Morgunblaðið - 27.04.1986, Qupperneq 60
SUNNUDAGUR 27. APRÍL 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
„Hreint bull
að Viðey sé
föðurleifð
Reykjavíkur“
— segir Þór Magnús-
son þjóðminjavörður
„ÉG ER mjög óánægður með
þessi lög. í mínum huga er Við-
eyjarstofa og nánasta umhverfi
hennar einn af þeim stöðum sem
þjóðin öll á að eiga en ekki aðeins
hluti hennar. Eg met hana til
jafns við sérstaka staði þjóðar-
innar eins og ÞingveUi, GuUfoss
og €!eysi,“ sagði Þór Magnússon
þjóðminjavörður þegar leitað var
álits hans á nýsamþykktum lög-
um frá Alþingi um að færa
Reykjavíkurborg hluta ríkisins í
Viðey að gjöf á 200 ára afmæU
borgarinnar.
Þór sagðist fyrst hafa frétt um
þetta mál í fjölmiðlum og hafi hann
mótmælt því. Þetta væru forkastan-
leg vinnubrögð, meðal annars í ljósi
þess að það hefði ekki svo lítið verið
haft fyrir því á sínum tíma þegar
ríkið keypti Viðeyjarstofu og iandið
tí kring. Síðan hefði verið unnið að
viðgerð stofunnar og Alþingi meðal
annars samþykkt fyrir einu ári að
hraða verkinu í tilefni af 200 ára
afmæli Reykjavíkur. Hins vegar
hefði ekki verið veitt nægjanlegt fé
til verksins og nú kæmi þetta sama
Alþingi og losaði sig við það sem
hvem annan ómaga.
Þór sagði að sér virtist þetta
ekki vera heiðursgjöf heldur iiti rík-
ið á Viðeyjarstofu sem óþægilegan
bagga sem það þyrfti að losa sig
við. Hann sagði að Viðey hefði alla
tíð komið mikið við sögu landsins
alls, en ekki sérstaklega við sögu
Reykjavíkur. „Það er hreint bull
sem fram kemur í greinargerð með
frumvarpinu að Viðey sé „föðurleifð
Reykjavíkurborgar". Ég fæ ekki séð
hvemig menn geta sett slíka vit-
leysu á blað,“ sagði þjóðminjavörð-
ur einnig.
Miklar
óspektir
unglinga í
miðbæ og
Breiðholti
MIKLAR óspektir voru í miðbæ
Reykjavíkur og Breiðholti á
föstudagskvöldið og aðfaranótt
laugardagsins af völdum ölv-
aðra unglinga. Mikið var um
rúðubrot, bæði í miðbænum og
í Breiðholti, og meðal annars
voru unnar skemmdir á strætis-
vagni, sem flutti unglinga úr
miðbænum upp í Breiðholt.
Unglingamir bytjuðu að tínast
niður í miðbæ um kvöldmatarleyt-
ið og voru þeir famir að skipta
hundruðum er leið á kvöldið. Mun
ástæðan hafa verið sú, að sam-
ræmdum prófum í grunnskólum
borgarinnar var lokið. Er leið að
Misskildir sérhagsmunir
hindruðu framgang málsins
- segir sjávarútvegsráðherra um umfjöllum frumvarps um selveiðar á Alþingi
„ÞAÐ VAR mikill meirihluti á
Alþingi fylgjandi frumvarpinu um
selveiðar og ég lýsi fullri ábyrgð
á hendur þeim, sem af misskildum
sérhagsmunum komu í veg fyrir
lýðræðislega afgreiðslu þess. Það
voru ákveðnir menn, sem settu sig
upp á móti því, meðal annars úr
Sjálfstæðisflokknum og ég get
ekki annað en áfellzt þá,“ sagði
Halldór Asgrímsson, sjávarútvegs-
ráðherra, í samtaii við blaðið.
„Það var mjög bagalegt á ýmsan
hátt, að þetta frumvarp skyldi daga
uppi á Alþingi. Þetta er í þriðja skipti,
sem ég legg málið fyrir Alþingi. Það
voru gerðar nokkrar breytingar á
frumvarpinu frá því það var lagt fram
síðast og það hefði átt að taka mjög
skamman tíma að fjalla um málið í
neðri deild, en þar fóru fram allveru-
legar umræður, sem voru nánast
endurtekning á umræðum frá fyrra
ári. Málið fór síðan til efri deildar,
að mínu mati alveg nægilega tíman-
lega með hliðsjón af því að þingmenn
höfðu vitað um það mjög lengi. Það
er hins vegar alveg ljóst að það voru
ákveðnir menn í þinginu, sem töldu
við hæfi að koma í veg fyrir lýðræðis-
lega afgreiðslu þessa máls eins og
áður.
Hvaða áhrif þetta hefur, geri ég
mér ekki grein fyrir eins og er. Það
stóð til að halda áfram fækkun sels
við Breiðafjörð. Þar hafa komið upp
vandamál vegna gamalla laga, sem
stóð til að nema úr gildi, en þar er
mikið af útsel. Síðan má segja að
mál þetta hafi verið hártogað á allan
hátt og nánast sport hjá ákveðnum
þingmönnum að þvæla það fram og
til baka á grundvelli einhverra mis-
skilinna sérhagsmuna. Með þessu eru
þeir að koma í veg fyrir eðlilega
stjórnun þessara veiða og hafa að
engu mjög alvarleg tilmæli frá verka-
fólki, sjómönnum og helztu hags-
munaaðailum í sjávarútvegi. Það er
ekkert í þessu máli, sem gengur mjög
gegn hagsmunum bænda og land-
búnaðinum ekki til góðs að menn
skuli reka þetta mál af slíku offorsi.
Vandamál hans liggja annars staðar
og það væri nær fyrir viðkomandi
aðila að sinna þeim betur.
í efri deild voru það fyrst og fremst
Egill Jónsson og Skúli Alexanders-
son, sem þvældust fyrir málinu og
báru því við að málið hefði komið
allt of seint fram. Það er í sjálfu sér
lengi hægt að vera með slík rök, en
ég tel þau aðeins fyrirslátt. í neðri
deild voru ýmsir þingmenn, sem
reyndu greinilega einnig að koma í
veg fyrir að þetta frumvarp næði
fram að ganga. Ég gerði mér hrein-
lega ekki grein fyrir því að menn
hefðu gaman af því að gera það. Ég
verð í þessu máli að lýsa fullri ábyrgð
á samstarfsflokk minn, því það voru
fyrst og fremst þingmenn Sjálfstæð-
isflokksins, sem komu í veg fyrir að
málið næði fram að ganga. Ég vissi
ekki betur en samkomulag væri um
afgreiðslu frumvarpsins, en þegar
farið var að ræða það við forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins sögðust
þeir enga stjóm hafa á liðsmönnum
sínum í málinu. Þetta var stjórnar-
frumvarp og á ábyrgð ríkisstjómar-
innar. Það var mikill meirihluti fylgj-
andi málinu á Alþingi og það er mjög
alvarlegt þegar nokkrir menn komast
upp með það að hindra meirihluta
Alþingis í löggjafarstarfinu," sagði
Halldór Ásgrímsson.
Hundruð unglinga söfnuðust saman í miðbænum á föstudagskvöldið. Á innfelldu mynndini er unnið
að viðgerð á glugga í versluninni íkornanum í Austurstræti á laugardagsmorgun.
miðnætti var ölvun orðin mjög
áberandi með tilheyrandi slags-
málum og rúðubrotum. Upp úr
miðnætti færðust óspektimar upp
í Breiðholt þar sem rúðubrotin
héldu áfram. Fjórar rúður fóru úr
yfirfullum strætisvagni, sem flutti
krakkana upp í Breiðhoit skömmu
eftir miðnætti. Margir ungling-
anna hlutu meiðsli í þessum
óspektum, en þau munu ekki hafa
verið alvarleg.
Talsvert var um að unglingam-
ir sæktu í sundstaði borgarinnar
og var femt tekið fáklætt í Breið-
holtslauginni. Þá hafði hópur
unglinga brotist inn í Árbæjar-
skóla og farið þar í laugina.
Fegurðardrottningar koma saman
ÞÁTTTAKENDUR í keppninni um titilinn Fegurðardrottning ís-
lands 1986 komu í gær saman i Reykjavík, en keppnin fer fram
um mánaðamótin mai-júní i Broadway. Stúlkumar eru frá vinstri
í aftari röð: Eva Georgsdóttir, Reykjavik, Rut Róbertsdóttir,
Reykjavík, Dagný Davíðsdóttir, Reykjavik, Hlin Hólm, Keflavik,
Þóra Þrastardóttir, Reykjavík og í fremri röð frá vinstri: Hjördis
Kjartansdóttir, Reykjavík, Margrét Guðmundsdóttir, Reykjavík,
Margrét Jörgensen, Hafnarfirði, Gígja Birgisdóttir, Akureyri og
Kolbrún Jenný Gunnarsdóttir, Keflavík.