Morgunblaðið - 12.03.1986, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR12. MARZ1986
Hrikaleiki Horabjargs lætur engan ósnortinn.
í ferð með
varðskipinu
Ægi
tækin. Siglingarhraði og tímalengd
á milli staða er ekki gefið upp þegar
varðskip á í hlut, en eftir fárra tíma
ísafirði, 26. febrúar.
Dagskipun fréttastjóra var að
fara með varðskipi til Hora-
bjargsvita og Galtarvita og vera
tilbúinn þegar gæslan léti vita.
Skilaboðin komu svo um að varð-
skip lægi út á Prestabugtinni
tilbúið að létta. Örfáum minútum
síðar var ég lagður af stað með
gúmmíbát skipsins, sem hlaðinn
var varaingi fyrir vitafólkið. fs-
hrafl var í Sundunum, en stjóra-
andi bátsins mjakaði bátnum með
gætni I gegn og innan stundar
vorum við komnir að hlið varð-
skipsins Ægis, sem var að létta
akkerum.
í brúnni stóðu skipherra Ólafur
Valur Sigurðsson og 1. stýrimaður
Friðgeir Olgeirsson, skipið jók ferð-
ina, þegar út úr Skutulsfírðinum
kom var stefnan tekin á Rit, skip-
herra gaf fyrirmæli um siglingu að
næsta áfanga og hvarf síðan af
vettvangi, en 1. stýrimaður tók við.
En bátsmaður stóð vörð við stjóm-
siglingu var siglt inn á leguna í
Látravík þar sem Hombjargsviti er
og þar varpað akkemm. Fréttarit-
Brottför undirbúin {náttmyrkri í fjörunni við Galtarvita.
Blessaður gaman að sjá þig aftur. Ragnar vitavörður og Friðgeir
1. stýrimaður takast í hendur.
Mæðgunum á Horabjargsvita þótti ósköp gott að fá konu í heimsókn.
Þær höfðu um nóg að ræða þá stuttu stund sem við stóðum við.
Hjónin á Galtarvita Jóna Benediktsdóttir og Henry Bæringsson ásamt
dætrunum Kristínu Þóru og Guðnýju Hörpu.
arinn og bryti skipsins, sem í þess-
ari ferð var ung stúlka úr Reykja-
vík, Þóra Davíðsdóttir, fengu far
með fyrstu ferðinni í land, en upp-
gangurinn úr flömnni og upp á
bakkann þar sem vitinn stendur var
tepptur vegna klakabanda og varð
að bíða eftir ísöxi og jöklabúnaði
frá borði, sem einn hásetinn, félagi
í hjálparsveit skáta, notaði til að
höggva þrep í klakavegginn.
Skipveijar og vitavörðurinn á
Hombjargsvita, Ragnar J. Halld-
órsson, gengu í að koma vömnum
upp úr fjörunni og bera hann til
bæjar. Á meðan spjölluðum við við
hina íbúa vitans, Álfhildi Benedikts-
dóttur, aðstoðarvitavörð og hús-
freyju og böm þeirra hjóna, Halldór,
Bjama Rafn og Guðrúnu Hildi. En
eins og alþjóð veit eftir þáttinn „Á
iiðandi stundu" þá sóttu þau hjónin
„Það var hér sem
Ingólfur steig á land“
— segja stj’órnarmeðlimir félagsins „í grófinni“
STOFNAÐ hefur verið félagið
„í Grófinni". Félagssvæðið nær
yfir Aðalstræti, hluta af Vest-
urgötu, Tryggvagötu og Hafn-
arstræti. Aðilar að félaginu
geta allir orðið sem stunda
atvinnurekstur eða aðra starf-
semi á svæðinu, en meðal
markmiða félagsins er að vekja
athygli á sögu, menningar- og
athafnalífi svæðisins, efla
mannlif og stuðla að fögru
umhverfi i samráði við Borgar-
skipulag. - •
Félagiðvar stofnað-20. febrúar
•csl.' af-20 verslunum, fyrirtækjum
og eigendufh fasteigna, að fmm-
kvæði 'Einars Egilssonar. Fimm
manna stjóm hefur verið kosin
og eiga sæti í henni Haraldur
Theodórsson frá versluninni
Geysi, en hann er jafnframt for-
maður, Gerður Hjórleifsdóttir frá
íslenskum heimilisiðnaði, Kolbrún
Björgólfsdóttir frá Koggu, Wemer
Rasmusson frá Ingólfs Apóteki
og Þórður Þórisson frá SS matar-
deild. Á fundi með stjórn félagsins
kom fram áhugi á að vekja þetta
svæði aftur til vegs og virðingar,
en það mun hafa verið í Grófínni
sem Ingólfur Amarson steig á
land með íöraneyti'sfnu. Segja
má að raíðpunktur Reykjavíkur
sé þar sem gamla' GrÖfín var og
svaeðiðraái yfírkjama kaupstaðar-
ins 1786. Þarér að fínna elstu
verslunarlóð Reykjavíkur " og
svæðið hefur að 'geyma tveggja
alda sögu þjóðlífs og atvinnumála
Reykjavíkurkaupstaðar.
Stjóm félagsins í Gróflnni. Frá vinstri Weraer Rasmusson frá Ingólfs Apóteki, Gerður HjÖrleifs-
dóttir frá íslenskum heimilisiðnaði, Haraldur Theodórsson frá Versl. Geysi, Þórður Þórisson frá
SS matardeild, Kolbrún Björgólfsdóttir frá Koggu og Einar Egilsson framkvæmdastjóri félagsins.