Morgunblaðið - 04.05.1986, Page 10
í
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAI1986
íeranjiefT <n» mncmm
t. sawrí u» Eishts, ee orut
WisiB, iMlioa, tnA th* Brltlsh ButnSeftS
fceyand Uw Ssm, Kin«, Enpmw of Infti*. Oo
ktrtts’ í«cl»r* ltf ímvactibU ftettrninitloa
to r*nomc* th* ’mrona íor H/txlt mt roi*
Ifir ductnftnnts, anl V deslra thot *rf*ct
OKwlet t* íivsa to thls InstraMot of
BOfUcatlon imotUUly.
in tokm n»»í i fcava toraaits m
fty \mt tiiis t«th day cC SíOMixr, r4n*t**a
fciffldrtd Mri thirty 8ix, ta 1h« js'íssnc* of
th* wltatme vtxm sisn»tar«s «f« «&Mrih*i
Hertogafrúin af Windsor, áður frú Simpson, sem lézt
nýlega 89 ára að aldri varð ein frægasta og sumir segja
ein alræmdasta kona þessarar aldar þegar hún giftist
Játvarði VIII Englandskonungi, sem afsalaði sér völdum
vegna hennar.
Samband konungsins við þessa fráskildu, bandarísku
konu, sem var enn gift öðrum manni, olli pólitískri
kreppu, stofnaði sjálfri stjórnskipun Breta í hættu og
hefði jafnvel getað leitt til stofnunar lýðveldis, ef verr
hefði verið haldið á málum.
Konungurinn
var „verndari
trúarinnar og
æðsti maður
ensku kirkj-
unnar og
kirkjan ' var
andvíg hjónaskilnuðum, sem voru
hneykslunarefni á þessum tímum.
Lengst af vissu aðeins örfáir vinir
um samband þeirra. Brezk blöð
þögðu um málið lengst af og Bretar
fengu mestalla vitneskju sína um
það í bandarískum og frönskum
blöðum.
Þótt fáar konur hafi sett nokkra
konungsstjóm í eins mikinn vanda
og frú Simpson lét hún aldrei mikið
á sér bera og umgekkst fáa. Þegar
konungurinn kunngerði valdaafsal
sitt var hún í felum á Rivieraströnd-
inni.
Jafnvel þegar deilumar um
samband þeirra stóðu sem hæst í
desember 1936 hrósuðu margir
henni fyrir aðlaðandi framkomu og
stillingu, sögðu að hún hefði að
mörgu leyti góð áhrif á konunginn
og viðurkenndu að hún mundi sóma
sér vel sem drottning, ef hún hefði
ekki þann alvarlega galla að vera
fráskilin. Auk þess var hún ekki
af tignum ættum.
Sjálfstæð
Hertogafrúin af Windsor var
skírð Bessie Wallis Warfield og
fæddist í Blue Ridge Summit,
Pennsylvaníu, 19. júní 1896. Hún
var einkabam og missti föður sinn
fimm mánaða gömul. Foreldrar
hennar vom frá Baltimore og af
gömlum bandarískum ættum; faðir
hennar, Teckle Warfield, af War-
field-ættinni í Maryland og Alice
móðir hennar af Montague-ættinni
í Virginíu. í föðurætt var hún komin
af auðugum landeigendum og föð-
urafi hennar var forstjóri Baltimore
og Ohio-jámbrautarinnar.
Móðir Wallis þurfti fjárhagslegan
stuðning ættingja eftir lát manns
síns, en Wallis fékk að stunda nám
í virðulegum kvennaskóla í Balti-
more. Wallis sveið sárt að móðir
hennar var tiltölulega fátæk, en hún
hafði mikið sjálfstraust. Hún varð
þátttakandi í samkvæmislífinu í
Baltimore 1914 og tvítug að aldri-
giftist hún flugmanni úr sjóhernum,
Earl Spencer, sem var drykkfelldur
og ekki mjög efnaður.
Spencer taldi konu sína daður-
gjama og varð svo afbrýðisamur
að hann lokaði hana inni í baðher-
bergi í tæpan sólarhring. Þau hættu
raunverulega að búa saman 1921,
Wallis var í Washington, en maður
hennar þjónaði í flotanum í Austur-
Asíu.
í Washington kynntist Wallis
mörgum starfsmönnum utanríkis-
þjónustunnar og var vinsæll gestur
í boðum og samkvæmum. Hún vildi
fá skilnað, en íjölskylda hennar
lagðist gegn því og fór til Shanghai
1924 til að sættast við Spencer.
Það tókst ekki. Hún var í Peking
í eitt ár og drýgði rýrar tekjur með
pókerspili, fór til Evrópu og fékk
skilnað 6. desember 1927 eftir eins
árs dvöl í Virginíu.
Hún stundaði samkvæmislífið af
krafti og í New York kynntist hún
Ernest Simpson, syni ensks skipa-
miðlara, sem hafði auðgazt í Banda-
ríkjunum og gengið að eiga banda-
ríska konu. Simpson hafði barizt
með Bretum í stríðinu, sótti um
brezkan ríkisborgararétt og ákvað
að setjast að í London þegar hann
kvæntist Wallis Spencer 1928.
0 Hertoginn og hertogafrúin af Windsor þegarþau gengu í hjóna-
band í Frakklandi 1937.
0 Valdaafsalsskjalið.
Systir hans, Maud Kerr-Smiley,
hélt vinsæl boð í London og tók
Wallis Simpson undir sinn verndar-
væng. Wallis kunni betur við landa
sína í sendiráðinu og viðskiptalífinu
og kynntist m.a. Benjamin Thaw,
1. sendiráðsritara. Consuelo kona
hans var systir Gloriu Vanderbilt
og lafði Furness, beztu vinkonu
Játvarðar prins af Wales. í nóvem-
ber 1930 var Simpson-hjónunum
boðið að dveljast um helgi á sveita-
setri lafði Furness í Melton Mow-
bray, þar sem prinsinn var einn
gesta.
Einmana prins
í janúar 1932 hafði prinsinn
kynnzt Simpson-hjónunum svo vel
að hann bauð þeim til sveitaseturs
síns, Fort Belveder. í júní 1933
varð frú Simpson undrandi og
hreykin þegar prinsinn hélt kvöld-
verðarboð á afmælisdegi hennar.
í ársbyijun 1934 sagði lafði
Fumess við frú Simpson áður en
hún fór til Bandaríkjanna til þriggja
mánaða dvalar: „Ég er hrædd um
0 Hertogafrúin ekur til Buck-
ingham-hallar (1972).
að prinsinn verði einmana, Wallis,
reyndu að hafa ofan af fyrir hon-
um.“ Þegar lafði Furness kom heim
var hún fallin í ónáð og öll athygli
prinsins beindist að frú Simpson,
sem varð tíður gestur á heimili
hennar.
Samkvæmt endurminningum
Játvarðar prins ákvað hann að
kvænast “Wally" Simpson 1934,
þótt hún væri gift öðrum manni.
Astarævintýri þeirra fór léynt og
blöðin þögðu um það. Hann lét á
engu bera og talaði aldrei um Wally
við vini sína eða föður sinn, Georg
konung V. Hann lézt í janúar 1936
og prinsinn varð Játvarður VIII.
Einu ári áður hafði frú Simpson
sagt manni sínum að náin vinátta
hennar og „Davids" prins, væri
0 Hertoginn í útlegðinni
(1964).
saklaus. Hún kvaðst kunna að
bjarga sér og meta mikils hugul-
semi prinsins, sem lýsti sér m.a. í
því að hann gcf henni skartgripi
fyrir 50.000 pund í jólagjöf og auk
þess nýjársgjöf, sem kostaði 60.000
pund.
Þeir fáu sem vissu um samband
konungsins og frú Simpsons tóku
það ekki alvarlega, en vanmátu
hana, því að hún hafði verið heimil-
islaus ævintýrakona alla ævi og
þurfti stöðugt að öðlast viðurkenn-
ingu. .Vinur Játvarðar ritaði í dag-
bók sína 23. janúar 1935 að frú
Simpson (sem hann taldi uppburð-
arlitla en veluppalda), virtist undr-
andi á núverandi stöðu sinni og
dálítið sakbitin.
í apríl skrifaði hann: „Hún hefur
0 Ljósmynd af frú Simpson,
sem var birt þegar konungur-
inn afsalaði sér völdum.
0 Konungurinn með frú Simpson á siglingu um Adríahafið,
Tregir, Júgóslavíu (1936). Skemmtisigling þeirra á Miðjarðarhafi
vakti heimsathygli en bresku blöðin sögðu ekkifrá henni.
0 Játvarður VIII flytur út-
varpsá varpið um valdaafsal
sitt.
1 Stanley Baldwin
Mathana meira
en konungdóminn
Hertogafrúin afWindsor; sem nú erlátin, olli
valdaafsali Játvarðar VIII