Morgunblaðið - 23.02.1986, Page 41
WALCHSEE
kr. 21.859.-*
WALCHSEE ER NÝR SUMARSTAÐUR
FLUGLEIÐA í AUSTURRÍKI
Walchsee er lítið tírólskt þorp í Austurríki, örskammt frá landamærum
Vestur-Þýskalands. Nafn sitt dregur þorpið af stóru og fallegu stöðuvatni sem
fað stendur við.
Walchsee eiga stórar og smáar fjölSkyldur sæla daga. Þeir sem leita hvíldar
og endurnæringar geta slakað á í rólegu og þægilegu umhverfi. Fyrir þá
athafnasömu eru næg verkefni. Vatnið er skemmtilegur leikvangur og í þorpinu
eru m.a. tennisvellir, keilu- og minigolfvellir. Þá er tilvalið að leigja bíl og
heimsækja Salzburg, Innsbruck eða Munchen. Aðeins 400 km eru til Vínarborg-
ar og 450 km til Feneyja á (talíu.
Flugleiðir bjóða farþegum sínum ýmsa möguleika í gistingu, á íbúðahótelum
og gistihúsum. Flogið er í beinu áætlunarflugi til Salzborgar, þar sem rútur og
bílaleigubílar bíða farþeganna.
Fararstjóri í Walchsee er Rudi Knapp.
* Miðað við verðtímabilið 3. júlí til 21. ógúst 1986. Verð fyrir einstakling, miðað við 2 í íbúð á
íbúðahótelinu llgerhof í 2 vikur, og flug bóðar leiöir.
BIERSDORF
kr. 23.568.-*
NÝR SÆLUREÍTUR A LANDAKOKTINU
Flugleiðir kynna nýjan sumarstað í Vestur-Þýskalandi: Dorint-sumarhúsaþorpið
við Biersdorf, nálægt Bitburg í Suður-Eifelhéraði.
Umhverfið er fallegt og friðsælt. Sumarhúsin standa í skógivaxinni hlíð og er
gott útsýni þaðan yfir vatnið Stausee. Bátaleiga er við vatnið og hægt er að
læra á segibretti. Sumarhúsagestir geta farið í minigolf, leikið tennis innanhúss
og utan, synt í stórri sundlaug og skroppið í gufubað á eftir. Þarna eru auk
fess tveir fyrsta flokks veitingastaðir, bar, diskótek og keilusalur.
boði eru íbúðir og 2 herbergja sumarhús. öll húsakynni eru nýleg og vönduð.
Farþegar á leið til Biersdorf fljúga til Luxemborgar, en þaðan er innan við
klukkustundar akstur til Biersdorf. Hægt er að velja á milli þess að fara með
rútu eða leigja bíl. Við mælum með síðari kostinum, því það gefur sumarleyfinu
meira gildi. Frá Biersdorf er stutt að fara til borga eins og Brussel, Kölnar,
Frankfurt, Mainz og Strassborgar. Þá er örskammt niður í Móseldalinn.
(slenskur fararstjóri er til aðstoðar og skipuleggur skoðunarferðir.
• Miðað við verðtlmabilið 15. mal til 21. júni 1986. Verð lyrir elnstakling, mlðað við 2 I Ibúð i 2 vikur, og flug báðar leiðlr.
Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiöa, umboðsmenn og ferðaskrifstofur.
Söluskrifstofan Lækjargötu sími 27477, Hótel Esju sími 685011, Álfabakka 10 sími 79500.
Upplýsingasími: 25100
FLUGLEIÐIR