Morgunblaðið - 12.03.1986, Síða 44
* 44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR12. MARZ1986
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaöir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR INGVARSSON,
Kirkjuvegi 28, Vestmannaeyjum,
lést í sjúkrahúsi Vestmannaeyja 10. mars.
Jarðarförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 15. mars kl.
14.00.
Klara Lambertsen,
Guðbjörg Kristjánsdóttir, Jóhann GuAmundsson,
Guðbjörg Petersen, Steinn Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t Eiglnmaður minn, JÓHANN FRIÐRIKSSON v. frá Efri-Hólum, Laugaráevegi 13, Reykjavik, lést í Landakotsspítala laugardaginn 8. mars. Útförin verður auglýst síðar. Gunnlaug Eggertsdóttir.
t Okkar kæra vinkona, MITTE ÞORSTEINSSON, Melhaga 1S, Reykjavík, andaðist í Landspítalanum 5. mars sl. Útförin fer fram frá nýju kapellunni í Fossvogi föstudaginn 14. mars nk. kl. 10.30. Eva og Gertrud Jónasson.
t GUÐRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR, Hátúni 4, Reykjavfk, verður jarösungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 13. mars kl. 13.30. Þórarinn H. Hallvarðsson, Erla Long, Kristfn Hallvarðsdóttir Engel, Agnes Hallvarðsdóttfr, Karl Aspeiund, Ragna Hallvarðsdóttir, Benedikt Blöndal, Arnfríður Hallvarðsdóttir, Þór Þórbergsson, Ámý Þ. Hallvarðsdóttír, Logí Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn.
t Þökkum auösýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, JÓRUNNAR GUÐJÓNSDÓTTUR frá Patreksfirði, Álfaskeiði 64, Hafnarfirði. Sérstakar þakkirtil starfsfólks Sólvangs, Hafnarfirði. Þór Oddgeirsson, Ásdfs Finnbogadóttir, Geir Oddgeirsson, Guðrún Oddgeirsdóttir, Gunnar Valdimarsson, Freyr Oddgeirsson, Öm Oddgeirsson, Auður Þórisdóttir og barnabörn.
t Öllum þeim sem á einhvern hátt hafa heiðrað minningu móður okkar, BJÖRNLAUGAR MÖRTU ALBERTSDÓTTUR, sendum viö alúðarþakkir. Gunnar S. Sigurðsson, Björg S. Sigurðardóttir, Helena S. Sigurðardóttir.
t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför ÖNNU S. M. EINARSSON. Einar Magnússon, Karen Magnúsdóttir, Vfðir Finnbogason, Kristinn Magnússon, Edda Larsen, Elfn Magnúsdóttir, Ingólfur Kristmundsson, barnabörn og barnabarnabörn.
. 2" . * - „ • j._
' t Vlnnilega-þakka ég samúö og virrarhug viðandlát mannsins míns, ’ MAGNÚSAR B. MAGNÚSSONAR 2? •>„ . * “ ’ ' Sigrfðúr Guðný Hólmfreðsdóttir.
StefánJ. Valdimarsson
frá Hrísey - Minning
Fæddur 9. febrúar 1898
Dáinn 14. febrúar 1986
Laugardaginn 22. febrúar sl. fór
fram kveðjuathöfn um Stefán Jón
Valdimarsson frá Hrísey, í Akur-
eyrarkirkju, og var hann jarðsettur
og kvaddur sama dag í Hrísey.
Jón fæddist að Litla-Árskógi á
Árskógsströnd, Eyjafírði, 9. febrúar
1898 og var hann því nýlega 88
ára gamall er hann lést, í Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri, hinn
14. febrúar sl. Foreldrar Jóns voru
hjónin Þórdís Hallgrímsdóttir og
Valdimar Guðmundsson. Jón ólst
upp í foreldrahúsum og flutti með
foreldrum sínum um fermingarald-
ur til Ólafsflarðar. Þegar þangað
kom hóf hann að stunda sjóróðra,
eins og þá var títt um unga menn.
Hann var fyrst í stað háseti á bát-
um, en fór á vélstjóranámskeið og
að því loknu gerðist hann vélstjóri
á bátum, en sökum dugnaðar og
stjómsemi tók hann við formennsku
á bátum f Ólafsfírði og var fengsæll
og happasæll í starfí.
í Ólafsfírði kynntist Jón ungri
stúlku úr Húnavatnssýslu, Guðrúnu
Maríu Ámadóttur, sem hann gekk
að eiga þann 26. október 1926.
Þessi gifting var beggja gæfuspor,
sen entist í tæp 60 ár eða þar tií
Jón andaðist. Skömmu eftir að þau
gengu í hjónaband fluttu þau til
Hríseyjar og réðust þegar í stað að
reisa sér framtíðarheimili. Þau
fengu lóð og hófu þegar í stað að
byggja sér myndarlegt hús. Jón,
sem var handlaginn og smiður góð-
ur, vann öllum stundum við húsa-
smíðina og stundaði jaftiframt sjó-
inn.
Hús þeirra var reist á fogrum
stað utan við þorpið, við fagran,
lítinn læk og nefndu þau það
Lambhaga. Hann keypti sér nú
dekkbát í félagi við bróður sinn, og
var formaður á þeim báti. Hann
byggði sér biyggju í samvinnu við
mág sinn, svo og verbúð, eða físk-
verkunarhús. Jón varð að sjálfsögðu
að fá sér aðstoðarfólk við útgerðina,
bæði til lands og sjávar. Hann
stundaði sjóinn af kappi en María
kona hans sá um að annast allt
heimilishald. í Lambhaga var oft
þröng á þingi, ekki síst eftir að
bömin fóm að fæðast. Þau eignuð-
ust fímm böm og tóku eitt í fóstur.
Þau hjón höfðu því nóg að gera.
Allt aðstoðarfólk við útgerðina var
í fæði og hafði húsnæði í Lamb-
haga. Jón hafði og í mörgu að snú-
ast. Hann ræktaði tún í kringum
húsið og fékk sér skepnur til að
létta undir heimiliskostnaðinn. Jón
var kjörinn í hreppsnefnd og safn-
aðarstjóm og starfaði sem hringjari
í Hríseyjarkirkju. Til þess var tekið
og mjög í minnum haft hve fagur-
lega hann lét kirkjuklukkumar
samhljóma er hann hringdi þeim,
hvort heldur var til messugerðar
eða jarðarfarar. Árin liðu og brátt
kom þar að Jón hætti útgerðinni.
Hann fór nú að stunda smíðar í
félagi við þrjá aðra smiði í eyjunni.
Þann starfa hafði hann í nokkur
ár. Þegar Jn hætti smíðinum, hóf
hann störf við Kaupfélag Eyfírð-
inga í Hrísey. Þar seldi hann og
afgreiddi vömr til útgerðar. Hann
fékk starf við aflestur á rafmagns-
mælum fyrir Rafveituna og vann
það í hjáverkum í nokkur ár. Eftir
að bömin vom öll farin að heiman,
fluttu þau Jón og María til Akur-
eyrar og keyptu sér íbúð við Gils-
bakkaveginn. Þar undu þau hag
sínum vel og þangað komu margir
vinir þeirra í heimsókn, enda vom
þau gestrisin og gott til þeirra að
koma, skrafa og riQa upp endur-
minningar yfír kaffíbolla. Þegar við
hjónin heimsóttum þau á Gilsbakka-
veginn, var okkur ávallt vel fagnað
og ekki vantaði kökur og sætabrauð
með kaffínu. Þau Jón og María
vom falleg, samstíg og samhent
hjón, sem nutu nærvem og sam-
vemstundanna út í ystu æsar. Á
undanfömum ámm ferðuðust þau
mikið innanlands, tóku þátt í
skemmtunum gamla fólksins á
Akureyri og bám ávallt birtu og
yl með sér hvar sem þau vom eða
hvert sem þau fóm. Þau gáfu á
þann veg gleði og fögnuð í sjóð
minninga þeirra sem þeim kynnt-
ust. Jón fann sér ávallt eitthvað til
að starfa. Á síðustu ámm ævi
sinnar sat hann löngum og saumaði
út, af miklum hagleik, gamall
maðurinn. Hann sýndi mér oft það
sem hann var að vinna að og bám
verk hans vitni um mikinn hagleiks-
mann. Jón var trúaður maður og
bar mikið traust og virðingu fyrir
Guði.
Nú hefur Jón lokið gæfuríkri för
hér í heimi, en María saknar nú
ástríks vinar og lífsfömnauts. Böm-
um þeirra Jóns sendum við hjónin
samúðarkveðjur, og þig frænka
mín, biðjum við þann sem öllu ræður
að styrkja og blessa.
Arni Garðar
Kveðjuorð:
Sr. Jón Thorarensen
Fæddur 31. október 1902
Dáinn 23. febrúar 1986
Nú er vinur minn, séra Jón
Thorarensen, látinn, 83 ára gamall.
Skyndilega koma æskuár mín fram
í huga mér.
Þá átti ég heima á Reynimelnum
9 ára gömul. Foreldrar mínir vom
mjög kirkjurækin þó engin væri
kirkjan í vesturbænum en messað
var í Háskólakapellunni, og vandist
ég því fljótt að fara með þeim
þangað. Þar var hátt til lofts og
vítt til veggja, og fannst mér að
þar hlyti guð að ráða öllu.
Það sem gagntók mig þá sem
bam, var hin bjarta og fagra söng-
rödd sem presturinn, séra Jón, hafði
þegar hann tónaði og mótaði það
veralega áhuga minn fyrir söng
eftir það.
Árin liðu og séra Jón fermdi mig
og má segja að aldrei sleppti hann
t
Innilegt þakklæti sendum við öllum þeim er auðsýndu okkur
samúö og hlýhug viö andlát og jarðarför dóttur okkar,
INGU ÞÓRS INGVADÓTTUR.
Valgerður Valgeirsdóttir,
Ingvi Þór Einarsson.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför
ÞORSTEINS MAGNÚSSONAR,
Höfn,
Borgarfirði eystra.
Þórdís Jónsdóttir,
Magnús Þorsteinsson.
hendi af mér og fermingarbömum
sínum, heilsaði mér alltaf og spjall-
aði við mig á fömum vegi.
Seinna gifti hann mig og skírði
son minn og fermdi.
Ég söng oft f kór Neskirkju,
stundum einsöng. Var hann óþreyt-
andi í að hvetja mig til dáða á
þeirri braut.
Ég hlaut að kynnast frú Ingibjörgu
, konu hans, þar sem móðir mín
og hún störfuðu saman í kvenfélagi
Neskirkju og myndaðist einlæg
vinátta, sem alltaf hélst.
Þessi sæmdarhjón og dætur
þeirra hafa verið í mörg ár og góðar
minningar em gulli betri.
Séra Jón gegndi prestsembætti
sínu af mikilli reisn og hlýju. Rit-
höfundur var hann af guðs náð og
starfaði að þvf allt til dauðadags.
Ég kveð séra Jón með þakklæti
og virðingu og frú Ingibjörgu og
ijölskyldu sendi ég mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu
og hlýhug við andlát og útför
GRETUINGVARSDÓTTUR,
Yrsufelli 13.
Ingvar Ótafsson,
Asa Clausen,
Kristrén Otga Clausen,
Axel Clausen,
Oscar Clausen,
Dagbjartur Geir Guðmundsson
og barnabörn.
Anna Mjöll Árnadóttlr,
Aðalsteinn Bragason,
Ernesto Preatoni,
„Farþúífriði
friður guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.“
(V.Br.)
„Nú andar suðrið sæla vindum þýðum,
á sjónum allar bárur smáar rísa
og flykkjast heim að fögru landi ísa
að fóstuijarðar minnar strönd og hlíðum.
Ó heilsið öllum heima rómi blíðum
umhæðogsundí drottins ást og friði,
kyssiðþið bárur bát-á fiskimiði
blásið þið vindar hlýtt á kinnum friðum."
(Jónas Hallgrimsson.)
Svala Nielsen