að koma svona fram eins og við gerum á sunnudaginn á iistahátíð- inni. Hér á landi eru ekki svo mörg tækifæri og um að gera að grípa þau sem gefast," segir hún. því að semja handrit og læra það utan að. Svo bættist smám saman við þetta allt saman — vonandi til góðs. En það fer mikil vinna í að æfa svona atriði ef vel á að vera,“ segjaþeir. „Fötin sem við erum í á tískusýningfunni eru óneitanlega fallegustu föt sem sést hafa síðan 1932,“ segja þeir glettnislega og bæta við að þeir séu ekki að gera grín að neinni ákveðinni Þóra Kristín Gucjohnsen heit- ir hún og er átján ára gamall nemandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð, Listdansskóla Þjóð- leikhússins og Jazzballettskóla Báru. Hún kemur fram með nemendum úr Listdansskólanum sem sýna síðdegis í dag tvo dansa á listahátíðinni. „Fyrst dönsum við dans sem Guðrún Pálsdóttir samdi fyrir okkur við tónlist eftir Þóri Baldursson. Við dönsum fimm saman og það má segja að þetta sé nokkuð klassískur dans, þó við verðum ekki í táskóm. I hinum dansinum sem Katrín Hall hefur æft, eru einungis tveir dansarar. Þetta er meiri nútíma- dans með jassívafi og er þannig að annar dansarinn er eins og skugginn af hinum. Báðir eru dansamir mjög skemmtilegir," segir Þóra Kristin fyrst og bætir mm Þóra Krístfn Guðjohnsen Morgunblaðið/Bjami Þóra Kristín hefur verið á ballett- námskeiðum erlendis á sumrin og segir að það hafi reynst sér feiki- lega lærdómsríkt. „Ég vonast til að komast á námskeið í Dresden í sumar,“ segir hún og kveðst ætla að halda áfram á þessari braut svo lengi sem hún finnur framför. Dans Guðrúnar Pálsdóttur æfð- ur. Aftari röð frá vinstri: Soffía Marteinsdóttir, Jóhanna Krístín Jónsdóttir, Margrét Gisladóttir. Fremri röð: Þóra Kristín Guð- johnsen og Lilja ívarsdóttir. ið erum vonandi feikilega fyndnir... sögðu þeir Einar Gunnar Guðmundsson, Orri Hauksson og Guðmundur Amarsson úr 8. bekk í Hagaskóla þegar við litum inn á æfingu hjá þeim í vikunni. Þeir komu fram á fimmtudagskvöldið með tvö skemmtiatriði, spumingaleikinn Veistu svarið, fíflið þitt? og tískusýningu. Bæði atriðin eru frumsamin af þeim félögum og voru sýnd á síðustu jólagleði í skólanum. Þá kölluðu þeir sig Þijár hormónaflækjur í ham. Um spumingaleikinn segja þeir að hann fjalli um tvo menn sem eru að taka þátt í spumingakeppni. „ Annar veit allt, er hámenntaður málfræðingur, en hinn er landsþekktur grínisti sem er vel undir meðallagi fróður. Spyrillinn á svo sinn þátt í að rugla þessu sem mest hann má. Við byijuðum á

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.