Morgunblaðið - 12.03.1986, Síða 20

Morgunblaðið - 12.03.1986, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR12. MARZ1986 Börn og eitur í heimahúsum eftirAtla Dagbjartsson Á undanförnum vikum hefír verið fjallað nokkuð um slys í heimahús- um á síðum dagblaða og í útvarpi. Komið hefir fram að í það minnsta þriðjungur smábarna á aldrinum 1-4 ára þarf árlega á að halda læknismeðferð eða ráðgjöf vegna einhverskonar slysa eða meiðsla. Flest þessara atvika verða á heimil- um barnanna. Algengast er að um sé að ræða fall eða árekstur, en því næst koma ýmiskonar eitranir. Það er ótrúlegt en engu að síður staðreynd, að á nútíma heimili úir og grúir af eiturefnum, sem eru svo hættuleg smábömum, að ef bömin neyta of mikils magns af efnunum, þá deyja þau. Á síðustu vikum hefir Slysa- vamafélag Íslands látið bera inn á hvert heimili í landinu bækling um eiturefni heimilisins, til þess að reyna að vekja okkur til umhugsun- ar um þær hættur sem hlaðist hafa upp á heimilunum án þess að við höfum gefíð þeim gaum. í þessum gagnlega bæklingi er að finna upplýsingar um mörg hættuleg efni, og ennfremur lyf, sem stundum liggja á glámbekk á heimilum, freistandi eins og sælgæti og geta á svipstundu breyst í eitur í litlum bamslíkama. Lítum nú nánar á það hvemig þessi efni skaða líffæri bamanna. Það gerist einkum á þrennan máta. 1) Skemmdir við inntöku. í fýrsta lagi geta efni skemmt líffæri, sem þau komast í snertingu við, þegar þau em tekin inn, til dæmis sýra eða lútur, sem brenna slímhúðir munnhols og vélinda. Ef bamið hefir rennt niður slíku efni á að sjálfsögðu ekki að láta bamið æla efninu upp aftur, sem gæti jú valdið enn meiri skaða. Ýmsar loft- tegundir geta valdið skemmdum á slímhúð öndunarveganna t.d. klór og skyldar lofttegundir. Afleiðingin verður bjúgur í loftvegunum og andnauð. Mörg dæmi em um að eitraðar lofttegundir frásogist úr lungum inn í blóðið, berist síðan til viðkvæmra líffæra og valdi þar skaða. „Sniff", sem veldur lifrar- og heilafmmuskemmdum, er dæmi um þetta. Olíur valda miklum skaða ef þær komast niður í lungu. Þær frásogast ekki eða mjög seint úr lungunum og geta þakið lungna- blöðmmar að innan þannig að loft- skipti geta ekki farið fram á milli loftsins í lungnablöðmnum og blóðsins í lungnaháræðunum. Þegar frá líður verður síðan heiftarleg lungnabólga vegna olíunnar. Það á því ekki að láta böm kasta upp olíu t.d. lampaolíu, bónolíu, smurolíu, eða efnum, sem leyst em upp í olíu, sérlega ef þau em orðin sljó eða em í andnauð, því að við það er ætíð hætta á að meiri olía hrökkvi. ofan í þau. 2) Skemmdir eftir frásog. Þegar efnin hafa frásogast inn í blóðið úr lungum eða meltingarvegi, berast þau til líffæranna og geta Atli Dagbjartsson „í áðurnefndum bækl- ingi Slysavarnafélags- ins er að finna upplýs- ingar um það hvernig bregðast á við í hverju einstöku tilviki, ef börn hafa slysast til að taka inn eiturefni.“ þar valdið frumudauða. Heili, blóð- mergur, hjarta lifur og ným hafa mjög sérhæfðar fmmur, sem em viðkvæmar fyrir eiturefnum. Þessi sömu líffæri em einnig mjög næm fyrir súrefnisskorti. Fmmur þeirra deyja, ef þær fá ekki nægilegt súr- efni til þess að viðhalda bmna til orkumyndunar. Það er m.a. á þenn- an máta, sem geðlyfín og svefnlyfin valda skaða, miðtaugakerfíð sljóvg- ast svo að viðkomandi hættir að anda nægilega vel, blóðið verður undirmettað af súrefni, sem berst þá í of litiu magni til líffæranna. 3) Skemmdir við niðurbrot og útskilnað. í þeim líffæmm sem efni em brotin niður í smærri eindir og út- skilin úr líkamanum verður þéttni þeirra mikil. Ným og lifur em líf- færin sem sjá um niðurbrot og út- skilnað flestra eiturefna. Við flestar meiriháttar eitranir er því tiltölu- lega algengt að fá fram einkenni um lifrar- eða nýmaskemmdir nokkmm dögum eða jafnvel vikum eftir inntöku eitursins. Þetta verður oft til þess að sjúkrahúsvistin verð- ur lengri en frískleiki bamsins gefur tilefni til. í áðumefndum bæklingi Slysa- vamafélagsins er að finna upplýs- ingar um það hvemig bregðast á við í hveiju einstöku tilviki, ef böm hafa slysast til að taka inn eitur- efni. Það er hinsvegar alltaf ömgg- ara að byrgja bmnninn áður en bamið dettur ofan í hann. Látum þess vegna af því verða að koma mögulegum eiturefnum og lyfjum heimilisins á ömggan stað, þar sem þau geta ekki orðið á vegi bam- anna. Höfundur er aérfræðingur í barnaiækningum og formaður Félags íslenskra bamaiækna. Helgi Óskarsson í annarri dvöl sinni á sjúkrahúsi prófessors Iliazarovs í Kúrgan i A-Síberíu, er lærleggir hans voru lengdir um 12 sm. EF myndin prentast vel sést greinilega sá útbúnaður sem notaður er við lenginguna. Lenging beina í útlimum: Eftirmeðferðin skiptir meginmáli 0 - segir Oskar Emarsson ÞAÐ VAR í april 1982 að þrett- án ára piltur, Helgi Óskarsson, hélt utan til Kurgan i Siberíu til meðferðar hjá sérfræðing- um sem lengja fólk, í þeirra orða bókstaflegu merkingu. Þessi fyrsta Síberuvist Helga stóð í ellefu stranga mánuði og fól í sér lífsreynslu sem enginn Norðurlanda- né Norður- Evrópubúi hafði gengið i gegn- um áður. Leggir beggja fóta voru lengdir um nálægt 18 sm. Síðan hélt Helgi heim og dvaldi hérlendis um eins árs skeið í eftir- meðferð og sérstakri þjálfun hjá heilsuræktarstöðinni Orkubót. í febrúar 1984 heldur Helgi í annað sinn í hendur prófessors Uiazarov í Kurgan. Og nú er hafist handa um að lengja lærleggi piltsins. Þeir em lengdir um nálægt 12 sm. Jafnframt er réttur neðsti hluti mjóhryggjar, sem þýðir tveggja sm lengingu til viðbótar. Helgi Óskarsson sem var 114 sm á hæð er hann hélt í fyrra sinnið utan, hefur nú náð 149 sm hæð. Það er árangur sem fór fram úr bestu draumum hans. En hann kostaði líka langa meðferð og stranga, sársaukafulla þjálfun dag hvem, sem jafngilti ftillum vinnudegi að tímalengd. Það er Óskar Einarsson, faðir Helga, sem fór með honum í austurveg, er segir frá. Hann fór enn með Helga hina þriðju ferðina í október sl. Áður hafði Helgi verið í aðgerð á mjöðm hjá Gunn- ari Þór Jónssyni, lækni á Borg- Óskar Einarsson, faðir Helga, aðstoðar við þjálfun lítillar stúlku sem gengið hefur í gegnum lengingu fótleggja. arspítala, og fjögurra mánaða æfingum á Grensásdeild. Að þessu sinni gekk vistin ytra í stöðugar æfingar, stranga þjálfun sem stóð frá því klukkan níu ár- degis til fímm síðdegis, með hléum til næringar. Þegar Helgi fór utan í þriðja sinnið gekk hann við tvo stafí. Hann hefur nú lagt þá til hliðar. Þjálfunin gekk út á það að byggja upp vöðva á leggjum og lærum. Næsta aðgerð og þrekraun sem Helgi Óskarsson gengur í gegnum er lenging á beinum upphand- leggja, sem ráðgerð er 10 sm. Ekki þótti ráðlegt að leggja í þá aðgerð nú eftir þá ströngu þjálfun sem nýafstaðin er. Sú tækni sem prófessor Iliazarov viðhefur við lengingu beina í útlimum, er í senn nýtt landnám í læknisfræði og nánast „kraftaverk" í augum þeirra er njóta, segjf- Óskar Ein- arsson, en eftirmeðferðin, sú stranga þjálfun er fylgir skiptir meginmáli um endanlegan árang- ur. Þar reynir fyrst og síðast á þann sem í gegnum þjálfunina gengur, þrek hans, þor og sálar- styrk. í því efni hefur Helgi Óskarsson sýnt hetjulund. Helgi er nú hér heima og á að hvflast, jafnhliða því að halda við tilteknum æfíngum, meðal annars daglegu stundi í laug Grensás- deildar. Eftir hæfílega hvíld, eitt til eitt og hálft ár, fer hann enn utan, ef allt gengur eftir áætlun og nú í lengingu beina í upp- handleggjum. Það er síðasti áfanginn á erfíðri vegferð sem vonandi breytir lífi viðkomandi til hins betra á marga vegu. Óskar Einarsson, faðir Helga, sagði blaðamanni frá fleiri að- gerðum í sjúkrahúsi prófessors Uiazarovs í Kurgan í Síberíu. í þá frásögn vafði hann eigin hug- myndum um líkur og möguleika á hliðstæðri læknisþjónustu hér heima. Sú frásögn birtist hér í blaðinu innan skamms. Frá búnaðarþingi: Varað við breytingum á grundval lar skipulagi BÚNAÐARÞING varaði við fljót- fæmislegri breytingu á gmnd- vallarskipulagi landbúnaðarins og taldi að slíkar breytingar þyrfti að undirbyggja vel og tryggja að þær verði til bóta. Benti þingið á nokkur atriði sem meðal annars þyrfti að hafa i huga við nánari umfjöllun þess- ara mála og fól milliþinganefnd um félagskerfi landbúnaðarins sem starfað hefur frá síðasta búnaðarþingi að starfa áfram og skila áliti til næsta búnaðarþings. Búnaðarþing benti á eftirfarandi atriði í þessu sambandi: 1) Huga þarf að náinni samvinnu þeirra stofnana, sem vinna að einstökum málaflokkum sem landbúnaðinn varða, svo sem framleiðslumálum, lánamálum, leiðbeiningum og rann- sóknum. 2) Efla þarf hagnýta til- raunastarfsemi og, að niðurstöður nái sem best til bænda. 3) Skil- greina þarf betur stöðu búgreinafé- laga og með hvaða hætti þau falli best inn í félagskerfíð. Benda má á, að með nýjum samþykktum Stéttarsambands bænda var sér- greinafélögunum gefin bein aðild að sambandinu. 4) Efla fræðslu á sviði nýrra búgreina og leita sam- vinnu við bændaskólana þar um. I ályktun búnaðarþings kemur fram að nokkuð skiptar skoðanir eru um það hverra og hve mikilla breytinga sé þörf til að mæta nýjum aðstæðum í framleiðslumálum og aukinni verkaskiptingu innan bændastéttarinnar. Fyrir þingið var lagt álit milliþinganefndar um fé- lagskerfí landbúnaðarins og kom skoðanaágreiningurinn þar skýrt fram. Annars vegar eru sjónarmið búgreinafélaganna sem vilja veru- legar breytingar á skipulaginu, meðal annars að leiðbeiningaþjón- ustan verði á vegum sérgreinafélag- anna til að tryggja eðliiegt og nauðsynlegt samstarf á milli leið- beinandans og þeirra sem hann á að starfa fyrir. Fram kemur að búnaðarsam- böndin telja leiðbeiningaþjónustuna víða í allgóðu lagi, sérstaklega hvað búfjárræktina varðar og núverandi fyrirkomulag og félagsform hindri ekki þá þróun sem verða þurfí á þessu sviði. í áliti milliþinganefndarinnar kemur fram að nefndin telur að leiðbeiningaþjónustan eigi að vera með svipuðu sniði og verið hefur og að hún verði áfram undir yfír- stjóm Búnaðarfélags íslands. Þá verði yfirstjóm rannsókna- og til- raunastarfseminnar áfram í hönd- um stjómar RALA. Þá kemur nefndin fram með hugmyndir um aukið samstarf eða tengsl þeirra stofnana sem vinna að einstökum málaflokkum er varða landbúnað- inn. Ekki eru þar þó viðraðar beinar tillögur um sameiningu stofnana eða sameiginlega yfírstjóm stofn- ana landbúnaðarins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.