Morgunblaðið - 12.03.1986, Page 5

Morgunblaðið - 12.03.1986, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR12. MARZ 1986 Hugmyndir um lengingu AV-flugbrautar flugvallarins: Göng undir flugbraut- ina eða Einarsnesið tengt Ægisíðunni 1. Bygging undirganga undir flugbrautina 2. Vegur fyrir framlenginguna sem tengir Einarsnes vifi Ægissíðu ÓHAPPIÐ á Reykjavíkurflug- velli í fyrradag, þegar Fokker- vél Flugleiða rann út af AV- flugbraut vallarins og staðnæm- dist á Suðurgötunni, hefur vakið upp margar spurningar varðandi umferðaröryggi á þessum stað. Víða erlendis þekkist að um- ferðarljós stjórni umferð á ak- vegum þar sem hætta gæti stafað af flugumferð. Óskar Ólason yfiriögregluþjónn umferðar- deildar lögreglunnar, segist ekki vita til þess að fyrirhugað sé að koma slikum ljósum upp við Suðurgötuna, en bendir á að nú sé tími til kominn að hefjast handa við framkvæmdir. Um- ræða um þessi mál hefur staðið árum saman, og í deiliskipulagi flugvallarsvæðisins, sem borgin samþykkti fyrir sitt leyti í janúar síðastliðnum, er gert ráð fyrir lengingu AV-brautarinnar í vest- ur um 310 metra. Brautin er nú 1.490 metra löng. Aðalbraut flugvallarins iiggur í NS og er l. 825 metra löng. Um hana fer um 55% af flugumferð vallarins, en AV-brautin tekur um milli 35% og 40% umferðarinnar. Ólafur Pálsson verkfræðingur hefur skrifað ítarlega greinar- gerð, sem fylgir deiliskipulaginu, þar sem hann leggur meðal annars fram hugmyndir um með hvað hætti hægt sé að leysa samgöngumál Skeijafjarðar- byggðarinnar við bæinn. Hér á eftir fer kafli úr þessari greinar- gerð Ólafs. Lenging AV-brautar Vegna nálægðar Öskjuhlíðarinn- ar fyrir austurenda brautarinnar kemur lenging hennar í þá átt ekki til greina, svo ekki eru um annað að ræða en að athuga þær leiðir sem fyrir hendi eru til að lengja í vesturátt. Vesturendi núverandi brautar nær fast að Suðurgötunni, en hún er eina samgönguleið Skeijafjarð- arbyggðarinnar við bæinn. Verði brautin lengd vestur er nauðsynlegt að sjá byggðinni fyrir greiðri sam- gönguleið í bæinn og hún má ekki verateljandi lakari en nú er. Hér er um tvær leiðir að ræða. Önnur er sú að láta Suðurgötuna halda sér á þeim stað þar sem hún er nú og gera göng undir brautina. Slík göng verða mikið og dýrt mannvirki, t.d. þarf lengd þeirra að vera a.m.k. 150 m og lofthæð 4—5 m svo búast má við að lækka þurfi götuhæðina í þeim allt að 4 metrum frá því sem nú er, en þá er botninn kominn um 2 m niður fyrir stórstraumsflóðhæð. Skapar það ýmis vandamál t.d. þarf að sja fyrir lofthreinsun úr göngunum, þá þarf dælukerfi til að dæla burt sjó eða vatni úr göngunum, lækkun götunnar verður að ná alllangt út fyrir göngin og þá verður mikil hætta á að snjór setjist í lægðina beggja megin gangnanna, loftið í göngunum þarf að geta borið mik- inn flugvélaþunga og þarf því að vera mjög sterkt. Hin leiðin, sem til greina kemur er þessi: Gerð verður fylling út frá endanum og alla leið út á sjó utan við Lambhaga. Með því móti verður hægt að lengja brautina um 310 m. Suðurgötunni verður lokað en í staðinn verður Einarsnesið, gatan meðfram flugbrautinni lengd fyrir endann á brautinni og hún síðan tengd Ægisíðunni andspænis Lyng- haganum, en þaðan er greið leið í miðbæinn, annaðhvort eftir Suður- götunni eða Dunhaganum. Veginum er haldið hæfilega langt frá sjávarkanti flugbrautarfylling- arinnar svo ekki eiga að vera telj- andi óþægindi á veginum af sjávar- roki. Þar sem hann liggur meðfram hinum nýja brautarkafla er hann í 25 m fjarlægð, en þar sem hann beygir fyrir endann er hann 50 rri frá kantinum, vegna þess að þar má búast við meiri öldu. Meginhluti fyllingarinnar verður gerður úr þjöppuðu hraungrýti en utan á kantinum verður hlaðið gijóti til vamar sjávargangi. Breidd núverandi malbiks á enda er 92 m eins og áður getur, en breidd malbiks nýju lengingarinnar verður 45 m en lengd 310 m. Við endann verður 60 m snúningssvæði eins og teikningin sýnir. Beggja megin við brautina verða öryggis- svæði, allt að 75 m út frá miðlínu. Heildarbreidd fyllingarinnar verður 170-200 m. Lengd nýja vegkaflans fyrir endann verður 700 m en breidd 7 m, sú sama og breidd Suðurgötunn- ar, gert er ráð fyrir 2 m breiðri gangstétt alla leiðina. Hæð vegarins verður I svipaðri hæð og sjálfur brautarendinn, en fjarlægð hans frá malbiksendanum er 30 m. Við þessa breytingu verður sam- ræmi milli brautarlengda flugvall- arins mun eðlilegra en nú er. Aðflug að NS og SV-NA-brautunum verður að sjálfsögðu það sama og áður en hvað viðvíkur AV-brautinni verða aðstæðumartil aðflugs þessar: Fyrir flugtak til vesturs reiknast brautarlengdin 1420+310 = 1730 m, en fyrir lendingu úr austri 1310+310 = 1620 m og fyrir flug- taktil austurs 1200+310 = 1510 m. Eins og áður getur er áætlað að Teiknistofan hf. hefur með höndum útfærslu hugmynda um framtíð- arskipulagningu flugvallarsvæðisins. Morgunblaðið sýnir hér þær tvær leiðir sem Ólafur Pálsson verkfræðingur telur koma til greina til að leysa samgönguvandræði Skerjafjarðarbyggðarinnar við bæinn vegna lengingar flugbrautarinnar. 55% af flugumferðinni fari eftir NS-brautinni og 35—40% eftir AV-brautinni. Við lengingu braut- arinnar vex notkun hennar en umferð á NS-brautinni minnkar að sama skapi. Breytingin verður þó ekki mikil því norðan og sunnan vindáttir eru ríkjandi og þar við bætist að í þeim tilfellum þegar ís- ing er á brautum og eins þegar vatn liggur á þeim verða bremsu- skilyrði léleg, vilja flugmenn nota lengstu og öruggustu brautina. Er því ekki að vænta að umferð á henni fari niður fyrir 50% við eðlilegar aðstæður. Hins vegar má með stjómunaraðgerðum létta á umferð um NS-brautina, breyta þessum nýtingartölum t.d. ef ákveðið yrði að AV-brautina ætti að nota í þeim tilfellum þegar vindur stæði rétt á hana og þar að auki þegar hliðar- vindur á hana yrði undir ákveðnu hámarki. Svefnpokar frá TEGUND TROLLHETTA ER’N HEIA ,CHT TIRICH MIR NOTKUN m m GRAÐA I - 8°C* i ■+ i2=e* i 18°C* 28°C* a •+ 25°C* ÞYNGD 1.8kg. 1.9 kg. 2.1 kg 2.6 kg 2.2 kg FYLLING 1075 gr. Thermoguard Hulfiber 1225 gr. ® Thermoguard Hulfiber 1375 gr. Thermoguard Hulfiber 1575 gr. Thermoguard Hulfiber 300 gr. @ Thermoguard Hulfiber é 800 gr. VERÐ 3.600 kr. 4.500 kr. 5.400 6.900 12.600 unuFm^ Glæsibæ, sími 82922. -^ Póstsendum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.