Morgunblaðið - 27.04.1986, Qupperneq 39
MOHQUNBIAÐID, SUNNUDAGUR 27. APRÍl, 1986
39
Einkenni
MS eru mjög breytileg.
Lömun
— mismikil, í hvaða
likamshluta sem er.
Skjálfti og stjórn-
leysi
i hreyfingum.
Ktw
Þvagtruflanir
— léleg stjórn á I
þvaglátum. -3- ’
j/r
Jafnvægisleysi
— reikult göngulag
<s>
./* S
63
Skerðing á sam-
hæföum hreyfingum.
Fætur dregnir við
gang.
í fyrstu þá er MS fólk er nú yfir-
leitt mjög bjartsýnt. Enda þýðir
ekkert annað, því að þegar MS
hefur einu sinni gert vart við sig
þá birtist það líklega aftur og fólk
verður að vera sátt við að lifa með
MS Ekki bara að líta á það sem
það hefur misst heldur það sem það
hefur. Yfirleitt ganga köstin aftur
og þess eru dæmi að með árunum
fækki þeim og þau hverfi jafnvel,
þó að köstin hætti þá fær viðkom-
andi ekki sína fyrri orku til baka.
Með húsnæðinu hér vonumst við
til að ná enn betur til félaganna,
bæði með dagvistuninni og því að
hér á allt MS fólk sér athvarf og
getur skroppið í kaffi ef því er að
skipta. Svo væri gaman ef við
gætum gert eitthvað svipað og ég
sá á sambærilegu MS heimili í
Sviss, þar sem fólk kom og aðstoð-
aði á matmálstímum og oftar,
kannski í tvo þrjá klukkutíma í einu.
Þarna á ég ekki endilega við að-
standendur MS fólks öðrum fremur
heldur alla þá sem hefðu áhuga á
að styrkja gott málefni. Þeir gætu
komið hingað kannski einu sinni í
viku og spilað við fólk, lesið fyrir
það, spjallað og þessháttar. Reynd-
ar finnst mér að eitthvað í þessa
veru ætti heima inni í skólakerfinu
og þá ekki bara varðandi MS fólk,
heldur ættu unglingar að eiga kost
á að fara inn á stofnanir og að-
stoða, bæði til að gera sér grein
fyrir því hvemig lífíð er hjá öðrum
og þá ekki síst til að sjá hvað heil-
brigðið er mikilvægt."
Legudeild brýnust í dag
Þó að stóru takmarki sé náð með
tilkomu hússins við Áland, er ekki
þar með sagt að MS félagið eigi
sér ekki fleiri ámóta stór í barát-
tunni við að létta MS fólki lífíð.
„Það segir sjálfsagt einhver að ekki
megi rétta okkur litla fíngur . . .,“
segir Gyða brosandi þegar hún er
spurð um það sem félagið telji biýn-
ast þessa stundina. „En við stefnum
ofar og lengra og nú er brýnast að
komið verði á fót legudeild fyrir
fólkið okkar sem er í köstum og
þá erum við ekki einungis að hugsa
um MS fólkið sjálft heldur líka
aðstandendur, þeim veitir stundum
ekkert. af því að fá hvíld, geta
skroppið út án þess að fá annan til
að vera heima á meðan eða að geta
stundað eðlilega vinnu á J>eim tíma
sem ástvinur er í kasti. Eg held að
legudeild sé ekkert óraunhæf, þar
sem okkur sýnist að þessi stöð hér
eigi eftir að spara ríkinu miklar fjár-
hæðir í legugjöldum og læknar geta
bent fólki á að fara hingað í endur-
hæfíngu og dagvist. En stöðin sem
slík stendur líka fyrir svo mikið
meira. Með því að félagið reki hana
er MS fólki gert kleift að þiggja
ekki bara heldur gefa líka og hér
erum við að hjálpa okkur sjálfum
til sjálfsbjargar," segir Gyða Ólafs-
dóttir.
VIÐTAL:
VILBORG EINARSDÓTTIR
Mögulegar
orsakir MS
Orsakir MS eru ekki vitaðar, en þrjár tilgátur eru á lofti um
hveijar þær geti verið.
1)
VEIRUR
Veirur ráðast inn í líkamann
og fjölga sér þar. Flestar veirur
eru fljótvirkar. Sumar seinvirkar
veirur birtast aftur og aftur og
valda nýjum einkennum. Aðrar
seinvirkar veirur eru til staðar í
líkamanum mánuðum, jafnvel
árum saman áður en að þær valda
einkennum.
MS gæti hugsanlega stafað af
sérstaklega seinvirkri veiru eða
verið óeðlileg viðbrögð gagnvart
þekkti veiru.
2)
ÓNÆMISSVÖRUN
Líkaminn hefur innbyggt vam-
arkerfí sem ræðst gegn „innrás"
baktería og veira. Þetta vamar-
kerfí truflast stundum og ræðst
gegn eigin frumum líkamans. Það
kallast sjálfsónæmissvömn.
MS gæti hugsanlega stafað af
því að líkaminn ræðst gegn eigin
frumum vegna bilunar í ónæmi-
skerfínu.
Sambland veira og
ónæmissvörunar
Þegar veirur ráðast inn í líkam-
ann ná þær valdi á frumunum.
Vamarkerfíð gæti ruglast þar eð
sumar veirur ná valdi á hluta af
frumu. Það ræðst þá bæði á veir-
una og frumuna sjálfa sem hýsir
veiruna.
(Ur bæklingnum: Það sem allir
ættu að vita um MULTIPLE
SCLEROSIS
Minning:
Erik Söderin
Þann 25. þ.m. var tii grafar
borinn í Östersund í Svíþjóð íslands-
vinurinn Erik Söderín. Við fráfall
hans minnist ég þess tíma, er hann
kom hingað til að kenna Ármenn-
ingum á skíðum. Það er nú svo að
fólk er maður kynnist á lífsleiðinni
skilur eftir sig mismunandi djúp
spor í vitund manns. Erik Söderín
var einn af þeim mönnum sem gott
var að hafa til eftirbreytni. Kennar-
ar hafa mismunandi áhrif á nem-
endur sína, en mér segir svo hugur
um, að þeir sem nutu tilsagnar
hans hefðu í flestu viljað líkjast
honum. Það var veturinn 1950, að
Erik réðst sem skíðakennari hjá
Skíðadeild Ármanns. Á þeim tíma
var ég allar helgar í Jósepsdal í
góðum hóp glaðværs æskufólks, og
nú þegar ég minnist þess tíma renna
fram í huga mér svo ótal margar
góðar minningar um þá góðu og
gömlu daga og það fólk sem þá
sótti Jósepsdalinn. Öll hrifumst við
af kappanum, enda var hann slíkur
öndvegismaður og góður kennari
aðjafnvel verstu skussartóku fram-
förum hjá honum. En svo kom það
nú á daginn að vissulega átti hann
hingað annað og meira erindi en
að kenna ungu fólki á skíðum því
hér fann hann konuefnið sitt. Ástina
sína, og þar með var hann ekki
bara orðinn Armenningur heldur
líka elskulegur tengdasonur og
mágur í Eyjólfsfjölskyldunni sem
var vissulega burðarásinn í skíða-
deild Ármanns á þeim tíma. Sigrún
Eyjólfsdóttir orðin Söderín var nú
á förum til Svíþjóðar. Við sem til
þekktum glöddumst af hjarta, því
við vorum sannfærð um að Sigrún
okkar hefði hamingjuna höndlað
með svo góðum dreng. Ógleyman-
leg er mér sú stund er þau lögðu
frá landi með Gullfossi nýgift, svo
falleg og hamingjan skein úr andlit-
um þeirra. Ármenningar og annað
gott skíðafólk hópaðist niður á höfn
til að kveðja þau og áma þeim
heilla.
Vissulega söknuðum við Sig-
rúnar úr okkar hópi en við
samglöddumst henni þar sem hún
sveif á öldum ástarinnar. Erik og
Sigrún hafa síðan búið í Svíþjóð í
Östersund, og þar hefur hann verið
skíðakennari og var það honum ljúft
starf því íþróttir og þá einkum
skíðaíþróttir áttu hug hans allan.
Margir eru þeir Islendingar sem þar
hafa dvalið og notið gestrisni þeirra
og fyrirgreiðslu.
Böm þeirra em fímm, íjórir
drengir og ein stúlka, öll hið mann-
vænlegsta fólk, móður og föður til
mikillar gleði, og hafa íþróttir og
Qallaferðir alla tíð átt hug og hjarta
þessarar íjölskyldu.
Fyrir tveimur árum var ég gestur
þeirra ásamt þrem vinkonum mín-
um og nutum við þar mikillar gest-
risni og umhyggju er við dvöldumst
með þeim í Ijallaskála þeirra og
áttum þar ógleymanlegar stundir.
Erik var þá nokkuð hress en vissu-
lega gerði ég mér grein fyrir að
hann gekk ekki heill til skógar þó
hann tækist á við veikindin með
dugnaði og æðruleysi. Ég kveð Erik
Söderín með þakklæti fyrir góð
kynni. Blessuð sé minning hans.
Þér, elsku Sigrún mín, bömum,
öldruðum föður þínum, systkinum
og fjölskyldum þeirra votta ég ein-
læga samúð mína.
Eirný Sæmundsdóttir
Þeul tydrtakJ em maóal þclna
Mm hota k«ypt Drabwl
Sk«i|unoui
VsokjnartxmkJm
Ortcustotaun
londnrtrtcjun
Otvarptð
S|ónvarplð
ftokta
FWcv«ið
Vonlunajmannafétao Reykjavlkur
vmm
Útrýn
ÁTVR
Frjatst tromtak
VkvxMlHrtn rflcblra
Sv»kin EoUuon
Nmco
ISM
Mookoup
Morat
HP ð Utandl
VboUtand •
SparUJOður vétatjóra
Spartttadur Reykjavfkur og
■YKO
MJðtkunamiotan
HoovkkJ
Somvlnnubanklnn
Kostooerd Reyktavfkur
Elnar Guðftrmuon
Toyota umboðtð
Tlmlrm
•únoöartxrtcJnn
BoBtartðo*<l Kðpavoo*
RelknMota bankarma
Orkubú VettHorða
Sparttjöður Hafnartjaröar
minni flarvistir...
fc>akverkurinn horfinn.
öllum líöur vel...
ekki kvartaö síöan ...
I STARFI
„Minni fjarvistir.... bakverkurlnn horfinn.... öllum
líður vel..., ekki kvartað sfðan..
Þannig eru ummœll ánœgðra vlðskiptavina
okkar. Þeir eiga það allir samelginlegt að vera f
hópi þeirra sjö þúsund sem keypt hafa DRABERT
stóla á undanförnum árum.
Það er liðin sú tfð, þegar œtlast var til að
skrifstofustólamlr vœru notaðir þangað til menn
sœtu hellsulausir á gólfinu. Stjórnendur fyrlrtœkja
gera sér nú grein fyrlr mlkilvœgl þess að sltja f
góðum stól. Þelr bera nú melri umhyggju fyrir
starfsfólkinu og velja því DRABERT, sem er
vandaðastl skrlfstofustóll sem völ er á.
í húsgagnadeild okkar f Hallarmúla 2 er ávallt
mlklð úrval DRABERT stóla. Lftið við og setjlst f
DRABERT eða fálð hann lánaðan tll reynslu. Vlð
sendum einnlg myndalista og verðlista sé þess
óskað.
Sérfrœðingur Pennans kemur og stillir DRABERT
stóla hjá öllum sem þess óska, f samrœml vlð þarfir
hvers og eins. Vlð viljum standa við kjörorðin:
Ul. AAafvBrtrtakar
AJnwmar Iryootooor
FVonfcmKHan Oddi
BETRI HEILSA, AUKIN VELLÍÐAN, MEIRI AFKÖST
ALLT 1 EINNI FERÐ
rrnnrr&-
Wyxjholmlllð RoyKJalurxll (löludoMd)
Hallarmúla 2 Sfmi 83211