Morgunblaðið - 19.01.1986, Side 26
Flugvél
Ricky Nelson:
Kviknaði
eldur við
fíkniefna-
neyzlu?
Waðhington, 17. janúar. AP.
GRUNUR leikur á að flugvél
söngvarans Ricky Nelson hafi
^ farizt eftir að eldur kviknaði um
borð við fíkniefnaneyzlu.
Við krufningu fannst ómelt kóka-
ín í líki Nelsons, sem bendir til þess
að flugvélin hafí farizt rétt eftir
neyzlu þess, að því er blaðið Wash-
ington Post skýrir frá. Fimm menn
fórust með flugvélinni, auk Nelsons.
Rannsókn slyssins er ólokið en
athyglin beinist nú að eldsvoða um
borð af völdum fíkniefnanotkunar.
Lokið er fullnaðarkrufningu á líkum
flugmannanna og fullyrt er að
hvorugur þeirra hafí neytt áfengis
eða fíkniefna. í fyrstu var talið að
eldur hafí kviknað í flugvélinni eftir
að eldsneytisrör sprakk, en nú er í
ijós komið að rörið brotnaði í sundur
•«, í brotlendingunni.
' Fjölskylda og ættingjar Nelsons
hafa neitað því að hann hafí neytt
fíknieftia, en þess má geta að í
skilnaðarmáli hans og fyrrverandi
konu hans, bar konan að hann hefði
sífellt neytt fíkniefna.
Selfoss —
' Samvinnuferðir:
10% en
ekki 9
Selfosdi, 16.janúar.
1 SAMNINGI Selfosskaupstaðar
og Samvinnuferða Landsýnar
um hótelrekstur í félagsheimil-
inu hér er ákvæði um leigu og
er leigan 10% af brúttóveltu að
t frádregnum söluskatti en ekki
9% eins og ranghermt var í
Morgunblaðinu 15. janúar.
í frétt um þennan samning 15.
jan. sl. urðu einnig orðabrengl í
orðum sem höfð voru eftir bæjar-
stjóranum á Selfossi varðandi þenn-
an samning. Rétt eftir höfð voru
orð bæjarstjóra eftirfarandi. „Mat
okkar er það að til að svona rekstur
gangi þurfí að standa á bak við
hann aðili, sem hefur þekkingu á
markaðnum og er í tengslum við
innlenda og erlenda ferðamenn,
ásamt því að hafa reynslu af hótel-
og veitingarekstri."
Sig. Jóns.
----♦ ♦ »
Frístundaklúbburinn
Hana-nú:
Náttúruskoð-
unar- og
gönguferðir
-- í tilefni af ári heilsuræktar og
heilbrigðra lífshátta hefúr frí-
stundahópurinn Hana-nú í Kópa-
vogi sent frá sér fréttatilkynningu,
þar sem Kópavogsbúum er bent á,
að nýjasti klúbbur Hana-nú er
gönguklúbbur.
Gönguferðimar hefjast ætíð kl.
10.00 á laugardögum og er farið
frá Digranesvegi 12. Gengið er um
bæinn í u.þ.b. klukkutíma.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR19. JANÚAR1986
LJE tiEIMI rVIEMyNEANNA
Það verður vart annað sagt en
að Sylvester Stallone hafi dottið
ofan í langlífa og gróðavænlega
hugmynd er hann skrifaði söguna
um Rocky Balboa, fátæka hnefa-
leikakappann sem fékk tækifæri til
að keppa við heimsmeistarann.
Það var fyrir áratug og að honum
liðnum er Stallone einn vinsælasti
en jafnframt umdeildasti leikari og
leikstjóri í vesturheimi.
Þegar Rocky III, sem sló út fyrri
myndirnar tvær hvað vinsældar
varðar, var frumsýnd spurði blaða-
maður Stallone hvort búast mætti
við fleiri myndum um Rocky. „Það
borgar sig ekki að vera með fullyrð-
ingar,“ svaraði kappinn og er víst
orð að sönnu. Hann gat ekki hafn-
að tilboðinu sem Irwin Winkler og
Robert Chartoff hjá United Artists
gerðu honum — hann fær helming
af tekjum myndarinnar. Þessi
samningur markar tímamót í
bandarískri kvikmyndagerð. Rocky
IV var frumsýnd í Bandaríkjunum
í desember síðastliðnum og vin-
sældir myndarinnar hafa verið slík-
ar að Stallone hlýtur að vera búinn
að skrifa handritið að fimmtu
myndinni.
Bíóhöilin mun hefja sýningar á
Rocky IV miðvikudaginn 22. jan-
úar. Bíóhöllin verður því fyrsta
kvikmyndahúsið utan Bandaríkj-
anna til að sýna þessa mynd. Danir
og Svíar fá ekki að sjá hana fyrr
en að tveimur mánuðum liðnum.
Stallone hefur aldrei verið talinn
ýkja frumlegur handritshöfundur.
En eitt kann hann þó, og það er
að skrifa um frumstæðustu hvatir
mannsins. Rocky III var hávært
slagsmálasvall og Rocky IV er
sögð enn háværari. í henni eru
sömu persónurnar sem við þekkj-
um úr I, II og III: heimsmeistarinn
góði Rocky, kona hans, Adrian,
bróðir hennar, vandræðagemling-
urinn Paulie, fyrrverandi heims-
meistarinn og góövinur Rockys,
Appollo Creed. En í fjórðu mynd-
inni birtast einnig nýjar persónur
Rocky og andstæðingur hans, félagi Ivan Drago, á fróttamannafundi fyrir bardagann mikla . . .
og þeirra fremster eru félagi Ivan
Drago, heimsmeistari áhuga-
manna í hnefaleikum, og kona
hans, Ludmilla. Hinn ógnvænlega
Rússa leikur sænskur rumur,
Dolph Lundgren að nafni. Hann
hefur ekki leikið áður, enda eiga
hreyfingar hans meira skylt við
slagsmál en leiklist. Ludmillu leikur
hin danska Brigitte Nielsen, sem
Stallone gekk að eiga skömmu fyrir
jól.
Rock Balboa, fulltrúi vestursins,
segir: „Kannski get ég ekki sigrað
Drago, en til að sigra verður Drago
að drepa mig.“ Ivan Drago, fulltrúi
austursins, segir: „Enginn sigrar
mig íhringnum."
Bandarískir gagnrýnendur voru
lítt hrifnir af Rocky IV, en almenn-
ingur hyllir hana. Hópur sovéskra
menningarfrömuða hefur fordæmt
myndina. Segja þeir hana vera
hluta af áróðursherferð á hendur
Sovétmönnum, þar sem þeim sé
lýst sem grimmum og svikulum
fjandmönnum. Það kemur engum
á óvart að flestar vestrænar kvik-
myndir eru bannaðar í Sovétríkjun-
um.
Sylvester Stallone hefur ekki
lesið bók svo vitað sé. Engu að
síöur gæti hann ómeðvitað, er
hann setti saman handritið að
fyrstu myndinni, — haft í huga
klambrið sem Halldór Laxness lét
flakka í Guðsgjafaþulu sinni:
Heims í boxi hart fram sté
við heimsmeistara góðan:
fjórum sinnum féll á kné.
I fimmtu lotu stóð hann.
HJÓ
Evrópusyning í Bíóhöllinni 22. janúar:
Austrið og vestrið berast á
banaspjótum í ROCKYIV