Morgunblaðið - 23.02.1986, Page 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR1986
„Sjáumst
i Jerúsalem . . .“
Endurfundir Avital og Anatoli Shcharansky
eftir hetjulega baráttu hennar í 9 ár
Anatoli Shcharansky,
sem hefur verið sleppt
úr nauðungarvinnu-
búðum í Úralfjöllum, er
frægastur margra hugrakkra and-
ófsmanna í Sovétríkjunum, sem
hafa fómað frelsi sínu til að beijast
fyrir mannréttindum — að einum
manni undanskildum: dr. Andrei
Sakharov.
Shcharansky hefur verið tákn tíu
þúsund pólitískra fanga í Sovétríkj-
unum og miskunnarlausrar kúgun-
ar stjómvalda. Þangað til hann var
handtekinn í marz 1977 var hann
helzti forsprakki nefndar, sem dr.
Yuri Orlov kom á fót í Moskvu til
þess að fylgjast með brotum á
mannréttindaákvæðum Helsinki-
sáttmálans (1975) og talsmaður
samtaka gyðinga, sem vildu flytjast
úr landi. Hann hefur margoft neitað
ásökunum um að hann hafí njósnað
fyrir bandarísku leyniþjónustuna,
CIA.
Hann hefur orðið að þola margt
fyrir andóf gegn sovézka kerfinu,
en sýnt mikið æðruleysi og áunnið
sér virðingu vestrænna frétta-
manna fyrir hugdirfsku. ísraelskt
blað sagði eftir heimkomu hans til
Israels: „Ekkert ísraelskt hemaðar-
afrek hefur verið eins mikilfenglegt
og þessi sigur eins manns með vilja-
styrk sinn einan að vopni.“
Við heimkomuna var Shcharan-
sky fagnað sem þjóðhetju og tákni
vonar ísraelsku þjóðarinnar um að
fleiri gyðingum verði leyft að fara
frá Sovétríkjunum. Shimon Peres
forsætisráðherra sagði að koma
hans væri “mikil og söguleg stund,
þegar hjörtu okkar slá í takt.“ Hann
kallaði þrekraun Shcharanskys
„hetjudáð einangrunar" og sagði
hann hafa sýnt „óbugandi einurð".
Ung eiginkona Shcharanskys,
Avital, barðist ötullega fyrir því í
Evrópu og Bandaríkjunum að hann
yrði látinn laus, sýndi mikla reisn
og bauð af sér góðan þokka. Bar-
átta hennar átti stóran þátt í því
að nafn hans gleymdist ekki og
hvarf aldrei af síðum heimsblað-
anna.
HANDTEKINN
Anatoli B. Shcharansky, sem er
maður mjög lágvaxinn og sköllótt-
ur, er 38 ára og tölvufræðingur að
mennt. Hann fæddist í Donetsk í
Úkraínu og að loknu framhalds-
skólanámi fór hann til Moskvu til
náms við Eðlisfræði- og tæknistofn-
unina. Hann útskrifaðist 1972, á
þeim tíma þegar niðurbældar vonir
um frelsi og réttlæti komu upp á
yfirborðið. Síðan starfaði hann við
tölvuforritun í rannsóknarstofnun
olíu- og gasiðnaðarins.
Shcharansky sótti um vega-
bréfsáritun til þess að geta flutzt
til ísraels 1973, þá 25 ára gamall.
Umsókninni var hafnað „af örygg-
isástæðum", en án frekari útskýr-
inga. Hann mótmælti og var sviptur
starfi 1975. Eftir það sá hann sér
farborða með því að taka nemendur
í einkatíma í ensku, stærðfræði og
eðlisfræði. Seinna varð hann ritari
vísindamanns.
Hann talaði ensku reiprennandi,
var þægilegur í framkomu og sýni-
lega hugrakkur. Því var eðlilegt að
hann væri valinn tengiliður baráttu-
manna mannréttinda og vestrænna
fréttaritara. Hann varð fljótlega
einn skorinorðasti leiðtogi þeirra
gyðinga, sem vildu flytjast úr landi.
í júní 1974 handtók KGB Shchar-
ansky og fleiri andófsmenn, rétt
áður en Richard Nixon forseti kom
í heimsókn. Hann var látinn laus
tveimur vikum síðar, 4. júlí. Sama
dag fékk unnusta hans, Avital Stig-
litz, vegabréfsáritun, sem hún hafði
barizt ákaft fyrir að fá og gerði
henni kleift að flytjast úr landi.
KGB sagði henni að áritunin rynni
út daginn eftir og hún fengi ekki
aftur slíkt tækifæri. Anatoli hvatti
hana til að fara til ísraels og þau
ákváðu að gifta sig.
Shcharansky hafði kynnzt Avital
í kennslutíma í hebresku. Hún var
23 ára og lagði stund á nám í list-
um. Avital var hebreskt nafn, sem
hún hafði tekið sér. Natalia var
hennar rétta nafn.
Avital uppgötvaði aðeins þremur
árum áður en hún ákvað að gifta
sig að hún væri gyðingur að ætt.
Hún var uppalin í Síberíu og faðir
hennar, sem var tryggur kommún-
isti og ofursti í KGB, hafði haldið
uppruna fjelskyldunnar leyndum.
Sannleikurinn kom í ljós þegar
gyðingahreinsun var gerð og faðir
hennar missti atvinnuna.
Anatoli og Avital létu gefa sig
saman í hjónaband kvöldið áður en
vegabréfsáritun hennar rann út.
Hann sannfærði hana um að það
væri þeim báðum fyrir beztu að hún
Shcharansky fagnað við komuna til ísrasel. Shimon Peros forsœtisráðherra til hmgri.