Morgunblaðið - 23.02.1986, Side 26

Morgunblaðið - 23.02.1986, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR1986 Ljósmynd af Reykjavík frá 1870. 99* aj igw* Bannað um aldir að fjárfesta í öðru en landbúnaði og lærdómi Síðastliðið haust kom út á dönsku á vegum Politikens Forlag yfirlitsrit um sögu Islands frá landnámi til okkar tíma. Ritið er að mestu eftir dr. Björn Þor- steinsson, en hann veiktist þegar hann var langt kominnmeð 19. öldina og þá héldu þeir Bergsteinn Jónsson og Helgi Skúli Kjartansson sagnfrœðingar áfram samningu bókarinnar og bjuggu hana til prentunar. Bkk- ert yfirlitsrit um íslandssöguna er til á íslensku, og síðasta yfirlitsrit sem kom út er- lendis var bók Norðmannsins Knud Gjersets, History of Iceland, sem er frá árinu 1924. Morgunblaðið átti sam- tal við dr. Bjöm Þor- steinsson um þetta verk, áður en hann veiktist aftur skyndilega í janúar. Það blasti við að spytja hann fyrst þeirrar spumingar hvemig á því stæði að ritið kæmi fyrst út á dönsku, en ekki íslensku? „Já, það mun ýmsum þykja nokkuð sérkennileg tilviljun. Auðvitað hefði íslenski textinn komið út samhliða þeim danska ef ég hefði ekki lyppast niður í ágúst 1984 og orðið óstarfhæfur í marga mánuði. En það er skýr- ing á því hvers vegna Politikens Forlag bað mig að skrifa verkið. Árið 1957 sendi Þorkell Jóhannes- Rætt við dr. Björn Þorsteinsson sagnfræðing, höfund bókarinnar ISLAND. sem út kom i Danmörku sl. haust son, sem þá var háskólarektor, mig á sagnfræðingamót í Arósum í Danmörku. Þar átti að halda ráðstefnu um samband Norður- landa við Hansaborgina. Margir lærðir fræðimenn fluttu þama framsöguræður, sem vom síðar gefnar út í einni bók. Þjóðveijum var ekki boðið á ráðstefnuna og þótti mikið hallað á sig í málflutn- ingi ræðumanna. Nema í minni ræðu, en ég hafði verið á sama máli og Bjami Borgfirðingaskáld: „Þegar Hansastaðimir héldu landið, hörfaði ekki tíðin grandið." Þetta varð til þess að ég fékk seinna boð um að koma til Þýska- lands á vegum Alexanders von Humbolt-stofnunarinnar. Þar dvaldist ég við rannsóknir á annað ár, aðallega í Hamborg. Þetta held ég að hafí verið höfuðástæð- an til þess að ég var kallaður á fund útgáfuráðs Politikens Forlag í Kaupmannahöfn 1977 og beðinn um að skrifa íslandssögu fyrir Dani. Þeir könnuðust við mig frá Hansaráðstefnunni og þekktu einnig ýmsar greinar sem ég hefði skrifað í Kulturhistoriens Lex- ikon.“ - Er það ekki einkennilegt að engum skuli hafa dottið í hug að skrifa yfírlitsrit um íslandssöguna fýrir íslendinga? „Það má segja það. Ritið ísland er fyrsta yfirlitsritið um íslenska sögu sem fullnægir nokkum veg- inn samtíma kröfum um sjónar- mið í sagnfræði, enda ekki við mikið að keppa í því efni. Hér heima hefur ástandið í sögu verið heldur dapurlegt; það var lítið fengist við kennslu og rannsóknir á íslandi fyrr en 1943, er dr. Jón Jóhannesson var settur prófessor í sagnfræði við Háskóla íslands. Við íslendingar höfum lengstum lifað í goðsöguheimi sjáifstæðis- baráttunnar og enn er hann líf- seigur hjá mörgum." Kúguð þjóð í ríku landi - Goðsöguheimur sjálfstæðis- baráttunnar? Hvað áttu við með því? „Á 19. öld mótaðist sá sögu- skilningur íslendinga að landið væri fagurt og ríkt, en þjóðin hefði ratað í þær raunir að lúta Dr. Björn Þorsteinsson sagnfræðingur. um aldir annarra stjóm. Goðsögn- in hljóðar einhvem veginn þannig: í árdaga landsbyggðar flýðu menn Noreg og sigldu á opnum bátum yfir lægðum troðið At- landshafíð og settust að á íslandi. Þar undu sjálfseignarbændur glaðir við eins konar þingræði, uns þeir tóku að beijast um völdin á 13. öld og játuðust undir Nor- egskonung. Þá varð „syndafallið" sem leiddi til allt að því babýl- ónskrar herleiðingar 1783, þegar flytja átti þá sem verst vom settir til Danmerkur. Eftir Móðuharð- indin tóku íslendingar að safna kröftum og urðu loks sjálfstæðir og sælir að nýju. Þessi helgisögn var Islendingum allkær og enn er hún ekki með öllu útlæg úr íslenskum kennslubókum." Hver er sinnar gæfu smiður - Og þessa helgisögn kveður þú í kútinn í ritinu ísland? „Þessi bók á að sýna íslending- um og Dönum að hver er sinnar gæfu smiður. Á íslandi réðu stór- bændur gangi mála fram um 1800 og fiskveiðar voru aukabúgrein bænda, sem trúðu á sauði, þótt umhverfís landið liggi einhver fijósömustu höf jarðar. Land- búnaður hefur hér verið rekinn á kostnað sjávarútvegs öldum sam- an og var höfuðatvinnugrein ís- lendinga í 9 aldir. Útgerðarstöðv- ar á Islandi hefðu líklega orðið erlendar ef einhveijar hefðu risið fyrir 1800. Það er loks þegar ís- lendingar komust af árabátastigi yfír á skútuöld um 1880 að sjávar- útvegur verður sjálfstæður og samkeppnisfær atvinnuvegur við landbúnaðinn. íslenska stórbændaveldið og konungsvaldið sameinuðust um að flæma erlenda þegna frá ís- landi. Á þann hátt varð allur verslunargróði einnig útlægur. Á íslandi var um aldir bannað að fjárfesta í öðru en landbúnaði og lærdómi og því gat fólki ekki fjölgað í meira en rúm 50 þúsund. Það var ekki fyrr en um 1800 að íslendingar tóku fyrst að tileinka sér borgaralegan lífsmáta og til varð vísir að borgarastétt og sjálf- stæðum fískiþorpum. Þá var Kaupmannahöfn vagga íslensks þjóðlífs og þjóðfrelsishetjan Jón Sigurðsson varð að búa þar allan starfstíma sinn eins og kóngur- inn.“ - Þú ert með öðrum orðum að segja að tilhneiging okkar til að kenna Dönum um örbirgð okkar og ósjálfstæði sé ekki á rökum reist? „Öll ríki eiga sér sögu og í henni er einhver kjami, misjafn- lega skýr og sannfærandi eftir stærð og mikilleika atburðanna, sem um ræðir. Dvergríki eins og ísland er furðufyrirbæri, og goð- saga sjálfstæðisbaráttunnar, sem þeir Jón Sigurðsson og Konrad von Maurer skópu að verulegu leyti seint á 19. öld, stenst ekki lengur. Um það er enginn ágrein- ingur. Þeir Jón og Konrad höfðu einfaldlega ekki lesið nema brot af þeim miðaldaheimildum, sem nú eru útgefnar og aðgengilegar öllum, sem vilja. En blessuð sé minning þeirra beggja, ævinlega. Ég reyni að draga fram í bók- inni ísland ný sjónarmið í kjama íslenskrar sögu. Við erum sjálf- stæð og sérstæð menningarþjóð, af því að við losnuðum við að verða ensk nýlenda í lok miðalda, en Danir réðu þá yfír innsigling- unni á Eystrasalt, og Eystrasalts- siglingar voru Englendingum mikilvægari en ísland, því að miðin hér gátu þeir nýtt að tals- verðu leyti, þótt þeir réðu ekki yfír landinu. Það var Eyrarsunds- lásinn, sem var grundvöllur undir veldi Dana, bæði hér og annars staðar. Við nýskipan ríkja og ríkja- bandalaga í lok Napóleonsstyij- aldanna snemma á 19. öld létu Englendingar ísland, Færeyjar og Grænland fylgja Danmörku (í Kiel 1814). Þá gerðu Englendingar danska ríkið að vemdarsvæði sínu, treystu engum öðrum fyrir því, vegna þess að það var mjög mikilvægt hemaðarlega. Um og eftir 1900 töldu Engilsaxar hins vegar að hagsmunir sínir væru best tryggðir á íslandi með sjálf- stæði landsins. Smáríki voru hluti af valdakerfí stórvelda fyrir daga kjamorkunnar, eins og mönnum á að vera ljóst." - Bókin ísland er 312 blaðsíð- ur að stærð í nokkuð stóru broti. Hlutur þeirra Bergsteins og Helga Skúla hefst á blaðsíðu 229, eða frá árinu 1873. Eru þeirra skrif í samræmi við þína túlkun á ís- landssögunni, Bjöm? „Það túlkar enginn höfundur hlutina á sama hátt. En mér fínnst þeim hafa tekist nokkuð vel að draga upp skýra mynd af þróun efnahagsmála. Þeir hafa auðvitað þurft að stikla á stóru, og þvf er persónusagan kannski í lág- marki.“ - Ertu ánægður með bókina í heild? „Danir hafa tekið henni vel og Qallað talsvert um hana í blöðum. Þeir telja hana óhlutdræga. Sjálf- ur er ég ánægður með margt þótt verkið sé auðvitað ekki gallalaust. Einna óánægðastur er ég með myndefni bókarinnar, en það er magurt og sýnir fátt af störfum og striti fólksins í landinu. Á dönskum söfnum hljóta að fínnast mikil auðæfí menningarsögulegra mynda frá íslandi, einkum frá 19. öld. Ég sakna að ekki skuli birt ein einasta mynd eftir Daniel Bruun, sem vann á vegum danska herforingjaráðsins að landmæl- ingum á Islandi um og eftir 1900, og teiknaði hundruð mynda af bæjum og fólki við margvíslega störf. Þá hafa nokkur mistök átt sér stað við gerð myndatexta, sem óþarfí er að fjölyrða um á þessum vettvangi," sagði Bjöm Þorsteins- son að lokum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.