Morgunblaðið - 23.02.1986, Page 10

Morgunblaðið - 23.02.1986, Page 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR1986 OGNARSTJORN Guatemala sýnist vera glatað land Berfættar konur með stráhatta á höfði fóru fyrir skemmstu um götur Guatemalaborgar með hvítan borða sem á var letrað stór- um rauðum stöfum: „Hvað hafíð þið gert við þúsundir Guate- malabúa?" Þetta voru blásnauðar sveitakon- ur frá flallahéruðum í norðurhluta landsins. Flestar voru þær afkom- endur hinna foma maya-indíána og höfðu farið langa leið til að varpa fram fyrirspum til ráðamanna þjóð- arinnar sem fóm um stræti höfuð- borgarinnar í glæsivögnum til að vera viðstaddir embættistöku for- seta þessa stríðshijáða Iands. Spuming kvennanna var sárs- aukahróp og ef til vill hefur hún komið illa við ríkisstjóm Vinicio Cerenzo sem nýlega er tekinn við völdum. Hann er annar forseti landsins sem kjörinn er til valda frá árinu 1954, en þá stóð leyniþjón- usta Bandaríkjanna (CIA) að baki herforingjabyltingu í landinu. Menn velta því nú einkum fyrir sér hvort forsetinn sem nú tekur við völdum hafi mátt til þess að sækja þá menn til saka sem ábyrgir em fyrir drápi á að gizka 60 þúsund borgara sem og hvarfí þúsunda annarra á síðustu fimm árum. Fyrir framan þjóðleikhúsið í Guatemalaborg stóð stór hópur karla og kvenna sem bám myndir og spjöld með nöfnum horfínna ættingja og vina. Þeir sem þar vom samankomnir em aðilar að einu MAYA-INDÍÁNI — sextíu þúsund borgarar hafa verið myrtir, milljón flosnað upp. samtökunum í landinu sem þora ennþá að hreyfa mótmælum. Þessi samtök héldu fyrsta fund sinn á heimili erkibiskups 5. júní 1984, en það ár vom að jafnaði 100 manns vegnir á mánuði og um 40 hurfu. „Það verður að koma lögum yfír morðingjana," hrópaði leiðtogi samtakanna, GAM. Það er ung kona, Nineth Garcia að nafni og kennari að mennt. Maður hennar var numinn á brott árið 1984. Henni fylgja sjálfboðaliðar frá Alþjóðlegu friðarsveitinni, en hana skipar ungt fólk frá Evrópu og Norður-Amer- íku, sem telur að útlendingar geti boðið Guatemalaher byrginn. Sjö af þessum sjálfboðaliðum vom reknir úr landi á síðasta ári. í innsetningarræðu sinni minntist Cerenzo forseti á „hræðilega hring- iðu bræðravíga" í landinu, en hann nefndi engin nöfn og talaði ekki um að réttarhöld væm á næsta leiti. Mejia hershöfðingi klappaði honum kurteislega lof í lófa meðan hann flutti ræðuna. Hershöfðinginn var alsettur heiðursmerkjum og gullsnúmm. Hann mun hafa sitt- hvað á samviskunni. Á síðasta ári sagði hann að GAM væm niðurrifs- samtök og gaf í skyn að þeim væri stjómað af flokki umhverfisvemd- armanna í Vestur-Þýskalandi! Þann 15. marz í fyrra spurði fréttamaður Mejia hershöfðingja hvemig hann ætlaði að bregðast við GAM. „Við skulum sjá til,“ var svarið. Tveim vikum síðar fannst einn af leiðtogum samtakanna myrtur. Það vantaði í hann allar tennur og tungan hafði verið skorin úr honum. Fulltrúar GAM segja, að verði Mejia hershöfðingi áfram yfírmaður hersins, verði lýðræðið í landinu aðeins sýndarleikur. Þeir segja að herinn annist ennþá „friðun sveit- anna“ á hálendinu í landinu norðan- verðu. Þar hefur sprengjum verið varpað á íbúana og þorp þeirra brennd til ösku. Fyrir vikið hefur ein milljón manna flúið heimkynni sín og 150 þúsund manns til við- bótar hafa leitað yfír landamærin til Mexíkó. „Þessar kosningar áttu ekkert skylt við lýðræði. Þetta var ekkert annað en gríma sem dregin var yfír ásýnd eins þeirra ríkja sem Ronald Reagan stjómar," sagði ung þjónustustúlka sem fylgdist með athöfninni framan við leikhúsið þegar nýi forsetinn sór embættis- eiðinn. „Mundi ég drepa þig ef þú værir mér ósammála? Þannig fara valdhafamir að í Guatemala." Þó að Cerezo forseti vonist til að geta beitt sér fyrir sáttum og umbótum í landinu virðist sá draumur næsta fjarlægur. - IANWALKER. HITAMÁL FRÁ VOLGUBÖKKUM — Hún á að vaxa á kostnað annarra fljóta. Togstreitan um fljótin Sovéskir menntamenn beijast nú örvætningarfullri baráttu gegn því að vatni veitt úr rússnesku stórfljótunum og það notað til áveitu í suðurhluta Sovétríkjanna. Fremstir í þessum flokki fara sjö rithöfundar og fræðimenn og hafa þeir skorað á stjórnvöld að hætt við að veita norðu-rússnesku ánum að hluta til í Volgu. Sjömenningamir em allir í náð- inni hjá ráðamönnum í Kreml. Ejnn þeirra, Yri Bondarev, er eftirlætis- rithöfundur flokksins og flestir eru þeir frá Norður-Rússlandi eða Síberíu, þeim hémðum, sem verða mest fyrir barðinu á breytingunni. Áætlanimar um að veita í suður vatni úr stórfljótunum, sem renna í norður, hafa í nokkur ár verið undirrót mikilla og heiftarlegra deilna enda er í þessu máli komið við sjálfa kviku rússneskrar þjóðar- vitundar. Upphaflega var ætlast til, að umræðan yrði á fræðilegu plani en hún snerist fljótlega upp í hat- rammar árásir á áætlunina. Sumir halda því fram, að þótt Atlantshafsbandalagið Iéti alla sína hermenn strá salti yfir Sovétríkin, myndi þeim ekki takast að vinna jafn mikinn skaða og nú sé yfírvof- andi vegna vatnsflutninganna, og aðrir segja, að landstjómin sjálf ætli að vinna þjóðinni meira ógagn með þessu móti en CIA, bandarísku leyniþjónustunni, hafí nokkm sinni tekist. Stuðningsmenn vatnsflutning- anna em alveg jafn ákafír, en í fyrstunni er áætlað að veita vatni úr norðu-rússnesku ánum í Volgu og „breyta þannig skrælnaðri eyði- mörk í gjöfula komakra“ svo vitnað sé í orð eins vísindamannsins. Síðar er áætlað að veita ánum í Norður- Síberíu suður á sléttumar í Mið- Asíu þar sem það yrði notað til að auka afrakstur Iandsins á 4,5 millj- ónum hektara. Sjömenningamir fyrmefndu, sem birtu eftir sig opið bréf í blað- inu „Sovétrússland“, halda því fram, að áætlunin um vatnsflutn- ingana styðjist ekki við vísindaleg rök. Segja þeir, að hún verði allt of kostnaðarsöm — „hvergi í heimi finnast dæmi um viðlíka fram- kværnd" — og þeir óttast, að hún kunni að hafa alvarleg áhrif á veðurfarið um allan heim. Vegna framkvæmdanna myndu auk þess „milljónir hektara" af rússnesku skóglendi, beitilandi og ræktarlandi fara undir vatn. Sjömenningamir segja, að ekki sé gert ráð fyrir að bjarga frá tor- tímingu sögulegum og menningar- legum minjum á þeim svæðum, sem fara munu undir vatn, og þar er líklega komið að Ig'ama málsins. Rússneskar menningarminjar hafa varðveist best í Norður-Rússlandi og rússneskir menntamenn hafa gífurlegan áhuga á að standa vörð um það, sem byltingin, stríðið og skeytingarlaus iðnvæðing eru ekki búin að koma fyrir kattamef. í áskorun sjömenninganna segir m.a.: „Það er ekki hægt að bjarga einum hluta lífrænnar heildar með því að. drepa annan. Við eigum aðeins eitt land, munum aldrei eiga annað, og þess vegna verðum við að fara vel með það og auðlegð þess.“ —MARKFRANKLAND höfuðborgina átti að sýna mönnum að þau væru hvergi bangin. HAITI Feðgarnir voru fangar í M 128 ár tókst Duvalier-Ijölskyld- unni að halda völdum á Haiti með því að ýta undir ótta sjö bandarískra forseta, frá Eisen- hower til Reagans, við að þetta fátækasta land í allri Rómönsku Ameríku yrði að annarri Kúbu. í allan þennan tíma lét hún greipar sópa um fjármuni þjóðarinnar og þegar Jean-Claude Duvalier flýði á dögunum mun fjölskyldan hafa verið búin að koma undan hálfum milljarði dollara. Þeir Duvalier-feðgamir bárast ekki sérstaklega mikið á eftir því sem gerist með einræðisherra. Francois „Papa Doc“ Duvalier var alltaf svartklæddur og fór aldrei út úr höfuðborginni í þau 14 ár sem hann stýrði ógnarstjóminni. Fór hann raunar sjaldan út úr forsetahöllinni, sem bandarískir sjóliðar byggðu á sínum tíma. Duvalier gamli lét hins vegar óátalið þótt dætur hans þijár, eiginkona hans og stuðningsmenn kæmu sér upp húseignum í París, á Frönsku rivieranni eða í Banda- ríkjunum og þótt famar væru rándýrar innkaupaferðir til Frakklands. Þeir feðgamir vora hins vegar um kyrrt heima þar sem „Baby Doc“ tók mótorhjólin sín fram yfír lúxusvilluna og skemmtisnekkjuna. Jean-Claude Duvalier, „Baby Doc“, þorði því ekki fremur en gamli maðurinn að yfirgefa landið og áður en hann flýði hafði hann aðeins einu sinni komið til annars lands. Það var árið 1973 þegar hann hitti forseta Dóminikanska lýðveldisins, grannríkis Haitis, og rak tána rétt aðeins yfír landa- mærin. „Baby Doc“ var einmana mað- ur, sem lét aðra stjóma sér, fangi fortíðarinnar, sem neyddi hann í raun til að taka við völdum þegar hann var aðeins 19 ára gamall. Stjómin fórst honum illa úr hendi. Þrátt fyrir mikla erlenda aðstoð jókst stöðugt fátæktin á Haiti og var þar ekki síst um að kenna gífurlegri spillingu, flótta mennt- aðs fólks úr landi, skipulagsleysi, óheftu skógarhöggi og uppblæstri og slæmum viðskiptakjöram á heimsmarkaði. Jafnvel hundrað bandarískra iðnfyrirtækja, sem komið var upp á Haiti þar sem launin vora lág og engin hætta á verkfollum, hrökkluðust smám saman burt vegna aumingjaskapar stjóm- valdanna. ríki sínu „Papa Doc“ hreykti sér jafnan af því að hafa brotið á bak aftur veldi múlattanna á Haiti enda var margt fólk af þessu bergi brotið meðal þeirra þúsunda, sem hann lét drepa. Hann leyfði þeim þó að hafa áfram undirtökin í efna- hagslífinu og veikleikar sonar hans gerðu þeim aftur kleift að ná fyrri stöðu. Táknrænt fyrir það var eiginkona Jean-Claude, Mic- helle, en hún er múlatti. Gamla valdastéttin, múlattar og fólk af arabískum upprana, fyrirleit hina óblönduðu svertingja og það er ein skýringin á því hvers vegna Duvalier-fjölskyldan naut í raun stuðnings meðal bænda lengi vel þrátt fyrir spillinguna og kúg- unina. Að þessu undanskildu og stuðn- ingi Bandaríkjastjómar getur Duvalier-fjölskyldan þakkað það hinum svokölluðu „Tonton Maco- uter“ að hún skyldi halda völdum. Það var ekki aðeins að þessar hötuðu lögreglusveitir héldu fólk- inu í skefjum, heldur einnig her- aflanum, byltingargjömum her- foringjum, sem vora teknir af lífí þegar minnsti granur vaknaði um óheilindi við einræðisherrann. Þegar Duvalier komst til valda á Haiti árið 1957 var Castro enn að beijast í Sierra Maestra-Qöll- um, de Gaulle beið þess að forlög- in og Frakkland kölluðu á hann, Franco átti enn 20 ár ólifuð og John Kennedy var lítt þekktur, bandarískur öldungadeildarþing- maður. Tímamir breyttust og mennim- ir með, að undanskilinni Duvali- er-fjölskyldunni. Smám saman jukust þó kröfumar um breyting- ar í frjálsræðisátt, kröfur frá kaupsýslumönnum, frjálslyndum guðfræðingum, stómvöldum í Bandaríkjunum og frá útlögum og smátt og smátt grófu þessar kröfur undan veldi Duvalier- ættarinnar. Ástandið á Haiti gæti skánað mikið ef útlagamir, um milljón talsins, snera aftur heim. Flestir era þeir nú f Bandaríkjunum þar sem þeir hafa öðlast menntun og starfsreynslu bandarísks þjóðfé- Iags. Vegna þess hve Haiti hefur lengi verið háð Bandaríkjunum og einangrað frá öðram ríkjum í Karabíska hafínu er mjög líklegt, að Bandaríkjastjóm geti komið þar á laggimar hverri þeirri stjóm, sem henni hentar. - GREG CHAMBERLAIN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.