Morgunblaðið - 23.02.1986, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 23.02.1986, Qupperneq 8
8 B MORGUNBLAjDIÐ, SUNNUDAGUR 28. FEBRpAR 1986 Fréttir hafa hermt að Marcos sé slæmur til heilsunnar. Hér reynir hann að sanna að hann hafi ekki verið skorinn við hjarta- og nýrnasjúkdómi. osar í öldungadeildinni, sem hafði aflað sér vinsælda með því að af- hjúpa meintar misgerðir forsetans. Þessi maður var Benigno S. Acjuino, sem þá var 39 ára gamall. Arásir Aquinos höfðu lengi gert Marcosi gramt í geði og hann hafði sagt mörgum vikum áður en hann lýsti yfir herlögum: „Við munum sjá um hann.“ Marcos leysti upp þingið og endursamdi stjórnarskrána til að geta verið eins lengi við völd og hann kærði sig um. Pólitískir and- stæðingar hans voru ýmist í fang- elsi, í felum á landsbyggðinni eða fijálsir en áhrifalausir og enginn gat ógnað völdum hans. Seinna viðurkenndi hann að allt að 70.000 hefðu verið handteknir fyrstu fímm ár herlaganna, en aðeins einn, kín- verskur heróínsali, tekinn af lífí. Óánægðir Múhameðstrúarmenn á Suður-Mindanao létu aftur til sín heyra og urðu fyrstir til að veita andspymu. Einum mánuði eftir setningu herlaganna lögðu múham- eðskir unglingar undir sig ríkis- háskóla og þar með hófst hörð uppreisn aðskilnaðarsinna, sem átti eftir að kosta um 60.000 mannslíf. Víðast hvar í landinu urðu her- lögin til þess að rólegt varð á götun- um, en efnahagsástandið lagaðist lítið nema á yfírborðinu. Rúmlega 60% þjóðarinnar lifðu í fátækt sem fyrr og verkamenn höfðu ekki verk- Gorazon Aquino: tók upp merki eiginmannsins. fallsrétt. í stað víðtækra umbóta kom smíði lúxushótela. Auk þess sem fjöldi pólitískra andófsmanna var handtekinn bár- ust fréttir um pyntingar og morð. Uppreisn kommúnista breiddist út vegna fátæktar smábænda. Nú eru 20.000 menn í her skæruliða og þeir eru virkir í 56 héruðum af 74. Marcos aflétti herlögum í janúar 1981, en afsalaði sér ekki völdum til að gefa út tilskipanir og fyrir- skipa handtökur. Skömmu síðar var hann endurkjörinn forseti til sex ára þegar hann sigraði lítt kunnan mótframbjóðanda í kosningum, sem aðalandstaeðingar hans hundsuðu. Marcos virtist traustur í sessi og upplausn virtist ríkja í liði mótheija hans. En tveimur árum síðar urðu straumhvörf, þegar Benigno Aqu- ino, sem hafði verið látinn Iaus 1980 og fengið að fara til Banda- ríkjanna, kom aftur til Filippseyja, og féll fyrir morðingja hendi á flug- vellinum. Um tvær milljónir manna þustu út á götur Manila til að fylgjast með útförinni. Þar með hófst það pólitíska og efnahagslega neyðar- ástand, sem leiddi til kosninganna á dögunum og uggs margra um hættu á borgarastríði, óvissu um framtíð bandarísku herstöðvanna og hugsanlega röskun á valdajafn- væginu í Asíu og heiminum. GH tók saman. Lík Benignos Aquino borið burtu eftir morðið 1983. Bókhald - Fjármálaráðgjöf Tökum að okkur bókhald, launaútreikn- inga, skattskil og áætlanagerð fyrir ein- staklinga með rekstur og fyrirtæki. Aðstoðum við að koma skipulagi á bók- haldið og fjármálin. Leitið nánari upplýsinga um þá þjón- ustu, sem Reikniver sf. býður, í síma 686663 eða komið til okkar í Bæjarleiða- húsið, Langholtsvegi 115. (1 ^Qj'kraiVisr Langholtsvegi 115, 104 Reykjavík. Sími 686663. Stórút- sala Dömudeild Herradeild Kjólaefni Buxur 1400.- Metravara Ullarfóðraðir jakkarfrá verð frá kr. 75 m kr. 1500.- Handklæði 90.- Skyrtur 400,- Sokkar 75.- parið Undirföt frá 150.- Allt selt fyrir ótrúlega lágt verð Egill 3acubsen Austurstræti 9 • SUNNUDAGSKVÖLD Heiðursgestur Guðmundur Þórðarson, bryti. Skemmtidagskrá í sérflokki: Anna Sigríð- ur Helgadóttir syngur. Dixielandband Björns R. Einarssonar, Hljómsveit Jónasar Þóris og Dúó Nausts- ins sem sér um að láta matargestum líða vel. Síðast var uppselt, pantið því tímanlega. Rifjum upp Ijúfar endurminningar. Hittumst á Gullfosskvöldi Naustsins. RESTAURANT S í M I 1 7 7 5 9

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.