Morgunblaðið - 12.03.1986, Side 51

Morgunblaðið - 12.03.1986, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR12. MARZ 1986 51 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 14—15 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS t\y t/jyu/ nv*-UhJ’H If Opið bréf til foreldra Mig langar til að vekja athygli á máli sem allir virðast loka augunum fyrir og enginn vill taka að sér. Hér í borg eru stundaðir stórfelldir reiðhjólaþjófnaðir og virðast heilu flokkamir hafa þetta fyrir atvinnu. Ég er einstæð móðir og á 10 ára dreng. Líf hans og yndi er að hjóla og fékk hann nýtt, blátt DBS reið- hjól í vetur. Aðfaranótt mánudags 17. febrúar var því stolið og hefur ekki sést síðan. Þetta er þriðja hjól- ið sem er stolið frá okkur og nú get ég ekki lengur orða bundist. Ég veit líka að við erum ekkert eins- dæmi. Fyrir utan íjárhagslegt tjón (engin heimilistrygging) þá er bam og hjól sem eitt og því er þetta tilfínningalegt tjón fyrir böm og bitnar á saklausu fólki. Mig langar til að beina orðum mínum til foreldra, bæði þeirra bama sem verða fyrir þessu tjóni og hinna sem stunda þetta athæfí. Foreldrar! Hvar em bömin ykkar? Er ykkur alveg sama þótt bömin ykkar missi hjólin sín? Jafnvel þótt þið fáið þau borguð úr tryggingun- um. Er ykkur sama þótt bömin ykkar séu úti í bæ að ræna hjólum og ferðist um á stolnum hjólum? Hvar emð þið foreldrar? Vitið þið hvar bömin ykkar era og hvað þau em að gera? Reiðhjól í óskilum í óskilum er rautt BMX-reiðhjól. Framleiðslunúmer þess er C 137977 77000. Upplýsingar em veittar í síma 15594. Þau sem em í þeim hópnum sem stela em ósakhæfir unglingar, 13—16 ára. Lögreglan aðhefst lítið annað í málinu en að taka skýrslur sem hrannast upp í stöflum hjá þeim og ekkert er gert. Foreldrar! Hvað getum við gert? Mér þætti vænt um ef einhveijir fleiri létu frá sér heyra, því þetta er bara byijunin hjá þessum ungl- ingum. Næst verða það skellinöðr- ur, bflar, eyturlyf;_innbrot... Oskureið móðir Bleyjuþvottaævin- týri sem endaði vel Gullúr fannst í byijun janúar fannst gullúr í hálsfesti fyrir utan sundlaugamar í Laugardal. Eigandinn er vinsam- lega beðinn að hafa samband í síma 31568 eftirklukkan 18:00 síðdegis. Því miður er það svo að alltaf valda bilanir á heimilistækjum breytingum á skapi manns. Hvað þá þegar þvottavél bilar klukkan 15 á föstudegi, hjá 6 manna fjölskyldu með 2 böm á bleyjum (þessum gömlu). Með tilliti til fákunnáttu forsvarsmanna heim- ilisins verður að tilkalla aðstoð, og þess vegna er hringt í auglýstan viðgerðaraðila viðkomandi þvotta- vélategundar. Vitaskuld lagaðist ekkert í sím- talinu sjálfu, en þó skyldi þvottavél- in athuguð strax og þá ákveðið með framhaldið. Og viti menn. Fyrir klukkan 16 er viðgerðaraðilinn mættur á staðinn. Taka verður tromlu úr, fara á verkstæði, athuga hvort varahlutir séu til og koma síðan öllu á sinn stað aftur. Vitan- lega verður engu lofað á staðnum, en reynt hvað hægt er að gera, því nú er föstudagur og helgi fram- undan. Húsráðendur sitja agndofa heimafyrir, vandræðalegir með fullt þvottahús af óhreinu taui. „Við hefðum ekki átt að taka af rúmun- um í morgun. Ekki er hægt að bæta álaginu á vélina hjá mömmu og svo frv.“ Helgin ónýt og þrútnar þvottahendur á mánudag í sjónmáli og það árið 1986. Hvemig fór fólk að í gamla daga. 18.30 hringir bjallan hjá §öl- skyldunni í Breiðholtinu og er þá ekki kominn viðgerðarmaðurinn í annað sinn. Létt í lund og með bros á vör kvaddi fjölskyldan starfs- manninn hjá raftækjaverkstæðinu Til afa o g ömmu Hér er vinsamleg ábending tilafaog ömmu. Geymið lyf á öruggum stað þannig að barnabörnin nái alls ekki til þeirra. Sykurhúðaðar pillur líta út sem sælgæti í þeirra augum. Lyf sem ykkur eru líf snauðsyn- leg eru aftur á móti börnunum stórhættuleg og jafnvel banvæn. Fasa eftir að þvottavélin fór að snúast á nýjan leik klukkan 19. Frábær þjónusta á sanngjömu verði er nokkuð sem þakka má fyrir með glöðu geði, þegar ein þvottavél getur eyðilagt heila helgi með meira í þessu svokallaða velferðarþjóð- félagi. Fjölskyldan fyrir ofan snjólínuna. Ekki flugvöll í Reykjavík Árni Jóhannsson hringdi: Eftir slysið á Reykjavíkurflug- velli síðastliðinn mánudag er ljóst að flugvöllur á ekki heima í Reykja- vík. Hann er bráðabirgðaráðstöfun síðan í stríðinu og löngu orðið tíma- bært að koma flugmálum innan- lands í ömggara horf. Ég tek undir orð Alberts Guðmundssonar að flytja eigi allt flug til Keflavíkur og búa þar svo um hnútana að samgöngur þaðan geti gengið greiðlega. Ég sem borinn og bam- fæddur Reykvíkingur vil ekki lifa þahn dag þegar stórslys verður á Reykjavíkurflugvelli. getrguna- VINNINGAR! 28. leikvika - leikir 8. mars 1986 Vinningsröð: 1 1 1-1 12-1X1-221 1. vinningur 12 réttir: 203.375, 58875(4/11) 62966(4/11)+ 109314(6/11) 128458(6/11) 2. vinningur: 11 réttir, kr. 4.775,- 21033+ 48338+ 60581+ 71536+ 22047 50944+ 62275 72119 24127 50983 62742 72976 43473* 56385* 64783 75622 46593* 59009 67602*+ 78428 48329+ 59010 69648 79692 *=2/11 Kærufrestur ertil þriöjudagsins 1. apríl 1986 ki. 12.00 áhádegi. 80992 110339 126811 97952 110630 128959 99331 110635 131435* 100960 110689*+ 133874* 109011 126766*+ 135461 109713 126782+ 522154+ 522264 522643 Ur 19. v.: 109824+ íslenskar Getraunir, íþróttamidstöðinni vlSigtún, Reykjavík Kærur skulu vera skritlegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar tll greina. Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvisa stofni eða senda stofninh og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til íslenskra Getrauna fyrir lok kærufrests. Herdís Þorvaldsdóttir Þakkir til Herdísar Til Velvakanda. Ég vil þakka Herdísi Þorvalds- dóttur innilega fyrir frábæran lest- ur á Passíusálmunum. Flutningur hennar hefur mikil áhrif og vel er varið þeirri stund þegar hlýtt er á hennar fagra lestur. Einnig vil ég þakka Hirti Pálssyni og viðmælendum hans fyrir skemmtilegt spjall um sálmana. Þar hefur komið fram margt stórmerki- legt sem vakið hefur athygli á skáldinu og manninum Hallgrími Péturssyni. Þeir sem hafa hlustað frá bamæsku á sálmana, fagna umræðum um þessa perlu íslenskra bókmennta. Laufey Sigurðardóttir frá Torfufelli Þessir hringdu .. . Það er ekki bara leðrið sem við leggjum áherslu á. Satt að segja er hvergi hægt að finna á einum stað stærra úrval af sófa- settum og sófahornum í áklæðum. Þessi fallegu vönduðu sófasett bjóð- um við á besta verði sem þekkist og svo góðum greiðslukjörum að jafnvel strangasta fjárhagsáætlun heimilisins ræður við að kaupa sett. 45.880.-(as3+l+1 Hverniglistþéró? á mánuði. Aðeins 4.580 Aðeins 13.000 útborgim. Við tökum að sjálfsögðu greiðslukortin bæði sem útborg- un á kaupsamninga og sem stað- greiðslur með 5% afslætti. HSSG&6NAH0LLIN BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK § 91-6811 99 og 681410 «T j

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.