Morgunblaðið - 23.02.1986, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1986
rekstrarform er heppilegt fyrir
rannsóknarstofnanir atvinnuveg-
anna. Það „tryggir betri og mark-
vissari starfsemi ef eigendur eru úr
atvinnugreininni sjálfri".
Pétur Bjamason, fískeldisfræð-
ingur, ritar grein í Morgunblaðið
5. maí 1984 í tilefni af frumvarpi
til laga um ræktun, eldi og veiði
vatnafíska, sem fram kom á þinginu
1983-1984. Þar segir hann:
* „í fyrsta lagi þarf að stunda
markvissar rannsóknir svo að eldis-
vandamál séu leyst á kerfísbundinn
hátt í tilraunaeldisstöð en ekki á
þann hátt, eins og nú er, að hver
eldisstöð sé að eyða dýrmætum
tíma og íjármunum til þess að
komast að hlutum sem hægt væri
að komast að með einu símtali við
virka tilraunaeldisstöð.
* Í öðru lagi þarf að koma upp
leiðbeiningarkerfí til þess að fyrir-
byggja óþarfa mistök og koma nýrri
þekkingu sem fyrst á framfæri.
* í þriðja lagi þarf að búa svo að
físksjúkdómayfírvöldum að þau geti
annast eftirlits- og þjónustuhlut-
verk sitt af þeim myndugleik, sem
þarf, til þess að koma í veg fyrir
að sjúkdómar og smit valdi meira
tjóni en óhjákvæmilegt er og svo
til hins að erlendir kaupendur fram-
leiðslunnar geti treyst því að vel
sé á málum haldið og útflutningur
þurfi því ekki að stranda á vottorða-
leysi.“
Þessi orð fískeldisfræðingsins
fela í sér fyllstu rök fyrir tillögu
Bjöms Dagbjartssonar.
Framleiðsla á fiskfóðri
Framleiðsla á fiskfóðri er þegar
hafín hér á landi. Fiskfóður er að
drýgstum hluta unnið úr íslenzkum
hráefnum. Sama máli gegnir um
fóður fyrir loðdýr, sem að stærstum
hluta er unnið úr fískúrgangi. Talið
er að um 120 þús. til 180 þús.
tonnum af fískúrgangi sé fleygt hér
árlega. Þar fara verðmæti, sem
jafgilda nokkrum milljónahundruð-
um, til spillis.
Nauðsyn þess að fóður af þessu
tagi sé unnið úr íslenzkum hráefn-
um er öllum ljós. En það má ekki
gleymast, sem skiptir meginmáli,
að rannsóknir og fagþekking á
þessu sviði séu stórefldar.
Tillaga Bjöms Dagbjartssonar
um sameign ríkis og fyrírtækja í
fískeldi á Kollafjarðarstöðinni sem
miðstöð rannsókna og tilrauna á
þessum vettvangi er meir en tíma-
bær. En það er ekki síður tímabært
að feta í fótspor frænda okkar,
Norðmanna, um rannsóknir og
undirbúning þorskeldis hér á landi.
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið,
segir gamall málsháttur.
kirkjunnar sálmanúmerin á síðustu
stundu frá prestunum svo ekki
vinnst tími til að raða upp númemn-
um tímanlega fyrir athöfti.
Ef séra Bemharður getur fengið
kollega sína til að tilkynna útfarar-
stjóra tímanlega hvaða sálma á að
syngja í viðkomandi athöfn, þá skal
ekki standa á okkur að birta númer-
in jafnvel þótt stundum sé svo stutt
á milli athafna að varla vinnist tími
til að skipta um sálmanúmer.
Þá langar mig í tilefni af því sem
Bryndís Schram sagði nýlega í sjón-
varpsþætti Ómars Ragnarssonar að
hún hefði villst inn í ranga jarðar-
för, að slíkt ætti ekki að þurfa að
henda hana eða aðra lengur. Á síð-
astliðnu hausti var sá háttur tekinn
upp að setja upp spjald með nafni
hins látna við innganginn þar sem
athöfnin fer fram.
Gildir einu hvort um er að ræða
jarðarför eða kistulagningu og
sama hvort athöfnin fer fram í
Fossvogskirkju, Fossvogskapellu
eða svokölluðu Bænhúsi.
Algengt er að athafnir fari fram
á sama tima á fleiri en einum stað
og til að fyrirbyggja hugsanlegan
mgling á borð við þann er Bryndís
lýsti, var á síðasta ári tekinn upp
sá háttur að merkja greinilega
hverja athöfn sem áður segir.
yinsamlegast
Ásbjörn Björnsson, for-
stjóri Kirkjugarða Reykja-
víkurprófastsdæmis.
45
Slys sem þriðja algengasta dánarorsökin hér á landi:
Þriðja hvert barn á aldrinum eins til
þriggja fer á Slysadeildina á ári hverju
MEIRA en þriðjungur eins til
þriggja ára barna og um fimmt-
ungur barna undir fjögurra ára
aldri leitar til Slysadeildarinnar
á ári hverju. Þar af koma um
ellefu af hundraði vegna eitrana
eða rúmlega tvö böm af hundr-
aði allra baraa undir fjögurra
ára aldri sem búa á höfuðborgar-
svæðinu, en það er mun hærri
tala en þekkist hjá nágranna-
þjóðum okkar. Þetta kom m.a.
fram á fundi sem Ragnhildur
Helgadóttir heilbrigðismálaráð-
herra boðaði til vegna útkomu
bæklings um varnir gegn slysum
í heimahúsum.
Samkvæmt skýrslum Slysadeild-
ar Borgarspítalans eru slys í heima-
húsum önnur algengasta ástæða
komu íbúa höfuðborgarsvæðisins á
Slysadeildina. Slys eru óvenjumörg
hér á landi miðað við nágrannaþjóð-
irnar, en slys eru þriðja algengasta
dánarorsökin hér á landi, aðeins
hjarta- og æðasjúkdómar og
krabbamein leggja fleiri að velli.
í ræðu ráðherra kom fram að
þrátt fyrir að fjölmörg lög og reglu-
gerðir hafí verið sett á undanföm-
um árum til að tryggja öryggi
landsmanna gegn eitrunum og slys-
um hefur ekki tekist að fækka þeim
að ráði. Reynsla nágrannaland-
anna, t.d. Svíþjóðar, hefur sýnt að
með aukinni fræðslu til almennings
er hægt að draga verulega úr slysa-
tíðninni. í bæklingnum sem Slysa-
vamafélagið hefur gefíð út og mun
dreifa til allra heimila á landinu nú
á næstunni er að fínna upplýsingar
um á fjórða hundruð efna og lyfja
sem höfð em um hönd á heimilum.
I bæklingnum er að fínna upplýs-
ingar um hvaða efni séu hættuleg,
helstu viðbrögð við eitrunum, helstu
viðbrögð við slysum og hvemig
æskilegast er að geyma þessi efni
í heimahúsum. Þá er kafli _ um
meðferð við bmna eftir Áma
Bjömsson yfirlækni.
Að auki var vakin athygli á tveim
ráðstefnum um slys á bömum og
unglingum sem haldnar verða
24.-26. febrúar á Hótel Loftleiðum
og í Kennslumiðstöð Námsgagna-
stofnunar, en að þeim standa heil-
brigðis- og menntamálayfírvöld í
samvinnu við áhugafólk.
Sumarhús
strönd
Fyrst íslenskra ferðaskrifstofa kynnir ATLANTIK
sumarfrí fyrir alla fjölskylduna í sumarhúsum eða
íbúðum viö strönd.
WEISSENHÁUSER STRAND er glæsilegur sumar-
dvalarstaður um 100 km. norður af Hamborg í Vestur-
Þýskalandi. Hér er m.a. að finna lengstu yfirbyggðu
vatnsrennibraut Evrópu, fjölda tennis- og leikvalla,
frábærar gönguleiðir, sundlaugetr, gufuböð o.fl.
Og ekki má gleyma rúsínunni í pylsuendanum,
ströndinni sem er vettvangur leikja og útiveru fyrir
alla aldurshópa.
Boðið verður upp á margvíslegar skoðunarferðir m.a.
til Legolands og Kaupmannahafnar í Danmörku. Og
ekki má gleyma nærliggjandi stöð-
um, svo sem Hamboitj þar sem einn
stærsta og frægasta dýragarð Evr-
ópu er að finna. Staður sem er
ógleymanlegur fyrir börn á öllum
aldrei.
Brottfarir alla
sunnudaga frá
lok maí
VÍQ
Beint
dagflug
Umboó a Islandi fynr
DINERS CLUB
INTERNATIONAL
FERÐASKRIFSTOFA, HALLVEIGARSTÍG 1,
SÍMAR 28388 - 28580