Morgunblaðið - 12.03.1986, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR12. MARZ1986
Hver mun stjóma Frakklaudi
eftir þingkosningarnar 16. mars?
eftir Torfa H.
Tulinius
Hér í Frakklandi efast nú fáir
um að stjómarandstaðan nái
meirihluta atkvæða i kosningun-
um á sunnudaginn kemur. Laug-
ardaginn 8. mars komu út síðustu
skoðanakannanir sem birta má
fyrir kjördag, en þær benda
eindregið til þess að stjóraarand-
stöðuflokkarnir þrír, RPR,
flokkur Gaullista undir stjórn
Jacques Chirac, UDF, flokkur
Giscard D’Estaing fyrrverandi
forseta, og Front National, hægri
öfgaflokkur, hljóti samanlagt um
54% atkvæða. Þó svo að vinstri
flokkarnir hafi heldur bætt stöðu
sina á undanföraum vikum, eink-
um Sósíalistaflokkurinn sem nú
situr einn að völdum, er fátt sem
bendir til þess að samanlagður
atkvæðafiöldi þeirra verði meiri
en 44%. I rauninni er þetta sú
útkoma sem flestir hafa búist við
síðan kosningabaráttan hófst,
nema ef vera skyldi að fylgi sós-
ialista hefur talsvert aukist á
undanförnum vikum og þeir
munu þess vegna hafa áfram
stærsta þingflokkinn.
Tvískipt f ramkvæmdavald
Eina sem gæti breytt útkomunni
sem skoðanakannanimar gefa til
kynna er frammistaða núverandi
stjómar í máli frönsku gíslanna i
Beirút, en ómögulegt er að segja
fyrir um áhrifin sem þau kunna að
hafa. Á hinn bóginn er ýmislegt
annað spennandi við þessar kosning-
ar. í því sambandi ber fyrst og
fremst að nefna að sigri stjómarand-
staðan verður hið tvískipta fram-
kvæmdavald sem gert er ráð fyrir í
stjómarskrá franska lýðveldisins í
fyrsta skipti ekki í höndum eins
skoðanahóps í stjómmálum. Forsæt-
isráðherra sem fer með fram-
kvæmdavald í umboði þingsins og
ætti samkvæmt því að veljast úr
röðum hægri manna eftir kosningar,
mun þurfa að starfa með vinstrisinn-
uðum forseta sem fer með hluta
framkvæmdavaldsins. Forsetinn er
þjóðkjörinn og kjörtímabil hans
rennur út eftir tvö ár. Þetta er hin
fræga „sambúð" hægri og vinstri á
vaidastólunum sem hefur verið á
allra vöram á síðustu mánuðum og
sem hefur valdið frönskum stjóm-
málamönnum heilabrotum og hugar-
angri. Stjómarskrá fímmta lýðveld-
isins, sem var sniðin að þörfum de
Gaulle á sínum tíma, er afar óljós
hvað varðar verkaskiptingu forseta
og forsætisráðherra. Forsetinn velur
forsætisráðherrann en sá sem verður
fyrir valinu þarf að njóta stuðnings
meirihluta þingmanna til að geta
stjómað.
Fram að þessu hefur aldrei reynt
á þennan veikleika í stjómarskránni
því forsetinn hefur alltaf verið leið-
togi þingmeirihluta og ekki þurft að
hafa áhyggjur af að þingið hafnaði
þeim forsætisráðherra sem hann
tilnefndi.
Hægri og vinstri
í „sambúð"
Raunar hefur Jacques Chirac,
núverandi borgarstjóri Parísar og
leiðtogi Gaullista, gert tilkall til
starfsins. Jafnframt því hefur hann
lýst yfir því að hann ætli sér að
framfylgja stefnu sinni hvað svo sem
forsetanum kunni að fínnast. Þar
með ætlast hann til af Mitterrand
að hann takmarki umsvif sín til
muna. Hinn síðamefndi hefur hins
vegar lýst yfir því að hann vilji
vemda það sem hefur áunnist í
stjómartíð flokks hans, einkum á
sviði utanríkis- og félagsmála. Þar
sem forsetinn getur gert ríkisstjóm-
inni erfitt fyrir með því að neita að
undirrita lögin er óneitanlega tals-
verð hætta á stjómarkreppu.
Mitterrand er annálaður bragða-
refur í stjómmálum og margir telja
að hann muni reyna að vemda vald-
svið sitt með öðram hætti. Komið
hefur til tals að hann velji til forsæt-
isráðherraembættisins einhvem
minni spámann úr röðum hægri
manna. Sá myndi fallast á að eftir-
láta forsetanum ákveðin völd, t.d. i
utanríkismálum, gegn þvf að hreppa
stólinn. Þingmenn tilvonandi meiri-
hlutans myndu tæpast geta hafnað
manni úr eigin hóp, þó svo það
væri ekki leiðtogi stærsta fiokksins,
og sérstaklega ef hann værí einnig
virtur stjómmálamaður með reynslu
af því að fara með völdin. Einkum
hafa tveir verið nefndir f þessu
sambandi, Valery Giscard D’Esta-
ing, fyrrverandi forseti og Jacques
Chaban Delmas sem var forsætis-
ráðherra Georges Pompidou á sfnum
tíma. Ólíklegt er talið að þeir hafni
ef Mitterrand byður þeim embættið.
Á Mitterrand að víkja?
Ýmsir hafa hvatt Mitterrand til
að segja af sér tapi vinstrimenn í
kosningunum. Þar ber mest á Raym-
ond Barre fyrrverandi forsætisráð-
herra sem nýtur mikillar hylli um
þessar mundir sem væntanlegur
forsetaframbjóðandi. Hann er á
þeirri skoðun að yfirvofandi sigur
stjómarandstöðunnar sé dómur
Francois Mitterrand
þjóðarinnar yfir stjómarstefnu Mit-
terrands og því eigi hann að víkja,
sérstaklega þar sem hann hefur
tekið virkan þátt í kosningabaráttu
sósíalista. Á móti segja forsetinn.og
stuðningsmenn hans að enginn
ástæða sé fyrir því að maður úr
stærsta stjómmálaflokknum verði
ekki áfram forseti.
Nýleg skoðanakönnun gefur til
kynna að meirihluti þjóðarinnar
æskir þess að Mitterrand sitji áfram
í forsetastólnum og velji sér forsæt-
isráðherra. Flestir telja eðlilegast að
hann tilnefni leiðtoga stærsta stjóm-
arandstöðuflokksins, það er að segja
Chirac, en viðurkenna þó að hann
hafi fullan rétt á að velja einhvem
annan.
Jacques Chirac virðist gera sér
grein fyrir því að málin geti þróast
á þennan hátt og hefur forðast að
vera of harðorður í garð Mitterrand.
T.d. hefur hann netiað að gera mál
frönsku gíslanna í Beirút að kosn-
ingamáli. Einnig hefur hann þver-
tekið fyrir það að um nokkurt sam-
starf geti orðið milli hans og hægri
öfgaflokksins Front National og leið-
toga hans Jean-Marie le Pen. Þannig
hefur hann komið í veg fyrir að
hægt væri að væna hann um að
hafa samúð með hægri öfgastefnu.
Á þennan hátt hefur hann þokast
nær miðju í hugum kjósenda og sýnt
þeim að sambúð þeirra Mitterrands
er ekki eins fráleit og hún gat virst
fyrir rúmu ári sfðan.
Hægriöfgar
Vaxandi fylgi Front National er
eitt athyglisverðasta nýmælið í
frönskum stjómmálum á sfðustu
áram. í kosningunum til Evrópu-
þingsins 1984 hlaut flokkur le Pen
um 11% atkvæða. Nú virðist fylgi
hans hafa staðnæmst í kringum 8%.
Þó það sé minna en áður nægir það
Jaques Chirac
til þess að koma í veg fyrir að núver-
andi stjómarandstöðuflokkar fyrir
utan kommúnista geti myndað þing-
meirihluta án stuðnings hans. Ef
kosningasigur þeirra er ekki eins
mikill og búist er við verða þeir að
velja á milli samstarfs við le Pen eða
vera liprari í sambúðinni við Mitter-
rand.
Ný kosningalög
Margir hafa álasað Mitterrand og
sósialistum hans fyrir að gera Front
National kleift að komast á þing
með því að breyta kosningalögunum.
Fram að þessu hefur landinu verið
skipt niður í einmenningskjördæmi
og ef enginn frambjóðenda hefur
náð hreinum meirihluta í fyrstu
umferð hefur verið kosið um tvo
efstu menn í annarri umferð. Alls
kyns samningar hafa þá átt sér stað
milli hinna ýmsu flokka um hver
eigi að styðja hvem í ananrri um-
ferð. Heildarútkoman hefuryfirleitt
verið á kostnað minni flokkana.
Þannig hafa sósíalistar haft hreinan
meirihluta á fráfarandi þingi að þeir
fengu ekki nema um 40% atkvæða
í síðustu þingkosningum. Nýja kosn-
ingafyrirkomulagið gerir ráð fyrir
listakosningum á grundvelli sýslu-
skiptingarínnar. Fjjöldi þingmanna
eins flokks frá einni sýslu er miðaður
við hlutfall kjósenda hans.
Markmið þessara breytingar á
kosningalögunum var að þingið
endurspeglaði betur en áður vægi
hinna ýmsu skoðanahópa f landinu.
Hins vegar hefur hún þann ókost
að hleypa ýmsum öfgahópum inn á
þing og gera hefðbundnu flokkunum
erfiðara að mynda starfhæfan meiri-
hluta.
Hver verður
forsætisráðherra?
Það er út af þessu síðasta atríði
sem ekki er alveg hægt að útiloka
að næsti forsætisráðherra Frakk-
lands verði aftur valinn úr hópi
sósíalista. Ef sigur stjómarandstöð-
unnar er ekki eins afgerandi og
búast má við, getur henni reynst
erfitt að mynda starfhæfa ríkis-
stjóm. Til að forða landinu frá
stjómleysi, gætu hægri flokkamir
séð sig neydda til að samþykkja að
minnihlutíistjóm sósíalista sitji að
völdum fram að forsetakosningun-
um sem eiga að fara fram innan
tveggja ára.
Biðstaða eða nýtt skeið?
Hvað sem verður er ljóst að
sunnudaginn 16. mars kemur upp
eirskonar biðstaða í frönskum
stjómmálum. Forsetakosnmgamar
era ofarlega í hugum margra og
öllum væntanlegum frambjóðendum
er kappsmál að bregðast ekki kjós-
endum í þeim. Næsti forseti, hvort
sem hann verður hægri eða vinstri
maður, mun sennilega leysa upp
þingið sem nú er verið að kjósa og
efna til nýrra kosninga til að tryggja
stjóm sinni starfsfrið. Þá verður
þessu tímabili „sambúðar" væntan-
lega lokið f bili.
Að lokum má bæta þvf við að
ekki era allir óánægðir með að
vinstri og hægri flokkamir neyðist
til að starfa á einhvem hátt san.an
á næstu misseram. Það hefur lengi
verið einkenni á frönskum stjóm-
málum að miðjuflokkar, sem oft
gegna lykilhlutverki í öðram löndum,
era varla til hér. Þjóðinni hefur verið
skipt í tvær næstum jafnar fylking-
ar. Hægri og vinstri. Það hefur lengi
verið draumur margra (t.d. Giscard
og Mitterrand) að sameina þá úr
hvoram hóp fyrir sig sem era í reynd
sammála um grundvallaratriði í
stjómmálum. í þeim hóp væri yfir-
gnæfandi meirihluti kjósenda. Ef til
vill er þessi draumur að einhveiju
leyti að rætast nú þegar forseti úr
hópi vinstri manna og forsætisráð-
herra af hægri kantinum neyðast til
að starfa saman. Ekki sakar að
hagstefnan sem sósfalistar hafa
rekið undanfarín þijú ár er ekki svo
ýlq'a frábragðin þeirri stefnu sem
hægri flokkamir ætla sér að fram-
fylgja.
samkvæmt þeim sem dreymir um
að frönsk stjómmál verði ekki lengur
svona klofin milli vinstri og hægri,
munu þingkosningamar á sunnu-
daginn ekki aðeins vera byijunin á
skammvinnu millibilsástandi, heldur
upphafið að nýju skeiði í frönskum
stjómmálum, þar sem hægri og
vinstri miðjumenn munu skiptast á
að fara með völdin.
Höfundur er fréttaritari Morg-
unblaðsins íParís.
Fermingartilboð
Vegna hagstæðra innkaupa og lækkunar
á innkaupsverði hráefnis hefur
MatborðiA sf ákveðið að láta
viðskiptavini sína njóta góðs af.
Þess vegna gefum við
5% afslátt
Vinnudeila TWA og flugþjónustufólks:
Nýliðar ganga í störf
þeirra sem eru í verkfalli
New York, U.mars. AP.
BANDARÍSKA flugfélagið
Trans World Airlines tilkynnti
fargjaldalækkun á sunnudag og
bætti við nokkrum ferðum í stað
þeirra, sem felldar höfðu verið
niður. Flugþjónustufólk, sem er
f verkfalli, kvað flugvélstjóra
virða verkfallið, og mundi það
flýta fyrir nýjum viðræðum til
lausnar deilunni, sem nú hefur
staðið f fimm daga.
í gær fór fram yfírheyrsla fyrir
alríkisdómstóli f Kansas um þá
kröfu flugfélagsins, að bráða-
birgðaúrskurður verði kveðinn upp
til að neyða um 10.000 félaga í
samtökum vélstjóra til að hverfa
afturtil vinnu.
Á föstudag hafhaði héraðsdómur
þessari kröfu flugfélagsins.
TWA hefur gripið til þess ráðs
að láta um 1.500 nýliða og jafn-
marga ófélagsbundna starfsmenn
ganga tímabundið inn í störf þeirra,
sem eru í verkfalli.
TWA vill skera niður laun og
fríðindi flugþjónustufólksins um
22% og lengja vinnutíma þess um
tvær klukkustundir á viku. Stéttar-
félag þess kveðst geta fallist á 15%
lækkun vegna flárhagsþrenginga
flugfélagsins af völdum aukinnar
samkeppni, en hafnar kröfunni um
vinnutímalengingu.
Tékkóslóvakía:
Flóttinn kostaði mannslíf
Prag, Tékkóslóvakfu, 2. mars. AP.
TVEIR ungir menn reyndu
fyrir nokkru að flýja frá
Tékkóslóvakíu í vélknúnum
flugdreka, en flóttanum lauk
með þvi að drekinn hrapaði.
Lést annar maðurinn og hinn
náðist.
Tékkneska blaðið Svoboda
skýrði frá þessum atburði en ekki
hvenær eða hvar hann hefði gerst.
Var sagt, að mennimir, sem báðir
voru um þrítugt, hefðu ætlað að
komast á vélknúnum flugdrekan-
um inn í Austurríki nærri Bmo,
en hann hrapaði þegar vír flæktist
í hreyfílspöðunum. Slasaðist ann-
ar mannanna svo mikið, að hann
lést af sárum sfnum í sjúkrahúsi.