Morgunblaðið - 12.03.1986, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR12. MARZ 1986
37
Þorvaldur Axelsson ásamt Hös kuldi Einarssyni og Þóri Gunnarssyni.
Stykkishólmur:
Berserkjum gefin
ný leitarbifreið
Gagnlegt öryggismálanámskeið fyrir sjómenn
Stykkishólmi, 2. mars.
BJORGUNARSVEITIN Berserk-
ir hefir um þessar mundir starf-
að í 11 ár og starf hennar verið
mikið. Margir hafa orðið til að
leggja þessari góðu starfsemi lið.
Bæði klúbbar og svo hefir
hreppsnefnd Stykkishólms stutt
starfsemina verulega og kunnað
að meta þessa starfsemi. Um
áramótin fékk félagið verulega
góða bifreið tíl starfseminnar,
er þetta Mercedes Bens bifreið
árgerð 1973, en alveg ný upp-
gerð og í góðu ástandi, tekur 16
manns og er útbúin með drifi á
ölhim hjólum, svonefnd fjallabif-
reið og er ekki vafi á að hún
mun koma að góðum notum og
auka um leið starfsgrundvöll
sveitarinnar.
Nú hefír björgunarsveitin gengist
fyrir öryggismálanámskeiði fyrir
sjómenn og til þess fengið Slysa-
vamafélag íslands í lið með sér og
sendi það kunnáttumann Þorvald
Axelsson, en hann er erindreki
þeirra. Stóð þetta námskeið í 3
daga og var mjög viðamikið og
vandað námskeið. Farið var yfír
allskonar björgunarstarfsemi, með
björgunarbátum og þyrlum og hjálp
í viðlögum. Hafði Þorvaldur með
sér ýmis hin nýjustu tæki til að sýna
skyggnur og svo kvikmyndir. Var
sýning og starfsemi björgunarbáta
sýnd í höfninni. Aðsókn að þessari
ágætu sýningu og björgunar- og
öryggismálanámskeiði var mjög
sæmileg, en hefði mátt vera betri.
Ég fylgdist með þessu námskeiði
og var mjög hrifínn af því. Sérstak-
lega hversu vel var tekið í gegn
hinir minnstu smámunir sem þó
geta haft síðan örlagaríkustu áhrif.
Hversu þróun björgunarmála er ör
og ný og ný tæki bætast og reynsla
liðinna ára hefír kennt þeim sem
að þessum málum vinna margt.
T.d. var mjög rækilega farið yfír
leit í misjöftiu veðri og við misjafnar
aðstæður, farið yfír notkun blysa
og ljósa, talstöðva og neyðarsenda.
Farið yfir fyrstu viðbrögð losun
björgunarbáta og sýnt hvemig
rekakkeri virka og eins mönnum
kennt á auðveldan hátt að komast
um borð. Ég gat ekki séð annað
en þetta námskeið hefði hver einasti
sjómaður þurft að sækja.
Þá voru í fylgd með Þorvaldi
tveir menn, þeir Höskuldur Einars-
son úr slökkviliði Reykjavíkur og
Þórir Gunnarsson úr slökkviliði
Keflavíkurflugvallar. Þeir sýndu
ýmsan slökkvibúnað og hvemig
ætti að bregðast við eldsvoða og
slökkva eld. Sýndu ný tæki og
aðferðir enda mikil þróun þessara
mála. Kveiktur var eldur og slökkt-
ur og einnig var sýnd reykköfun
og hvemig best væri að standa að
henni. Slökkviliðið í Stykkishólmi
var mætt og ræddu komumenn við
það og sýndu myndir og leiðbeindu
og svöruðu spumingum.
Námskeiðið var einnig bóklegt
og flutt erindi og fyrirspumir leyfð-
ar, rifjuð upp ýmis atvik, ræddir
skipsskaðar undanfarinna ár aog
sérstaklega rætt um hvemig hefði
Sýndur var ýmis slökkvibúnaður
mátt afstýra hinum ýmsu slysum.
Erindi þessi vom fróðleg og vom
björgunarsveitarmenn og þeir sem
á þessu námskeiði vom sammála
um að námskeiðið hefði komið að
miklum notum og svo einnig má
geta þess að svona námskeið hafa
líka örvandi áhrif á starfíð og
hleypa nýju blóði í þá sem að þess-
um málum starfa. Það fer ekki á
milli mála sagði einn af forystu-
mönnum Berserkja mér að nám-
skeið sem þessi gera mikið gagn
og við stefnum að því að koma líku
námskeiði hér á í haust og vonumst
þá til að þátttaka verði almenn,
því við teljum að þessi fræðsla
megi ekki fara framhjá neinum,
því maður veit ekkert hvað fram-
undan er né hver þarf næst á aðstoð
að halda.
Hólmarar þakka þessum góðu
gestum komuna og vita að gott eitt
mun af ferð þeirra leiða.
-Árni
ORYGGIÐ
í fyrirrúmi!
Kynningardagur á
Selfossi
fimmtudaginn 13. marz
Skóbúð Selfoss
Kl. 14—18
Einstaklingar — Fyrirtæki
Komið og kynnið ykkur
öryggisvörur okkar
díyM J mmi i
Skeifan 3h - Sími 82670
Beckers
SÆNSKA
GCDAMALNINGIN
GLÆSILEGT LITAÚRVAL í MÁLNINGU OG LÖKKUM
Vörumarkaðurinn hl.
ARMULA 1a