Morgunblaðið - 23.02.1986, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR1986 B 31
Angelica Huston
eygir bjartari
framtíð
ANGELICA Huston hefur alla tíð staðið í skugga tveggja manna, föður
síns og smabýlismanns og þeir eru auðvitað John Huston og Jack
Nicholson. En nú eru líkur á að breyting verði þar á, því Angelica
hefur verið útnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn f „Heiðri Prizz-
is“, myndinni sem karlinn faðir hennar gerði á síðasta ári með Jack,
Kathleen Turner og Angelicu sjálfri.
Hlutverk Angelicu í myndinni var
raunar lítið, en þeim mun meiri
athygli vekur frammistaða hennar.
Hún er útnefnd til Óskarsins ásamt
fjórum öðrum, en mikið mega þær
vera magnaðar ef þær ætla að slá
Angelicu við. „Heiður Prizzis" varð
ekkert gríðarlega vinsæl í henni
Ameríku, myndin er ein af þessum
sem maður annaðhvort dáist að
eða hreinlega þolir ekki. Greinilegt
er að hún fellur í kramið hjá íslend-
ingum, Bíóhöllin hefur sýnt hana
sleitulaust síðan í haust.
Sú var tíðin að Angelica Huston
var óhamingjusamasta kona á
jörðu. Hún fæddist inn í fjölskyldu
sem hafði ekki tíma til að annast
börnin sín. Faðir hennar lét eins
og hann teldi sig ímynd einhvers
himinborins anda, eyddi öllum
stundum við kvikmyndagerð vítt
og breytt um heiminn. „Ég kynntist
föður mínum þegar ég komst á
þrítugsaldurinn," segir Angelica.
John Huston sagði skilið við
Ricki konu sína þegar Angelica var
enn í bleyju. Hún hefur aldrei spurt
föður sinn hvers vegna þau skildu,
hún hefur heldur aldrei vitað hvaða
maður var með Ricki þegar hún
fórst í bílslysi í Frakklandi er Ang-
elica var sautján ára. Hún segist
vera hrædd við svörin.
Angelica var aldrei meira en
neðanmálsgrein í lífi föður síns.
Hann minnist á hana aðeins sex
sinnum í 400 blaðsíðna langri
sjálfsævisögu sinni. Angelica
fæddist meðan John var að filma
„The African Queen" inní svört-
ustu Afríku, (1950)
Eftir skilnaðinn bjó Ricki með
dóttur sinni í Lundúnum, síðar
París. Dag einn hringdi síminn og
einhver tilkynnti Angelicu aö móðir
hennar væri dáin. Mamma var
hrædd við pabba, segir Angelica,
þess vegna bannaði hún honum
ekki að nota mig í myndinni „Walk
with Life and Death".
Lífið varð bærilegra eftir að hún
kynntist Jack Nicholson snemma
á áttunda áratugnum, engu að síð-
ur leið henni eins og rekaldi á
reiðum sjó, því hún erfði metnað-
argirni föður síns. Hún bjó með
Jack, átti þá heitustu ósk að fá
hlutverk í kvikmyndum en mátti
þola ár eftir ár að horfa á handrita-
staflann sem barst inn á borð til
Jacks.
Angelica Huston og Jack Nicholaon leika saman í „Heiðri Prizzis".
Angelica hefur staðist hina
bráðsmitandi freistingu að ganga
í hjónaband, enda segir hún að
samband þeirra Jacks hafi bjargast
fyrir horn gegnum árin vegna
sveigjanleikans í sambúö þeirra.
Hún vill ekki að fari fyrir sér eins
og móður sinni, þ.e.a.s. að verða
eiginmanni háð og síðan að bráð.
Hún segir að Jack og John séu
andlega skyldir, sami belgingurinn
sé í þeim báðum, enda hefur sá
fyrrnefndi sýnt takta í drykkju og
skaplyndi sem John hefði viljað
geta leikið eftir. Þau búa í sitt
hvorri íbúðinni, enda er Angelica
löngu orðin leið á sífelldum hring-
ingum umboðsmanna og annarra
áhrifamikilla í kvikmyndaborginni
til Jacks.
Átta mánuðir eru liðnir síðan
„Heiður Prizzis" var frumsýnd.
Jack Nicholson hefur þegar leikið
í annarri mynd, Heartbum, með
Meryl Streep. John Huston hefur
hug á að gera mynd áður en hann
kemst á níræðisaidurinn. Angelica
Huston var fengin til að leika í
stuttri Disney-mynd sem Coppola
gerir, en ekkert hefur heyrst hvort
viðameiri verkefni bíði hennar.
HJÓ
Varúlfurinn brýst i gegnum stofuvegginn hjá Gary Busey.
Busey miðar á ófreskjuna; úr kvikmyndinni Silf urkúlan.
■\
Bíóhöllin:
Silfurkúla Stephens King
Sjötta myndin sem de Laurentiis framleiðir eftir sögum Kings
Kvikmyndaframleiðandinn
Dino de Laurentiis og rithöfund-
urinn Stephen King hafa átt gott
samstarf allt frá árinu 1983. Þá
framleiddi de Laurentiis þrjár
myndir eftir bókum Kings, The
Dead Zone, Christine og Cujo.
Árið eftir framleiddi Laurentiis
enn eina mynd eftir bók Kings,
Firestarter, og á sfðasta ári þá
fimmtu og sjÖttu, Cat’s Eye og
Silver Bullet. Sú sfðastnefnda var
frumsýnd úti f Bandarfkjunum
fyrir skömmu og núna á næstunni
mun Bfóhöllin taka hana til sýn-
inga.
Silver Bullet er um varúlf, sem
ógnar lífi og heilsu manna í dæmi-
gerðum amerískum smábæ. Tark-
er Wills heitir bærinn og þar fæðist
fólk og deyr í sama húsinu en þess
á milli l?etur það sig varða velferð
nóungans og kirkjusamkomur eru
þeirra partý. Kyrrðin í bænum rofn-
ar allt í einu þegar einhver eða
eitthvað tekur uppá því að drepa
fólk á grimmilegan máta.
I fyrstunni veit enginn hvað það
er úti í náttmyrkrinu, sem ógnar
lífi og heilsu manna, þar til 13 ára
fatlaður strákur, sem bundinn er
við hjólastól, tekur til sinna ráða
og gerir það sem aðrir í smábæn-
um ekki geta: flettir ofan af gát-
unni, léttir á dauðahræðslu fólks-
ins og verður hetja dagsins.
„Ekki veit ég hvaðan hugmyndir
mínar korna," segir Stephen King
í viðtali. „Ég veit í rauninni alls
ekki hvernig ég fer að því að
upphugsa þessa hluti. Eini munur-
inn á mér og öðrum held ég að
sé sá að ég skrifa niður þá hluti,
sem mér dettur í hug." Hugdettur
hans hafa gert hann að einhverjum
vinsælasta og víölesnasta spennu-
sagnahöfundi allra tíma. Það hafa
komið út eftir hann 12 þykkar
bækur á undanförnum 11 árum
og að auki smásögu- og ritgerða-
söfn.
„Ég vinn í um tvær stundir á
morgnana og svo afturtvær stund-
ir á kvöldin. ÞeSs á milli les ég
mikið. Þegar ég hef skrifað handrit
að sögu set ég það í skrifborðs-
skúffuna mína og geymi það' í allt
frá mánuði upp í þrjú ár. Ég þarf
að hafa ákveðna fjarlægð á milli
mín og verksins til að geta litið það
réttu auga. Svo reyni ég að stunda
svolitla líkamsrækt á milli þess
sem ég skrifa. Ég geng fimm eða
sex kílómetra á degi hverjum svo
bjórvömbin fari ekki úr skorðum.
Ég hlusta á tónlist og svara bréf-
um. Sjáðu til, ég er ósköp venjuleg-
ur maður. Það vill bara þannig til
að ég fæst við óvenjulega hluti: ég
hef gaman af að hræða fólk."
King skrifar sjálfur handritið að
myndinni um varúlfinn en með
aðalhlutverkin í henni fara Gary
Busey, Everett MeGill og Corey
Haim, sem leikur unga strákinn.
Leikstjóri er Daniel Attias en Silver
Bullit er fyrsta myndin sem hann
leikstýrir.
— ai.
<■
r