Morgunblaðið - 23.02.1986, Page 12

Morgunblaðið - 23.02.1986, Page 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR1986 Dæmig«rður kaþólskur skóli á Filippseyjum, St. Domingo Ekki sjálfum sér nógir með hrísgrjón Filippseyingar neyta mjög mikils af hrísgrjónum, ávöxtum og fiski og er því flestir fremur grann- vaxnir, ég sá varla kartöflur á borðum þama. Hrísgijónin á Filippseyjum eru betri en þau sem maður fær hér á landi, oftast borðar fólk þau afhýdd eða póleruð. Þrátt fyrir þessa miklu hrisgijónaupp- skeru eru Filippseyingar ekki sjálf- um sér nógir með hrísgijón. í fyrsta lagi borða þeir svo mikið og í öðru lagi fóru þeir út í að rækta sykur- reyr. Verð á sykri hefur verið lágt á heimsmarkaði og þess vegna hefur þessi ákvörðun, að rækta í auknum mæli sykurreyr í stað hrís- gijóna, haft mjög slæm áhrif á efnahagsástand landsins. Glysinn í borgunum glepur Fólk á Filippseyjum giftist frem- ur seint en á mörg böm enda em þama allflestir kaþólskir. Múham- eðstrú er á sumum eyjanna og eitt- hvað er um mótmælendur. Það er geysilegur munur á því fólki sem maður hittir fyrir í sveit og því sem býr í borgum. Þó fátæktin sé mikil í sveitinni þá er fólkið glatt og Útgerð á Filippseyjum. Verið að landa túnfiski. bömin gefa sér tíma frá leikjum til að koma og forvitnast ef þau sjá útlendinga. Útlendingar em fáir og skera sig mjög úr hópi innfæddra. Sú hefur orðið þróunin að fólk flykkist til borganna, vill komast í glysinn og heldur að þar sé betra að vera, en kemst fljótt að raun um að lífið þar er ekki dans á rósum. Það sest að í gömlum og yfirgefnum húsum eða kemur sér upp hreysum úr kassafjölum á eyðisvæðum. Þetta fólk er kallað „squatters" sem þýðir nánast, fólk sem situr á hækjum sér. Þetta viðumefni lýsir vel hvemig hag þessa fólks er hátt- að. Hjá þessu fólki sér maður ör- birgðina, þar er vonleysið. I sveit- inni er a’ftur alltaf meiri von um lífsviðurværi. Það virðist hins vegar vera svo að ef fólk er einu sinni komið í borgina þá getur það ekki svo glatt snúið til baka, það er víst mikil niðurlæging að snúa aftur til heimabyggðar sinnar. Þetta er heilmikið félags- og heilbrigðislegt vandamál. Lyf seld án lyfseðils Fátæklingar lifa við mjög bág- borið heilbirgðisástand og geta illa nýtt sér læknisþjónustu fyrir fá- tæktar sakir. Miðstéttin er hins vegar í einhvers konar sjúkrasam- lagi. Hinir ríkustu eru tiltölulega fámennur hópur. Til að aðstoða hina fátæku að leita sér hjálpar liðkaði heilbrigðistáðherra, Jesús Azurin fyrir sölu lyfja beint, án lyfseðils. T.d. er hægt að fá fúkkalyf þannig en ekki sterk deyfilyf og þess hátt- ar. Hann hefur lika reynt að halda lyflakostnaði niðri með samningum við lyfjafyrirtæki. LyfQabúðir em því víða og ég kynntist fólki sem vann í slíkum búðum og ég sá að það hafði að sumu leyti tekið að sér læknishlutverk og kunni orðið mikið fyrir sér í að ráðleggja fólki. Ailtof mikið af menntafólki Miðstéttimar á Filippseyjum em láglaunastéttir á okkar mælikvarða, hins vegar reyna allir að koma bömum sínum til mennta því þannig Gunnlaugur Geirsson í boði hjá filippseyskri fjölskyldu. Langar aftur til FILIPPSEYJA Rætt vid Gunnlaug Geirsson lækni sem dvaldi um tveggja mánaða skeið á Filippseyjum í fyrra. Filippseyjar hafa verið mikið í sviðsljósinu und- anfarið vegna kosninganna og baráttu Marc- osar og Aquino um völdin þar. Þetta erflókið mál sem hreint ekki er séð fyrir endann á ennþá. Isumar sem leið dvaldi Gunnlaugur Geirsson læknir um tveggja mán- aða skeið á Filippseyjum á vegum WHO, heilbrigð- isstofnunar Sameinuðu þjóðanna. í samtali við blaðamann Morgunblaðsins sagði Gunnlaugur að hann hefði farið utan í lok júní og tilgangur ferðarinnar hefði verið sá að vinna með fólki á Filippseyj- um, sem annaðist greiningu krabbameins. Gunnlaugur dvaldi á Filippseyjum í júlí og ágúst. Hann kvað hvers konar smitsjúkdóma enn vera stærsta heilbrigðisvandamálið á eyjunum og væru berklar þar ofarlega á blaði. Það væri líka vaxandi áhyggjuefni þeim sem með heilbrigðismál hefðu að gera á Filippseyjum hversu lungnakrabba- mein væri að aukast með vaxandi reykingum. Eitt af því sem Gunn- laugur hafði með höndum var að kenna Filippseyingum að nota ein- faldar aðferðir til að greina á milli berkla og lungnakrabbameins. Hann kenndi eyjarskeggjum að gera frumurannsóknir en slíkar rannsóknir hafa varla verið til á Filippseyjum. Hann kenndi þeim einnig forvamir og ýmsar auðveldar greiningaraðferðir sjúkdóma. Hann kvaðst hafa séð þama alls kyns tegundir af krabbameini og m.a. væm bijóstkrabbamein og legháls- krabbamein algeng á Filippseyjum. Glatt fólk og gott Gunnlaugur sýndi blaðamanni myndir frá Filippseyjum og ekki var annað hægt en láta sér lítast vel á innfædda, ljósbrúnt hörundið, kol- svart hárið og breið brosin, allt þetta vitnaði um fallegt og glaðlegt fólk. „Filippseyingar em yndislegt fólk“ sagði Gunnlaugur. „Það er blíðlynt, þægilegt í viðmóti og ótrú- lega vel upplýst, a.m.k. það fólk sem starfaði með mér. Allur þorri fólks á Filippseyjum er í okkar skilningi fátækur, en það er gífurlegur munur á fátækt í sveitum og borg- um. í sveitunum er mikil gróska, þar svigna tré undan þroskuðum ávöxtunum eins og Mango, Papaya, Santol o.fl.,og hvers kyns önnur náttúmgæði em þar mikil. Fiskur er í sjó og vötnum. Fimm uppskerur á tveimur árum Hrísgijónarækt er þama mikil. Hrisgijónaekmmar em stöllóttar og þar em notaðar áveitur því hrís- gijónin em ræktuð í vatni. Byijað er á að plægja og síðan er farið yfir jarðveginn með herfi sem safn- ar rótum úr eðjunni og hreinsar hana. Svo sá bændumir annað hvort eða setja niður ungar plöntur. Þama standa þeir allan daginn hálf- bognir með vatnið í mjóalegg, þetta er iðjusamt fólk. Einnig setja þeir oft fiskseiði í vatnið og þar elst upp nytjafiskur, hvítfiskur, sem þeir svo veiða í net áður en hrísgijónin em fullsprottin. Gróskan er svo mikil að þeir fá jafnvel fímm uppskemr af hrisrgjónum á tveimur áram. Börn að leik úti í sveit. Hrísgrjónaakrar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.