Morgunblaðið - 27.04.1986, Síða 52
agei jdha .vs KUOAau^Mua .aiQAjaMUDaoM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRÍL1986
oG
52
t
Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURGARÐAR STURLUSON,
Hrauntungu 8,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 29. apríl kl.
15.00.
Ina Böðvarsdóttir,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
t
Útför,
FRÍÐU GÍSLADÓTTUR,
Hjarðarhaga 46,
sem lést 17. apríl, verður frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 29. apríl
kl. 13.30.
Halldór Haraldsson, Susan Haraldsson,
Ragnheiður Haraldsdóttir, Hörður Arinbjarnar.
t
Öllum þeim er heiöruöu minningu föður okkar,
ANDRÉSAR EYJÓLFSSONAR
fyrrv. bónda og alþingismanns,
Síðumúla f Hvftársfðu
og sendu okkur samúðarkveðjur þökkum við innilega.
Sérstakar þakkir til Hvitsíðinga og ungmennafélags Reykdæla.
Þorbjörg Andrésdóttir, Ingibjörg Andrésdóttir,
Eyjólfur Andrésson, Magnús Andrésson,
Guðrún Andrésdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir samúö og hlýju við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdafööur og afa, .
SIGURÐAR JÓNSSONAR
deildarstjóra.
Hildur Bjarnadóttir,
Svanhildur Sigurðardóttir, Markús i. Magnússon,
Bjarni Sigurðsson,
Jónas Sigurðsson, Elsa Nfna Sigurðardóttir,
Ásta Sigurðardóttir, Gunnlaugur J. Magnússon,
og barnabörn.
t
Systir okkar og mágkona,
KOLBRÚN JÓNSDÓTTIR,
Laugavegl 133,
veröur jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 28. apríl kl. 15.00.
Þeir sem vildu minnast hennar láti liknarstofnanir njóta þess.
Bára Vilbergs, Bjarni ísleifsson,
Alda Acre, Sólveig Vilbergs,
Reynir Vilbergs, Steinunn Þorsteinsdóttir
og frændsystkin.
!
Eiginkona min, móðir og tengdamóöir,
ANDREA HELGA INGVARSDÓTTIR,
Hamarsbraut 12,
Hafnarfirði,
sem lést 21. apríl, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju, mánu-
daginn 28. apríl kl. 13.30.
Þeim sem vilja heiöra minningu hinnar látnu skal bent á systra-
sjóð St. Jósefsspítala, Hafnarfirði.
Ámundi Eyjólfsson,
Gunnar Ámundason, Auður Skúladóttir,
Ingólfur Halldór Ámundason, Ragnheiður Sigurbjartsdóttir.
t
Systir min og frænka okkar,
ELÍN JÓHANNESDÓTTIR
fyrrverandi hjúkrunarkona, Patreksfirði,
Áfheimum 22, Reykjavfk,
sem lést 19. apríl, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudag-
inn 28. apríl kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Sigríður Jóhannesdóttir,
Agnes Ágústsdóttir, Hannes Ágústsson,
Jóhannes Árnason, Herdfs Heiðdal,
Haukur Heiðdal, Elfn Heiðdal,
Elín H. Þorkelsdóttir,
og fjölskyldur.
Minning:
Sigurður Arnason
skrifstofusijóri
Sigurður Árnason frá Siglufirði,
skrifstofustjori Sfldarverksmiðja
ríkisins, lézt að morgni fostudagsins
18. apríl síðastliðins, 66 ára að
aldri. Útför hans verður gerð frá
Fossvogskirkju á morgun, mánu-
dag, klukkan hálf tvö miðdegis.
Sigurður fæddist að Kúskerpi í
Húnavatnssýslu 17. dag aprílmán-
aðar árið 1920. Foreldrar hans voru
Guðrún Jónasdóttir og Árni Sig-
urðsson. Ungur að árum fór hann
í fóstur til Kristjönu Sigfúsdóttur
og Sigmundar Sigurðssonar í Siglu-
fírði, sem eldri Siglfírðingar muna
vel og virtu mikils að maklegheit-
um. Siglu^örður varð síðan, lengst
af, heimabyggð Sigurðar heitins og
starfsvettvangur, sem hann bar
hlýjar tilfínningar til.
Hann sótti nám í Verzlunarskóla
íslands og brautskráðist þaðan árið
1940. Hann vann nokkur ár við
heildverzlun í Reykjavík en lagði
síðan leið sína heim í Siglufjörð.
Hann réðst sem gjaldkeri til Sfldar-
verksmiðja ríkisins árið 1948, sem
þá vóru veigamikill hlekkur í „sfld-
arævintýrinu", sem Qármagnaði að
hluta fárra áratuga hraðferð þjóð-
arinnar frá fátækt til velmegunar.
Sigurður varð síðan skrifstofustjóri
SR árið 1959 og gegndi því starfi
til dauðadags. Sigurður flutti með
fjölskyldu sinni til Reykjavíkur árið
1982 er aðalbókhald fýrirtækisins
var flutt til Reykjavíkur.
Sigurður Amason var einn af
eigendum Verzlunarfélags Siglu-
íjarðar hf. og stjómarformaður þess
fyrirtækis um iangt árabil.
Hann kenndi um árabil bók-
færslu við Gagnfræðaskóla Siglu-
Qarðar og sinnti því starfi af sömu
samviskusemi sem öðrum.
Kynni mín og Sigurðar hafa lengi
staðið. Við störfuðum saman í
stjóm Félags ungra sjálfstæðis-
manna í Siglufírði endur fyrir löngu
og var hann þá, sem löngum síðar,
hollráður, glöggsýnn og gætinn.
Var ekki laust við hann hefði taum-
hald á okkur hinum, sem þar störf-
uðu með honum, vórum yngri og
kunnum ekki ævinlega skil á því,
að kapp er bezt með forsjá. Sigurð-
ur vann Sjálfstæðisflokknum í
Siglufírði farsælt starf. Hann var
um íangt árabil oddviti kjörstjómar
á staðnum.
Við Sigurður áttum og samleið
í Lionsklúbbi Siglufjarðar í rúma
tvo áratugi. Þar var hann sami ljúfí
félaginn og hvarvetna og sat oft í
stjóm klúbbsins.
Við áttum einnig samleið í
bridge-klúbbi í tæpa tvo áratugi,
ásamt tveimur góðvinum okkar
norður þar. f þessum félagsskap
var Sigurður hrókur alls fagnaðar
og sýndi á sér hliðar sem hann
hampaði ekki hvunndags.
Ekki dró það úr kynnum okkar
Sigurðar að dóttir hans, Guðrún,
og sonur minn, Kjartan, gengu í
hjónaband og við urðum afar sömu
bamanna. Það var raunar kórónan
á löng kynni okkar.
Sigurður Árnason kvæntist eftir-
lifandi konu sinni, Sigríði Sigurð-
ardóttur, árið 1949. Hjónaband
þeirra var eins og bezt verður á
kosið og margra ánægjustunda
nutum við, vinir hans, á vistlegu
heimili þeirra hjóna. Þeim hjónum
varð þriggja bama auðið: Guðrún
Kristjana, gift Kjartani Stefánssyni,
ritstjóra. Þau eiga tvö böm. Klara
gjft Þresti Lýðssyni, framkvæmda-
stjóra. Eiga þau þrjú böm. Ámi
Geir, nemur rafmagnsverkfræði.
Unnusta hans er Pálína Magnús-
dóttir, nemi íbókasafnsfræðum.
Sigurður Ámason var um margt
eftirtektarverður persónuleiki. Það
sem einkenndi hann öðru fremur
var vinnusemi, vandvirkni og sam-
vizkusemi. Vinnuframlag hans (
þágu Sfldarverksmiðja ríkisins var
langt umfram það sem venjulegt
getur talizt. Allir, sem áttu við hann
samskipti, virtu hann og báru til
hans velvilja. Ég held að hann hafí
ekki átt einn einasta óvildarmann.
Hann kveður því þetta tilverustig
með þá einkunn í lok lífsgöngunnar
sem allir gætu vel við unað.
Ég og fjölskylda mfn þökkum
ljúfmennsku og vináttu Sigurðar
Amasonar. Megi hann eiga góða
heimkomu sem hann hefur til unnið.
Sigríði og bömum þeirra sendum
við samúðarkveðjur.
Stefán Friðbjamarson
Fréttin um lát Sigurðar Ámason-
ar, skrifstofustjóra, á föstudags-
morgun, 18. apríl sl., kom öllum,
sem hann þekktu mjög á óvart og
ekki síst okkur sem unnum með
honum. Undanfarið hafði hann
verið að vinna að lokauppgjöri
reikninga SR fyrir árið 1985 og
hafði hann orð á því daginn áður
en hann lést, að það væri á loka-
stigi. Á þessum degi átti Sigurður
66 ára afmæli. Þegar Sigurður fór
heim að lokinni vinnu á fímmtudeg-
inum talaði hann um einhveija
vanlíðan en gerði lítið úr, enda var
Sigurður ekki vanur að kvarta yfír
hlutunum.
Sigurður Ámason lauk verslun-
arskólaprófí frá Verslunarskóla ís-
lands árið 1940. Hann réðist til
Sfldarverksmiðja ríkisins í Siglufirði
1948, er hann tók þar við starfí
gjaldkera. Sigurður hafði unnið
áður við skrifstofustörf í Reykjavík,
en fluttist nú til síns heimabæjar,
Siglufjarðar, en þar ólst hann upp
hjá fósturforeldrum sínum, Sig-
mundi Sigurðssyni og Kristjönu
Sigfúsdóttur. Árið 1959 tók Sigurð-
ur Ámason við starfí skrifstofu-
stjóra, sem hann gegndi til dauða-
dags. Fyrir utan fjögur sl. ár starf-
aði Sigurður á Siglufírði, en hann
fluttist til Reykjavíkur 1982, þegar
aðalbókhald SR var flutt á skrifstof-
una í Reylqavík.
Með Sigurði er genginn einn
mætasti starfsmaður Síldarverk-
smiðja ríkisins, sem vann sín störf
af alúð, trúmennsku og framúrskar-
andi vandvirkni. Hann bjó yfir
mikilii bókhaldsþekkingu, sem hann
hafði ánægju af að miðla öðrum
og hefur undirritaður heyrt það frá
mörgum nemendum hans úr Gagn-
fræðaskóla Siglufjarðar að hann
hafí verið frábær kennari, en Sig-
urður kenndi bókfærslu við skólann
í mörg ár.
í starfi sínu hjá Sfldarverksmiðj-
um ríkisins þurfti Sigurður eðlilega
að hafa samskipti viið hina mörgu
viðskiptamenn fyrirtækisins og þá
ekki síst við hina ýmsu útgerðar-
menn, sem lögðu upp afla hjá SR.
Á síldar- og loðnuvertíðum var oft
mikið um að vera og stundum heitt
í kolunum og þeir, sem til þekkja,
Skreytingar vid
öll tækifæri
E i ð i s t o r g i
simi 61 12 22
Nnr. 6568-3822
170 Seltjarnarnes
í s I a n d
vita að samskipti við útgerðarmenn
og sjómenn á annatímum eru ekki
vandalaus. Með prúðmennsku sinni
ogrósemi leysti Sigurður vandamál,
sem upp komu í þessum samskipt-
um á farsælan hátt, þannig að báðir
máttu vel við una og hefur sá sem
þetta skrifar ekki heyrt Sigurði
hallmælt af neinum hinna fjölmörgu
viðskiptavina fyrirtækisins.
Maður eins og Sigurður, sem svo
lengi hefur unnið hjá sama fyrir-
tækinu verður hluti af því sjálfur
og fyrirtækið hluti af manninum.
Það er því erfitt að hugsa sér SR
án Sigurðar Ámasonar og geta
ekki lengur slegið á þráðinn til hans
til að fá upplýsingar af ýmsu tagi,
sem hann ætíð gaf fúslega og fljótt.
Sfldarverksmiðjur ríkisins hafa
verið lánsamar að hafa mann eins
og Sigurð Ámason svo lengi í sinni
þjónustu, en kallið er komið og það
verður ekki aftur tekið. Starfsmenn
Síldarverksmiéja ríksins kveðja
góðan vin og félaga, samstarfs-
mann, sem ekki mátti vamm sitt
vita og ætíð var reiðubúinn að leysa
hvers manns vanda með einstæðri
prúðmennsku.
Við, samstarfsmennimir, vottum
eiginkonu Sigurðar, Sigríði Sigurð-
ardóttur, bömum þeirra, tengda-
bömum og bamabömum samúð
okkar vegna hins skyndilega frá-
falls ástríks eiginmanns, föður og
afa. Jón Reynir Magnússon
Mánudaginn 28. apríl verður til
moldar borinn Sigurður Ámason.
Það er ekki ætlun mín að rekja
æviferil Sigurðar, til þess eru aðrir
miklu hæfari, en ég get ekki látið
hjá líða að minnast hans nokkmm
fátæklegum orðum.
Fundum okkar Sigga bar fyrst
saman 1973 er ég kom til Siglu-
fjarðar í heimsókn á heimili hans.
Það sem þá strax vakti athygli mína
f fari Sigga var hógværð, ljúf-
mennska og vinnusemi. Þessir eig-
inleikar komu æ skýrar í ljós eftir
því sem ég kynntist honum betur.
Aldrei heyrði ég hann hæla sjálfum
sér né miklast- af sínum verkum.
Öll böm sem hann umgengust,
löðuðust að honum og sú þolinmæði
og hlýja sem hann sýndi þeim var
mikil. Vinnusemi hans var með ólík-
indum og það sem honum féll verst
var að hafa ekkert fyrir staftii.
Þannig maður var Siggi.
Eitt af því sem hann hafði mikið
gaman af, var að setjast að tafli.
Sennilega skipta þær þúsundum
skákimar sem við Siggi tefldum
saman og einhvem veginn fínnst
mér ótrúlegt að við eigum ekki eftir
að taka nokkrar skákir á næstunni,
en öraggt er að er ég hverf yfír
móðuna miklu, mun Síggi bíða mín
með uppraðað tafl.
Það hvarflaði ekki að mér að
kvöldi 17. aprfl, er ég drakk kaffí
hjá Sigga og Sirrý í tilefni 66 ára
afmælis hans, að morguninn eftir
yrði hann allur. Tíminn sem honum
var skammtaður í skák lífsins, rann
út öllum að óvörum og eftir standa
eiginkona hans, Sigríður Sigurðar-
dóttir og böm þeirra hjóna, Guðrún,
Kiara og Ámi Geir.
Þeirra huggun eru ljúfar minn-
ingar um góðan dreng, minningar
sem aldrei verða frá þeim teknar.
Megi góður Guð veita ykkur
styrk í ykkar sorg svo og öllum
þeim sem Sigurði unnu.
Þ.L.