Morgunblaðið - 12.03.1986, Side 40
40
MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR12. MARZ1986
Á franskri kynningu
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
NÚ ERU tveir dagar eftir af
kynningu á frönskum kvik-
myndum í B-sal Regnbogans.
Þar hefur mönnum staðið til
boða að Uta á gott úrval
franskra mynda eftir leikstjóra
eins og Jean Renoir, René Cla-
ir, Costas Gavras, Claude Saut-
et og C. Autant-Lara svo ein-
hveijir séu nefndir.
Sýndar eru tvær myndir eftir
Renoir, báðar frá árinu.1936. Það
eru Glæpur hr. Lange (Le crime
de Monsieru Lange) og Undir-
heimar (Les bas-fonds). Á þeim
tíma sem Renoir gerði myndimar
voru þjóðfélagslegar ádeilur hans
helstu viðfangsefni. Glæp hr.
Lange gerði hann f samvinnu við
leikhópinn Groupe Octobre, sem
var hópur róttækra vinstri manna,
en I myndinni hvatti Renoir til
stofnunar sameignarfélaga og
samstöðu verkafólks gegn hinum
illa kapftalisma.
í Glæp hr. Lange setur hann á
fót e.k. alþýðudómstól á sveita-
krá, sem Lange flýr á með elsk-
unni sinni, Valentine, eftir að
hafa framið morð. Kráargestimir
verða að ákveða hvort þeir eigi
að framselja Lange til lögreglunn-
ar en fyrst hlusta þeir á söguna
um glæp hans.
Lange er ungur maður, sem
hefur gaman af að skrifa sögur
úr villta vestrinu. Hann vinnur
hjá gerspilltum prentsmiðjueig-
anda sem er skuldum vafinn,
undirforull svikahrappur og
kvennabósi. Eigandinn neyðist til
að flýja lánardrottna sfna og skil-
ur prentsmiðjuna eftir í höndum
verkamannanna. Þeir stofna
sameignarfélag um rekstur henn-
ar og gengur allt í haginn, Sögur
Lange seljast eins og heitar lumm-
ur og hann verður ástfanginn af
Valentine. En þá dregur ský fyrir
sólu. Eigandinn illi snýr aftur og
ætlar að taka prentsmiðjuna af
verkafólkinu. Lange getur ekki
hugsað sér að láta það gerast og
skýtur hann.
Verkamennimir á kránni eru
ekki lengi að kveða upp úrskurð
sinn og Lange og Valentine halda
áfram ferð sinni.
í myndinni Undirheimar er
þjófurinn Pepel aðalsöguhetjan.
Árðræninginn illi er gamall og
forljótur karlfauskur sem hýsir
þjófa og kemur þýfi þeirra í verð.
Stúlkan hans Pepels heitir Natac-
ha og besti vinur hans er gjald-
þrota barón sem Pepel kynntist
þegar hann ætlaði að ræna hann.
Baróninn var orðinn dauðleiður á
heldrimannalífinu og kann vel við
sig á meðal öreiganna. En Pepel
er leiður á þjófnaði og einn daginn
þegar gamli karlfauskurinn er að
lumbra á Natacha, tryllist Pepei
úr bræði og drepur hann. Og
þegar hann hefur afplánað sinn
dóm byija þau Natacha nýtt líf.
Renoir byggði þessa mynd sína
á leikriti eftir rússneseka skáldið
Maxim Gorki, sem sagði sjálfur
um leikrit sitt: „Ekkert gerist_
þetta er allt andrúmsloft ...
ekkert nema andrúmsloft."
Löggusaga (Flic Story) er frá
1975 en leikstjóri hennar er Jacq-
ues Deray. Með aðalhlutverkin í
henni fara Alan Delon og Jean-
Louis Trintignant. Löggusaga
segir frá leit lögreglunnar að
geðsjúkum morðingja. Hún er á
margan hátt lík gömlu amerísku
gangstermyndunum: bílaeltinga-
leikir um nótt, ískur í hjólbörðum,
síðir frakkar og gæjalegir hattar,
bófagengi og forhertar píur.
Sögusviðið er París um miðjan
sjötta áratuginn. Bomiche (Delon)
er besta löggan í bænum. Blöðin
kalla hann súperlöggu enda hefur
hann leyst mörg af erfiðustu
málum lögreglunnar. Hann keðju-
reykir, er öruggur með sig, hroka-
Renoir
fyrir dauða hennar. En syninum
góða tekst að sigrast á öllum sfn-
um vandamálum og hefla nýtt líf.
Hann sættist við föður sinn, stúlk-
an hans fer í meðferð og hann fær
gott starf. Allt er gott sem endar
vel.
Clair de femme heitir mjmd
Costas Gavras (Missing) á
frönsku kynningunni. Hún er frá
1979 en með aðalhlutverkin f
henni fara Yves Montand og
Romy Schneider. Myndin er um
tvær einmana og sorgmæddar
sálir í leit að ást og vináttu. Hann
er Michel Forlain. Hún er Lydia
Towarski. Þau hafa ekkert að lifa
fyrir lengur, hún missti dóttur
Sam Neil og Jodie Foster í hlutverkum sínum i myndinni Blóð
annarra.
Blóð annarra
Delon
Scneider
fullur og fyndinn er innst inni er
hann ljúftnenni hið mesta. Það
sama verður ekki sagt um helsta
keppinaut hans, Buisson. Hann
hefur sloppið úr fangelsi og
Bomiche er auðvitað falið að ná
honum aftur. Buisson er sam-
viskulaus morðingi, sem drepur
meira af ánægju en nauðsyn.
Hann er ekki lengi að hóa saman
í bófaflokk og fer um rænandi og
myrðandi en um síðir er hann þó
króaður af og súperlöggan ber
sigur úr býtum.
Löggusaga er ekkert þræl-
spennandi mynd en hún er engu
að síður mjög skemmtileg, létt og
hröð og kómísk og Alan Delon
og Trintignant eru eins og fæddir
í hlutverk sín.
Vondur sonur (Un mauvais
files) eftir Claude Sautet er frá
1980 og segir frá ungum manni,
sem snýr aftur til Frakklands eftir
að hafa afplánað dóm fyrir eitur-
lyflasölu í Bandaríkjunum. Hann
er staðráðinn í því að hætta fyrra
lífemi sínu og byija upp á nýtt.
Myndin gæti allt eins heitið
Góði sonurinn því ekki er til í
honum nokkur vonska, þvert á
móti er hann hvers manns hug-
ljúfi. Móðir hans dó á meðan hann
var í burtu og faðir hans kennir
lífemi sonarins og brottför um
dauða hennar. Leiðir skilja með
þeim feðgum. Sonurinn verður
ástfanginn af Catherine, sem
vinnur með honum í bókabúð en
hún er eiturlyfjaneytandi og á
erfitt með að hætta í dópinu. Útlit-
ið er því býsna svart og ekki
batnar það þegar hann kemst að
því að faðir hans hélt lengi fram
hjá konu sinni og að það hafí flýtt
Montand
sína í árekstri, hann hjálpaði hel-
sjúkri konu sinni að deyja. Lífið
er þeim tilgangslaust, auðn og
tóm þar til þau hittast af tilviljun
á götu í París
Myndin er ekki eins dapurleg
og hún virðist. Hún er oft fyndin
og er það sérstaklega Montand
að þakka, sem fer á kostum f
hlutverki hins lífsleiða Folains.
í dag verða þessar myndir
sýndan Vondur sonur kl. 15.00,
Clair de femmé kl. 17.15, Glæpur
hr. Lange kl. 19.00, Herbergi í
bænum eftir Jacques Demy kl.
21.00 og L’écume des jours eftir
J. Belmont kl. 23.00. A morgun
verða þessar myndir sýndar: Flic
Story kl. 15.00, Herbergi í bænum
kl. 17.00 (var sýnd á kvikmynda-
hátíð 1983), Þögnin er gull eftir
René Clair kl. 19.00, Glæpur hr.
Lange kl. 21.00 og Clair de femme
kl. 23.00.
Til eru nokkur dæmi þess að
sjónvarpsmyndaflokkur eða
„mínísería“ hafi verið stytt í
bíómynd. Slíkar styttingar eru
sjaldan til nokkurrar ánægju.
The Blood of Others (Blóð
annarra), sem sýnd er í Nýja
bíói, er engin undantekning frá
því. Upphaflega var myndin sex
tímar að lengd en hún hefur
verið stytt í tvo tíma til dreifing-
ar í kvikmyndahús. Hún er samt
langdregin, viðburðasnauð og
sérlega sundurlaus.
Blóð annarra er byggð á
sögu eftir franska rithöfundinn
Simone de Beauvoir, en það er
Claude Chabrol sem leikstýrir.
Ef marka má myndina að ein-
hveiju ráði er sagan um fólk
sem er ekki skotið hvert í öðru.
Helen Bertrand (Jodie Foster)
vinnur í kjólaverslun og Paul
er skotinn í henni. En hún er
ekki skotin í Paul heldur Jean
Blomart (Michael Onikean) en
Blomart er ekki skotinn í henni
og þegar stríðið skellur á kynn-
ist Bertrant Þjóðveija, Deiter
Bergman (Sam Neil) að nafrii,
sem verður skotinn í henni, en
hún verður alls ekki skotin í
honum.
Nú er svolítið erfitt að fjalla
um þetta án þess að hafa séð
allan myndaflokkinn því þeir
tveir klukkutímar sem í mynd-
ina fara nægja engan veginn
til að skýra ýmsar sálarkvalir
persónanna. Persónusköpun er
engin, farið er úr einu í annað
skýringarlaust og fólk kemur
og fer úr myndinni eins og af
baÚL
Sem dæmi má neftia að í einu
atriði tekur Bertrant í höndina
á virðulegum frönskum herfor-
ingja eins og hún sé að hitta
hann að máli (maður verður að
geta sér þess til) en svo gerist
ekkert meira. í næsta atriði er
Bertrant komin heim í stofu til
sín. Hvað herforinginn var að
gera í myndinni er ennþá ráð-
gáta. Á öðrum stað er sýnt
langt og strangt ferðalag stúlk-
unnar yfir Frakkland endilangt.
Hún er að fara að hitta ástina
sína (Blomart) sem liggur á
hersjúkrahúsi við vígvöllinn þvf
hann er að beijast við Þjóðveija.
Ferðlagið tekur dijúgan tíma
af myndinni en svo þegar Bertr-
ant kemur á áfangastað er
henni sagt að elskan sé ekki
lengur á spítalanum. í næsta
atriði er Bertrant í baði heima
hjá sér. Hver er tilgangurinn
með þessu ferðalagi?
Jodie Foster er hræðilega
misráðin í hlutverk frönsku
stúlkunnar, einfaldlega vegna
þess að hún er amerískari en
hamborgari og getur ekki sann-
fært mann um að hún sé frönsk.
Ástralski leikarinn Sam Neil
kemst nokkuð vel frá sínu og
líka Onikean. En menn ættu
ekki að vera að klippa niður
„míníseríur" nema þeir viti hvað
þeir eru að gera.
Stjörnugjöf */*
Ofbeldi svarað með ofbeldi
Enn stikar Bronson um götur
með byssuhólkana innanklæða og
utan og bíður færís á að skjóta
niður ofbeldismenn. Aldrei hafa
þeir verið verri viðureignar, meiri
illfygli, samviskulausari og of-
beldisfyllri. Aldrei hefur verið
meiri þörf á Bronson. Hans verk-
efni er að losa samfélagið við
glæpalýðinn og nú leggur hann
heilt borgarhverfi f rúst í leit sinni
að réttlæti. Enn stikar Bronson
um götur. Enn bfður réttlætið
sigur.
Death Wish 3 (Auga fyrir
auga), sem sýnd er í Háskólabfói,
hefur litlu við hinar tvær myndim-
ar að bæta. Nema hvað aldrei
hefur söguþráðurinn verið fiar-
stæðukenndari, ofbeldið meira,
atriðin blóðugri og vopnin kröft-
ugri enda þeir Golan og Globus
teknir við stjóminni. I þessari
þriðju mynd Michaels Winner um
Paul Kersey (Bronson) í heftidar-
hug, flytur söguhetjan í heldur
skuggalegt hverfi þar sem öflugt
glæpagengi ræður lögum og lof-
um. Gengið hefur heíst yndi af
að nauðga og myrða, og ræna
gamalmenni. Hér eru því næg
verkefni fyrir Bronson. Skjóttu
fyrst og spurðu svo er hans ein-
Charles Bronson í hlutverki
Paul Kerseys í Auga fyrir auga.
falda heimspeki.
Tólf ár eru liðin frá því Winner
gerði fyrstu myndina, Death
Wish, í þessari myndaröð. Sú
vakti talsverða athygli vestur í
Bandaríkjunum og umræður um
ofbeldi og rétt borgarans til að
svara fyrir sig með ofbeldi ef
hann er misrétti beittur. Mynd
Winners var raunsæ ádeila á rétt-
arkerfið í Amerfku, sem honum
þótti vinna meira fyrir glæpalýð-
inn en fómarlömbin. Kersey var
svar hans við óréttlætinu: ofbeldi
skal borga með ofbeldi.
Síðan hefur margt breyst. Ailt
raunsæi er löngu horfið. í stað
þess að læðast um nætur með litla
skammbyssu f hendinni flengist
Bronson nú um með hríðskota-
byssu úr seinni heimsstyijöldinni
og dritar á óþokkana.
Og Bronson er tekinn að reskj-
ast. Hann nær ekki lengur bófun-
um á hlaupum, hann er orðinn
vinalegri með aldrinum og það er
ekki laust við að leikurinn sé
farinn að skána. En hann getur
samt lítið gert til að lappa upp á
þessa Golan/Globus-framleiðslu,
sem á lítið sameiginlegt með
uppmnalegu myndinni.
Stjörnugjöf: ★