Morgunblaðið - 04.05.1986, Síða 3

Morgunblaðið - 04.05.1986, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAI1986 eins og til dæmis á vissum skemmti- stöðum í Stokkhólmi þar sem Svíun- um og Finnunum er hleypt inn en hinum ekki. Eðlilega hefur þetta ekki einungis áhrif á þá sem fyrir utan bíða, heldur líka sænsku vinina sem eru á þennan hátt gerðir rétt- hærri af löndum sínum. A meðan við vorum að gera þessa mynd fann ég að stráknum, sem var farinn að kynnast okkur býsna náið í gegnum samvinnuna, lá eitt- hvað mikið á hjarta og þegar hann loks létti á sér varð það tilefni þriðju myndarinnar. Hann stóð á tímamót- um í sínu lífí, var orðinn mjög sænskur í hugsun og ástfanginn af sænskri stúlku. Fjölskylda hans hafði hins vegar haldið fast í tyrk- neskar hefðir og setti honum stólinn fyrir dyrnar. Sínum tyrkneska uppruna skyldi hann ekki gleyma, allra síst með því að kvænast út úr tyrkneska samfélaginu. Foreldrar hans fóru með hann í ferð til Tyrk- lands og þar kvæntist hann ungri tyrkneskri stúlku. Þessi mynd endar um það leyti sem hún er að koma til Svíþjóðar og hann er að gera upp við sig í hvors lands siði hann eigi að halda sem eiginmaður og heimilisfaðir. Hann ákvað á endan- um að halda í tyrkneska mátann.“ Hvað verður um tyrkneskar konur í Svíþjóð Þegar Stina Helmersson ræðir um þessar þtjár myndir er sjáanlegt að þarna er á ferðinni eitt þeirra vel stæðar og menntaðar tyrknesk- ar konur voru á einu máli á móti mér um að svona væri málum alls ekki háttað og það væri ekki hægt að draga upp svona mynd af kyn- systrum sínum af sama þjóðerni. En þessi fundur sannfærði mig um það eitt að ástandið væri ekki bara slæmt hjá fátækum tyrkneskum konum í Svíþjóð, heldur byggju þessar konur sem þarna mótmæltu ekki mikið betur, slíkur var æsing- urinn í málflutningnum. En sögunni um NizgUl svipar til margra annarra. Hún fluttist með fátækum foreldrum sínum til Sví- þjóðar sem barn. Olst upp í sænska skólakerfínu, með sænskum vin- konum og var orðin mjög vestræn í hugsunarhætti sem unglingur, þegar foreldrum hennar fannst nóg komið og fóru með hana 13 ára gamla til Tyrklands. Giftu hana 17 ára gömlum tyrkneskum manni, sem flutti svo til Svíþjóðar. Hún átti erfitt með að sætta sig við hlutskipti tyrkneskrar eiginkonu í Svíþjóð og hann átti erfitt með að átta sig á stöðu sænskra kvenna og sænsku þjóðfélagi yfirleitt. Hann treysti henni ekki og vildi helst ekki vita af henni úti á meðal sænskra, elti hana jafnvel. Þegar hún var 16 ára eignuðust þau dótt- ur. Svo kom tímabil þar sem þau voru að reyna að koma undir sig fótunum og unnu mikið og hann ákvað að senda telpuna til foreldra sinna í Tyrklandi á meðan. Það sem svo kom síðar í ljós var að hann ætlaði sér ekki að fá barnið aftur Morgunblaðið/Mats Araström Nezgiil, tyrkneska 22 ára gamla konan sem sagði sögu sína í mynd Helmersson, Gjald ástarinnar. mála sem hún hefur mikinn áhuga á, reyndar talsvert meiri en dugði í þessar þijár myndir. Hún heldur áfram: „Eftir þetta fór ég að velta því fyrir mér hvað yrði um þessa ungu stúlku og aðrar, sem ekki einungis giftast inn í ókunna fjöl- skyldu heldur ókunnuga menningu í framandi landi. Eg hitti hana sjálfa ekki, en ég hitti margar aðrar. Tyrkneskar konur sem höfðu gifst til Svíþjóðar eða þá komið þangað sem börn, alist upp með sænskum vinkonum sínum og meðtekið þeirra viðhorf að mörgu leyti. Eg vildi gera mynd um það sem verður um þessar konur, en að því var ekki hlaupið. Þær töluðu við mig, sögðu mér hreinskilnislega frá hlutskipti sínu, sem er svo allt annað en ^ænskar konur búa við, þær leyfðu mér að lesa dagbækurnar sínar — en, enginn þorði að taka þátt í gerð heimildamyndar. Allar voru þær sammála um að slík mynd væri þörf, en engin þorði. Þegar mér varð það ljóst að ég myndi ekki geta gert svona mynd nema leikna, yarpaði ég hugmyndinni frá mér því að heimildamynd með raun- 'Verulegum persónum var það sem ég vildi gera. En svo leið tíminn og einn góðan veðurdag hafði NezgÚl samband við mig, sagðist hafa frétt um áhuga minn á að segja sögu tyrkneskrar konu í mynd og kvaðst tilbúin að vera sú kona. Sagan um hana var sýnd í sænska sjónvarpinu núna um síðustu páska og það er víst verið að þræta um hana enn, að minnsta kosti sat ég kappræðufund nokkrum dögum aður en ég kom hingað þar sem til Svíþjóðar, sagðist vilja að dóttir sín fengi gott tyrkneskt uppeldi. Það varð endanlega til þess að NizgÚI tók þá ákvörðun að skilja, sem er litið hornauga í tyrkneska samfélaginu, en hefur þó áukist til muna á undanförnum árum. Hún fór til Tyrklands og rændi barninu sínu. Kom með stúlkuna til Svíþjóð- ar þar sem þær mæðgur búa í dag,“ segir Helmersson. Um viðbrögð gagnvart NizgÚl sjálfri í kjölfar sýningar myndarinn- ar segir hún, „auðvitað kveið hún talsvert sýningu myndarinnar, það þarf kjark til að bera líf sitt á borð fyrir aðra. En þrátt fyrir gagn- rýnina sem ég talaði um áðan þá hefur hún ekki beinst svo mikið að þessari konu. Hún segist fremur hafa mætt stolti hjá öðrum tyrk- neskum konum fyrir að einhver skyldi vera reiðubúin að taka þátt í að varpa ljósi á þessa togstreitu sem myndast þegar þær hefðir sem ríkja innan veggja heimilisins eru allt aðrar en gerast í samfélaginu fyrir utan,“ segir Helmersson. En henni er ekki til setunnar boðið, leiðin liggur frá Reykjavík til Skagafjarðar þar sem hún ætlar að komast á hestbak áður en haldið verður aftur til Svíþjóðar. „Það væri gaman ef hægt væri að sýna „Gjald ástarinnar", eins og myndin um NizgÚl heitir, í íslenska sjón- varpinu við tækifæri," segir hún að lokum. Brosir svo í kampinn og bætir við, „en mest hlakka ég til að sýna ykkur íslenska hestinn, eins og ég sé hann.“ Viðtal/Vilborg Einarsdóttir. Utsýnar Ungfrú og Herra ÚTSÝN valin og krýnd á gala-vorfagnaði í miðvikudaginn 7. maí (kvöldið fyrir uppstigningardag) Fjöldi skemmtiatriða, happdrættisvinningur, stórt ferðabingó, hár- og snyrtisýning, glæsileg dans- og tízkusýning. Kl. 22.00 verður fríður og föngulegur hópur 12 stúlkna og pilta kynntur og síðan valin Ungfrú og Herra Útsýn á miðnætti. Danstil kl. 03.00. Missið ekki af glæsilegri skemmtun. Fagnið sumri með Útsýn! Aðgöngumiðar og borðapantanir í Broadway, sími 77500. Ferðaskrifstofan UTSÝN Gómsætur' hátíðakvöld- verður hefst kl. 20.45. Matseðill: Púrtvínslöguð alifugla- súpa m/villikrydduðu andakjöti Lambahnetusteik m/rjómasoðnum, ferskum sveppum. Piparmintuís m/vínlegnum perum og rjóma. Verð aðeins kr. 1.100.- /CriNGASIODIN ENGIHJALLA 8 * ^46900 ______i Líkamsrækt íjtít alla! Aerobic Hörku leikfimi, eykur þol og styrk með dúndur músík. Kennt 2-3 viku. 4ra vikna byrjenda- og framhalds- flokkar og opnir tímar. Frjáls mæting i tækjasal innifalin. Aerobic hentar öllum. Kvennaleik- fimi Styrkjandi, vaxtamótandi og frískandi leikfimi 2x í viku. 4ra vikna námskeið. Vigtun, mæling. Byrjendur ogpúl. Líkamsrækt í tækjasal Ný tæki. Frábær aðstaða til líkamsræktar. Styrkj- andi, grennaridi og hressandi æfingar í vel búnum tækjasal. Ótal möguleikar. Komdu og fáðu æfinga- kerfi við þitt hæfi. Frjáls mæting. Mánaðarkort fyrir karla og konur á öllum aldri. 'M Nudd Nudd er nauðsyn. Parta- og heilnudd. Pantið tíma. Nuddari: Shamin. Samir A. Slökun Þægilegir Ijósalampar, vatnsgufa, nuddpottar. Þú slakar vel á hjá okkur eftir erfiðið. Byrjaðu strax Komdu þér í form fyrir sumarið! Hópafsláttur — Fjölskylduafsláttur. Innritun í öll námskeiðin í sím- um 46900 — 46901 — 46902 eftirkl. 14.00. ÆFINGASTOÐIN ENGIHJALLA 8 • ® 46900 I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.