Morgunblaðið - 12.03.1986, Page 15

Morgunblaðið - 12.03.1986, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1986 15 Gunnlaugur Stefán Gfslason Hæg geðbrigði SKYNJUN Myndlist Bragi Ásgeirsson Fyrir nokkrum árum ánetjaðist Gunnlaugur Stefán Gíslason ákveðinni raunsæisstefnu í nú- tímalist er hann hefur haldið tryggð við til þessa. Sú stefna byggðist á því að ná sem mestri stemmningu úr litlu eða mjög takmörkuðu myndefni; magna upp áhrif með hreinum og skýrum pensildráttum. Lausum við allt tildur og flottheit í meðferð pentskúfsins en magna upp seið í kringum hversdagslegustu hluti er fæstir taka eftir og margur aldrei. Þetta er mikið hlutverk og vandasamt og einkum er erfitt að feta hér í fótspor meistara og nafntogaðasta fulltrúa þessarar tækni, Andrew Wyeth. Tæknin krefst gífurlegrar ná- kvæmi og mjög þjálfaðrar sjónar og hér verða menn að geta ræktað sinn garð til fullnustu ef að mikill árangur á að nást. Engu má skeika í hámákvæm- um vinnubrögðum ef markinu skal náð, sem er að grípa áhorf- andann sterkum tökum í upphafi og áhrifin mega ekki rýma við nánari viðkynningu — heldur magnast og eflast við hveija nýja skoðun. Hér er enginn uppreisnarandi á ferð né þorsti í öflug geðbrigði heldur þróun hægra en djúpra geðbrigða ásamt ríkri samkennd með umhverfmu og töfrum hvunndagsins. Á sýningu Gunnlaugs Stefáns í Gallerí Borg eru 23 vatnslita- myndir, sem allar em málaðar á árunum 1985—86. Heillegustu myndir sýningar- innar tel ég myndina „Skíma" (7), sem er ekki einasta vel máluð hedur túlkar hún hlýja og frjóa kennd fýrir viðfangsefninu. Aðrar myndir er einkum vöktu athygli mína vom „í slipp“ (2), „Frjáls eins og fuglinn" (3), „Skarðs- heiði" (13) og „Té“ (19). Allar túlka þær bestu hliðar gerandans, sem hefur naumast gert betur áður, ogjafnframt gefa þær tilefni til að ætla að hann geti enn betur. En í mörgum öðmm myndum er eins og það vanti herslumuninn, þær virka of hráar eða mjmd- byggingunni er eitthvað ábóta- vant. Við því er ekkert að gera en að halda á brattann. _ Bragi Ásgersson. Opnaður hefur verið nýr sýn- ingarsalur á Amtmannsstíg 1, þar sem áður var til húsa hið nafnkennda Gallerí Langbrók. Það er mikið gleðiefni að til skuli ungt, framsækið og bjart- sýnt fólk, sem hefur þor til að axla þann vanda er riðlaði að- standendum Langbrókar. En það fær einnig allt upp í hendumar sem var verk hinna smekkvisu valkyija; notalega innréttað hús- næði og fágað, sérstætt andrúm. Þó er andrúmið svolítið annað, sem stafar af annars konar mynd- verkum að nokkm leyti og textíl- um í lágmarki. Þessi sýningarsalur er prýði- Það em rétt tvö ár síðan Vil- hjálmur G. Vilhjálmsson kynnti fyrst viðleitni sína á myndlistar- vettvangi í húsakynnum Lista- skála alþýðu. Nú er hann aftur á ferðinni með myndverk gerð með rissblýi, vatnslitum og í pastellitum og velur sér sömu húsakjmnin. Vilhjálmur velur sér mjög hóf- samar stærðir í myndum sínum og hann er í einu og öllu mjög hófsamur listamaður, með af- brigðum heiðarlegur og vandvirk- ur og færist aldrei mikið í fang, — er frábitinn því að leggja út í vafasöm átök og reisa sér hurðar- ás um öxl. Að vissu marki er þetta kostur en að öðru lejrti fer betur á því að ungir menn séu fullir eldmóðs, leiti sér viða fanga um efnivið og tæknibrögð og skirrist ekki við að taka á sig ýmsar áhættur. Af mistökunum læra menn mest, hafi þeir á annað borð hæfileika til að færa sér þau í nyt og endurtaki þau ekki í sí- bylju. I heild er þessi sýning mjög snotur en þá einnig einum of slétt og felld, meira lík lygnum sjó en brimi er svarrar á skeijum. Ég vil hér koma fram með sláandi líkingu á umbrotamikilli skapandi list, sem hver og einn ungur lista- maður ætti að gaumgæfa vel því að hér er falinn mikill sannleikur: „Þó að stormar og straumar reisi stórsjóa á hinu mikla úthafi, þá er í djúpunum friður og ró — svo skal í sál listamannsins og í innsta eðli verka hans.“ Það fylgir einnig skjmjuninni lega fallinn fyrir smásýningar hvers konar og sem kjmningar- og sölugallerí en öllu síður fyrir samsýningar líkt og þá sem nú er í gangi. Til þess kemur hver og einn listamaður ekki nægilega til skila vegna þess að skiljanlega verða allir að gæta að takmörkun- um húsakjmnanna er þeir velja verk sín. Þó réttlætir það fýllilega framtakið, að þetta er fýrsta sýn- ingin og kjmnir nýja eigendur, sem eru 10 talsins og hafa verið svo vel kynntir í dagblöðum borg- arinnar að nafnaruna er hér al- deilis óþörf. Meðalaldur hins glaðbeitta æskufólks er 36 ár eða þar um fýrir mjmdefninu að hafa hugfast það sem Delacroix sagði eitt sinn: „Allt er efniviður. Efnið ert þú sjálfur, kenndir þínar frammi fýrir náttúrunni, — líttu fyrst inn í sjálf- an þig og síðan allt um kring. Ekkert er meiri hindrun en að vera kaldur og sljór gagnvart viðfangsefnunum. Menn eiga að æsa sig upp líkt og slanga er æst upp af hendi töframannsins." Hér er ég að vísa til þess að róleg yfirvegun og vandvirkni séu helstu eðliskostir Vilhjálms G. Vilhjálmssonar, — en einnig hindnm vilji hann þrengja sér inn í dýpri lífæðar mjmdflatarins. Það verður ekki gert nema með því að taka áhættu og virkja fleiri tæknibrögð, — einnig blóðið, tárin og svitann. — Nokkrar teikningar eru með því athyglisverðasta á sýningunni svo sem: „Bátur (11), „Bátur 111“ (14) og „í slippnum" (15). Hér eru strikin hrein og ákveðin en í ýmsum öðrum myndum hættir þeim til að verða loðin og kraft- laus. Þá er pastelmjmdin „Vest- ursól" (16) einföld oghrein, ásamt því að form sem litræn skjmjun kemur einna gleggst fram í litlu pastelmjmdunum „Til Mosfells- sveitar" (34) og „Horft til Blá- ijalla 11“ (35). Eitt er mikilvægt fyrir Vilhjálm varðandi áframhaldandi vinnu og það er að hann glejrmi auglýsinga- tækninni og noti minna af hjálpar- tækjum hennar. Treysti meira á sjálfan sig og gangi að verki með lífíð í lúkunum. bil svo ekki er það alungt í strang- asta skilningi, en telst á besta þroskaskeiði mjmdlistarmanna; í þeirri listgrein þykja allir ungir, sem eru undir fimmtugu. Ekki er ástæða til að telja hér upp framlag einstakra listamanna eða gera upp á milli verkanna en það er rík ástæða til að minna á tilvist þessa nýja sýningarsalar og hvetja sem flesta til heimsókn- ar á staðinn og kjmna sér starf- semina — vera með og innvígður frá bjrijun. Mjmdlistarfólkinu óska ég allra heilla, framkvæmdinni velfamað- ar og sýningarsalnum langlífis. GALLERÍ GANGSKÖR Dúkrista eftir Helga Þorgils. Ekki er allt súr- realismi Bókmenntlr Jóhann Hjálmarsson TENINGUR Vettvangur fyrir listir og bók- menntir. l.h. des. 1985. Ritstjórn: Eggert Pétursson, Guðmundur Andri Thorsson, Gunnar Harðarson, Hallgrimur Helgason, Páll Valsson og Stein- grímur Eyfjörð Kristmundsson. Teningur er til marks um að nú viðrar vel fýrir tímarit um bók- menntir og listir, að minnsta kosti eru menn fullir áhuga að senda frá sér slík rit. Þessi áhugi lofar vitan- lega góðu. Töluvert er um nýjan skáldskap í Teningi. Ung skáld birta í honum mikið af ljóðum, en magn ekki sama og gæði. Athygli vekja prósaskissur eftir Steinar Siguijónsson. Þær eru í gamalkunnum stíl Steinars, hnyttilegar í mannlegu innsæi sínu, en líka ruglingslegar á köflum. Birt eru viðtöl við Helga Þorgils Friðjónsson myndlistarmann og rit- höfund og Einar Kárason rithöfund. Þó nokkuð er að græða á þessum viðtölum, enda fara þeir Helgi og Einar ekki í felur með skoðanir sín- ar. Helgi Þorgils segir m.a.: „Reyndar held ég að öll sagan sé inni í manni. Mér finnst það oft galli í mjmdlist og bókmenntum, þessar tilvitnanir hjá fólki. Það þarf að grípa í eitthvað og halda fast utan um það eins og til að sanna sína getu. Einu sinni var í tísku að nota þjóðsögumar. Það voru oft hlægilegar einfaldanir á einhveijum skemmtilegum atriðum úrþeim.“ í viðtalinu við Helga Þorgils er drepið á það sem nú er orðið mjög áberandi hjá fólki og jafnvel gagn- lýnendnum líka, að kalla allt súr- realisma „sem er eitthvað skrýtið". Öm Ólafsson er mikið í upprifj- unum og birtir grein sem hann nefnir _ Menningartímarit milli stríða. í þessari grein finnur Öm að því réttilega að gömlu tímaritin skyldu ekki kynna erlendar bók- menntanýjungar og auglýsir eftir slíku riti nú. Öm skrifar. Ævisaga J.S. Bachs Johann Nikolaus Forkel: Ævisaga Johanns Sebastíans Bach Þýðandi: Arni Kristjánsson Mikið hefur verið ritað f aldanna rás um höfuðsnillinginn Johann Sebastian Bach. Aðrar bækur í því safni eru þykkari en sú sem hér um ræðir, en fæstar merkari, enda er vandfundin sú ritsmíð um meist- arann þar sem ekki er vitnað til þessa litla rits. Þetta er sú ritgerð sem Johann Nikolaus Forkel tók saman um Johan Sebastian Bach og birtist fýrst árið 1802. Forkel (1749—1818) var mikil- virkur rithöfundur um tónlistarefni og raunar brautryðjandi í Þýska- landi um rannsóknir í tónlistarsögu. Hann hóf fýrstur manna ritun almennrar tónlistarsögu á þýsku, en entist ekki aldur til að ljúka nema tveimur bindum hennar. Þó að þetta séu stórar bækur og þykk- ar nær þó sagan ekki nema fram á miðja sextándu öld, og má af því marka að ítarlega er hún rakin. Ritgerðin um Bach hefur stund- um verið talin besta verk Forkels. Það gefur henni sérstakt gildi að hún gejrmir margan fróðleik sem hafður er eftir sonum meistarans, Carli Philipp Emanuel og Wilhelm Friedemann Bach, og ekki er varð- veittur annars staðar. Af saman- burði við bréf til Forkels frá hinum fyrmefnda má sjá að hann hefur notað slíkar heimildir mjög sam- viskusamlega. Þá er og hér fyrst reynt að meta verk meistarans að verðleikum og er sú tilraun merki- leg þótt sumar niðurstöður Forkels kunni að orka tvímælis. Bach hafði legið í gröf sinni meira en hálfa öld þegar þessi fyrsta tilraun til ævisögu hans leit dagsins ljós. Nærri því jafnlengi — hálfan Qórða áratug — hefur íslensk þýðing Áma Kristjánssonar beðið þess að komast á prent. Átti hún upphaflega að birtast árið 1950, á 200. ártíð meistarans, og mun þá hafa verið flutt í útvarp, en úr út- gáfunni varð ekki fyrr en á ári tón- listarinnar 1985, þegar þijár aldir vora liðnar frá fæðingu hans. Þýð- ingin er snilldarvel gerð, og hafa Tónskóli þjóðkirkjunnar og söng- málastjóri, Haukur Guðlaugsson, unnið þarft verk með útgáfu þessar- ar fallegu, litlu bókar. „Hér er aragrúi tímarita, flest era mjög sérhæfð: um stangveiði, hárfegurð, kiwanisstarfsemi og ég veit ekki hvað. Trúir því nokkur að ekki gæti borið sig tímarit sem m.a. sinnti nýsköpun í bókmenntum og listum? Stór og myndarlegur vettvangur skáldskapar yrði ein- hver mesti happafengur íslensku menningarlífi sem hægt er að hugsa sér.“ Undir þetta má taka með Emi um leið og Teningi er fagnað. Hann verður vonandi Qölbreyttur vett- vangur bókmennta og lista, inn- lendra og erlendra. Að mínu viti er þörfin mest að sinna áð marki því sem verið er að fást við hér á landi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.