Morgunblaðið - 12.03.1986, Side 45
MORGUNBLAÐEÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1986
45
Sigurður Hólm
Guðmundsson
Fæddur 4. október 1905
Dáinn 26. febrúar 1986
Okkur sem enn teljumst ungir
að árum finnst stundum öryggi í
því fólgið að hafa einhverja fasta
punkta í tilverunni að miða okkur
við. Þegar við korr.umst af tvítugs-
aldrinum höfum við öðlast þá
reynslu að sjá böm verða að ungl-
ingum og óðfluga vaxa þeir úr grasi
og eru orðnir þátttakendur í dag-
legu amstri áður en nokkurn varir.
Þeir, sem er 30—40 árum eldri en
við, hafa fastan sess í hugum okkar.
Sumir þeirra virðast okkur svo óum-
breytanlegir að við blekkjum okkur
sjálf með því að halda að tilveran
standi í stað.
í dag er borinn til moldar einn
af þessum mönnum, sem mér þóttu
setja svip á tilveruna, sem traustir
og óhagganlegir homsteinar. Sig-
urður Hólm Guðmundsson fæddist
4. október árið 1905, sonur Guð-
mundar Ólafssonar og Guðrúnar
Sigurðardóttur, sem bjuggu lengst
af á tveimur smábýlum austur í
Sandvíkurhreppi, Móakoti og
Valdastöðum. Sigurður flutti til
Reykjavíkur í upphafi heimskrepp-
unnar miklu, sem skall á íslandi
með sínum mikla ofurþunga í þann
mund sem hafin var sú tækni- og
menningarbylting, sem skolaði ís-
lendingum inn í nútímasamfélag
með undraverðum hraða, svo að
eftir stóð þjóðin sem rótarslitin í
leit að fortíð sinni. Sigurður stund-
aði ýmis störf sem til féllu, vann á
eyrinni og til sjós, en árið 1933 fór
hann að vinna hjá Þóroddi Jónssyni,
heildsala og starfaði þar tæpa 4
áratugi eða á meðan heilsan leyfði.
Árið 1938 kvæntist hann Karo-
línu Lárusdóttur og settu þau
saman bú á Sólvaliagötu 2, þar sem
þau bjuggu allan sinn búskap. Þau
eignuðust einn son, Lárus.
Ekki er ætlunin að rita æviþátt
Sigurðar í þessu greinarkomi, enda
munu aðrir til þess færari.
Sigurði kynntist ég árið 1969 en
þá hafði tekist kunningsskapur milli
mín og Lárusar Sigurðssonar, og
auðvitað var sjálfsagt að ungviðið
sem fylgdi Lárusi, kæmi stundum
í heimsókn á Sólvallagötuna. Fyrst
í stað minnist ég þess að við svein-
amir vomm feimnir, enda fannst
okkur að á þessu virðulega heimili
hlyti að ríkja formfesta, sem við
réðum tæpast við, og þar að auki
báram við mikla virðingu fyrir hús-
ráðendum. En ljúf og aðlaðandi
framkoma þeirra Karolínu og Sig-
urðar hristi fljótt af okkur feimnina
og við tókum að hegða okkur eins
og heima hjá okkur, enda lagði
húsfreyja gjaman fyrir okkur þá
gildra, sem fáir standast til lengdar,
en það vora forkunnar góðar ijóma-
tertur. Var þá oft glatt á hjalla við
borðið og flutu ýmsir unggæðins-
legir brandarar, svo að við supum
jafnvel hveljur af skelfíngu og þótti
sem við hefðum gengið heldur
langt. En Sigurður hló að öllu
saman svo að maður reyndi að
komast hjá því að taka eftir að
roði hafði hlaupið í kinnar manns
af skömm yfír sjálfum sér. Reyndar
fór stundum svo þegar galsinn var
sem mestur að Sigurður spurði
hvemig við héldum að við yrðum
orðnir um áttrætt, úr því að við
væram famir að þjást af karla-
groþbi á unga aldri.
Árið 1973 urðu þau tíðindi í
Vestmannaeyjum sem mörkuðu
þáttaskil í lífí margra Eyjamanna.
Þá fundum við að vinum var að
mæta þar sem Sigurður og fjöl-
skylda hans vora. Þá mynduðust
þau tengsl, sem verða vart rofín.
Þegar fjölskyldur flytjast á milli
landshluta með jafn óvæntum hætti
og varð í gosinu slitna ýmis tengsl
og annað brotnar til granna. Sig-
urður átti sinn þátt f að láta okkur
fínna að við væram farin að skjóta
rótum f nýju umhverfi. Hann tók
upp þann góða sið að heimsækja
okkur mæðgin á sunnudagsmorgn-
um og fannst okkur það minna á
gamla daga, en áður fyrr höfðu
okkur þótt Reykvíkingar frá-
bragðnir okkur dreifbýlingunum í
því að þeir heimsóttu ekki hver
annan á jafn óformlegan hátt og
við voram vön, enda Reykjavík
miklu stærra og fyölbýlla svæði en
Vestmannaeyjar.
Sigurður var hæglátur maður og
lét lítið yfír sér. Hann var óvenju
heilsteyptur og sterkur maður og
bifaðist ekki fremur en bjarg, þótt
brotsjóir samfélagsins skyliu á
honum á efri áram.
Sigurður varð þeirrar gæfu að-
njótandi að sjá son sinn, Láras,
giftast Valdísi Atladóttur og stofna
heimili í sambýli við þau Karolínu
á Sólvallagötu 2. Þá fékk hann
aðra Karolínu með sonardóttur
sinni. Ég hringdi einstöku sinnum
til Sigurðar og spurði þá eftir
þroska telpunnar. Mér var sem ég
heyrði hvemig hann yngdist og
bros breiddist um andlit hans allt
þegar bamabamið bar á góma. Það
kom mér ekki á óvart því að ég
vissi fyrir löngu að Sigurður átti
ekki erfítt með að brúa kynslóðabil-
ið og hafði reyndar fært sönnur á
að kenningin um þetta bil er ekki
óhrekjanleg.
Sigurður lést 26. febrúar sl. eftir
skamma legu. Ættingjar hans vissu
að hann hafði ekki gengið heill til
skógar um nokkra hrfð, en því, sem
í hönd fór, tók hann með því æðra-
leysi, sem einkenndi alla framkomu
hans. Eftir lifír minningin um góðan
dreng sem brást aldrei þegar mest
reið á.
Amþór Helgason
í dag, miðvikudag 12. mars,
verður gerð útför Sigurðar Hólm
Guðmundssonar frá Dómkirkjunni
í Reykjavík, sem andaðist í Landa-
kotsspítala 26. febrúar sl.
Þó maður hafí vitað að hveiju
stefndi um nokkum tíma bregður
manni alltaf við andlátsfregn góðs
vinar.
Minningabrot frá liðnum áram
þjóta gegnum húgann, þær eru
margar góðar minningar sem ég á
úr bemsku og tengdar era fjölskyld-
unni á Sólvallagötunni.
Ég ætla ekki í þessum línum að
rekja æviatriði Sigurðar eða ættir,
heldur að minnast með örfáum
orðum manns sem ég mat ávallt
mikils og var gott að eiga að vini.
Sigurður eða Holli eins og hann var
alltaf kallaður innan fjölskyidunnar
giftist föðursystur minni Karólínu
Lárasdóttur 1938.
Allt frá því að ég man fyrst eftir
mér hefur verið mikil samgangur
milli fjölskyldna okkar og var ég
ekki hár í loftinu þegar ég fór í
heimsóknir til Dæju og Holla og
fékk að gista.
Þau hjón vora mjög samhent og
höfðu komið sér upp sælureit austur
við Þingvallavatn, sem er Ijald-
brekka, en það kölluðu þau sumar-
hús sitt þar.
Þær era ófáar minningamar sem
ég á þaðan. Það var spennandi að
fá að fara með þeim fullorðnu út á
vatn og renna fyrir silung. En það
var eitt af áhugamálum Sigurðar,
veiðiskapurinn, og lýsir vel hans
innra manni að taka krakkann með
og leggja mikla alúð í að segja til
hvemig bera átti sig að við veiði-
skapinn. Enda era þessar minning-
ar sterkar og það era atvik sem
þessi sem tengja menn vináttubönd-
um. Eftir að ég stofnaði heimili
héldust þessi vináttubönd og þau
vora ófá skiptin sem við sátum
saman og ræddum landsins gagn
og nauðsynjar yfír kaffibolla,
kannski á sunnudagsmorgni. Sig-
urður var ekki að flíka tilfínningum
sínum við alla og var ef til vill ekki
allra, en því sterkar tengdist hann
þeim sem urðu vinir hans.
Sigurður og Dæja eignuðust eitt
bam, Láras 1949. Hann er giftur
Valdísi Atladóttur og eiga þau eina
dóttur, Karólínu, sem er rúmlega
árs gömui. Karólína litla varð strax
augasteinninn hans afa síns.
Við fráfall Sigurðar stækkar enn
skarðið f okkar litlu fjölskyldu.
Dæja mín, ég og fjölskylda mín
sendum þér, Lárasi og Valdísi okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Ólafur I. Jónsson
Minning:
Tómas Ólafsson
Fæddur 24. nóv. 1949
Dáinn 19. janúar 1986
Þegar okkur barst sú harma-
fregn að höggvið hefði verið skarð
í okkar samheldna nemendahóp
setti að okkur trega og við spyijum,
því svona fljótt? Það er fátt um
svör, en við vitum að vegir Guðs
era órannsakanlegir og hann einn
ræður. Við kynntumst Tómasi
Borghólm Ólafssyni er við hófum
nám við Héraðsskólann að Skógum
haustið 1962. Hann var yngstur
okkar bekkjarsystkina, tæplega 13
ára, ljós yfirlitum með glaðlegan
bamssvip. Þrátt fyrir góða náms-
hæfileika Tómasar beindist hugur
hans eftir gagnfræðapróf frekar að
skóla lífsins en öðru lengra skóla-
námi. Sjávarútvegur, siglingar
ásamt félagsstörfum í þágu sjó-
mannastéttarinnar voru ríkir þættir
í starfí hans allt til dauðadags. Við
bekkjarsystkini Tómasar höfum
eftir bestu getu reynt að halda hóp-
inn og hittast öðra hveiju. Þegar
við síðastliðið vor glöddumst á tutt-
ugu ára útskriftarafmæli okkar lét
hann sig ekki vanta, enda félags-
lyndur, trúr og traustur. Þar naut
kfmnigáfa hans sfn hið besta, við
upprifjun margra góðra minninga,
enda gnægð af þeim eftir þriggja
vetra dvöl á heimavistarskóla. Bros
hans var breitt og brúnimar lyftust
í anda minninganna og enn brá
fyrir glaðlegum svip bemskuár-
anna. Mannlífslýsing Tómasar
verður ekki rakin nánar hér, enda
hefur henni verið gerð góð skil af
þeim er vel til þekktu í lífi hans og
starfi. Við sendum bömum hans,
foreldram, systkinum og öðram
aðstandendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Með þessum orð-
um viljum við þakka Tómasi
ánægjulega samfylgd og biðja góð-
an Guð að blessa minningu hans.
Næst er við hittumst verður Tómas-
ar saknað.
Bekkjarsystkinin
frá Skógaskóla.
SERTILBOÐ Á
HEIMILISTÆKJUM
í MARS
VIÐTÖKUMÁMEÐ
ÞORSTEIIMI OG LÆKKUM
VÖRUVERÐ LAIMGT UM-
FRAM TOLLALÆKKANIR
Gaggenau tilboð
Ofnar: Áður Nú
EB 795- -100 kr. 53.390 Kr. 44.900
EB 795- -110 kr. 53.390 kr. 44.900
EB 795- -120 kr. 53.390 kr. 44.900
EE 798- -104 kr. 55.150 kr. 45.900
EE 798- -114 kr. 55.150 kr. 45.900
EE 798- -124 kr. 55.150 kr. 45.900
Sambyggður ofn og 4ra hellu eldavél:
Aður Nú
EC 693- -104 kr. 58.460 kr. 49.900
EC 693- -124 kr. 58.460 kr. 49.900
Vlftur: 15% afsláttur
Electrolux tilboð
Eldavélar: Áður Nú
CF 6423 60 cm kr. 27.900 kr. 23.250
CF 5533 55 cm kr. 19.640 kr. 16.900
CF 6484 60 cm kr. 31.310 kr. 25.990
Ryksugur: Áður Nú
D-720 1100W kr. 11.900 kr. 9.400
D-730 Electrónik kr. 16.330 kr. 12.720
ísskápar: Sértilboð á afsláttarskápum
Rowenta tilboð
Gufustraujárn: Áður Nú
DA-15 kr. 4.100 kr. 3.330
DA-47 kr. 3.380 kr. 2.680
Kaffivélar: Áður Nú
FK-16,0 kr. 2.800 kr. 2.470
FK-60,0 kr. 3.940 kr. 3.090
Brauðristar: Áður Nú
TO-19 kr. 2.460 kr. 2.050
TO-18 kr. 2.350 kr. 1.850
Vöfflujárn: Áður Nú
WA 01,0 kr. 4.900 kr. 3.280
Ryk-og vatnssuga Áður Nú
RU 11,1 kr. 8.300 kr. 7.290
Oster tilboð
Hrærivélar: Áður Nú
kr. 16.990
kr. 12.900
Svo gefum við 15% afslátt
af allri málningu í mars mánuði
Vdrumarkaðurinn hf.
I Ármúla 1a s.686117
♦