Morgunblaðið - 27.04.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRÍL1986
25
EB-löndin sækjast eftir fisk-
inum til eigin vinnslu
Menn hafa haldið því fram, að
með ferskfískútflutningi sé verið
að flytja fískvinnsluna úr landi.
Meirihluti ferska fisksins fer til
vinnslu erlendis enda virðist ekki
um teljandi aukningu á eftirspum
eftir ferskum físki að ræða. Evr-
ópubandalagið tollar ferskan físk,
sem inn í lönd þess kemur. Á óunn-
um físki em þessir tollar lágir, 2
til 3,7%, en á flökum háir, 15 til
18%. Með þessum tollum virðist
augljóst að EB sé að sækjast eftir
hráefni til vinnslu. Fiskvinnslunni
er enginn sérstakur hagur að því
að fíysta fískinn eftir að hann hefur
verið unninn. Því er fyllilega eðlilegt
að flytja fíakaðan og snyrtan físk
út, verði þess óskað af hugsanlegum
kaupendum og tollar verði iækkað-
ir. Á þann hátt ætti ennfremur að
vera auðvelt að skipta arðinum á
milli aðilja í sjávarútvegi. Aðalatrið-
ið virðist því vera að halda tryggð
við mikilvægustu markaðina og
veiðar, vinnsla og útflutningur,
hvemig sem honum er háttað,
miðist við hagsmuni heildarinnar,
eigenda auðlindanna, og sé í náinni
samvinnu sjómanna, útgerðar og
fiskvinnslu.
Spurning um líf eða dauða
í Vestmannaeyjum býr maður
sem heitir Jóhannes Kristinsson,
einn upphafsmanna útflutnings
fersks físks í gámum þaðan. Hann
átti áður bátinn Helgu Jóh., en fór
á hausinn og missti hann. Jóhannes
segir, að hann hafí verið byijaður
á gámaútflutningi á þeim tíma, en
ekki fengið nægilegt svigrúm til að
rétta sig af. Síðan þessi útflutning-
ur fór af stað af krafti, hafí að
minnsta kosti fjórir Eyjabátar
bjargast frá gjaldþroti. „Mér fínnst
mjög miður hve neikvæð umræðan
um þennan útflutning hefur verið.
Við höfum nánast verið kallaðir
glæpamenn, en þetta er einfaldlega
spuming um líf eða dauða,“ segir
hann. Þetta er vissulega spuming
um líf eða dauða, en tæpast bara
fyrir einstaka útgerðarmenn og sjó-
menn. Líf eða dauði fiskvinnslunnar
og fískverkafólks og afkoma þjóð-
arinnar geta einnig oltið á þessum
útflutningi. Til þessara staðreynda
verða menn að taka tillit, þegar
rætt er um málið og lausnar eða
jafnvægis er leitað.
„Gámarnir taka það mikið frá okkur að það verður að takmarka útflutninginn eitthvað." Birgir, Grim-
laugur, Hrönn, Guðrún Halla og Guðný.
LAKE
WOHLGON
DAYS
L..irn9<>í> KcitivJf
KEN
FOLLHÍ
LeHowv
WTTH
ÚRVAL ERLEIMDRA METSÖLUBÓKA
Sendum í póstkröfu
BÓKAVERZLUN
SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR
Austurstræti 18 Sími 13135
Lto m.i.UV ( iMK tHXSH.N»
Out Of
Africa
oa tw
CHILDRETH1S
HOSPITAL
Pfeggy Anderson
ANTHONY
JOHN
HOUSE
RULES