Morgunblaðið - 12.03.1986, Page 1
56 SÍÐUR
STOFNAÐ1913
58. tbl. 72. árg.
MIÐVIKUDAGUR12. MARZ 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
SÁ STÆRSTI
Gabriel E. Monjane, sem mun vera stærsti maður heims, er nú í
heimsókn í Japan við gerð sjónvarpsþátta. Myndin var tekin við
komu Monjane til Tókýó og honum tíl hægri handar er flugfreyja
japanska flugfélagsins JAL. Blaðaljósmyndari, sem er lengst til
hægri, taldi sig ekki ná góðri mynd af risanum frá Mozambique
nema standa uppi á tröppum.
Morðingi
Palme í
felum í
sendiráði?
Stokkhólmi, 11. marz. AP.
SÆNSKA lögreglan kannar nú
þann möguleika að morðingi
Olofs Palme leynist í sendiráði
útlends ríkis í Stokkhólmi. Hans
Holmer lögreglustjóri segir að
rannsókninni á morðinu miði
hægt, „en mál skýrast samt með
degi hveijum“.
Lögreglan nýtur aðstoðar utan-
ríkisráðuneytisins í rannsókninni og
staðfesti Holmer að verið væri að
reyna að fá úr því skorið hvort
morðinginn leyndist í erlendu sendi-
ráði. Á sunnudag hafði Sydsvenska
Dagbladet í Malmö eftir heimildum
úr leyniþjónustunni að hugsanlega'
hefði Palme verið myrtur vegna
„hemaðarlegra hagsmuna".
í fréttinni sagði að evrópskir og
sovézkir morðingjar notuðu venju-
lega sjálfvirkar skammbyssur, eins
og þá, sem Palme var myrtur með.
Holmer var ófáanlegur til að fjalla
nánar um þessa kenningu og gaf
ekkert til kynna sem bent gæti tii
að lögreglan teldi sig vita eitthvað
um þjóðemi banamanns Palme.
Búist er við að á morgun, mið-
vikudag, kjósi sænska þingið Ingvar
Carlsson sem forsætisráðherra, en
hann var settur í það starf eftir
fráfall Palme.
Fyrirskipa handtöku
ráðherra Marcosar
Razah Raad
Myndin, sem sögð er af Uki
Michel Seurat og öfgasamtök
shíta hafa sent frá sér.
Manila, H. marz. AP.
JUAN Ponce Enrile, varnar-
málaráðherra, gaf í dag út
handtökutilskipun á hendur
tveimur ráðherrum í síðustu
stjórn Marcosar, fyrrum for-
seta, fyrir meinta aðild þeirra
að morðum á stuðningsmönn-
um Corazon Aquino. Búist er
við frekari handtökum í kjöl-
farið.
V estur-Þýskaland:
Kanslarinn milli
steins og sleggju
Bonn, 11. mars. AP.
SAKSÓKNARI í Bonn lýati yfir
því í dag að hefja ætti rannsókn
á framburði Helmuts Kohl,
kanslara Vestur-Þýskalands, í
máli, sem snýst um fjárgjafir til
stjórnmálaflokka. Saksóknari
sambandslandsins Rheinland-
Pfalz hefur þegar hafið rann-
sókn á því hvort Kohl hafi sagt
ósatt fyrir þingnefnd í Flick-
málinu.
Talið er að þessar rannsóknir
eigi eftir að draga dilk á eftir sér
fyrir samsteypustjómina í Bonn.
Kosningar verða í janúar á næsta
ári og Jóhannes Rau, kanslarafram-
bjóðandi Sósíaldemókrataflokksins,
er þegar farinn að skerpa klæmar
í kosningabaráttunni.
Johannes Wilhelm, talsmaður
saksóknara í Bonn, sagði að rann-
sóknin myndi skera úr um það hvort
Kohl hefði borið ljúgvitni fýrir þing-
nefnd, sem skipuð var til að kanna
fjárframlög fyrirtækja til stjóm-
málaflokka.
Báðar rannsóknirnar fara fram
vegna ásakana Otto Schily, eins
leiðtoga stjórnarandstöðuflokks
Græningja.
Orlando Dulay og Arturo Paci- |
fícador, sem Enrile vill handtekna,
hafa farið huldu höfði frá því I
Marcos flúði land fyrir tveimur
vikum. Pacifícador er sagður bera
ábyrgð á morði Evelio Javier hér-
aðsstjóra í Antique 11. febrúar sl.
Javier var ötull stuðningsmaður
Aquino. Pacifícador er einnig eft-
irlýstur vegna morðs á sjö stuðn-
ingsmönnum Javiers meðan á
kosningabaráttu vegna þingkosn-
inga 1984 stóð, en þá kepptu
Pacificador og Javis um sama
þingsætið. Dulay er einnig gefíð
að sök að hafa fyrirskipað morð
á stuðningsmönnum Áquinos í
Quirino-héraði norður af Manila.
Corazon Aquino hefur boðað
stjóm sína til fundar þar sem tekin
verður ákvörðun um hvort lýsa
skuli myndun byltingastjómar.
Deildar meiningar eru um nauð-
syn þess innan stjómarinnar og
að sögn fílippíska sjónvarpsins
kann vel svo að fara að hætt verði
við áformin.
Nefnd bandarískra embættis-
manna kom í dag til Manila til
að meta nauðsyn efnahags- og
hemaðarlegrar aðstoðar til
Filippseyja. Áætlað er að nefndin
dveljist í landinu vikulangt og eigi
fundi með Aquino, ráðheirum og
embættismönnum. Að því búnu
mun nefndin leggja tillögur sínar
fyrir Ronald Reagan, Bandaríkja-
forseta.
Kosið
um aðild
að NATO
Madríd, ll.marz. AP.
SPÁNVERJAR ganga að
kjörborðinu á miðvikudag og
greiða atkvæði um það hvort
þeir vilji vera áfram í Atlants-
hafsbandalaginu (NATO)
eður ei. Skoðanakannanir
benda til þess að meirihluti
kjósenda sé andvígur aðild.
Hafni Spánveijar aðild yrði
það meiriháttar áfall fyrir Felipe
Gonzalez, forsætisráðherra, sem
hvatt hefur kjósendur til að velja
áframhaldandi aðild.
Gonzalez hefur notið mikils
þingmeirihluta, en gangi kjós-
endur gegn vilja hans í þjóðarat-
kvæðinu yrði það túlkað sem
álitshnekkir fyrir hann og gæti
haft áhrif á möguleika hans í
þingkosningunum í október nk.
Flokkur hans er sá eini sem
tekið hefur afstöðu með áfram-
haldandi NATO-aðild.
Raad daglangt
í ræningjabæli
Beirút, 11. inarz. AF.
FRANSKI læknirinn Razah Raad I Öfgafullir shítar í Jihad-samtök- I aðeins ræða við Raad, sem er
fór til leynilegs felustaðar ræn- unum rændu sjónvarpsmönnun- fæddur í Líbanon, en hann er í
ingja fjögurra franskra sjóvarps- um og hafa einnig í haldi fjóra framboð fyrir Gaullista í þing-
manna til að freista þess að fá Fransara aðra, sem Raad reynir kosningunum i Frakklandi nk.
fjórmenningana lausa úr haldi. | að fá lausa. Ræningjarnir vilja | sunnudag.
Raad freistar þess á eigin spýtur
að tryggja frelsi Frakka, sem eru
í haldi öfgamanna í Líbanon, og fer
ekki í umboði ftönsku stjómarinnar,
sem sent hefur fjölmenna sveit
sendimanna til Miðausturlanda
sömu erinda. Ræningjamir hafa
birt ljósmynd af því sem þeir segja
vera lík Frakkans Michel Seurat,
sem Jihad-samtökin rændu í fyrra.
Frönsk sijómvöld telja um blekk-
ingar að ræða. Reiði ríkir í Frakkl-
andi vegna málsins og þeirrar ák-
vörðunar frönsku stjómarinnar að
framselja tvo íraka til Bagdað fyrir
mánuði, en Jihad segir Seurat hafa
verið líflátinn vegna framsalsins.
Engar fréttir fóra af tilraunum
Raads í kvöld, en hann var meðal
ræningjanna í allan dag. Verði ár-
angur af milligöngu hans yrði það
álitshnekkir fyrir stjóm Mitterrands
og líklega til að styrkja stjómarand-
stöðuflokkana í komandi kosning-
um.