Morgunblaðið - 12.03.1986, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 12.03.1986, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR12. MARZ 1986 25 AfvSImamynd. Duvalier í ótlegð Jean Claude Duvalier, fyrrum forseti Haiti, ásamt konu sinni og einu barna þeirra á verönd hins nýja útlegðarheimilis þeirra í hæðunum nærri þorpinu Grasse á frönsku Rivierunni. Ray Milland látinn Kalif orníu, 11. mars. AP. Kvikmyndaleikarinn Ray Mil- land er látinn. Hann lést í dag, mánudag, úr krabbameini, 78 ára að aldri. Hann lék í um 150 kvik- myndum og hlaut Óskarsverð- launin fyrir leik sinn í myndinni „The Lost Weekend", árið 1945, þar sem hann lék drykkfelldan rithöfund. Milland fæddist 3. janúar 1908 í Wales, sonur eftirlitsmanns í stál- vinnslu. Ray Milland var sviðsnafn hans, en réttu nafni hét hann Reginald Truscott-Jones. Hann eignaðist eina dóttur bama og lifír kona hans hann. Milland lék allt fram á síðustu ár. Meðal þekktra mynda hans má nefna Hitchcock myndina, „Dial M for Murder" og „Love Story“ og framhald þeirra myndar, ep þar lék hann föður aðalsöguhetjunnar. Þá leikstýrði hann einnig nokkrum myndum. Of saveður í þremur fylkium New York, 11. mars. AP. HVIRFILBYLJIR og vindar fóru með allt að 145 km. vindhraða yfir fylkin Indiana, Kentucky og Ohio í Bandarikjunum á mánu- dag með þeim afleiðingum að a.m.k. fimm manns fórust og sjötíu slösuðust. Bandaríska veðurstofan sagði að 21 hvirfilbylur hefði geysað og a.m.k. fimmtán haft viðkomu í Indiana. Mörg þúsund manns sátu uppi rafmagnslausar vegna veðurofsans og tugir flugvéla á flugvellinum í Cinncinnati í Ohio eyðilögðust. Bóndi nokkur í Kentucky ætlaði að halda þaki hlöðu sinnar niðri með keðju og lést þegar þakið fauk af. Feyktist maðurinn 24 metra í keðjunni. Bretland: Bæj ar slj ór nar mönnum bannað að gegna opin- beru starf i næstu 5 ár London, 11. mars. AP. DÓMSTÓLL í London bannaði á fimmtudag áttatíu og einum bæjarstjórnarmanni, sem allir eru í breska Verkamannaflokkn- um, að sitja í opinberu embætti næstu fimm ár. Þessi dómur var felldur vegna þess að hlutaðeig- andi aðiljar neituðu að setja á eignarskatt. Dómaramir þrír, sem dæmdu í málinu, höfnuðu einnig áfrýjun um að fellt yrði niður aukagjald að andvirði 230 þúsund sterlings- punda, sem endurskoðendur sögðu að bæjarstjómarmennimir ættu að greiða úr eigin vasa til að standa straum af kostnaði vegna tafar á álagningu eignaskattsins. Umræddir menn sitja í bæjar- stjóm Lambeth hverfis í London og bæjarstjóm Liverpool. Þeir neituðu að hlýða fyrirskipunum ríkisstjóm- ar Margrétar Thatcher um að lækka eignaskatt niður fyrir mörk, sem sett vom með nýrri löggjöf. Bæjar- og sveitastjómir á Bret- landi afla rekstrarfjár með inn- heimtu eignaskatts og fá einnig fjárframlög frá stjóminni. Lögum samkvæmt eiga þær að setja eigna- skatt árlega. Ríkisstjómin hélt því fram að eignaskattur væri of hár víða um Bretland og væri húseigendum og umsýslumönnum of þung byrði. Uppreisnarmennimir vom ekki sammála og til að sýna andstöðu sína ákváðu þeir að setja ekki á eignaskatt. Þeir vonuðust til að geta þvingað stjómina til að koma til fjárhagslegrar hjálpar ef bæjar- stjómimar yrðu gjaldþrota. Áður en svo fór felldu aðrir bæjarstjóm- armenn uppreisnarmennina með atkvæðum sínum og að lokum var settur á eignaskattur í Lambeth og Liverpool. Dómaramir sögðu að hinir ákærðu hefðu gerst sekir um „vís- vitandi óstjóm" er þeir vanræktu að setja á eignaskatt 1. apríl á síð- asta ári. Mennimir áttatíu og einn hafa tuttugu og átta daga til að áfrýja dóminum, sem einnig kvað á um að þeir ættu að greiða fjögur hundr- uð þúsund sterlingspund í máls- kostnað ofan á viðbótarsektina. Einn þeirra, sem vom dæmdir, er Derek Hatton, varaformaður bæjarstjómarinnar í Liverpool. Hann á á hættu að verða rekinn úr Verkamannaflokknum fyrir að vera í fygjum við harðlínuhóp vinstri manna, sem nefnir sig „Militant Tendency". Hann sagði eftir að dómurinn var kveðinn upp að upp- reisnarmennimir hefðu verið sekir fundnir „fyrir að skapa fólki at- vinnu, reisa hús og halda niðri leigu". JacobK. Javits látinn Washington, 11. marz. JACOB K. Javits fyrrum þing- maður frá New York er látinn, á 82. aldursári. Javits lézt á sjúkrahúsi á Vest- ur-Pálmaströnd á Flórídaskaga eftir erfíða sjúkdómslegu. Hann þjáðist af svokallaðri Lou Gehrigs-veiki. Javits var þingmaður í fulltrúa- deildinni frá 1947 til 1955 og öldungadeildarmaður frá 1957 til 1981. Hann var saksóknari New York ríkis 1955 til 1957. Javits var mikill áhrifamaður á sviði utanríkismála, en einnig lét hann félagsmál mikið til sín taka. Jacob K. Javits Hann átti við alvarleg veikindi að stríða um árabil; var bundinn við hjólastól og varð að styðjast við öndunarvél. Artemis FERMINGAR- NÁTTKJÓLAR léttir og nýtískulegir náttkjólar. Margir litir - mikið úrval. k Náttfatnaður fyrir allan aldur. uœsmewian Glæsibæ Z/ Álfheimum 74 s: 33355 COMBI CAMP hefur góöa lokun á öllum samskeytum vagns og tjalds er eykur enn á notagildi við erfið skilyrði. COMBI CAMP er rúmur og þægilegur fjölskylduvagn er hentar vel til ferða- laga hvar sem er. COMBI CAMP er á hagstæðu verði og kjörum. Hafið samband. Sjón er sögu rikari. COMBI CAMP er lausnin aö vel- heppnuöu sumarleyfi, veiðiferð eða heimsókn til fjarstaddra vina og vandamanna. COMBI CAMP er ein fljótlegasta lausnin á tjöldun er býðst. Aðeins 15 COMBI CAMP hefur trógólf í svefn- og íverurými er dregur úr jarðkulda og raka. Benco hf Bolholti 4. Simi: 91-21945.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.