Morgunblaðið - 19.01.1986, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR19. JANÚAR1986
B 27
— um njósnir og spillingu í æðstu stöðum
Bretland:
Fyrsta myndin á árinu
Fyrsta breska bíómyndin, sem
frumsýnd hefur verið úti í Bretlandi
á nýja árinu, heitir Defence of the
Realm. Um er að ræða pólitískan
„þriller" sem gerist í nútímanum
en myndin er gerð að tilhlutan eins
fremsta kvikmyndagerðarmanns
Breta nú um stundir, David Putt-
nam. Leikstjóri „Defence" heitir
David Drury. Hann hefur ekkert
komið nálægt gerð biómynda áður
heldur aðeins fengist við gerð
heimildarmynda og unnið við sjón-
varpsmynd. Það var líka fyrir Putt-
nam.
„Defence" fjallar um þrjóskan
blaðamann sem komst á snoðir
um alvarlegt hneykslismál er teng-
Leikstjórinn David Drury.
Victoria Tennant tók mikilvæga
ákvörðun fyrir tíu árum eða svo:
annað hvort skyldi hún vera eigin-
kona sem ekki léki í kvikmyndum
eða vera laus og liðug til að helga
sig leiklistinni. Hún valdi síðari
kostinn og segir það mestu forn
sem leikari getur staðiö frammi
fyrir.
Fimm ár liöu frá skilnaðinum þar
til henni bauðst hlutverk. Það var
í „Blikum á lofti" sem sjónvarpið
er að sýna þessar vikurnar. Vic-
toria var sú eina sem hlaut góða
krítik meðal gagnrýnenda. Og það
sem meira er: þá fyrst buðust
henni hlutverk í kvikmyndum. Það
fyrsta var í „The Holocroft Coven-
ant" sem John Frankenheimer
gerði eftir skáldsögu Roberts
Ludlum.
En áður gerði hún litla og ódýra
mynd ásamt nokkrum vina sinna.
„Strangers Kiss" heitir hún. Þau
hugðust sanna að hægt væri að
gera mynd án milljón dollara og
samninga við stórfyrirtæki. Saman
skrifuðu þau handritiö og tóku
myndina síðan á átta vikum.
Myndinni var vel tekið í Bretlandi
og Victoria var borin saman við
gömlu kvenhetjurnar úr myndum
Hitchcocks (sór í lagi Janes Leigh).
Bandaríkin:
Ný hasarmynd með
Tommy Lee Jones
Bandaríski leikarinn Tommy Lee
Jones hefur leikið í kvikmyndum í
fjölda ára en þar til núna hefur
hann verið þekktastur fyrir að leika
á móti frægum leikkonum, (Back
Roads með Sally Field, Dóttir
kolanámumannsins með Sissy
Spaceck) frekar en að standa í
sviðsljósinu sjálfur. En í nýrri has-
armynd, sem frumsýnd var nýlega
vestur í Bandaríkjunum, sem heitir
Black Moon Rising, er hann
stjarnan og enginn annar.
í myndinni leikur hann Quint
nokkurn sem hefur lífsviðurværi
sitt af því að stela. Hann er meist-
araþjófur og vinnur stundum fyrir
ríkisstjórnina. „Ég hélt að það
gæti verið gaman að leika í léttri
æfintýra- og hasarmynd," sagði
hinn 39 ára gamli leikari í viðtali
fyrir skömmu. „Ég hef mikið dálæti
á hraðskreiðum bílum, fallegum
stúlkum, Ijótum og vondum köll-
um, stórum byssum og bílaeltinga-
leikjum í bíómyndum," bætti hann
við.
Black Moon Rising ku flagga
þessu öllu saman og meiru til. Já,
einmitt. Hún er ein af þeim mynd-
um. En Tommy Lee Jones bætir
hana víst verulega upp. Kvik-
myndagagnrýnandi The New York
Times er a.m.k. yfir sig hrifinn. Það
er löngu kominn tími til að menn
fari að líta á Tommy Lee Jones sem
hverja aðra kvikmyndastjörnu,
segirhann.
Söguþráðurinn í myndinni er
eitthvað á þessa leið. í upphafi
hennar fær FIB — alríkislögreglan
í Bandaríkjunum — þjófinn Quint
til að stela skýrslum í eigu einkafyr-
irtækis, en þessar skýrslur þarf
lögreglan að fá í sambandi við
rannsókn á glæpamáli. Quint felur
þessar stolnu skýrslur í frumgerð
Cabriel Byrne og Denholm Elliot í Defence of the Realm.
ist breskum þingmanni. Blaða-
maðurjnn finnur það út um síðir
að hann hefur aðeins verið notaður
til að sverta æru mannsins og
þegar kollega blaðamannsins, sem
hjálpað hafði honum að komast til
botns í málinu, er drepinn, kemst
sá þrjóski að raun um að hann er
flæktur í dularfullt málefni er
snerta menn í æðstu stöðum ör-
yggislögreglu ríkisins. KGB er eitt-
hvað viðriðið málið og blaðamað-
urinn fær að finna fyrir því að
svoleiðis kallar hafa ráð til að
þagga niðurforvitnum mönnum.
Þetta er nú eitthvað fyrir Bret-
ana að skemmta sér yfir eins mikið
og þeir hafa gaman af hneykslis-
og njósnamálum. Það er enda sí-
fellt verið að koma upp um einhver
slík í Bretlandi. Puttnam hefur
aldeilis breytt um stíl frá því Char-
iots of Fire lagði heiminn að fótum
sér. Þar var á ferðinni mynd full
af bjartsýnis- og samkeppnisanda,
um vináttu, heiðarleika og fögur
fyrirheit. Nú hefur þykknað í lofti,
heimurinn er svo sannarlega ekki
eins og hann var.
Sá sem fer með aöalhlutverkið
í „Defence" er óþekktur írskur leik-
ari að nafni Gabríel Byrne. Hann
leikur blaðamanninn og þykir vinna
talsverðan leiksigur í þessari fyrstu
kvikmyndarullu sinni. Sá góði
gamli Denholm Elliott leikur kol-
lega hans á blaðinu. Hann hefur
fyrir löng síðan tryggt sig í sessi
sem einn fremsti leikari þeirra
Breta.
Það var David Puttnam sem
benti á nafna sinn Drury, sem gott
efni í kvikmyndaleikstjóra. Putt-
nam hreifst af einni heimildar-
mynda hans og bað hann um að
gera sjónvarpsmynd fyrir sig og
„channel 4“ í Bretlandi. Drury vann
verkið vel og vildi óður gera aðra
leikna mynd. „Þegartil greina kom
að gera Defence of the Realm var
ég svo hungraður í bíómynd að
ekkert hefði getað komið í veg fyrir
að ég gerði hana," sagði hann í
blaðaviðtali. „Ég vildi gera eitthvað
sem ég hafði aldrei gert áður en
sú hugmynd að gera „þriller" hefur
í rauninni alltaf höfðað til mín."
Drury hafði óhemjugaman af að
gera „Defence". Hann segir: „Ég
man vel að á einhverjum af fyrstu
dögum kvikmyndatökunnar urðum
við að taka mynd af bíl á ferð um
sveitaveg. Kvikmyndatökumaður-
inn lagði fram ýmsar hugmyndir
um hvernig best væri að fara að
því. Ég samþykkti engar þeirra.
Það sem ég vildi gera var að grafa
stóra holu í miðjan veginn og kvik-
mynda bílinn frá henni. Eg sá
hvernig fólkið missti andiitið yfir
hugmyndinni og það hugsaði með
sér: Hverskonar frík er nú þetta?"
VICTORIA TENNANT
Victoria er síður en svo óánægð
með þann samanburð.
Victoria Tennant er ekki á allra
vörum. Hún kærir sig heldur ekki
um að verða fórnarlamb Gróu, eins
og svo margt frægt fólk. En hún
stefnir hátt og sækist eftir góðum
hlutverkum. Ahrif Lawrence Olivi-
ers, sem hélt henni undir skírn og
gefst ekki upp á ráðleggingum
henni til handa, eru sjálfsagt meiri
en hún gerir sér grein fyrir. Annar
frægur leikari, Robert Mitchum,
er henni einnig innan handar. Þau
hafa verið nánir vinir síðan þau
léku saman í Blikum á lofti.
HJÓ
Tommy Lee Jones
nýs sportbíls (sem kallaður er
Black Moon), en bílnum er síöan
stolið frá honum. Snýst svo af-
gangurinn af myndinni um leit
Quints að bílnum, skýrslunni og
bílaþjófnum. Þess má geta að John
Carpenter skrifar handritið að
Black Moon Rislng. — al.
Hér sjást þau sem stóðu að
„Blóðpeningum" (The Holcroft
Covenant) sem Regnboginn sýn-
ir: leikkonan Victoria Tennant,
leikstjórinn John Frankenheimer,
framleiðandinn Edie Landau og
ieikarinn Michael Caine.
r
Háskólabíó:
Sjálfboðaliðarnir
Háskólabíó frumsýnir í dag,
sunnudag, eða 4 allra næstu dög-
um gamanmyndina Sjálfboðaliðar.
Myndin er tiltölulega ný, hún var
sýnd síðastliðið sumar og naut
vinsælda, enda njóta sín í henni
hæfileikar ágætra manna: leik-
stjórans Nicholas Meyer og gam-
anleikaranna Tom Hanks og Hohn
Candy. Fólk man eflaust eftir þeim
íSplash.
Söguþráðurinn er ólíkindalegur,
eins og gjarnan vill verða í banda-
rískum bíómyndum af léttgeggj-
aðri sortinni. Hinn ríki og kærulausi
Lawrence Bourne III (sem Tom
Hanks leikur) vaknar einn morgun
við vondan draum: spilafíkn hans
hefur komið honum í klípu, hann
skuldar stórfé og faðir hans neitar
að greiða skuldirnar. Örlögin haga
því þannig að hann lendir í flugvél
sem flytur fólk sem boðið hefur
sig fram til að reisa brú íTailandi!
Lawrence er ekki ýkja hrifinn af
hugmyndinni en gerir allt til að
aðlagast kringumstæðum. Hann
stofnar spilaklúbb og græðir fé,
vingast við konung eiturlyfjasal-
anna, hinn ruglaða Chung Mee,
og gerir sér dælt við föngulega
kvenmenn. En á meöan Lawrence
nýtur lífsins undirbúa lífsglaðir
kommúnistar, sem lesa rauða
kverið öllum stundum, jarðveginn
fyrir boðskap Maos formanns.
Þeir hafa rænt einum sjálfboðalið-
anum, Tom Tuttle (sem John
Candy leikur), og heilaþvegið
hann: Tom Tuttle óttast ekki leng-
ur bleiku hættunal Þegar svo brúin
hefur verið reist, horfir hinn ríki
og kærulausi Lazrence Bourne
þriðji í augu við mikinn vanda: ská-
eygðir kommúnistar marsera yfir
brúna til að frelsa heiminn.
Leikstjórinn Nicholas Meyer
hefur ekki áður gert gamanmynd.
Sjálfboöaliöarnir er raunar þriða
mynd hans. Hinar tvær eru Star
Trek II, en öllu frægari er The Day
After, sem Meyer gerði fyrir sjón-
varp en var einnig sýnd í kvik-
myndahúsum víða um heim, þar á
meðal Bíóhöllinni hér um árið.
HJÓ
Lawrence Bourne III (Tom
Hanks) lendlr í Thailandi og
hefur ekki hugmynd um hvað
biður hans ífrumskóginum.