Morgunblaðið - 12.03.1986, Qupperneq 56
Banaslys
um borð
í Krossa-
nesi SU
BANASLYS varð um borð i skut-
togaranum Krossanesi SU 4 f
gærmorgun. Sautján ára gamall
piltur, Ágúst Sigurðsson, til
heimilis að Álfabrekku 2, Fá-
skrúðsfirði, lenti í spili skipsins
og beið bana.
Slysið átti sér stað þegar Krossa-
nes var að veiðum skammt út af
Stöðvarfirði. Ágúst heitinn var við
vinnu sína við spil aftur á skipinu
er hann festist f þvf með fyrrgreind-
um afleiðingum. Skipinu var þegar
snúið til Stöðvarfjarðar og kom
þangað um klukkan 11.30. Þyrla
Landhelgisgæslunnar, með lækni,
kom þangað um svipað ieyti, en
piiturinn var þá látinn.
Tveir menn
í gæslu
vegna sölu
á hassi
TVEIR ungir menn hafa verið
úrskurðaðir f gæsluvarðhald
vegna gruns um innflutning
og sölu á hassi.
Annar maðurinn var hand-
tekinn á veitingahúsi í Reykjavík
um síðustu helgi. Hann var úr-
skurðaður í 14 daga gæsluvarð-
hald vegna rannsóknar málsins.
Kunningi hans var síðan hand-
tekinn á mánudag og var hann
í gær úrskurðaður í 5 daga
gæsluvarðhald.
Fíkniefnadeild lögreglunnar
vinnur enn að rannsókn í máli
bræðranna tveggja, sem úr-
skurðaðir voru í gæsluvarðhald
hinn 27. febrúar síðastliðinn,
vegna sölu og dreifingar á am-
fetamíni. Eins og greint var frá
í frétt Morgunblaðsins á sínum
tíma voru bræðumir, sem eru
rúmlega þrítugir, úrskurðaðir í
30 daga gæsluvarðhald. Rann-
sókn málsins hefur leitt í ljós,
að amfetamínið var flutt inn í
batteríum.
Glæfraleg brimsigling
Gffurlegt brim varð við suðurströnd landsins f gær um það leyti
er bátar komu að. Guðfinnur Bergsson, fréttaritari Morgun-
blaðsins í Grindavik, tók þessa mynd af Verði ÞH4 í innsigling-
unni til Grindavíkur f gær. Þótt sjórinn hafi gengið yfir skipið
komst Vörður klakklaust inn f höfnina, svo og aðrir bátar, sem
komu um svipað leyti.
V erðfall á lýsi vegiia
framboðs á jurtaolíu
VERÐ á loðnulýsi hefur að undanförnu lækkað um allt að
80—90 dollara tonnið frá því sem það var hæst. Orsök
verðlækkunarinnar er mikið framboð á ódýrri jurtaolíu
frá Malaysíu.
Að sögn Jóns Reynis Magnús-
sonar forstjóra Síldarverksmiðja
ríkisins fengust um 300 dollarar
fyrir hvert tonn af loðnulýsi í
byijun loðnuvertíðar og í desember
fór verðið upp í 350 dollara. Það
féil svo snögglega eftir áramótin
og fór niður undir 260 dollara.
Verðlækkunin er um 25% ef miðað
er við hæsta verð en nálægt 13%
ef gengið er út frá því verði sem
fékkst við upphaf síðustu loðnuver-
tíðar.
„Orsökin er lágt verð á jurtaolíu
Þingmannafrumvarp á Alþingi:
Þjóðin greiði at-
kvæði um bjórinn
FRUMVARP um bruggun og innflutning áfengs öls var lagt fram
í efri deild Afþingis í gær. Flutningsmenn eru Stefán Benediktsson,
þingmaður Bandalags jafnaðarmanna, og Björn Dagbjartsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins.
Frumvarpið gerir ráð fyrir því,
að heimilt verði að flytja inn og
brugga hér á landi bjór á styrkleika-
bilinu 4—5%. Bjórinn verði ein-
göngu seldur á vegum Áfengis- og
tóbaksverslunar ríkisins, í marg-
nota umbúðum, og skulu áletranir
á umbúðum vera á íslensku. Verði
frumvarpið samþykkt sem lög frá
Alþingi koma ’.ögin þó ekki til fram-
kvæmda „nema þau hafi áður hlotið
samþykki með meirihluta atkvæða
í þjóðaratkvæðagreiðslu, sem fram
fari eigi síðar en 31. desember
1986.“
í frumvarpinu er einnig gert ráð
fyrir því, að 1% af skatttekjum ríkis-
sjóðs vegna framleiðslu og sölu
áfengs öls verði varið til fræðslu
um skaðsemi áfengis.
Frumvarpið er orðrétt eins og
frumvarp, sem flutt var á síðasta
þingi, að því viðbættu að nú er
skilyrt samþykki í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Ágreiningur um þjóðarat-
kvæðagreiðslu var ein meginorsök
þess að frumvarpið náði ekki fram
að ganga á síðasta þingi.
Sjá nánar á þingsiðu bls. 32.
og þá einkum pálmaolíu frá Mala-
ysíu, sem er notuð til smjörlíkis-
gerðar eins og loðnulýsið," sagði
Jón Reynir. Lýsið er hreinsað, hert
og afsýrt og notað í smjörlíki og
bökunarfeiti. „Páimaolían hefur
jafnan verið dýrari en lýsið; kostaði
til dæmis um 400 dollara tonnið
þegar lýsistonnið stóð í rúmum 300
dollurum. Það hlóðust upp miklar
birgðir af olíunni og henni hefur
verið ausið út á markaðinn á mjög
lágu verði, allt niður í 225 dollara
tonnið. Orsökin er sem sé ekki sú,
að framboð á lýsi sé of mikið,"
sagði Jón Reynir.
Helsti markaður íslendinga fyrir
loðnulýsi hefur verið Bretland. Um
90% af lýsisútflutningi íslendinga
hafa farið þangað, að sögn Jóns
Reynis. Afgangurinn hefur svo
farið til meginlands Evrópu.
Þegar best lét var lýsisútflutn-
ingur íslendinga um 100 tonn á
ári af þeim 6—700 tonnum sem
seljast á heimsmarkaði. „Japanir
selja stærstan hluta þess lýsis sem
selt er í heiminum, um þriðjung,
og Bandaríkjamenn næstmest.
Mest fer þetta til Evrópu. Markað-
urinn er því mjög þröngur og við-
kvæmur," sagði Jón Reynir.
Aðspurður sagði hann, að vissu-
lega hefði verðfallið á loðnulýsi
áhrif á afkomu loðnubræðslunnar,
mismikil þó eftir verksmiðjum.
„Mesta áhyggjuefnið er þó hversu
lengi verðið muni verða svona lágt
og hef ég þá næstu vertíð í huga.
Lýsið frá síðustu vertíð var ekki
allt selt á þessu lága verði þó
einhveijar verksmiðjur eigi eitt-
hvað óselt. Þær verða auðvitað
fyrir einhveijum skakkaföllum."
Jón Reynir Magnússon kvaðst
ekki vita hve miklar birgðir af
loðnulýsi væru nú til hérlendis.
Bogdan
endurráðinn
Bogdan Kowalczyk var seint
í gærkvöidi endurráðinn
þjálfari íslenska handknatt-
leikslandsliðsins fram yfir
Ólympíuleikana í Seoul í
Kóreu 1986. Samningurinn er
háður þeim fyrirvara að
Bogdan fái tilskilin leyfi
pólskra yfirvalda til áfram-
haldandi starfs hérlendis.
Bogdan hélt utan snemma í
morgun.
Sjá íþróttir bls. 53.