Morgunblaðið - 27.04.1986, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRÍL1986
Mælitæki sett upp við Miklubraut:
Meiri mengun en
reiknað var með
NÝLEGA voru sett upp við
Miklubraut, skammt frá Mikla-
torgi, tæki til að mæla loft-
mengun í Reykjavík. Fyrstu
mælingar benda til þess að loft-
mengun í borginni sé meiri en
reiknað hefur verið með.
Ólafur Pétursson, forstöðumaður
mengunarvama Hollustuvemdar
ríkisins, sagði að tækin hefðu verið
sett upp 26. mars og yrðu þar í að
minnsta kosti eitt ár. Tilgangurinn
væri að mæla loftmengun í Reykja-
vík til að hafa upplýsingar um
ástandið nú til samanburðar við
seinni tíma. Einnig væri verið að
safna upplýsingum vegna útgáfu á
viðmiðunarmörkum fyrir loftgæði
hér á landi. Hann sagði að þennan
stutta tíma, sem liðinn væri, hefði
mælst töluverð mengun, meiri en
menn áttu von á fýrirfram. Ólafur
sagði að ekki væri hægt að draga
miklar ályktanir af þessum fyrstu
tölum, mælingar þyrftu að fara
fram í lengri tíma.
Mengunarvamimar eiga tvö tæki
til að mæla loftmengun. Hitt tækið
er á Akranesi að mæla mengun
Nakinn maður og
annar í f ötum
LÖGREGLAN í Reykjavík leitaði
nakins manns í Vogahverfi að-
faranótt laugardagsins. Fannst
maðurinn eftir stutta leit og var
fluttur heim til sín.
Maðurinn mun fyrr um nóttina
hafa farið húsavillt og lagst allsnak-
inn til svefns í rúmi, sem hann taldi
vera sitt. Þegar hinn rétti húsráðandi
kom heim til sín brá honum að vonum
við að sjá hinn óboðna gest í rúmi
sínu. Bera manninum brá ekki síður
þegar hann vaknaði og sá alklæddan
mann standa yfir sér og er hann
uppgötvaði mistök sín varð honum
svo mikið um að hann hljóp út úr
húsinu án þess að hirða um að klæða
sig. Lögreglan kom á vettvang
skömmu síðar, fann manninn í ná-
grenninu og flutti hann heim.
vegna Sementsverksmiðjunnar.
Tækin hafa undanfarin ár verið á
Sauðárkróki vegna Steinullarverk-
smiðjunnar og á Reyðarfirði vegna
fyrirhugaðrar Kísilmálmverk-
smiðju.
Verkföll á
farskipum
að skella á
ÁRANGURSLAUS samning^-
fundur var á föstudag hjá rikis-
sáttasemjara í kjaradeilu undir-
manna á farskipum og skipafé-
laganna. Ríkissáttasemjari mun
athuga með grundvöll frekari
samningaviðræðna eftir helgina
en Sjómannafélag Reykjavikur
hefur boðað ótímabundið verk-
fall undirmanna á farskipum frá
ogmeð l.maí.
Skipstjórar á farskipum hafa
boðað tveggja sólarhringa verkfall
sem hefst á hádegi næstkomandi
þriðjudags, 29. aprfl, ef ekki hafa
þá tekist samningar. Annað þriggja
daga verkfall er boðað nokkrum
dögum síðar. Ekkert hefur verið
ákveðið með framhald viðræðna í
deilu skipstjóranna og skipafélag-
anna.
Ríkissáttasemjari hefur boðað
samninganefndir Bflstjórafélagsins
Sleipnis og vinnuveitenda þeirra til
samningafundar á miðvikudags-
morgun. Sleipnir hefur boðað verk-
fall frá og með 1. maí næstkomandi.
©
INNLENT
Dómsmálaráðherra:
JÓN Helgason, dómsmálaráð-
herra, sagði í setningarræðu á
þingi Landssambands lögreglu-
manna, að ákveðið hefði verið
af framlengja uppsagnarfrest
lögreglumanna um þrjá mánuði.
Ákvörðun þessi er tekin sam-
kvæmt heimild í lögum um réttindi
og skyldur opinberra starfsmanna,
þegar um hópuppsagnir er að ræða.
Ekki hefur enn verið gefín út opin-
ber tilkynning um þessa ákvörðun
af hálfu dómsmálaráðuneytisins, en
samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið fékk í ráðuneytinu á
föstudag, mun það verða gert á
næstu dögum. Uppsagnir lögreglu-
manna áttu að taka gildi um mán-
aðamótin júní/júlí næstkomandi.
Mælitæki mengunarvaraa við Miklubraut.
Morgunblaðið/Bjami
Stefnt að útflutningi
1.000 neta á þessu ári
- segir Pétur Th. Pétursson, framleiðandi björgunarnetsins Markúsar
Framlengir uppsagnarfrest
lögreglumanna um þrjá mánuði
„VIÐ íslendingar erum með
Markúsarnetinu enn að leggja
fram björgunartæki, sem veldur
byltingu í björgun manna úr sjó.
Á sýningunni „Safety at Sea“ í
London nýlega og ráðstefnu þar
um björgunarmál kom fram
skortur á björgunartækjum eins
og Markúsametinu. Menn voru
sammála um það, að með tilkomu
netsins, væri kominn grundvöll-
ur til setningar alþjóðlegra
reglna um björgunartæki til að
ná mönnum úr sjó. Nú stefnum
við að útflutningi 1.000 neta á
árinu,“ sagði Pétur Th. Péturs-
son, framkvæmdastjóri Markús-
araetsins, í samtali við Morgun-
blaðið.
„Sú tilraun, sem við höfum verið
að gera í björgunarmálum, meðal
annars með framleiðslu Markúsar-
netsins, hefur sýnt og sannað að
við erum á réttri leið og höfum
stigið stórt skref fram á við í örygg-
ismálum sjómanna. Þessi sýning
snerist fyrst og fremst um öryggi
á sjó og þar komu fúlltrúar sam-
gönguráðuneyta ýmissa landa,
björgunarsveita, hernaðaryfírvalda
og sjómanna og útgerða. Þar kom
fram mikill fjöldi björgunartækja,
en fátt nýtt annað en netið. Beinn
árangur að mínu mati er sá, að
netið hefur náð fótfestu í Bretlandi
og hugmyndin hefur verið kynnt
þeim aðilum, sem fjalla um öryggi
á sjó víða um heim. Sala á netinu
er þegar hafín á þessum mikilvæga
markaði í Bretlandi og fyrstu 50
netin fara þangað í næstu viku.
Ennfremur eru samningar við
umboðsmenn um dreifíngu víða um
heim hafnir í kjölfar sýningarinnar.
Framleiðsla á netinu getur þvl
hafizt með markvissan útflutningi
í huga. Á þessu ári er stefnt að
því að selja um 1.000 net erlendis.
Þó það sé ég, sem vinn að sölu
og kynningu netsins, er það íjarri
því að ég eigi heiðurinn af því að
koma Markúsametinu á alþjóðlegan
markað og stuðla með því að auknu
öryggi sjófarenda. Það hafa miklu
fleiri lagt hönd á plóginn og sér-
takalega eiga íslenzkir sjómenn
þakkir skyldar fyrir að hafa í upp-
hafi tekið netinu vel og sannað
notagildi þess. Það er alltaf ánægju-
legt, þegar íslenzkt hugvit nær
langt í heiminum, sérstaklega þegar
það getur orðið til þess að bjarga
mannslífum," sagði Pétur TH. Pét-
ursson.
Bandarísk samsteypa tveggja skipafélaga fær leyfi til að sigla til íslands:
Höfum ekki í hyggju að sigla
til íslands í náinni framtíð
Byggðastofnun til Akureyrar:
Spurning um kjark og
þor manna til að beita
sér að byggðamálum
- segir Sigurður J. Sigurðsson bæjarfulltrúi
„Það er ljóst að ákvörðunin um
staðsetningu Byggðastofnunar verð-
ur pólitísk. Þetta er spuming um
kjark og þor manna til að beita sér
fyrir byggðamálum," sagði Sigurður
J. Sigurðsson, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokkins á Akureyri, í samtali
við Morgunblaðið, í framhaldi af
umræðunni um staðsetningu stofnun-
arinnar. í samþykkt bæjarráðs segir
að ráðið taki undir „þau atriði sem
fram koma í skýrslunni og mæli með
því að Byggðastofnun verði staðsett
á Akureyri.
Því skorar bæjarráð á stjóm
Byggðastofnunar að taka ákvörðun
um að staðsetja stofnunina á Akur-
eyri og stíga þar með stórt skref í
byggðamálum."
Akureyri.
BÆJARRÁÐ Akureyrar telur
ekkert koma fram í skýrslu Hag-
vangs um „kosti og galla staðsetn-
ingar Byggðastofnunar á Akur-
eyri“, sem bendi til þess að stofn-
unin þurfi að starfa á höfuðborg-
arsvæðinu. Sem kunnugt er hefur
það verið rætt í vetur að færa
Byggðastofnun og var Hagvangi
falið að gera nefnda skýrslu.
seg-ir forstjóri American Automar Inc.
í FRÉTT í bandaríska viðskiptablaðinu Jouraal of Commerce
þann 23. þessa mánaðar er skýrt frá því að samsteypa tveggja
bandarískra skipafélaga hafi fengið heimild þarlendra yflrvalda
til að sigla tveimur flutningaskipum tvisvar í viku tíl nokkurra
hafna í Evrópu, þar á meðal til hafna á íslandi. Heimildin tók
gildi 15. april síðastliðinn.
Fyrirtækin tvö heita Automar
VI Corporation og Crowley Atl-
antic Inc., en þau eru bæði dóttur-
fyrirtæki American Automar Inc.
Rekstrarlejrfí skipanna nær til
hafna fyrir botni Miðjarðarhafs
og ýmissa hafna í Evrópu. Er
sérstaklega tekið fram að leyfíð
nái til hafna á Atlandshafsströnd
Spánar, auk hafna á Grænlandi,
Azoreyjum og íslandi.
Forstjóri American Automar,
J.W. Charriar, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að skipafélög-
in hefðu sem stæði ekki í hyggju
að sigla til íslands. American
Automar hefði um nokkuð langan
tíma haft eitt skip í vöruflutning-
um milli hafna í Evrópu og Banda-
ríkjunum, og til að byija með
hefði samsteypan aðeins áhuga á
að auka umsvifin í þeim flutning-
um, en myndi fara varlega í sak-
imar að leita á ný mið. Þó hefðu
félögin tekið upp reglubundnar
siglingar til Azoreyja. Hann
kvaðst ekki vera f stakk búinn til
að svara því hvort samsteypan
hygðist í framtíðinni keppa við
Rainbow Navigation Inc. um sjó-
flutninga fyir herliðið á Keflavík-
urflugvelli, en ítrekaði að það
væri ekki ætlun samsteypunnar
nú að sigla til íslenskra hafna.
Siglufjörður:
Erfið sigling
til heimahafnar
SIGLING skuttogarans Sigluvíkur
SI-2 til heimahafnar á Siglufirði
hefur gengið erfiðlega en togarinn
fékk á sig brotsjó þar sem hann
var að veiðum f Víkurál.
Sigluvík SI-2 og Stálvík SI-1, sem
kom til aðstoðar og fylgdi togaranum
með landi til Siglufjarðar, voru stödd
út af Barða í vonskuveðri í gær-
morgun. Engin slys hafa orðið á áhöfn
skipsins. _ Fréttaritari