Morgunblaðið - 23.02.1986, Síða 7

Morgunblaðið - 23.02.1986, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1986 Stéttarsamband bænda: Stefnt er að aðal- fundí í byrjunjúní Drög að reglugerð fyrir næsta verðlagsár lögð þar fram STJÓRN Stéttarsambands bænda stefnir að því að færa aðalfund sinn fram um þrjá mán- uði til að geta lagt fyrir hann drög að reglugerð um stjórnun mjólkur- og kindakjötsfram- leiðslunnar á næsta verðlagsári (1. september 1986 til 31. ágúst 1987). Stjómin hefur ákveðið áætlun um hvemig staðið skuli að undirbúningi reglugerðarinn- ar þannig að f ull virðisréttur einstakra bænda geti legið fyrir ekki seinna en í byrjun júlímán- aðar. Guðmundur Stefánsson fram- kvæmdastjóri hagdeildar Stéttar- sambandsins sagði að stjómin sendi núna ákveðnar spumingar til bún- aðarsambandanna, búnaðarfélag- anna og kjörmanna Stéttarsam- bandsins með ósk um svar fyrir 15. mars. Svæðabúmarksnefnd Stéttar- sambandsins og Framleiðsluráðs gerði síðan tillögur sínar og sendi kjörmönnum. fyrir 10. apríl. Þær yrðu lagðar fyrir kjörmannafundina sem haldnir yrðu um 20. apríl og síðan yrði gengið frá endanlegum tillögum Stéttarsambandsins til landbúnaðarráðherra. Þess yrði óskað að drög að reglugerð yrðu lögð fyrir aðalfund Stéttarsam- bandsins, sem yrði flýtt til 9.—11. júní. Reglugerðin ætti að geta legið fyrir fljótlega eftir það svo og út- reikningar í framhaldi af því, þann- ig að tilkynningar geti borist bænd- um í byijun júlí. Verðlagsárið hefst 1. september, þannig að ef þetta gengur eftir geta þeir skipulagt framleiðsluárið betur en þeim tókst á yfirstandandi verðlagsári þegar þeir fengu fullvirðisútreikninga sína þegar nær fímm mánuðir voru liðnir af verðlagsárinu. Sú vinna sem nú hefur verið sett í gang gengur út á það að skipta búvörusamningi ríkisins og bænda fyrir næsta verðlagsár. Samið var um að ríkið tryggði bændum fullt verð fyrir 106 milljónir lítra af mjólk (1 milljón minna en í ár) og 11.800 tonn af kindakjöti og tilsvarandi af öðrum sauðfjárafurðum (350 tonnum minna en {ár). Framleiðsluráð landbúnaðarins hefur falið svæðabúmarksnefndinni að fjalla um tvö grundvallaratriði í undirbúningi sínum. Annars vegar að gera tillögu til ráðherra um hvemig úrskurða skuli óafgreiddar umsóknir um skiptingu á búmarki manna í framhaldi af auglýsingu Framleiðsluráðs þar um. Hins vegar að óska eftir úrskurði ráðherra um hvemig fara skuli með um eitt hundrað umsóknir bænda um nýtt búmark eða aukningu en frá því búvömlögin tóku gildi 1. júlí hefur ekki verið úthlutað nýju búmarki. Áramótadansleikur sjónvarpsins: Greinargerð um kostnað send mennta- málaráðherra „Menntamálaráðherra hefur fengið ýtarleg gögn um kostnað vegna áramótadansleiks í sjón- varpssal," sagði Markús Órn Antonsson útvarpsstjóri, en Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra fór þess á leit að kannaður yrði kostnaður við dansleikinn þar sem hann fór fram úr kostnaðaráætlun. Að sögn Markúsar kom í ljós að kostnaður við gerð myndbands hjá fyrirtækinu Saga-film hefði verið mun meiri en nokkum óraði fyrir. Myndbandið var tekið upp fyrir þáttinn og var það útfærsla á laginu „Fegurðardrottning" sem Ragn- hildur Gísladóttir söng. Þegar í upphafi var gert ráð fyrir ákveðinni greiðslu til Stuðmanna en þær hækkuðu nokkuð vegna endursýningar á þættinum. Stuð- menn hafa lagt fram ýtarlega grein- argerð um sína vinnu, sem engan veginn er ofmetin og ekki sambæri- leg við að leika fyrir dansi úti í bæ, að sögn útvarpsstjóra. Haf örn sést á Suðurnesjum Vogum 20. febrúar. í GÆR urðu starfsmenn frá ís- lenskum aðalverktökum er vinna við framkvæmdir í Helguvík varir við fugl er þeir höfðu ekki séð þar áður. Var hér á ferðinni haförn sem er sjaldséður fugl á þessum slóðum. Var örninn hinn rólegasti og hélt sig mjög nærri mönnum. Mikil sala í sólarf erð- ir hjá Útsýn MORGUNBLAÐINU hef ur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Útsýn: „Mörg hundrað manns hafa pantað í sumarleyfisferðir Útsýnar frá því að sumaráætlun kom út fyrir 10 dögum. Sl. miðvikudag bárast Útsýn t.d. 160 pantanir í skipulagðar sumarleyfisferðir, auk annarra farpantana, þannig að pantanir vora samtals á þriðja hundrað." Rhodos-ferðimar fuku út í fyrra. Misstu ekki af þeim í ár! mai jún. júl. ág. sep. Meðalhiti ............ 25 30 32 33 25 Sólarstundirádag ... 10 11 12 13 12 Rhodos sló ærlega í gegn í fyrra og fyrsta „íslenska sumarið" á þessari eyju gríska sólguðsins var í meira iagi fjörugt og sólríkt - þannig að jafnvel hörðustu nátthrafnar náðu því að koma sólbrúnir og sællegir heim. Uppselt varð í allar ferðir sumarsins og farþegar okkar, jafnt yngri sem eldri, fundu á Rhodos það sem ávallt er verið að leita að, - fyrsta flokks aðbúnað, endalausa veðursæld, rífandi fjör og glaðværan félagsskap, rólegar stundir í gullfallegri náttúru og allt það annað sem kryddar sumarleyfið og glæðir það fjölbreytileika. . Við bjóðum gistingu á þremur öndvegis- góðum hótelum á Rhodos: • Cairo Palace i hjarta Rhodos-borgar • Blue Bay fast við góða baðströnd skammt frá borginni (góðar samgöngur) • Doreta Beach fast við góða baðströnd um 18 km. frá borginni. „íslensk rúta“ auk hóteirútu í stöðugum förum milli hótels og borgar. SKOÐUNARFERÐIR Sólböð Sjóböð Tennis Köfun Sjóskíði Seglbretti Siglingar Blak Strandtennis Svifskíði Pedalabátar Diskótek Næturklúbbar Sundlaugar Útidiskó Veiðar Gamlargrískar krár Golf Markaður Strandveislur Veitingastaðir Vín festival Jeppaferðir Mótorhjóla- ferðir Fornminja- safnið Þjóðdansa- kvöld Skoðunarferðir Bátsferðir Minigolf Zorbapartí o.s.frv. o.s.frv. Kaffi (grískt, franskt, amerískt .. 15-30 Vi I bjór (í verslun)........... 15 Léttvín (ein flaska) ...........30-70 Kjúklingur „með öllu“.......... 70 Souvlaki með kartöflum og salati . 60 Góð nautasteik „með öllu“..... 200 Fiskmáltíð.................... 450 Lambakjötsmáltíð.............. 110 Samloka/hamborgari ............... 50 Pizza.......................... 90 VERÐFRAKR. 27.800 Rhodosborg Dagsferð til fjallaþorpsins Lindos Sigling um Eyjahafið með viðkomu á Symi Fjallasafarí - ævintýraleg dagsferð um Rhodos Við minnum einnig á ódýr „flughopp" í grísku innanlandsf lugi, (kr. 2.500 til Aþenu, kr. 2.000 til Krítar o.s.frv.!) og bílaleigubíla getum við útvegað á sérstakiega hagstæðu verði Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727 2javiknaferð, hótelgisting m/morgunverði, aöildarfélags- afsláttur. Bamafsláttur: 2ja-5 ára kr. 10.000,6-11 ára kr. 8.000,12-14árakr. 5.000. Böm yngri en 2ja ára greiða kr. 2.700.15 ára og eldri greiða fullt. Ferðatilhög- un: Leiguflug. Brottfarardagar: 2 vikur: 19. maí. 3 vikur: 2. og 23. júni, 14. júli, 4. og 25. ágúst. Verð miðast við gengisskráningu 7. janúar 1986. í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.